Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Qupperneq 12
12
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
Stálhusgögn
í úrvali
SteíS''
• Borðstofuhúsgögn
• Stakir leðurstólar
• Stök borð m. glerplötu
#ALFABORG"
BYGGINGAMARKAÐUR
SKÚTUVOGI 4- SlMI 686755
Rafkaup
SUÐURLANDSBRAUT 4 — SÍMI: 681518
KLUKKU
LAMPAR
TIL FERMINGARGJAFA
Imonza
Rúmgóöur og sterkbyggður
bíll, sérsmíöaður fyrir
íslenskar aðstæður.
Mjög vandaður og þægi-
legur fjölskyIdubíll á verði
sem fæstir geta keppt við.
Verð frá kr. 725.000,-.
Ert þú í bílahugleiðingum?
Reyndu þá bíl frá General
Motors og finndu muninn!
«muiur(
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
I1 ._. .....r
Utlönd
Sósíalistar sigruðu
Rocard forsætisráðherra Frakklands hrósar nú sigri þvi það hefur ekki gerst
í marga áratugi að stjórnarflokkur nái svo góðum árangri í bæjarstjórnar-
kosningum. Símamynd Reuter
Bjarni Hinriksson, DV, Bordeaux:
Sósialistar eru óumdeilanlega sigur-
vegarar bæjarstjórnarkosninganna í
Frakklandi en seinni umferö þeirra
fór fram i gær. Eftir fyrri umferðina
var ljóst aö einvígi vinstri og hægri
manna yrði jafnt í mörgum stærri
borgum landsins og góöur árangur
græningja var talinn geta sett sósíal-
ista í vanda auk þess sem samvinna
hinna síðarnefndu og kommúnista
var ekki snurðulaus.
En þrátt fyrir þetta unnu sósíalist-
ar um tuttugu stórar borgir í viðbót
við þær sem þeir stjórnuðu fyrir. í
mörgum borganna voru framboðs-
listar þeirra reyndar samansettir af
mönnum og konum sem koma ann-
ars staðar aö úr stjórnmálunum og
má segja að nú sé aftur talað um
samfylkingarhugmyndir Mitter-
rands forseta og Rocards forsætis-
ráðherra sem svo mikið voru á döf-
inni fyrst eftir forsetakosningarnar í
fyrrasumar.
Sósíahstar vinna á um allt land en
þó sérstaklega á Bretagneskaga og í
Alsacehéraði auk borga í Suður-
Frakklandi. Óvæntastur er líklega
sigur Trautmanns í Strasbourg en
borgarbúar þar hafa árum saman
kosið miðjumenn. Og Trautmann,
sem var eitt af nýju andlitunum í
stjórnmálunum eftir kosningarnar í
fyrrasumar, hafði farið illa út úr
þingkosningunum í kjölfar forseta-
kosninganna. Missti hann bæði þing-
sæti og ráðherrastól.
Kommúnistar tapa Amiens, einni
af stærstu borgunum sem þeir
stjórnuðu og eins konar flaggskipi
sem þeir hafa ráðið yfir í átján ár,
og eru kosningarnar núna enn eitt
áfallið fyrir flokkinn og staðfesting á
versnandi stööu hans. Leiðtogar
kommúnista veittust harkalega að
sósíalistum og töldu þá ekki hafa virt
samninga sem gerðir voru á milli
umferðanna tveggja og fólust í gagn-
kvæmum stuðningi gegn hægri
vængnum.
Gaullistar og miðjumenn tapa
nokkrum borgum, sérstaklega þeir
síöarnefndu, en gaullistar geta hugg-
að sig við yfirburðasigur í París og
Lion, tveimur stærstu borgum lands-
ins. Græningjar staðfesta og auka í
mörgum tilvikum fylgi sitt og geta
ekki lengur talist ómerkilegur smá-
flokkur. Markmið þeirra var að taka
þátt í hinum hefðbundna flokkaleik
og fá inn menn í bæjarstjórnirnar
og því markmiði hefur verið náð.
