Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1989, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989.
23
Iþróttir
• Guömundur Guðmundsson gerir hér tilraun til þess að brjótast fram hjá tékkneskum varnarmanni í leik islands og Tékkóslóvakíu i Hafnartirði á föstudagskvöld. Guðmundur stóð sig vel í
leiknum og raunar í þeim báðum. DV-mynd GS
Fyrri landsleikur íslendinga og Tékka í íþróttahúsinu í Hafnarfirði:
Markvarslan réð úrslitum
er Tékkar unnu nauman sigur
- æsispennandi lokamínútur er Tékkar sigruðu íslendinga, 22-23
tt~i íslendingar biðu lægri hlut í fyrri viðureign
sinni gegn Tékkum er landslið þjóðanna léku
----- í íþróttahúsinu í Hafnarfirði á föstudags-
kvöld. Tékkar sigruðu með eins marks mim, 22-23,
eftir aðislenska hðið hafði haft yfir í leikhléi, 12-10.
Tékkar höfnuöu sem kunnugt er í sjötta sæti á síð-
ustu ólympíuleikum og eru því a-þjóð í handknattleik.
Eftir góðan fyrri hálfleik og sérlega
góðar upphafsmínútur í þeim síðari
fór að halla undan fæti hjá íslenska
liðinu í síðari hálfleik og Tékkarnir
gengu á lagið. Þeir léku vörnina mjög
framarlega og við það riðlaðist sókn-
arleikur íslenska liðsins.
Fjögur tékknesk mörk
voru vendipunkturinn
í byrjun síðari hálfleiks komst ísland
í 13-11 en þá skoruðu Tékkar fjögur
mörk í röð. Þeir breyttu stöðunni í
13-14 og 13-15 og var það í fyrsta
skipti sem þeir komust yfir í leikn-
um. Má segja að hér hafi verið vendi-
punkturinn í þessum leik. Tékkar
höfðu síðan yfirleitt þrjú mörk yfir
þar til í lokin að íslenska liðið náði
aðeins að rétta úr kútnum.
Æsispennandi
lokamínútur
Þegar tæpar þrjár mínútur voru til
leiksloka skoraði Alfreð Gíslason 20.
mark íslands og staðan þá 20-22.
Þegar ein mínúta var til leiksloka
voru Tékkar einum leikmanni færri
og Þorgils Óttar Mathiesen fiskaði
vítakast. Úr því skoraði Siguröur
Gunnarsson og staðan var þá orðin
21- 22 og 52 sekúndur eftir. Þrátt fyr-
ir að Tékkarnir væru einum leik-
manni færri tókst þeim að skora 23.
markið þegar um 10 sekúndur voru
til leiksloka.
Guðmundur Guðmundsson
minnkaði svo muninn í eitt mark,
22- 23, á síðustu sekúndunni og loka-
tölurnar urðu því 22-23 Tékkum í
hag.
Markvarslan réð
miklu um úrslitin
Eins og áður segir léku Tékkar vöm-
ina mjög framarlega og af mikilli
grimmd. Leikmenn íslenska liðsins
áttu ekki nægilega gott svar við þess-
um varnarleik Tékkanna og það
gerði útslagið ásamt einstakri
óheppni í sóknarleiknum en á loka-
kaflanum átti íslenska liðið tvívegis
skot í stöng tékkneska marksins. Þá
þeir Einar Þorvarðarson og Guö-
mundur Hrafnkelsson sem stóðu í
markinu í þessum leik. Hafa þeir
báðir leikið betur.
Siggi Gunn að braggast
Ef taka á.einstaka leikmenn íslenska
liðsins út úr þá er vert að geta
frammistöðu þeirra Alfreðs Gísla-
sonar og Sigurðar Gunnarssonar.
Alfreð var sérlega sprækur í sókn-
skoraði ekkert mark úr hægra horn-
inu. Þorgils Óttar var frískur á lín-
unni og brá oft fyrir skemmtilegri
samvinnu þeirra Kristjáns Arasonar
í leiknum.
Mörk íslands: Alfreð Gíslason 6,
Þorgils Óttar Mathiesen 4, Kristján
Arason 4, Sigurður Gunnarsson 3/2,
Guðmundur Guðmundsson 2 og Héð-
inn Gilsson 2.
Þennan 32. landsleik þjóðanna
varði markvörður tékkneska liðsins,
Svajlen, af stakri snilld eða samtals
um 20 skot. Samtals vörðu íslensku
markverðirnir átta skot en það voru
inni og Siguröur virðist kominn í
hörkuform á nýjan leik. Þá átti Guð-
mundur Guðmundsson góða spretti
í vinstra horninu en íslenska liðið
dæmdu vestur-þýskir dómarar, Hans
og Júrgen Thomas. Voru þeir nokk-
uð góðir en gerðu slatta af mistökum.
-SK
Siggi og Palli að braggast
- geta líklega hafið æfingar á ný 1 dag
Landsliðsmennirnir Sigurður
Sveinsson og Páll Ólafsson léku
ekki með gegn Tékkum um helg-
ina og var ástæðan sú að þeir hafa
báðir átt við meiðsli að stríða.
Sigurður hefúr verið meiddur á
öxl en er óðum að ná sér eftir
sprautumeðferö. Er reiknað meö
að hann geti hafiö æfingar á ný
raeð landsliðinu í dag.
Páll Ólafsson er brákaöur á
hendi og hefúr ekkert getað æft
með landsliðinu síðustu tíu dag-
ana. Einnig er reiknað með því aö
Páll geti hafið æfingar á ný í dag.
Páll hefur ekki fengiö aö leika
mikiö hjá Bogdan í undanfómum
landsleikjum og spurning hvort
hann er hreinlega inni f myndinni
hjá landsliðsþjálfaranum.
-SK