Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1989, Page 6
6
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989..
Fréttir_______________________________________
Uppselt á fyrstu skákina í einvigi Jóhanns og Karpovs:
„Það varð aldrei
nein skák úr þessu“
- sagði Jóhann Hjartarson eftir fhnmtán leikja jafnteflið
Anatoly Karpov er hér óhress á svip eftir að Jóhann Hjartarson hefur unn-
ið hlutkestið um hvor þeirra ætti að hafa hvítt í fyrstu skákinni. Á mynd-
inni með Jóhanni og Karpov er aðaldómarinn, Caroi Jarecki.
Símamynd Reuter
Eftir aðeins fimmtán leiki í fyrstu
einvígisskákinni í Seattle á laugar-
dag slíðruðu Jóhann Hjartarson og
Anatoly Karpov sverðin. Jóhann,
sem hafði hvítt, bauð jafntefli og
Karpov þáði það eftir skamma um-
hugsun. Karpov náði auðveldlega að
jafna taflið eftir byijunarleikina og í
lokastöðunni var eftir htlu að slægj-
ast.
„Þetta koðnaði einhvern veginn
niður og það varð aldrei nein skák
úr þessu,“ sagði Jóhann eftir að
meistararnir höfðu samið um jafn-
tefli. Þeir tefldu spænskan leik og
beitti Jóhann „frestuðu uppskiptaaf-
brigði,“ líkt og heimsmeistarinn Ka-
sparov gerði t.a.m. gegn Beljavsky á
heimsbikarmóti Stöðvar 2 sl. haust.
í fyrstu virtist fát koma á Karpov,
eins og hann óttaðist að Kasparov
Skák
Jón L. Árnason
hefði verið með í ráðum. En hann
var fljótur aö breyta út af alfaraleiö-
um og koma Jóhanni á óvart.
Einvígið vekur mikla eftirtekt hér
í Seattle en Bandaríkjamenn eru
annars kunnir að flestu öðru en óbil-
andi skákáhuga. Uppselt var inn í
skáksalinn sem tekur um 400 manns.
í annarri byggingu þar hjá sá sovéski
stórmeistarinn Edvard Gufeld um
skákskýringar og hlýddi margt
manna á tal hans. Áhorfendur virt-
ust ánægðir þrátt fyrir að skákin
fengi svo snubbóttan endi. „Ykkur
íslendingum finnst þetta kannski
ekki merkilegt, sem eruð vanir svona
skákviðburðum, en fyrir okkur er
þetta nýtt. Mér fannst frábært hve
mikil spenna var í lofti í skáksalnum
og magnað aö sjá skákina tekna
svona alvarlega,“ sagði Bandarikja-
■maöur nokkur í óspurðum fréttum.
Aðstæður á skákstað eru í góðu
lagi eftir lagfæringar sem gerðar
voru um morguninn. Skákkapparnir
fengu nýja stóla, lýsing var bætt og
að ósk Margeirs, aðalaðstoðarmanns
Jóhanns, var hellt upp á sérstaklega
sterkt kaffi fyrir hann til að ylja sér
á yfir skákinni.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Anatoly Karpov
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7 6. Bxc6
Fyrstu leikirnir voru leiknir með
eldingarhraða á báða bóga en hér tók
Jóhann sér nokkurra mínútna um-
hugsunarfrest. Þetta „frestaða upp-
skiptaafbrigði", sem hann beitir, hef-
ur átt vinsældum að fagna undanfar-
ið. Heimsmeistarinn Garrí Kasparov
beitti því meö góðum árangri gegn
Beljavsky í Borgarleikhúsinu í okt-
óber og það hefur einnig reynst beitt
vopn í höndum aðstoðarmanna hans,
Dorfmans og Dolmatovs.
6. - dxc6 7. d3 Dd6!?
