Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1989, Side 25
24
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989.
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989.
25
Iþróttir
• T Portúgal
1 Jg-_ é f Úrslit J?
Benfica styrkti stöðu sína á toppi
1. deildar í portúgölsku knatt-
spyrnunni í gær. Benfica tók þá
á móti Portimonense í Lissabon
og sigraði örugglega, 3-0. Brasil-
íumaöuiinn Valdo kom Benflca á
bragðið/ Ademir skoraði annaö
markið eftir glæsilega sendingu
frá öðrum Brasilíumanni, Enzo.
Rétt fyrir leikslok bætti fyrirliði
Benfica, Diamantino, við þriðja
markinu.
Á sama tíma náði Porto aðeins
jafntefli á heimavelli gegn Guim-
araes, ekkert mark var skorað í
leiknum. Markvörður Guimara-
es, Neno, átt stórleik í markinu
og varði allt sem kom á markiö.
Úrslit i 1. deild;
Porto - Guimaraes...........0-0
Benfica - Portimonense......3-0
Chaves - Sporting...........2-1
Braga - Boavista............0-2
Belenenses - Viseu..........3-0
Leixoes - Espinho...........4-0
Beira Mar - Penafiel........2-1
Fafe-Setubal............. ..0-0
Farense - Maritimo..........0-0
Staða efstu liða:
Benfica......23 15 6 2 34-9 36
Porto.......23 12 9 2 26-12 33
Boavista...23 11 6 6 31-17 28
Sporting...23 10 8 5 30-19 28
-JKS
Pele-mótið:
Brasilía
og Uruguay
leika til
úrslita
Mikið mót knattspyrnulands-
liða, sem gerðu garðinn frægan
fyrir allmörgum árum, hefur
staðið yfir í Brasilíu undanfama
daga. Mótið er kennt við einn
frægasta knattspymumann allra
tíraa, Pele. í gærkvöidi fóru fram
tveir leikir í Santos. V-Þýskaland
sigraði Argentínu, 5-1. Sidka
skorði þrennu og þeir Löhr og
Toppmölier sitt markið hvor. ít-
alía og Brasíla gerðu markalaust
jafntefli. Brasilia og Uruguay
leika til úrslita á þriðjudaginn.
Pele mun svo afhenda þeirri
þjóð sem sigrar verðlaunin. Stað-
an á mótinu er þessi:
Brasflía........4 3 1 0 9-1 7
Uruguay.........4 3 1 0 8-5 7
ítalia..........5 0 4 1 5-6 4
Argentína......5 113 7-12 4
V-Þýskaiand.....5 113 7-73
England........5 1 1 3 5-10 3
-JKS
t A Holland
f úrslit jf'
PSV Eindhoven heldur áfram sig-
urgöngu sinni í hollensku knatt-
spymunni. Um helgina lék liðið
gegn Feyenoord á heimavelli sín-
um og sigraði með einu marki
gegn engu. PSV hefur nú hlotið
31 stig en Ajax kemur næst með
28 stig. Hér koma úrslitin um
helgina:
PSV - Feyenoord..........1-0
Sparta - WiUem II.......l-l
FC Twente - Ðen Bosch..„0-1
RodaJC-VW...............2-1
RKC - Volendam..........5-1
Haarlem-MW..............0-4
Gronningen - Utrecht....4-2
Ajax - F.Sittard.......;2-0
PEC ZwoOe - SC Veendam..6-2
• Staða efstu liða er þá þannig:
PSV.......19 15 1 3 41-16 31
Ajax......19 13 2 4 43-21 28
FCTwente....19 9 5 5 23-20 23
ítalska knattspyman:
Napolí þokast
að Inter Milan
- Atalanta kemur enn á óvart
Diego Maradona og félagar í stór-
liðinu Napolí þokuðust að toppliðinu
Inter Milan í 1. deild ítölsku knatt-
spyrnunnar um helgina. Fimmtánda
umferðin var leikin um helgina og
lauk fimm leikjum af'níu með jafn-
tefli, þar á meðal viðureign Inter
Milan gegn Atalanta.
