Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1989, Síða 43
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1989.
43
DV
Ragnar Tómasson
Ragnar Tómasson lögfræðingur,
Dofra viö Vesturlandsbraut, er
fimmtugur í dag. Ragnar er fæddur
í Rvík og lauk lögfræðiprófi í HÍ
1965. Hann var í námi í Business
School í Kaliforníuháskóla 1966 og
hefur rekið málflutningsskrifstofu í
Rvík frá 1966 og rekur fasteigna- og
fyrirtækjasöluna Húsakaup, auk
þess sem hann vinnur við samn-
inga- ogfyrirtækjaráögjöf. Frí-
'stundum sínum ver Ragnar í hesta-
mennsku og leitina að hinum full-
komna gæðingi. Ragnar og fjöl-
skylda hans stofnuðu veitingahúsið
Jarlinn í Kringlunni 1987 og á síð-
asta ári tók hún við veitingasölu á
Sprengisandi en báðir þessir staöir
eru sælkerum að góðu kunnir.
Ragnar kvæntist 31. ágúst 1963
Dagnýju Ólafíu Gísladóttur, f. 31.
ágúst 1943. Foreldrar Dagnýjar eru
Gísli Benjamínsson, múrari í Rvík,
og kona hans, Guðlaug Ólafsdóttir.
Börn Ragnars og Dagnýjar eru:
Ragna Þóra, f. 9. apríl 1964, skrif-
stofustúlka í Reykjavík, gift Gunn-
ari Þór Jóhannessyni sölustjóra,
eiga þau eina dóttur, Dagnýju Ósk;
Tómas, f. 6. september 1965, bók-
bandsnemi og yngsti Evrópumeist-
ari í hestaíþróttum, kvæntur Þóru
Þrastardóttur, ungfrú Reykjavík
1986, og reka þau veitingastað í
Kringlunni; Dagný Ólafía, f. 4. mars
1968, bankastarfsmaður í Rvík, gift
Guðna Jónssyni, húsasmið og
tækniskólanema, og Arnar Þór, f.
23. apríl 1972, verslunarskólanemi.
Systkini Ragnars eru Gunnar, f.
30. júní 1940, hagfræðingur hjá AI-
þjóðagjaldeyrissjóðnum, kvæntur
Guðrúnu Ólafíu Jónsdóttur; Ragn-
heiður, f. 13. ágúst 1944, gift Jóni
Péturssyni, formanni Lögreglufé-
lags Reykjavíkur, og Guðríður, f. 8.
júlí 1950, starfsmaður hjá SAS í
Reykjavík, gift Guðna Pálssyni arki-
tekt. Uppeldisbróðir Ragnars er Ein-
ar Sverrisson, f. 13. september 1937,
heildsali, kvæntur Guðrúnu
Bjarnadóttur hjúkrunarkonu.
Foreldrar Ragnars: Tómas Péturs-
son, f. 19. september 1910, d. 16. ágúst
1969, stórkaupmaður í Rvík, og kona
hans, Ragnheiður Einarsdóttir, f. 11.
febrúar 1917, fyrrv. formaður
Hringsins. Tómas var sonur.Péturs,
slökkviliðsstjóra í Rvík, Ingimund-
arsonar, verslunarmanns á Borð-
eyri, bróður, samfeöra, Þorvaldar,
afa Vigdísar Finnbogadóttur. Ingi-
mundur var sonur Jakobs, prests í
Steinnesi, Finnbogasonar. Móðir
Jakobs var Arndís Teitsdóttir, vef-
ara í Rvík, Sveinssonar. Móðir Tóm-
asar var Guðrún Benediktsdóttir,
verslunarmanns í Rvík, Samsonar-
sonar. Móðir Margrét Gunnlaugs-
dóttir. Móðir Margrétar var Oddný
Ólafsdóttir. Móðir Oddnýjar var
Margrét, systir Bjöms Ólsens, afa
Björns Ólsens rektors.
Móöir Péturs var Sigríður, systir
Guðrúnar, móður Sigfúsar Blöndal
orðabókahöfundar. Önnur systir
Sigríðar var Ásgerður, langamma
Péturs Hafsteins Lárussonar skálds,
Guðmundar Péturssonar, forstöðu-
manns á Keldum, og Boga Ágústs-
sonar fréttastjóra. Sigríður var dótt-
ir Sigfúsar, prests á Undirfelli, Jóns-
sonar, prests í Reykjahlíð, Þor-
steinssonar, ættfoður Reykjahlíðar-
ættarinnar. Móðir Sigríðar var Sig-
ríður, systir Lárasar, langafa Matt-
híasar Johannessen ritstjóra. Lárus
var langafi Haraldar, Halldórs og
Benedikts Blöndals. Sigríður var
dóttir Björns Blöndals, sýslumanns
í Hvammi, ættföður Blöndalsættar-
innar.