I k. # 1
Á Á iiii
i 1W
Á
A
A
& A A AAA
fi jIl fi<&>
ABCDEFGH
Karpov lék þennan leik eftir ræsku
eftir 7. - Rd7 sem er langalgengasti
leikurinn og Beljavsky lék einmitt
gegn Kasparov. Leikur Karpovs er
rökréttur og Jóhanni tekst ekki að
sýna fram á vankanta hans.
8. Rbd2 Be6 9. b3 Rd7 10. Bb2 c5!
Treystir miðborðsstöðuna áður en
Jóhann nær að leika drottningarpeð-
inu fram. Eftir aðeins tíu leiki hefur
Karpov náð að draga vígtennurnar
úr mótherjanum. Nú er hugsanlegt
að leika 11. De2 og síðan c2-c3 en
hæpið er að þessi leið færi hvítum
yfirburði. Jóhann hugsaði lengi og
ákvað síðan að einfalda taflið.
11. Rc4 Bxc4 12. dxc4 Dxdl 13. Hfxdl
f6 14. Rd2 Hd8! 15. Rfl
Eftir 15. - RfB 16. Hxd8+ Bxd8 17.
Re3 c6 og síðan 18. - Re6, þvingar
svartur fram 19. c3 og hefur þá leyst
öll sín vandamál.
Þetta var bragðlaus skák sem ein-
kenndist af varfærnislegri tafl-
mennsku á báða bóga. Hvorugur
hefur viljað taka áhættu svona í upp-
hafi einvígisins. í nótt kl. 1 að ís-
lenskum tíma verður 2. einvígisskák-
in tefld og þá hefur Karpov hvítt.
Islenska þjóðsöngnum misþyrmt við setningarathöfnina í Seattle:
Vond lýsing og stólar og
riddarar eins og kanínur
„Ef fram heldur sem horfir ætti
Jóhann ekki að þurfa að kvíða ein-
víginu,“ sagði einn áhorfenda við
setningarathöfnina eftir að Jóhann
haföi unnið Karpov fimmfalt er dreg-
ið var um hti og varpað hlutkesti til
að skera úr um ágreiningsefni.
Reynt var að gæta fyllsta réttlætis
með því að fyrst var valið um þaö
hvor ætti að fá að draga um liti.
Karpov átti að byrja þar eð hann er
hærri að stigum. Hann fékk Campo-
manes, forseta FIDE, til að draga fyr-
ir sig og Jóhann vann. Síðan dró
Jóhann hvítu mennina í fyrstu skák-
inni.
Þá kom betri hreinlætisaðstaða í
hlut Jóhanns, hann fékk stærra
hvíldarherbergi og ágreiningur um
tegund skákklukku leystist honum í
vil. Hann vildi Jaeger skákklukku,
vestur-þýska, en Karpov austur-
þýska Garde klukku.
Nokkur mannsöfnuður var við
setningarathöfnina í Lakeside skól-
anum, þar á meðal íslenskir náms-
menn í Seattle. Bob Walsh, fram-
kvæmdastjóri friðarleikanna 1990,
sem haldnir verða í Seattle og standa
að einvíginu, hélt stutta tölu, einnig
Campomanes, bandarískir frammá-
menn í skákhreyfmgunni og frú
Skák
Jón L. Árnason
Jarecki, aðaldómari. Þá lék skóla-
hljómsveitin þjóðsöngva Bandaríkj-
anna, Sovétríkjanna og íslands og
FIDE-sönginn. Hljómsveitarstjórinn
stóð í þeirri meiningu að íslenski
þjóðsöngurinn væri hergöngulag og
lét ekki segjast þrátt fyrir tilmæli
ræðismannsfrúarinnar.
