Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Síða 22
22
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
Fréttir
Togararallið
kemur nokkuð
misjafnt út
Hinu árlega togararalli er nú um
það bil að ljúka. Því er raunar lokið
fyrir sunnan og vestan en hefur taf-
ist fyrir norðan og norðaustan vegna
veðurs. Enda þótt ekki sé enn hægt
að segja endanlega til um niðurstöð-
umar er ljóst að útkoman að þessu
sinni er nokkuð misjöfn boriö saman
við árið í fyrra. Samkvæmt heimiid-
um DV fékkst þrisvar sinnum meiri
afli fyrir sunnan og vestan að þessu
sinni en í fyrra. Aftur á móti er útht
fyrir að útkoman sé mun lakari fyrir
norðan og hrein ördeyða fyrir N-
Austurlandi.
Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, sagði í samtah
við DV að hann gæti ekki sagt til um
útkomuna fyrr en öll gögn hefðu
borist. Hann staðfesti þó að útkoman
væri betri fyrir sunnan og vestan en
í fyrra. Búist er við að togararahinu
ljúki um helgina.
Togararallið byggist á því að láta
ákveðinn íjölda togara toga árlega
jafnlangan tíma á sömu slóð og gera
samanburð milli ára. Togararallið er
hugmynd Jakobs Jakobssonar, for-
stjóra Hafrannsóknastofnunar. Talið
er að þegar frá líður verði það eitt
hið marktækasta sem fiskifræðingar
hafa í höndunum varðandi mælingar
fiskistofna. -S.dór
VÖRUGJALD AF
INNLENDRIFRAMLEIDSLU
Vörugjaldsskyldar vörur
Greiða skal vörugjald af innlendri
framleiðslu, pökkun eða annarri
aðvinnslu vara sem falla undir þau
tollskrárnúmersem tilgreind eru í lögum
um vörugjald. Vörugjald er9% áflestum
vöruflokkum, en á aðra leggst einnig
sérstakt 16% vörugjald, þ.e. samtals
25% vörugjald.
Meðal vöruflokka, sem bera
9% vörugjald, eru þessir:
■ Forsmíðaðir hlutar í byggingar og
mannvirki, svo sem gluggar, hurðir,
burðarvirki, grindur og handrið, hvort sem
þessir hlutar eru úr steinsteypu, tré, járni,
stáli, áli eðaplasti.
■ Flestar aðrar trjávörur, svo sem
húsgögn og innréttingar.
* Flestar aðrar vörur úr málmi til
bygginga og mannvirkja, svo sem
loftræstikerfi, stokkar, túður o.þ.h.
■ Sement, steinsteypa og vörur úr
steinsteypu, svo sem gangstéttahellur,
götu- og stéttahellur, kantsteinaro.fi.
I Gler og glerspeglar, ofnar til
miðstöðvarhitunar, málning og lökk,
hreinlætistæki, gólfefni, gólfdúkar,
veggfóður, einangrunarefni, ýmis
heimilistæki, lamparog Ijósabúnaður.
II llmvötn, snyrtivörur og hárþvottalögur.
■ Yfirbyggingar fyrir vélknúin ökutæki,
tengivagna o.fl. Ýmsir fylgihlutar fyrir
ökutæki.
Meðal vöruflokka, sem bera 25%
vörugjald, eru þessir:
■ Sykur hvers konar, sælgæti,
kakóvörur, sætakex, ávaxtasafi og
gosdrykkir.
Nánari upplýsingar um
vörugjaldsskylda vöruflokka er að
finna í reglugerð nr. 47/1989, um
vörugjöld.
Skylda til að innheimta og standa skil á
vörugjaldi hvílirá þeim sem framleiða,
vinna að eða pakka vörgjaldsskyldum
vörum innanlands. Einnig á þeim sem
annast heildsöludreifingu þessara vara.
Þessum aðilum er skylt að tilkynna
um starfsemi sínatil skattstjóra í
því umdæmi sem þeir eiga
lögheimili. Eyðublöð fást hjá
skattstjórum.
Vörugjaldsskínteini
Athygli skal vakin á því að innlendir
framleiðendur eiga rétt á skírteini sem
heimilar kaup á hráefnum og aðvinnslu
vegna framleiðslunnar án vörugjalds.
Útgáfa skírteinanna er í höndum
skattstjóra.
Upplýsingar um vörugjaldsskyldu,
vörugjaldsskírteini o.fl. fást hjá
skattstjórum.
Áríðandi er að vörugjaldsskyld
starfsemi sé tilkynnt til skattstjóra
sem fyrst.
RSK
RÍKtSSKATFSTIÓRt
Nokkrir þátttakenda á námskeiðinu á Höfn. DV-mynd Ragnar
Þeir anda léttar á Höf n
Júlía Imsland, DV, Hö£n:
Námskeiðið „Öndum léttar" fyrir
þá sem vilja hætta að reykja var
nýlega haldið á Höfn. Þátttakendur
voru 18 og leiðbeinandi Jón Hjörleif-
ur Jónsson. Einnig kom Máni Fjal-
arrson læknir á námskeiðið og ræddi
við fólkið og svaraði fyrirspurnum.
