Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1989, Page 9
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989.
9
Utlönd
Friður milli múhameðs-
trúarmanna í Líbanon
ALi Akbar Velayati, utanríkisráðherra írans, við komuna til Damaskus á
laugardag. Símamynd Reuter
Bretar fækka
á Gíbraltar
Forsætisráðherra Gíbraltar, Joe
Bossano, staðfesti í gær að Bretar
íhuguðu fækkun hermanna í ný-
lendunni.
Bossano sagöi fréttamönnum að
hann reiknaöi með að ræða fækk-
unina við Sir Geofírey Howe, utan-
ríkisráðherra Bretlands, sem
heimsækir Gíbraltar í dag.
Bresk og spænsk dagblöð hafa
skýrt frá því að Bretar hyggist kalla
um eitt þúsund herraenn frá ný-
lendunni en það er fækkun um
rúmlega helming. Breska ríkis-
stjómin hefur ekki viljaö tjá sig um
málið.
Embættisraenn á Gíbraltar segja
að fækkunin eigi ekki að hefjast
strax.
í mai á síðasta ári voru um sautj-
án hundruð breskir hermenn á
Gíbraltar, átta hundruö frá hern-
um, fimm hundruð og þrjátíu frá
sjóhernum og þrjú hundruð og niu-
tíu frá flughernum.
Adolfo Canepa, leiötogi stjórnar-
andstöðunnar á Gíbraltar, segist
reikna með að hin fyrirhugaða
fækkun muni valda áhyggjum
meðal íbua nýlendunnar.
„Maðurinn á götunni verður
mjög áhyggjufullur," sagði hann.
Bossano heftir neitað að sam-
þykkja samkomulag milli Breta og
Spánverja um sameiginleg afnot af
flugvellinum á Gíbraltar en margir
telja viðurkenningu á því jafngilda
viðurkenningu á kröfum Spán-
verja um yfirráð á klettinum.
Til að samningurinn öðlist gildi
þarf löggjafarþing Gíbraltar að
samþykkja hann. Reuter
Varsjárbandalagið seg-
ir frá liðsstyrk í Evrópu
Varsjárbandalagið birtir í dag upp-
lýsingar um hersveitir sínar og vopn
í Evrópu í fyrsta skipti og skorar á
Atlantshafsbandalagið að sam-
þykkja mikinn niðurskurð til að
koma á jafnvægi.
í yfirlýsingu varnarmálaráðherra
bandalagsins, sem birt er í Prövdu í
dag, er ítrekað það sem áður hefur
komið fram í yfirlýsingum frá banda-
laginu að þegar á heildina er htið sé
jafnvægi í álfunni.
Þegar skoðaðir eru einstakir þættir
segir bandalagið að Nato hafi meiri
hðsafla á landi og í lofti.
Ráðherrarnir viöurkenna hins
vegar að Varsjárbandalagið hefur
yfirburði á sviði skriðdreka, hreyf-
anlegra eldflaugaskotpalla, flugvéla,
ökutækja fyrir fótgönguhð, bryn-
varðra ökutækja og stórskotaliðs.
Búist er við að Atlantshafsbanda-
lagið haldi að sér höndum fyrst um
sinn þrátt fyrir þessar yfirlýsingar
Varsjárbandalagsráðherranna enda
líta ráöamenn Atlantshafsbanda-
lagsins svo á að austantjaldsmenn
heyi nú fjölmiðlabaráttu áður en við-
ræður um hefðbundinn herafla hefj-
ast í Vínarborg þann 9. mars.
Reuter
Samkomulag hefur náðst í Líban-
on milli amalshíta og hizbollahshíta
um að binda enda á árslangan ófriö
og hætta átökum strax, að því er Ali
Akbar Velayati, utanríkisráðherra
írans, sagði í gær.
„Okkur hefur tekist að koma á
samkomulagi milli Amal og Hiz-
bollah,“ sagði hann við fréttamenn
eftir að hann og Farouq Al-Shara,
utanríkisráðherra Sýrlands, héldu
fundi með hinum stríðandi aðilum.
Velayati sagði að samkomulagið,
sem náðist í Damaskus, styrkti
vopnahlé sem náöist á miðvikudag
en hefur ekki verið haldið mjög vel.
Þessir tveir hópar múhameðstrúar-
manna hafa barist frá þvi í janúar á
siðasta ári.
Velayati sagði að samkomulagið
yrði birt í heild sinni í dag. Hann
sagði að styrking vopnahlésins frá
því á miðvikudag væri eitt af aðalat-
riðum samkomulagsins.
Bardagarnir milli hópanna hafa
orðið meira en eitt hundrað og íjöru-
tíu manns að bana.
Velayati sagði að hann ætlaði að
framlengja dvöl sína í Sýrlandi til að
geta verið viöstaddur þegar skrifað
verður undir samkomulagið.
Leiðtogi Hizbolláh sagði frétta-
mönnum síðar í gærdag að sam-
komulag hefði náðst og að skrifað
yrði undir friðarsamning í dag.
Amalshítar lýstu því í gær yfir að
þeir myndu skrifa undir samkomu-
lagið.
Hann ságði að allir sem amalshítar
hefðu fariö fram á að yröu afhentir
sýrlenskum hermönnum, vegna
glæpa sem þeir hefðu framið, hefðu
nú verið afhentir.
Sýrlendingar eru öflugasta erlenda
ríkið í Líbanon og hafa þeir tuttugu
og fimm þúsund hermenn í landinu.
Kröfur Amal um að Hizbollah af-
hentu morðingja þriggja amalshíta,
sem voru drepnir í september, til
sýrlenskra hermanna höfðu hingað
til staðið í vegi fyrir samkomulagi.
Þegar þeir voru afhentir náðist
samkomulag.
Reuter
Tökum að okkur að annast fermingar og brúðkaups-
veislur, árshátíðir, þorrablót og hvers kyns annan
mannfagnað.
Utvegum vistlega og skemmtilega sali eða sendum í
heimahús, eftir því sem óskað er.
VEITlNSAtíÚSIÐ
ARMUIA 21