Ragnheiður var dóttir Einars,
sýslumanns á Patreksfirði, bróður
Ingibjargar, móður læknanna Jón-
asar og Kristjáns Sveinssona og
amma Sveins Jónssonar, formanns
KR, og Höskuldar Ólafssonar
bankastjóra. Önnur systir Einars
var Margrét, móðir Jónasar skálds
og Kristjáns, ritstjóra Vísis, Guð-
laugssona. Einar var sonur Jónasar,
prests í Hítardal, Guðmundssonar,
b. í Þverárdal, Einarssonar, b. í
Þverárdal, Jónssonar, b. á Skeggs-
stöðum, Jónssonar, ættföður
Skeggsstaðaættarinnar. Móðir Jón-
asar var Margrét Jónasdóttir, b. á
Gili í Svartárdal, Jónssonar. Móðir
Jónasar var Ingibjörg Jónsdóttir
harðabónda, b. í Mörk í Laxárdal,
Jónssonar, ættföður Harðabónda-
ættarinnar. Móðir Margrétar var
Ingibjörg Jónsdóttir, systir Einars í
Þverárdal. Móðir Einars var Elín-
borg Kristjánsdóttur, sýslumanns á
Skarði á Skarösströnd, Skúlasonar,
sýslumanns á Skarði, Magnússon-
ar, sýslumanns á Skarði, Ketilsson-
ar. Móöir Magnúsar var Guðrún
Magnúsdóttir, systir Skúla fógeta.
Móðir Ragnheiðar var Ragnheiður
Kristjánsdóttir Halls, verslunar-
stjóra á Borðeyri, og konu hans,
Afmæli
Ragnar Tómasson.
Elínborgar, systur Sigurðar Eggerz
ráöherra, föður Péturs sendiherra.
Systur Elínborgar, samfeðra, voru
Sólveig, amma Þorsteins Sæmunds-
sonar stjörnufræðings, og Ragn-
hildur, móðir Birgis og Kristjáns
Thorlacius. Elínborg var dóttir Pét-
urs Eggerz, kaupstjóra á Borðeyri,
og konu hans, Jakobínu Pálsdóttur
Melsteð, amtmanns í Stykkishólmi.
Móðir Jakobínu var Anna Stefáns-
dóttir, amtmanns á Mööruvöllum,
Þórarinssonar, sýslumanns á
Grund, Jónssonar, ættföður Thor-
arensenættarinnar. Ragnar væntir
þess að vinir og kunningjar líti inn
hjá honum á Sprengisandi klukkan '!
19.00 í kvöld. Méð matnum verður
gott úrval gosdrykkja.
Helgi Indriðason
Helgi Indriðason, fyrrv. bóndi i
Laugarási í Biskupstungum, Háa-
leitisbraut 111, Reykjavík, ersjötíu
og fimm ára í dag. Helgi fæddist í
Ásatúni í Hrunamannahreppi og
ólst þar upp. Eftir fermingu átti
Helgi við vanheilsu að stríða um
árabil en tvítugur að aldri fór hann
til náms aö Bændaskólanum á Hól-
um og lauk þaðan búfræðingsprófi
1936. Að námi loknu starfaði hann
tvö ár að Hólum sem fiósamaöur og
síðan ráðsmaður. Sumarið 1938 var
hann viö fiárgæslu á Tungna-
mannaafrétti vegna mæðiveikis-
faraldurs og vann síðan við bústörf
á nokkrum bæjum á Suður- og Vest-
urlandi næstu tíu árin, að undan-
skildu einu ári i Bretavinnunni í
Reykjavík. Síðustu fiögur þessara
ára var hann ráðsmaður hjá Bjarna
Bjarnasyni, skólameistara á Laug-
arvatni.
Helgi kvæntist 1947 og hóf eigin
búskap á jörð læknishéraðsins í
Laugarási í Biskupstungum. Þar bjó
hann í tuttugu og þrjú ár. 1970 fluttu
þau til Reykjavíkur þar sem Helgi
vann við ýmis verslunar- og þjón-
ustustörf, lengst þó sem afgreiðslu-
maður í Málaranum. Hann hætti
störfum 1987. Helgi hefur alltaf veriö
mikill unnandi hestamennsku. Á
yngri árum ferðaðist hann ríðandi
víða um land og hann var meðal
stofnenda hestamannafélaganna
Loga í Biskupstungum og Smára í
Hrunamannahreppi. Helgi kvæntist
1947 Guðnýju Aðalbjörgu Guð-
mundsdóttur, f. 2. apríl 1913, For-
eldrar Guðnýjar. voru Guðmundur
Bjarnason, f. 1870, d. 1924, b. í Ön-
undarfirði, og kona hans, Guðný
Arngrímsdóttir, f. 1871, d. 1920. Fóst-
ursonur Helga og Guðnýjar er Birg-
ir Stefánsson, f. 11. júlí 1948, stýri-
maður í Reykjavík. Kjördóttir
þeirra er Gróa Kristín Helgadóttir,
f. 2. janúar 1951, en sambýlismaður
hennar er Guðmundur Haraldsson,
f. 26. desember 1952. Tvíburadætur
Gróu era Guðný Birgitta og Helga
Sigríður Harðardætur, f. 26. mars
1972, þau eru búsett á Flateyri. Helgi
átti tíu alsystkini en þar af eru sex
álífi.
