Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Page 13
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
13
Utlönd
Roh Tae-Woo, forseti Suður-Kóreu, tilkynnti i morgun að hann hefði ákveð-
ið að hætta við atkvæðagreiðslu sem fara átti fram í næsta mánuði um
frammistöðu hans frá því hann tók við embætti. Símamynd Reuter
Aflýsir þjódarat-
kvæðagreiðslu
Roh Tae-Woo, forseti Suður-Kóreu,
tilkynnti í morgun að þjóðarat-
kvæðagreiðslu um hæfni hans, sem
fara átti fram í næsta mánuði, yrði
frestað um óákveðinn tíma.
í sjónvarpsávarpi sagði Roh að
„bráðabirgðamatið" myndi ekki eiga
sér stað vegna hættunnar á því að
róttæklingar myndu misnota það til
að valda stjórnmálalegum og félags-
legum óróa.
„Ég tel að þjóðaratkvæðagreiðsla
núna geti ekki hjálpað þjóðinni,"
sagði forsetinn.
Roh sagði að róttæklingar væru að
reyna að misnota atkvæðagreiðsluna
til þess að velta stjórn hans af stóli
með ofbeldi. Roh lofaði þegar hann
stóð í kosningabaráttu fyrir forseta-
kosningarnar 1987 að mat færi fram
á frammistöðu hans eftir eitt ár í
embætti.
Hann sagðist skyldu íhuga ein-
hvers konar mat á frammistöðu sinni
síðar.
Roh sagði að annað atriði, sem
hefði fengið hann til að taka þessa
ákvörðun, væri óeining og missætti
meðal stjómarandstöðunnar sem
heíði ekki getaö komið sér saman um
hvenær atkvæðagreiðslan ætti að
fara fram.
Sumir leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar vildu láta fresta atkvæða-
greiðslunni þar til Roh hefði alger-
lega hreinsað burt leifarnar frá ein-
ræðisstjóm Chun Doo Hwan, fyrir-
rennara hans.
Chun er nú í útlegð innanlands í
búddahofi eftir að hafa beðist opin-
berlega afsökunar á spilhngu og
mannréttindabrotum sem áttu sér
stað á þeim átta árum sem hann var
við stjórnvöhnn.
Stjórnarandstaðan hafði haft
áhyggjur af því að Roh gæti notað
atkvæðagreiðsluna sem stuðnings-
yfirlýsingu við sig og gjörðir sínar frá
því að hann tók við embætti í febrúar
1988. Þannig gæti hann hætt að rann-
saka misgjörðir Chuns.
Roh sagðist óttast alvarlegan óróa
í landinu ef atkvæðagreiðslan færi
fram nú þegar deilur eru á vinnu-
markaði og mótmælaalda ríður yfir
háskóla landsins.
„Ég mun reyna að koma á félags-
legum stöðugleika með því að ráðast
fyrst til atlögu gegn ólöglegum of-
beldisaðgerðum sem ógna lýðræði,"
sagði hann.
Mikil mótmæh hafa að undanfomu
verið gegn „Liðsandaleikunum",
sem eru sameiginlegar heræfingar
Suður-Kóreumanna og Bandaríkja-
manna. Róttækhngar segja að verið
sé að æfa innrás í Norður-Kóreu.
í morgun hrapaði bandarísk her-
þyrla í fámennu fjallahéraði í Suður-
Kóreu. Fómst með henni tuttugu og
tveir bandarískir sjóliðar og fimmtán
slösuðust.
Sumir hinna slösuðu vom í mjög
alvarlegu ástandi, að sögn talsmanns
sameiginlegs herafla Suður-Kóreu-
manna og Bandaríkjamanna. Þyrlan
tók þátt í „Liðsandaleikunum".
Slysið í morgun var annað þyrlu-
slysið sem varð á Liðsandaleikunum
að þessu sinni. Síðastliðinn föstudag
hrapaði önnur þyrla og með henni
fórust fjórir Bandaríkjamenn.
Sameiginleg yfirstjórn herafla
beggja ríkjanna segir að Liðsanda-
leikarnir séu varnaræfing til að verj-
ast því ef Norður-Kóreumenn geri
aðra árás í hkingu við þá sem þeir
gerðu 1950 og hratt Kóreustríðinu af
stað.
Reuter
Um helgina þurfti lögregla í Suður-Kóreu að beita táragasi gegn mótmæl-
endum sem mótmæltu Liðsandaleikunum. Simamynd Reuter
Hiisgagna-jiöllin
REYKJAVIK
«0-50%
AFSlÁTfUR
SÓFASETT
RÚM
KLÆÐAS
SÓFAB
ELDH
ST
TOLAR
*
SÓFAR
ABORÐ
FLEIRA OG FLEIRA
seljum við með
afslætti
Sumt eru húsgögn sem hafa orðið fyrir hnjaski í flutningi
- annað eitthvað lítið útlitsgallað - og einnig húsgögn sem
ekkert er að.
KOMDU STRAX i DAG - ÞAÐ BORGAR SIG!