Lið Atalanta er það lið sem mest
hefur komið á óvart það sem af er
keppnistímabili ítalskra knatt-
spyrnumanna. Liðið skipa mjög ung-
ir leikmenn en engu að síður er liðið
í efstu sætum og sem stendur í 3.^4.
sæti ásamt Sampdoria.
Maradona skoraði er
Napolí vann stórsigur
Á meðan topplið Inter Milan og Atal-
anta voru að gera jafntefli á heima-
velli Atalanta lék Napolí á heima-
velli sínum gegn Ascolí, liðinu sem
fór svo illa með Napolí í bikarnum á
dögunum. Nú sýndu leikmenn Na-
polí sitt rétta andlit og sigruðu, 4-1.
Þess má geta að Maradona gerði eitt
markanna fyrir Napolí. Þar með
minnkaöi forskot Inter Milan um eitt
stig. Inter hefur nú 26 stig, Napolí
kemur næst með 23, Sampdoria og
hið unga og. efnilega lið Atalanta
hafa 20 stig og Juventus og AC Milah
eru með 19 stig.
Úrslit í leikjum helgarinnar: ■
Atalanta - Inter Milan Cesena - Lecce 1-1 3-2
Fiorentina - Roma 2-2
Lazio-Juventus. 0-0
AC Milan - Pisa 0-0
Napolí - Ascolí 4-1
Pesscara - Bologna 3-1
Torino - Como 2-1
Verona - Sampdoria 1-1
-SK
Belgía - knattspyrna:
Öraggur sigur
hjá Anderlecht
- Anderlecht elnu stigi á eftir efsta liðinu
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Keppnistímabilið hófst að nýju í
Belgíu að loknu vetrafríi í gær. And-
erlecht, lið Arnórs Guðjohnsens,
sigraði RC Mechelen 0-4 á útivelli.
Anderlecht átti mun meira í leiknum
og vann verðskuldað.
Arnór átti fyrsta tækifærið strax á
2. mínútu leiksins en skot hans fór 1
hliðarnetið. Um miðjan fyrri hálfleik
skoraði Keshi fyrsta mark And-
erlecht með skalla og áður en fyrri
hálfleikur var allur bætti De Groote
við öðru marki. í síðari hálfleik
bættu leikmenn Anderlecht við
tveimur mörkum og voru Krncevic
og Nilis þar að verki.
Greinilega- kom fram í leiknum að
Anderlecht er ekki komið í leikæf-
ingu sem staðiö hefur yfir frá því um
miðjan desember. Amór var hvorki
betri né verri en aðrir leikmenn
Anderlecht.
„Ég fann það í leiknum að ég er
ekki kominn í leikæfingu. Við höfum
æft stíft að undanfórnu en fáir leikir
hafa verið leiknir. Ég er allur mjög
stífur eftir leikinn. Fyrsta verk mitt,
þegar ég vakna í dag, verður að fara
til nuddara," sagði Arnór Guðjohn-
sen í samtali við blaðamann DV eftir
leikinn.
Úrslit í 1. deild.
Cercle Brúgge-Waregem........3-0
Beveren-Standard Liege.......1-0
Kortrijk-Lokeren.............1-1
Racing Mechelen-Anderlecht...0-4
FC Liege-Lierse..............0-1
Genk-Antwerpen...............1-1
Beerschot-St. Truiden
....Charleroi-Club Brúgge....1-0
Molenbeek-Mechelen...........0-4
Mechelen er í efsta sæti með 34 stig.
Anderlecht kemur næst með 33 stig
og Antwerpen er í þriðja sæti með
27 stig.
Spánn - knattspyrna:
Einvígi
á milli
Real og
Börsunga
• Hugo Sanchez hjá Real Madrid
hefur skorað 14 mörk á keppnis-
tímabilinu. Baltazar De Morais, At-
letico Madrid, er hins vegar marka-
hæstur með 19 mörk.