Þjóðfylking Le Pens kemur ekki svo
illa út úr seinni umferðinni og nær
sér niður á stóru hægri flokkunum
sem ekki vildu neitt samstarf.
Fyrir utan sigur sósíalista og hug-
myndir þeirra um samfylkingu ein-
kennir úrslit kosninganna viss end-
umýjun í frönskum stjórnmálum.
Kjósendur hafa í mörgum tilvikum
tekið yngri frambjóðendur fram yfir
gamla jálka og ný kynslóð borgar-
stjóra er komin fram, bæði til hægri
og til vinstri, sem leggur meiri
áherslu á góða stjórnun en hug-
myndafræði. Rocard forsætisráð-
herra hrósar sigri, það hefur ekki
gerst í marga áratugi að flokkur við
stjórn nái svo góðum árangri í bæjar-
stjómarkosningum. Aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar síðustu mánuði voru
um ótalmargt háðar væntanlegum
kosningum og staða Rocards oft erf-
ið, sérstaklega í samskiptum við op-
inbera starfsmenn, en nú ætti stjórn-
in að geta verið ákveðnari. Ósigur
miðjumanna í UDF-samtökunum
gæti einnig ýtt þeim til einhvers kon-
ar samstarfs við sósíalista.
Konur mótmæla á Kýpur
Tyrkneskir hermenn hindra grísku konurnar frá því að komast lengra inn i norðurhluta Kýpur er þær mótmæltu
skiptingu eyjarinnar. Simamynd Reuter
Rúmlega þrjú þúsund konur fóru
yfir grænu línuna á Kýpur í gær og
voru fimmtíu og fjórar þeirra hand-
teknar. Þetta voru konur sem búa á
griska svæðinu við línuna og var
þeim mætt með köllum frá tyrkneska
hlutanum um að þær skyldu hypja
sig heim.
Með grísku konunum gengu konur
frá Bandaríkjunum, Ástralíu og Evr-
ópu og meðal þeirra var Margaret
Papandreou, eiginkona Andreas
Papandreou, forsætisráðherra
Grikklands.
Sjónarvottar segja aö nokkrar
kvennanna, sem handteknar voru,
hafi veriö dregnar burtu öskrandi og
hefðu þær hlotiö meiðsli. Að minnsta
kosti fjórar blaðakonur og tvær
bandarískar konur voru meðal
þeirra sem handteknar voru. Þeim
var sleppt í gærkvöldi.
Mótmælagangan var sú þriðja á
þremur árum sem konur efna til.
Voru göngumenn að mótmæla skipt-
ingu eyjarinnar en um tvö hundruð
þúsund Grikkjum er meinað að snúa
aftur til heimkynna sinna á noröur-
hluta Kýpur sem þeir urðu að flýja
þegar Tyrkir gerðu innrás árið 1974.
Reuter
Afganskir skæruliðar virða fyrir sér lík tveggja stjórnarhermanna við Jal-
alabad sem enn er barist um. Simamynd Reuter
Pakistanskir
fangar
Yfirvöld í Afganistan sýndu í gær
íjölmiðlum tvo fanga sem þau sögðu
að væru Pakistanar. Með því vildu
yfirvöld færa sönnur á þær fullyrð-
ingar sínar að Pakistan veiti skæru-
liðum hjálp.
Nærvera fanganna þótti hins vegar
ekki sanna neitt þar sem hvorugur
þeirra haföi barist við skæruliða né
verið nálægt Jalalabad sem aðalbar-
áttan stendur nú um.
Yfirvöld í Kabúl sögöu í gær að
sýndir
stjórnarhermenn hefðu fellt tvö
hundruð og fimmtán skæruhða um
helgina en leiðtogi skæruliða hvatti
stjórnarherinn til að gefast upp. Út-
varpið i Kabúl greindi frá því að sjö
óbreyttir borgarar hefðu látist í árás-
unum á Jalalabad og tvær aörar
borgir um helgina. Afganskur þing-
maöur var einnig sagður hafa látiö
lífiö af völdum jarðsprengju í borg-
inni Herat.
Reuter