Foreldrar Helga voru Indriði
Grímsson, f. 27. júlí 1873, d. 10. nóv-
ember 1921, b. í Ásatúni í Hruna-
mannahreppi, og kona hans, Gróa
Magnúsdóttir, f. 20. ágúst 1877. Ind-
riði var sonur Gríms, b. í Ásakoti,
Guömundssonar, b. á Kjaransstöð-
um, Þorsteinssonar, b. í Miðdals-
koti, Vigfússonar, b. á Kiðabergi í
Grímsnesi, Sigurðssonar, b. í Ás-
garði, Ásmundssonar, föður Jóns,
afa Jóns forseta. Dóttir Sigurðar var
Salvör, amma Tómasar Sæmunds-
sonar „Fjölnismanns".
Móðir Indriða var Helga Guð-
mundsdóttir, b. á Brekku í Bisk-
upstungum, Guðmundssonar, í
Austurhlíö, Eyjólfssonar. Móöir
Guðmundar á Brekku var Guðrún
Magnúsdóttir, alþingismanns í
Bráðræði í Rvík, Jónssonar, og
konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur,
systur Jóns Hjaltalín landlæknis.
Móðir Helgu var Helga, dóttir Jóns
Bachmann, prests í Klausturhólum,
Hallgrímssonar Bachmann, læknis
í Bjarnarhöfn. Móðir Jóns var Hall-
dóra Skúladóttir, landfógeta Magn-
ússonar. Móðir Helgu Jónsdóttur
var Ragnhildur Björnsdóttur, próf-
asts á Setbergi, Þorgrímssonar,
sýslumanns í Hjarðarholti, Sigurðs-
sonar, bróður Ragnhildar, móður
Eggerts Ólafssonar skálds. Móðir
Helgi Indriðason.
Ragnhildar var Helga Brynjólfs-
dóttir, sýslumanns í Hjálmholti, Sig
urðssonar, sýslumanns í Saurbæ á
Kjalarnesi, Sigurðssonar, lögmanns
í Saurbæ, Björnssonar.
Gróa var dóttir Magnúsar, b. í
Bryðjuholti, Jónssonar, b. í Efra-
Langholti, Magnússonar, b, í Efra-
Langholti, Eiríkssonar, í Bolholti,
Jónssonar, ættfóður Bolholtsættar-
innar. Móðir Gróu var Guðný Ein-
arsdóttir, b. í Bryðjuholti, Einars-
sonar, b. í Bryðjuholti, Bjarnasonar,
b. á Sóleyjarbakka, Jónssonar
rauðs, b. á Fjalh, Jónssonar. Helgi
verður heima við á afmælisdaginn.
SMÁAUGLÝSINGAR
85 ára
Elín Margrét Jósefsdóttir,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
75 ára
* i
Magnea P. Guðmundsdóttir,
Langholti 16, Akureyri.
70 ára
Jón Kristjánsson,
Fjarðarbraut 9, Stöðvarhreppi,
Suður-Múlasýslu.
60 ára
Tómas Helgason,
Hofsstöðum, Stafholtstungum
Mýrasýslu.
Guðmundur Ámi Markússon,
Skriðustekk 21, Reykjavík.
Theódór Magnússon,
Holtagötu 5, Kaldrananeshreppi,
Strandasýslu.
Jón Ólafsson,
Hjallaseli 3, Reykjavik.
Guðlaug Sveinsdóttir,
Vallholti 9, Ólafsvik.
Jón Óskarsson,
Miöbraut 6, Seltjamarnesi.
Sigtryggur Þorsteinsson,
Birkiteig 9, Keilavík.
50 ára
Guðlaug Kristrún Einarsdóttir,
Efstahjalla 25, KópavogL
Guörún Bjarnadóttir,
Guörúnarstöðum, Áshreppi,
Austur-Húnavatnssýslu.
Hilmar M. Ólafsson,
Langagerði 78, Reykjavík.
Sveinn Tryggvason,
Laugabóli 1, Reykdælahreppi,
Suöur-Þingeyjarsýslu.
Númi Jóhannsson,
Túngötu 15, Ólafsfirði.
40 ára
Jónas Sigurðsson,
Amartanga 57, Mosfellsbæ.
Dieter Pollitz,
Háfshjáleigu, Djúpárhreppi,
Rangárvallasýslu.
Helgi Sveinbjörnsson,
Iðu 2, Biskupstungnahreppi,
Ámessýslu.
Kristján Haraldsson,
Sævangi 34, Hafnarfirði.
Tómas G. lngólfsson,
Breiðufit, Mosfellsbæ..
Magnhildur Baldursdóttir,
Háaleitisbraut 119, Reykjavík.