Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1989, Side 30
30
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989.
Iþróttir
„Pebble Beach National Pro Am“ í golfi:
„Þessi sigur var
bara fyrir pabba“
- Mark O’Meara sigraði á síðustu holunni
Bandaríski kylfmgurinn Mark
O’Meara vann glæsilegan sigur á
„Pebble Beach National Pro Am“
stórmótinu í golfi í Kaliforníu í nótt.
Úrslitin réöust ekki fyrr en á síðustu
sentímetrunum á síöustu holunni.
Mark O’Meara púttaði þá í holuna
af fimm metra færi og lék holuna þar
meö á höggi undir pari. Samtals lék
O’Meara á 277 höggum, 11 höggum
undir pari vallarins, en Tom Kite
kom næstur á 278 höggum. Hann
heföi einnig getað leikið á 277 högg-
um eins og O’Meara en til þess þurfti
hann aö setja niður um 10 metra
pútt á síðustu holunni. Það tókst
ekki og O’Meara tryggði sér sigurinn.
Jafnir á 280 höggum voru Sandy
Lyle, Nick Price og Jim Carter. Þeir
Steve Jones, Lanny Wadkins, Hal
Sutton og'Steve Pate léku allir á 281
höggi.
Fyrir sigurinn fékk Mark O’Meara
um 5 milljónir króna þannig að hann
hefur líklega haft efni á að gefa fóður
sínum sæmilega afmælisgjöf en hann
átti afmæli í gær. „Ég fékk næstum
því hjartaáfall þegar ég sá kúluna
detta í holuna á síðustu ílötinni,"
sagði O’Meara hlæjandi eftir sigur-
inn og bætti við: „Annars var þessi
sigur bara fyrir pabba.“
-SK
• Mark O’Meara fagnar púttinu
glæsilega í nótt sem tryggði honum
sigurinn nauma. Símamynd Reuter
• Ivan Lendl
frá Tékkóslóvakiu
vann mikinn yfir-
burðasigur á opna
ástralska meist-
aramótinu i tennis
og sést hér með
sigurlaunin. Auk
þeirra tékk hann
rúmar 7 milljónir
króna.
Simamynd Reuter
Handknattleikur:
Tveir sigrar Ármanns
á Þórsurum nyrðra
- í 2. deild og bikarkeppninni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ármenningarunnu tvo sigra á Þór
á Akureyri um helgina, í fyrra skipt-
iö í leik liðanna í 2. deild og síðan í
gær er liðin léku í bikarkeppni HSÍ.
Úrslit leiksins í 2. deild uröu 23-20
fyrir Ármann eftir að glímufélagið
hafði leitt í hálfleik, 10-8. Hannes
Leifsson var atkvæðamestur Ár-
menninga með 8 mörk en hjá Þór
voru markahæstir Sævar Árnason
og Kristinn Hreinsson með 5 mörk
hvor.
í bikarleiknum í gær vann Ár-
mann, 25-20, eftir að hafa haft yflr,
12-5, í leikhléi. Nú var Haukur Ólafs-
son markahæstur Ármenninga með
6 mörk en Páll Gíslason, Sævar
Árnason og Rúnar Sigtryggsson allir
með 5 mörk fyrir Þór.
• Staðan eftir leik Þórs og Ármanns
er þannig:
HK..........12 10 1 1 316-240 21
Haukar......12 8 2 2 298-242 18
ÍR............11 8 1 2 283-213 17
Ármann........12 7 1 4 289-280 15
Njarðvík......11 5 1 5 278-264 11
Selfoss.......11 5 0 6 279-275 10
Þór...........13 4 0 9 261-324 8
Keflavík......12 3 0 9 258-292 6
Aftureld.....11 3 0 8 254-283 6
ÍH...........11 2 0 9 208-301 4
Opna ástralska meistaramótið í tennis:
Lendl og Graf
í sérflokki
- sigruðu með miklum yfirburðum
„Að vinna opna ástralska meistaramótið er nokkuð sem mig hefur lengi
langað tfl. Ég og þjálfarinn minn höfrnn stefiit að þessu síðan áriö 1985.
Ég mun ekki fara að hugsa til næsta móts fyrr en ég hef náð þessu mikla
brosi af andlitinu á mér. Það verður eftír nokkra mánuöi.“ Þetta sagði
Tékkinn Ivan Lendl eftir aö hann haíöi sigrað landa sinn, Miroslav Mecir,
en þvi lauk um helgina. Fyrir sigurinn fékk Lendl dágóða upphæð eða
rúmar 7,miUjónir íslenskra króna.
Lendl hafði mikla yfirburði gegn
Mecir sem átti í miklum vandræð-
um með uppgjafirnar. Lendl sigr-
aði 6-2, 6-2 og 6-2.
Mecír var rólegur aö vanda eftir
tapiö og sagði. „Ég átti f miklum
erflöleikum með uppgjafirnar og
það er nokkuö sera ég hef ekki
þurft aö hafa áhyggjur af í mörg
ár.
En lífið heldur áfiram, jafnvel þótt
maður tapi leik sem _ þessum."
Lendl sagöi um Mecir: „Ég hef ekki
séö svona lélegar uppgjafir hjá
Mecir i mjög langan tíma.“
Þess raá geta að Mecir hefur stað-
iö einn í baráttunni síðustu flögur
árin og hefur engan þjálfara.
Yfirburðír Steffi Graf
gegn Helenu Sukovu
Vestur-þýska stúlkan Steffl Graf
lék til úrslita í einliðaleik kvenna
gegn Helenu Sukovu frá Tékkósló-
vakiu. Graf sigraði næsta auöveld-
lega, 6-4 og 6-4. Það var einmitt
Helena Sukova sem sló Martinu
Navratilovu út í undanúrslitunum
en Graf sigraöi þá Gabrielu Sabat-
ini. Tékkar geta vel við sinn hluit
unað. Þeir áttu þrjá tennisleikara
af fjórum í úrslitaleikjunum.
-SK
með að tryggja sér sigurinn á opna ástralska meistaramótinu i tennis.
í úrslitaleik lék Graf gegn Helenu Sukovu trá Tékkóslóvakfu og vann
6-4 og 6-4. Hér sést Steffi Graf með verðlaunagripinn glæsilega en hun
hefur verið algerlega ósigrandi á tennisvellinum í lar.gan tíma.
Símamynd Reuter