Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1989, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989.
Útlönd
Missa stuðningsmann
Stjómarerindrekar í Asíu sögðu
í gær að með láti Panchens Lama,
næstæðsta trúarleiötoga Tíbets,
hefðu yfirvöld í Peking misst mikil-
vægan milligöngumann. Hann
naut virðingar bæði í Tíbet og Pek-
ing.
Panchen Lama sætti gagnrýni
sumra Tíbetbúa fyrir að vera hliö-
hollur yfirvöldum í Peking en að
sögn stjómarerindreka var hann
sagöur itafa ljáö Tibetbúum lið eftir
fremsta megni. Panchen Lama var
aðallega búsettur f Peking en heim-
sótti Tíbet reglulega.
loffa rannsókn
Vestur-þýskur ráðherra lofaöi í gær að rannsaka hvort eitthvaö væri
hæft í fullyrðingum bandarískra fjölmiðla um að íranar hefðu fengið efni
frá sendiráði sínu í Bonn til þess að búa til eiturgas.
í frétt New York Times frá því í gær segir að íranar hafi keypt efni til
eiturgasframleiðslu frá fyrirtækjum í Vestur-Þýskaiandi, Grikklandi,
Bandaríkjunum og Singapore. Puliyrt var að kaupin hefðu farið fram í
gegnum sendiráðiö í Bonn og upp hafi komist um þau er bandarískir
tollverðir rannsökuðu íranskan diplómata í Vestur-Þýskalandi.
Panchen Lama, næstæðsti trúar-
leiðtog! Tfbets, lést á laugardag-
inn. Simamynd fleuter
Mótmæli i Portúgal
rmr ts' trabÁlhaddres oa
-UN' JÍIEH hád ad paddte laddral
ÍH A AUHEHTDS JUSTOS
Þúsundir verkamanna tóku þátt í mótmætagöngu í Lissabon á laugardag-
inn.
Simamynd Reuter
Um tíu þúsund manns gengu gegnum miðborg Lissabon í Portúgal á
laugardaginn til að mótmæla lagatillögu um atvinnu. Tillagan felur í sér
ákvæði sem gera auðveldara að reka starfsfólk. Það voru stærstu verka-
lýðssamtök Portúgals sem efht höfðu tU mótmælagöngunnar,
Yfirvöld halda því fram að með tiHögunni skapist fleiri atvinnutæki-
færi og að efnahagur batni.
Námunni lokað
Yfirvöld í Perú hafa fyrirskipað lokun námunnar sem nær tvö hundruð
guUgrafarar fórust í fyrir rúmri viku. ÚtUokað er taliö að nokkur hafi
komist lifs af er sprenging varð í náraunni. Hætta er talin á þeir sem
snúi aftur til námunnar geti týnt lífi vegna eiturgass og hættu á hruni.
Þunr bjór slær í gegn
„Þurr“ bjór, undir áhrifum frá Japan, virðist nú vera að slá i gegn í
Bandaríkjunum.
Bjórinn er látinn geijast lengur en gengur og gerist meö bandariskan
bjór. Þannig breytist aUur sykurinn í vínanda. Arangurinn er, aö sögn
bruggara, tær, ferskur bjór meö eiginlega engu eftirbragði. í sumum til-
feUum kann að vera um eiUtið meira áfengismagn að ræöa í bjómum en
venjulegt er.
Nokkrar tegundir af þessum bjór fóru að koma í verslanir vestra seint
á síðasta ári en salan á honum er enn sem komiö er aðeins dropi í bjór-
hafíð sem drukkiö er í Bandaríkjunum á ári hverju.
Hugmyndin að þurrum bjór er ekki ný. Hér áöur fyrr voru nokkrar
bjórtegundir í Bandaríkjunum sem státað var af að væru þurrar.
Það var svo árið 1987 að Japanir endurvöktu þessa gömlu hugmynd.
BandaríRjamenn fylgdu í kjölfariö og Michelob dry, sem er eini banda-
riski þurrbjórinn sem dreift er um allt land, er nú nær ófáanlegur vegna
þess að verksmiöjumar anna ekki eftirspurn.
Reuter
Námumenn í Perú meó lík eins gullgrafaranna sem lokaðist inni i námu-
slysi.
Símamynd Reuter
Setið um Kabúl
Yfirvöld í Afganistan, sem nú þurfa
bráðum að verja sig án aðstoðar sov-
éskra hermanna, réðust í gær að
Vesturlöndum. í yfirlýsingu utanrík-
isráðuneytisins í Afganistan sagði aö
öryggissveitir í Kabúl væru alveg
færar um að verja sendiráð, stjórn-
málaerindreka og alþjóðlega hjálpar-
starfsmenn. Kváðu afgönsk yfirvöld
lokun sendiráðanna vera áróðurs-
herferð gerða til að vekja ótta.