' Jafnt var af konum og körlum á
námskeiðinu. Jón Hjörleifur fór í
skólana og ræddi við nemendur um
reykingar og skaðsemi þeirra. Fyrir
þrem til fjórum árum reykti stór
hluti gagnfræðaskólanemenda og
vegna þess tóku kennarar og nem-
endur þá ákvörðun aö ekki skyldi
reykt í skólanum eða á lóð hans.
Þessi ákvörðun bar það góðan árang-
ur að í dag reykja fimm nemendur
af 70 og þá aðeins þegar þeir eru ekki
í skólanum. Námskeiðiö „Öndum
léttar“ var á vegum lionessuklúbbs-
ins Kolgrímu.
Alþýðubankinn fær
Sovétviðskipti
Aö sögn Jons Sigurðssonar við-
skiptaráðherra sér hann ekkert því
til fyrirstöðu að Alþýðubankinn fái
viðurkenningu og heimild til þess að
hafa milligöngu um viðskipti á milli
íslands og Sovétríkjanna. Þessa
heimild hefur hann ekki haft til
þessa.
Þetta kom fram á Alþingi við utan-
dagskrárumræðu sem Guðmundur
Ágústsson, þingmaður Borgara-
flokksins, stofnaði til. Ástæða þess
aö Guðmundur hóf þessa umræðu
voru þau viðskipti sem urðu á milli
Alþýðubankans og olíufélagsins Olís
í kjölfar mikilla deilna Olís og Lands-
bankans sem hefur verið viðskipta-
banki fyrirtækisins. Sagði Guð-
mundur að vegna þessa máls hefðu
vaknað ýmsar spurningar varðandi
olíuviðskipti íslands og Sovétríkj-
anna.
Sagði Guðmundur einnig að svo
virtist af þessu máli að ýmsir aðilar
í íslenska bankakerfmu hefðu rekið
þetta mál á óeðhlegan hátt því engin
ástæða væri til að efast um greiðslu-
stöðu Ohs. Sakaði hann bankastjóra
Landsbankans um að hafa ekki veitt
fyrirtækinu þá fyrirgreiðslu sem
eðlileg mátti teljast.
Viöskiptaráðherra sagöi að aðild
Alþýðubankans að þessu máli væri
til bráðabirgða. Það væri ekki síst
tilkomið vegna afskipta starfsmanna
Olís sem hefðu gengið fram í því að
stofnað var til þessara viðskipta milli
bankans og Olís. ' -SM J
Akureyn:
Iðja átelur stjórnina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Iðja, félag verksmiðjufólks á Ak-
ureyri, hefur sent frá sér ályktun
vegna veröhækkana aö undanförnu
en ályktunin var samþykkt á al-
mennum félagsfundi.
í ályktuninni átelur fundurinn rík-
isstjórnina harðlega fyrir fyrir-
hyggjuleysi í verðlagsmálum. Öllum,
jafnvel ráðherrum, hafi átt að vera
ljóst að við lok aðhalds í verðlagsmál-
um myndu einhverjir reyna að ná
óeðlilegum hækkunum á vöru og
þjónustu.
„Þær hækkanir, sem nú hafa dunið
yfir verkafólk og boðaðar eru, munu
leiða til hærri krafna en ella heföi
orðið. Fundurinn lýsir því allri
ábyrgð á hendur stjórnvöldum vegna
þeirra hækkana sem hafa átt sér stað
og vegna þeirra áhrifa sem þær
munu hafa á gerð kjarasamninga.
Fundurinn skorar á ríkisvaldið aö
grípa nú þegar til þeirra aðgerða sem
nauösynlegar eru til að auðvelda
gerð kjarasamninga og ná stöðug-
leika í verðlagsmálum," segir í álykt-
un fundarins.
Austurland:
Tæplega helmingur
kennara er konur
Sigiún Björgviiisdóttir, DV, Egilsstöðum:
Konur á Egilsstöðum héldu sam-
komu og baráttufund í Hótel Vala-
skjálf í tilefni 8. mars. Sjötíu konur
sóttu fundinn. Þar var söngur, glens
og gaman, erindi flutt og sagt frá
Nordisk Forum í sumar. Margar
konur af Héraði sóttu þá Osló heim.
En hvernig miðar baráttunni? Kon-
ur eru í miklum meirihluta í kenn-
arastöðum hér á landi, a.m.k. í
grunnskólum. Á Austurlandi eru
þær tæplega helmingur kennara og
eru þá taldir allir skólar nema Al-
þýðuskólinn á Eiöum, framhalds-
skóli í A-Skaftafellssýslu og efri
bekkir Verkmenntaskóla Austur-
lands í Neskaupstaö. Aðeins sex kon-
ur eru skólastjórar.
Af 181 sveitastjórnarmanni eru
konur einungis 33 og þar af tvær
oddvitar. Þessar tölur eru frá síðasta
ári og tölur um kennara frá skólaár-
inu 1987-1988.