- Real lék ekki en Barcelona gerði jafhtefli
Real Madrid lék ekki í 1. deild
spænsku knattspyrnunnar um helg-
ina en leikur þess gegn Osasuna var
frestað. Þrátt fyrir að liðið hafi ekki
leikið heldur það efsta sætinu því
Barcelona gerði aðeins jafntefli gegn
Espanol á útivelli. Barcelona er einu
stigi á eftir Real Madrid. Þessi tvö
félög skera sig talsvert úr og stefnir
allt í einvígi þeirra í milli um
spænska meistaratitilinn í knatt-
spymu í ár eins og reyndar gerst
hefur áður.
Úrslit í 1. deild:
Sevilla-AthleticBilbao...........0-0
Atletico Madrid-Logrones......2-0
Cadiz-Celta...................1-1
Malaga-Real Murcia............1-3
Espanol-Barcelona.............2-2
Elche-Real Valladolid.........1-0
Valencia-Real Zaragoza........2-2
Sporting-Real Betis...........0-0
Real Sociedad-Real Ovideo.....0-0
• Staða efstu liða er þessi:
Real Madrid....19 13 6 0 46-20 32
Barcelona......20 13 5 2 44-16 31
Atletico.......20 10 4 6 36-23 24
Sporting.......20 8 7 5 22-17 23
Valencia.......20 8 7 5 19-16 23
-JKS
DV DV
fþróttir
• Kristján Arason gnæfir hér yfir vörn Tékkanna og skömmu síðar lá knötturinn í markinu. Kristján lék mjög vel í síðari leiknum og skoraði þá sjö glæsileg mörk. Á innfelldu myndinni sést Sigurður
Gunnarsson skora eitt marka sinna í leiknum. Og takið eftir að hann gerir það með vinstri hendi. DV-myndir GS
Tékkar teknir í bakaríið í síðari landsleiknum
í LaugardalshöHinni:
Tékkarnir mun betri
ísland vann síðari
hálfleikinn, 17-10
- ísland sigraði Tékkóslóvakíu, 28-23, í mjög góðum leik. AHt að smella saman?
íslenska landsliðiö í handknattleik sýndi allar sínar bestu hliðar í
Laugardalshöllinni um helgina er liöið sigraði lið Tékka með fimm
marka mun, 28-23. íslenskt landslið hefiir aöeins einu sinni áður
unnið stærri sigur gegn Tékkum en það var $L haust er island sigr-
aði 23-17. Leikurinn um helgina var mjög góöur hjá íslenska liðinu og gefúr
vissulega góðar vonir fyrir b-keppnina i Frakklandi.
Öfugt við fyrri leik liðanna voru það
Tékkar sem höfðu yfirhöndina svo til
allan fyrri hálfleikinn en staðan i leik-
hléi var 11-13. Síðari hálfleikurinn er
einhver besti hálfleikur sem íslenskt
landsliö hefur lengi leikið. Þá skoruðu
okkar menn 17 mörk gegn aðeins 10 og
vissu Tékkar hvorki í þennan heim né
annan. íslendingar fóru hreinlega á
kostum og kafsigldu lið Tékkanna. Virk-
aði íslenska liöið mjög sannfærandi í
síðari hálfleik og ef til vill er þetta allt
aö smella saman.
Tékkar höfðu yfir í leikhléi, 11-13,
og komust í 11-14 í upphafi síðari
hálfleiks. Þá tók íslenska liðiö við sér
svo að um munaði. Eftir sex mínútna
leik var jafnt, 14-14. Síðan hafði ís-
land yfir, tvö til þrjú mörk, þar til
staðan varð 21-17. Eftir það voru
úrslitin ráðin og íslenska liðið fór á
kostum á lokakaflanum. Sérstaklega
voru þaö þeir Kristján Arason og
Bjarki Sigurðsson sem léku á als oddi.
Mestur varð munurinn 28-21 en
Tékkar skoruðu tvö síðustu mörkin.
