Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1989, Qupperneq 31
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989.
31
Fréttir
lill
Rauöinúpur viö bryggju á Raufarhöfn
Útgerö Rauðanúps gekk vel sl. ár:
Vinna á Rauf arhöf n féll aldrei
niður vegna hráefnisskorts
Hólmfriður Priðjánsdóttir, DV, Eauíarhöfn:
Útgerö togarans Rauðanúps gekk
ágætlega á síðasta ári, að sögn Hólm-
steins Björnssonar, framkvæmda-
stjóra Fiskiðju Raufarhafnar og Jök-
uls hf., og féll aldrei niður vinna hjá
starfsfólki fyrirtækisins vegna hrá-
efnisskorts.
Aflaverðmæti Rauðanúps var 101
milljón króna og skipið aflaði 3.067
tonna í 31. veiðiferð. Togarinn fór
eina söluferð til Englands. Öllum
öðrum afla hans var landað hér á
Raufarhöfn fyrir utan 40 tonn, sem
landað var í Hnífsdal þegar skipið
var leigt til hafrannsókna.
í
Ámi á Bakka á Raufarhöfn. DV-mynd Hólmfríöur.
Raufarhöfti:
Jökull leigir skip og
rækjuvinnslu Kópaskers
- og afla skipsins ekið til Kópaskers.
Hólmtriöur Priðjónsdóttir, ÐV, Raufarhöfh:
Nýlega tók Jökull hf. á leigu skip-
ið Áma á Bakka en það var áður
gert út frá Kópaskeri og er 230 tonn.
Þá tók Jökull einnig á leigu rækju-
vinnslu Sæbliks á Kópaskeri. Árni
á Bakka landar aflanum hér á
Raufarhöfn og er honum síðan ekið
tii Kópaskers til vinnslu hjá Sæ-
bliki. Leigusamningurinn vegna
skipsins og rækjuvinnslunnar gild-
ir til loka febrúar á þessu ári
Djúpavogshöfn. Ekki var talið í sjálfri höfninni að þessu sinni en hún verð-
ur hluti af nýju talningarsvæði sem taka á í notkun um næstu áramót.
Djupivogur:
Árleg fuglatalning
Sigurður Ægisson, DV, Djúpavogi:
Frá 1952 hefur það verið föst regla
hjá Náttúrufræðistofnun íslands að
gangast fyrir og skipuleggja fugla-
talningu um hver áramót. Er þá leit-
að til fuglaáhugamanna um landið
allt og þeir beðnir um að telja á fyrir-
fram ákveðnum stöðum.
Þessa árvissu talningu bar upp á
26. desember síöastliðinn. Fóru
menn þá af Djúpavogi inn í Hamars-
fjörð og töldu á svæðinu Hamarsbrú-
Búlandshöfn. Aðrir héldu inn í Beru-
fjörð og könnuðu ákveöin svæði þar.
Loks var svo litið inn í skógræktina
fyrir innan þorpið. Þessi svæði hafa
númerin 310,311,312 og 313 í gögnum
Nattúrufræðistofnunar.
Er skemmst frá því að segja að 22
tegundir greindust þarna fyrir víst:
Himbrimi, stokkönd, æðarfugl, há-
vella, dílaskarfur, toppönd, teista,
snjótittlingur, sendlingur, svart-
bakur, hvímáfur, silfurmáfur, fýll,
gulönd, tjaldur, stelkur, hrafn,
straumönd, haftyröill, langvía, stutt-
nefja og músarrindill. Þá leikur á því
grunur að í hópi dílaskarfanna hafi
leynst toppskarfar, og innan um
hvítmáfana einhverjir bjartmáfar.
Alls voru þessir fuglar um 4500 tals-
ins. Mest bar á æðarfugli (um 1500),
hávellu (um 900), svartbak (um 500)
og snjótittlingi (um 300).
Egilsstaðir:
Fjörkippur í íbúð-
arhúsabyggingum
Sigrún Björgvmsdóttir, DV, Egilsstöðum:
Allmörg íbúðarhús eru nú í smíð-
um á Egilsstööum. Fyrir utan fjölbýl-
ishús, með 18 íbúðum fyrir aldraða,
eru 7 einbýlishús í smíðum og sótt
hefur verið um 10 lóðir til viðbótar.
