Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
5
dv Fréttir
Reykjavíkurborg sendi nýlega
reikning til Fjölbrautaskólans á
Suðumesjum fyrir námsvistar-
gjöldura Suðurnesjamanna í
Reykjavík. Skolinn svaraði því
hins vegar með því að senda
reikning á móti vegna neraenda
úr Reykjavik sem stunda nám á
flugliðabraut. Að sögn Hjálmars
Ámasonar, skólaraeistara Fjöl-
brautaskólans á Suðumesjum,
verður niðurstaða málsins lík-
lega sú 'að reikningamir verða
felldir niður.
„lliu heilli var gerður samning-
ur á milli Samtaka sveitarfélaga
á Suðumesjura og Reykjavíkur-
borgar um greiðslu á þessu. Ég
er nú margbúinn að leggja til að
þessimi samningi verði sagt upp
af þeirri einföldu ástæðu að það
má rajög auðveldlega rökstyðja
það að Reykjavíkurborg stórg-
ræðir á því að fá þessa nemendur
til sín. Ekki síst í Ijósi þess að
obbinn af þessum nemendum
verður eflir í Reykjavik," sagði
Hjálmar en þessi námsvistar-
gjöld, sem Reykjavíkurborg er að
reyna að rukka, hafa verið mjög
óvinsæl meöal sveitarstjórnar-
manna.
Reikningurinn, sem barst frá
Reykjavík, var að upphæð 1,7
milljónir króna en reikningur
Suðumesjamanna var upp á tvær
milljónir. Þessir reikningar náðu
allt aftur til 1984.
-SMJ
Fæðmgarheimllið:
Skurðdeild
lokuð til
st r^3 otci
Skurödeildinni á Fæðingar-
heimili Reykjavíkur verður lokað
nú 15. april og verður hún lokuð
til næstu áramóta. Að sögn Guð-
jóns Guönasonar yfirlæknis er
lokunin vegna þeirra spamaða-
raögerða sem sjúkrastofnanir
verða að grípa til vegna niður-
skurðar á fjárlögum.
Fæðingarheimihð verður siöan
lokað samkvæmt venju í sex vik-
ur i ágúst. Guöjón sagði að þessi
lokun skurðdeildar hefði engin
áhrif á öryggi sjúklinga. Þeir
sjúklingar, sem hafa notið þess-
arar aðstöðu, geta snúið sér til
kvensjúkdómadeilda annars
staðar eða þá farið á biðlista.
Þessi lokun skurðdeildar er
reyndar ekkert einsdæmi þó að
lokunin hafi aldrei varað jafn-
lengi. í fyrra var skurðdeildinni
lokað í þrjá mánuði vegna skorts
á starfsfólki.
-SMJ
SS kynnir tvæ o
ktu hangikjöti
Enn fitjar SS upp á nýjungum. Nú bjóðum við
tvær tegundir af birkireykta hangikjötinu okkar,
annars vegar bragðmilt og hins vegar bragðmikið
hangikjöt. Birkireykt hangikjöt gefur ósvikið og ljúffengt bragð.
Þjóðlegur matur eins og hann gerist bestur.
Nú getur þú valið um tvær
tegundir. Önnur þeirra
er áreiðanlega sú sem
þér finnst best. C*
í Túnis bjóðum við tvo frábæra baðstaði,
Hammamet og Port E1 Kantaou þar sem er
að finna gott úrval fyrsta flokks hótela þar
sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Hér er
að finna framandi andrúmsloft og spenn-
andi arabíska markaði. Stuttar skoðunar-
ferðir „aftur í tímann“ til Karþagó eða
lengri ferðir um Sahara eyðimörkina. Tún-
is er svo sannarlega land sem vert er að
skoða nánar. Flug um Kaupmannahöfn
alla fímmtudaga, dvalið í 2-3 vikur.
FERDASKRIFSTOFAN