Allir leikmenn íslenska liösins áttu
góðan leik að þessu sinni. Kristján
átti frábæran leik og sömu sögu má
segja um þá Alfreð Gíslason, Sigurð
Gunnarsson, Þorgils Óttar Mathies-
en og Einar Þorvarðarson. Þá átti
Guðmundur Guðmundsson mjög
góðan leik, skoraði 3 mörk og fiskaði
tvö vítaköst sem skorað var úr. Þrátt
fyrir þennan stórleik hjá íslenska lið-
inu er vert að hafa það í huga að
þessi úrslit færast ekki til tekna þeg-
ar í b-keppnina verður komið. En það
er greinilegt að leikur íslenska liðs-
ins er að smella saman og er það vel.
Mörk íslands: Kristján Arason 7,
Sigurður Gunnarsson 6/2, Bjarki Sig-
urðsson 4, Þorgils Óttar Mathiesen
4, Guðmundur Guðmundsson 3, Al-
freð Gíslason 3 og Valdimar Gríms-
son 1.
Hjá Tékkum var hornamaðurinn
Libor Sovadina atkvæðamestur og
skoraði 5 mörk. Lið Tékka leikur
ekki áferðarfallegan handknattleik
en varnarleikur liðsins getur verið
afarsterkur.
Leikinn dæmdu þeir Júrgen og
Hans Thomas frá Vestur-Þýskalandi.
Virtust þeir hafa góð tök á leiknum
en gerðu þó slæm mistök inni á milli.
en menn áttu von á
- „Döpur aðsóknsagði Guðjóri Guðmundsson
„Ég er mjög ánægður með sigur-
inn í þessum leik og þá auðvitað
sér í lagi síðari háifleikinn. Liðið
lék þá af eðlilegri getu og leikmenn
sýndu mikla baráttu,“ sagði Guð-
jón Guðmundsson, liðsstjóri ís-
lenska landsliðsins, eftir síðari
landsleikinn gegn Tékkum:
„Hinsvegar fmnst mér aðsóknin
að leikjunum tveimur gegn Tékk-
um hafa verið döpur. Veðrið spilar
þar inn í en engu að síður fannst
mér áhorfendur alltof fáir. Þetta
kemu'r sér verulega illa fyrir HSÍ
og eins getur þetta haít slæm and-
leg áhrif á leikmenn landsliðsins.
Ef aðsóknin verður ekki betri gegn
Norðmönnum í næstu leikjum þá
liggjum við illa í þvi,“ sagöi Guð-
jón. Varðandi mögulexkana í b-
keppninni sagði hann: „Það er eng-
in ástæða til að vera með neina
bjartsýni fyrir b-keppnina. Þetta er
allt sýnd veiði en ekki gefm. Við
vitum hvað er að í leik liösins og
ætlum að lagfæra þá hluti.“
„Tékkarnir betri en
ég átti von á“
Gunnar Þór Jónsson, formaöur
landsliðsnefndar HSÍ: „Þetta tékk-
neska lið var betra en við áttum
von a og þeir komu okkur á óvart.
Ég er mjög ánægður með síðari
hálfleikinn í síðari leiknum og þá
small þetta allt saman. Ég get ekki
betur séð en að liðið sé að finna sig
á nýjan leik. Ef þetta heldur svona
áfram ættum við aö eiga góða
möguleika á að ná einu af sex efstu
sætunum í Frakklandi.“
„Tékkamir komu mér
mjög á óvart“
„Ég er nokkuð sáttur við leikina
gegn Tékkum en auðvitað áttum
viö aö geta unnið fyrri leikinn. Þar
náðum viö ekki að sýna okkar rétta
andht, hverju sem um er að kenna.
Við bættum okkur mjög mikið i
síðari leiknum og þá var allt annað
að sjá til okkar í vöm og sókn.
Annars er tékkneska liðið mjög
erfitt og það var mun sterkara en
ég bjóst við og kom mér mikið á
óvart. Þeir em að byggja upp nýtt
hð en þaö var engu að síður álíka
sterkt og þaö tékkneska lið sem við
lékum gegn á Flugleiðamótinu á
síðasta ári,“ sagði homamaðurinn
Guömundur Guömundsson.
-SK