Nokkur lægð hefur verið í byggingu
íbúðarhúsa á Egilsstöðum a.m.k. síð-
ustu tvö ár.
Fréttamaður haföi samband við
Guðmund Pálsson, tæknifræðing hjá
Egilsstaðabæ, og spurði hver myndi
vera orsök þessarar aukningar í
byggingu íbúðarhúsa í bænum.
Hann sagðist helst geta giskað á að
ungt fólk, sem búið hefði í foreldra-
húsum og lengi hefur beðið eftir
lánafyrirgreiðslu, hefði nú loks feng-
ið lánsloforð en eftir lánaaustur til
íbúðabygginga árið 1986 hefði komið
löng bið eftir lánum. Einnig væri eitt-
hvað um að fólk, sem búið hefur í
bænum tvö til þrjú ár, væri nú
ákveðið að setjast hér að og færi þá
að hyggja að húsbyggingu. Húsin
munu ýmist verða steypt á staðnum,
byggð úr steyptum einingum frá
Brúnási hf. á Egilsstööum eða timb-
urhús frá Trésmiðju Fljótsdalshér-
aðs í Fellabæ, eins og húsið hér á
myndinni sem reist var nú í janúar.
Hús frá Trésmiðju Fljótsdalshéraðs í Fellabæ, sem reist var nú í janúar.
DV-mynd Sigrún
Vonarland á Egilsstöðum fékk stórgjafir:
Hálf milljón safnað-
ist í dægurlagakeppni
Sigiún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum:
Það var mikið um dýrðir á Von-
arlandi, dvalarheimili þroska-
heftra á Egilsstöðum, sunnudaginr.
11. desember. Þar var haldin jóla-
trésskemmtun fyrir vistfólk með
fagurlega skreyttu jólatré og jóla-
sveinar komu í heimsókn.
Þegar nóg hafði verið dansað var
haldið út í sundlaugarbygginguna.
Þar var fjölmenni og heimilinu
færðar gjafir sem áhugafólk og fé-
lög hafa safnað til styrktar bygg-
ingu sundlaugar.
Þorvarður Bessi Einarsson af-
henti 500 þúsund krónur sem voru
ágóði af dægurlagakeppni sem
nokkrir áhugamenn héldu i haust.
Allir sem unnu að framkvæmd
keppninnar gáfu vinnu sína. Hug-
mynd að þessari fláröflunarleið
kviknaði þegar barnaútvarpið var
með söfnun á Egilsstööum sl. sum-
ar. Dægurlagakeppnin var tekin
upp á myndband og Stefán Braga-
son afhenti Vonarlandi eintak.
Ágóði af happdrætti
Asgeir Már Valdimarsson færði
Vonarlandi 310 þúsund krónur,
ágóða af happdrætti sem Kiwanis-
klúbburinn Snæfell á Héraði stóð
fyrir. Ari Guðmundsson frá Lions-
klúbbnum Svani í Breiðdalshreppi
aíhenti 100 þúsund krónur, afrakst-
ur ruslahreinsunar á Breiðdalsvík.
Lionsklúbburinn Múli á Héráði,
sem löngum hefur stutt byggingu
sundlaugarinnar bæði með fjár-
framlögum og vinnuframlagi, gaf
100 þúsund krónur, sem formaður-
inn, Astráður Magnússon, afhenti.
Sigurður Magnússon, formaður
Styrktarfélags vangefma á Austur-
landi, þakkaði þessar höfðinglegu
gjafir. Vinna viö sundlaugina hófst
1982 og með hvíldum var hún fok-
held 1986. Vinna er nú hafm við
lokaátakið. Um 2,2 milljónir króna
hafa fengist úr framkvæmdasjóði
fatlaðra og með því sem heima-
menn hafa lagt til mun verkið kom-
ast langleiðina. Margir aðrir hafa
lagt málinu lið, svo sem barnaút-
varpið, Sjálfsbjörg í Neskaupstað,
sem gaf 55 þúsund, og einstakling-
ur á Egilsstöðum gaf 60 þúsund.
Forstöðukona Vonarlands, Elfa
Gylfadóttir, þakkaði einnig gjafir
og hlýhug.
Þorvarður Bessi afhenti 500 þús-
und krónur - afrakstur dægurlaga-
keppninnar.
Ásgeir M. Valdimarsson afhendir Sigurði Magnússyni formanni framlag
Kiwanismanna. DV-myndir Sigrún