Bandaríkin, Japan, Vestur-Þýska-
land, Bretland og fieiri lönd ákváðu
að loka sendiráðum sínum í Kabúl
af öryggisástæðum áður en síðustu
sovésku hermennirnir fara frá Afg-
anistan þann 15. febrúar. Skæruliðar
hafa hert sókn sína að undanfórnu
'og gert eldflaugaárásir á höfuðborg-
ina. Þeir umkringja nú höfuðborgina
tU þess að reyna að bola stjórninni
frá.
Edvard Sévardnadse, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, mun heim-
sækja Pakistan í næstu viku. í apríl
síöastliðnum undirrituðu yfirvöld í
Pakistan samkomulag við Moskvu
fyrir tilstilli Sameinuðu þjóðanna
um að kalla heim hermenn sína frá
Afganistan fyrir miðjan febrúar. í
Pakistan hafa margir afganskir
flóttamenn hafst viö eftir að þeir
flúðu stríðið heima fyrir. Þar hafa
einnig verið búðir afganskra skæru-
liða.
Reuter
Afganir hlaða hveitipokum á vörubíl við borgina Peshawar í Pakistan.
Hveitið á að senda til Afganistan þar sem matvælaskortur ríkir vegna
harðra bardaga mjlli stjórnarhermanna og skæruliða. Símamynd Reuter
Blökkumaður leið-
togi demókrata?
Steinurm Böðvaxsdóttir, DV, Washington:
Nær öruggt er nú talið að blökku-
maðurinn Ronald Brown hljóti for-
mannsembætti Demókrataflokks-
ins, annars stjórnmálaflokks
Bandaríkjanna, þegar núverandi
forraaður, Paul Kerk, lætur af emb-
ætti. Vinni Brown sigur í for-
mannskosningunum 10. febrúar
verður það í fyrsta sinn í sögunni
að blökkumaður verður í forsæti
annars hvors stjórnmálaflokksins
vestra.
MikU ólga ríkir meðal ungra
demókrata vegna framboðs
Browns. Sumir óttast að sigri hann
muni margir hvítir demókratar,
sérstaklega íbúar suðurríkjanna,
yfirgefa flokkinn og ganga til liðs
við repúblikana. Aðrir segjaað tími
sé tilkominn aö leggja alla fordóma
til hliðar og kjósa formann á grund-
velli hæfileika, án tUlits tU litar-
háttar.
Andstæðingar Browns benda á
tengsl hans við blökkumannaleið-
togann Jesse Jackson en Brown
starfaði um nokkurt skeið fyrir
Jackson fyrir nýafstaðnar forseta-
kosningar. Þeir segja að Brown sé
lítið annað en talsmaður Jacksons
og eins og er sé Demókrataflokkur-
inn of hallur undir blökkumenn.
Þeir benda einnig á að Brown starf-
aði fyrir hinn fijálslynda Ted
Kennedy þegar öldungadeUdar-
þingmaðurinn sóttist eftir útnefn-
ingu demókrata áriö 1980. Þeir ótt-
ast að hijóti Brown formanns-
embættið líti margir á það sem
merki um að Demókrataflokkur-
inn sé í raun hættulega frjálslynd-
ur eins og repúbUkanar héldu svo
oft fram í forsetakosningunum.
Andstæðingar Browns segja að
það borgi sig ekki að hvekkja hvíta
demókrata vUji demókrater hafa
von um að ná einhvern tíma völd-
um í Hvíta húsinu. Á hinn bóginn
segja stuðningsmenn hans að
miðjumaðurinn Brown sé einmitt
rétti maðurinn til að ná sáttura
milU hvítra og svartra, frjálslyndra
og íhaldsmanna. Kosning hans sýni
og sanni að Demókrataflokkurinn
sé flokkur allra, ekki eingöngu
hvítu miðstéttarinnar.
Brown nýtur stuðnings meiri-
hluta rúmlega fjögur hundruð
kjósenda demókrata og er talinn
næsta öruggur um sigur í kosning-
unum.
Gera árásir á SH Lanka
Vopnaður hermaður á verði í Colombo á Sri Lanka i gær.
Reuter
Vinstri sinnaðir skæruliðar, sem
ætla sér að trufla kosningarnar í Sri
Lanka í næsta mánuði, réðust í gær
á lögreglustöðvar og herbíl. Drápu
skæruUðar sex öryggisverði, að því
er heryfirvöld greindu frá.
Skæruliðar köstuðu sprengjum og
skutu að tveimur lögreglustöðvum í
höfuðborginni Colombo. Einnig var
gerð árás í úthverfi borgarinnar á
laugardagskvöld. Komust skæruhð-
ar undan með fjölda vopna frá ann-
arri lögreglustöðinni.
MikU leit er nú gerð að skæruhðun-
um og hefur lögreglan um allt land
verið vöruð við frekari árásum. Níu
frambjóðendur og rúmlega tvö
hundruð stuðningsmenn ýmissa
stjórnmálaflokka hafa verið myrtir
frá því að kosningabaráttan hófst
fyrir þremur vikum. Hefur lögreglan
sakað skæruliöa um flestar árásim-
ar en sumir eru þó þeirrar skoðunar
að keppinautar eigi sök á sumum
þeirra.
Reuter