íslendingarnir voru óánægðir með
aðstæður. Margeir sagði að lýsing
væri vond, stólar allt of lágir og ridd-
ararnir litu út eins og kanínur. Ein-
hver bætti við að peðin væru eins
og gulrætur. Þessu var kippti í liðinn
og er meistararnir settust að tafli á
laugardag höfðu þeir ekki yfir neinu
aökvarta. -JLÁ
Sandkom dv
„Feðga-
miðstöðin"
Ferðaskrif-
niofan Fi-rða-
miðstciðin lu'>-
urfengiönýtt
nafnhjámörg- ;;
umoggengur
uii'lir nafninu
„Feðgamið-
stöðin" þessa
dagana. Er
þetta að sjálfsögðu tilkomið vegna
þess að Andri Már Ingólfsson, sonur
Ingólfs Guðbrandssonar, hefur tekið
þar viö stj óm og Ingólfur mun sj álfur
hafa sést talsvert „á vappi" nærri
fyrirtaikmu aðundanfömu. Eitthvað
af starfsfólki frá Ótsýn hefur þegar
gengiö til liðs við „Feðgamiðstöð-
ina“. Þá hefúr fyrirtækið tekið á leigu
húsnæöi viö Austurstræti þar sem
Útsýn var áður til húsa. Menn skyldu
því ekki afskrifa „Ingólf í Ótsýn“ eða
„Ingólf í Feðgamiðstööinni“ að svo
stöddu.
Skothríð
hjá „Nonna
og Manna"
Þeirfélagar
,ión Baidvm
Hannibalsson
ogOlafur
RagnarGríms-
; son éöá Nonhi
ogManni.eins
ogsumirkalla
þá norðan
heiða, mættu
með litlu, sætu ræðupúltin sín á Ak-
ureyri á dögunum og „skutu í allar
áttir“ á fundi þar. Jón Baldvin sagði
t.d. að í Seðlabankanum störfuðu um
160 manns og þar af a.m.k. 150 við
að naga blýanta. Þá sagði hann að
Sveriir Ögurvíkingur, bankastj óri
LandsbankansAhefði gleymt að selja
hlutabréf sín í Ógurvík og stýrði
stjómarandstöðunni úr bankanum
með gaspri sinu og væri enn að vinna
fyrir biðlaununum. Ólafur Ragnar iét
einnig ýmislegt flakka og sagði m.a.
að margt gott mætti segja um Jóhann-
es Nordal seðiabankastjóra, m.a. væri
hann vel að sér í bókmenntum!
Vill vinna
með konunum
HalldórBlön-
dai alþingis- 1
maöursegirað
' sjáifsiæðis-.
mennmyndu
leita fyrst til
Kvennahstans
efsustaða
kæmiuppað
mynduðyrði
ný idkisstjórn í landinu. Það sem
mælir með þessu, að mati Halldórs,
er m.a. að Guðrún Agnarsdóttir og
Kristín Halldórsdóttir hætta senni-
lega þingmennsku eftir þingiö sem
nú stendur yfir og Haildór telur að
þær konur, sem taki við af þeim,
verðihægrisinnaðri.Ogvæntanlega '
telur Halldór aðþær verði þess vegna
„auðveldari bráð“. Þegar Guðrún
Agnarsdóttir var innt álits á ummæl-
um HaDdórs svaraði hún einungis:
„Sínum augum lítur hver á silfrið."
Hvað erhann
Áméðanþeir
..Nonniog
Manni" þeyíast
umlandiðund-
irstjóm ;
Ámundaráð-
herrarótará h
sitiaaðrir
forsprakkar
stjórnmála-
flokka í skugganum. Þó hefur Stein-
grímur reynt að kióra í bakkann og
halda fundi víöa um land en minna
hefur orðið úr en til stóð. En þetta
brölt formannanna hefur vakið upp
þá spurningu hvað Þorsteinn Pálsson
séaðgeraþessadagana. Þaðheyrist
lítiö frá honum og hann hefur ekki
verið með nein fundahöld. Mörgum
sjálfstæðismanninum þykir sem Þor-
steinn sitji eftir í startholunum ef það
er rétt, sem sumir halda fram, að
þetta fundabrölt hinna formannanna
sé upphafið að kosningabaráttu og
gengiðverðiaðkjörborðinuívor. Því
spyija þeir: Hvað er Þorsteinn að
geraþessadagana?
Umsjón: Gylfi Kristjénsson
að gera?