Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Page 27
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
27
• Lilja María til hægri og Berglind Bjarnadóttir sem varð i þriðja sæti í
kjörinu. DV-mynd Þórhallur Ásmundsson
Iþróttir
Lilja best
á Króknum
- vann gull og tvö brons í Seoul
Þórhallur Asrruindsson, DV, Sauðárkróki;
Lálja María Snorradóttir sund-
kona var á ársþingi UMSS um fyrri
helgi útnefnd íþróttamaður ársins.
Liija hlaut flest atkvæði í kíörinu
sem fram fór nýlega. í öðru sæti varð
Eyjólfur Sverrisson og Berglind
Bjarnadóttir í því þriðja. Öll eru þau
úr Tindastóli.
Það ætti öllum að vera ljóst sá frá-
bæri árangur sem Lilja María náði á
síðasta ári og kórónaði á heimsleik-
um fatlaðra í Seoul þar sem hún
hlaut ein gullverðlaun og tvenn
bronsverðlaun. Eyjólfur Sverrisson
var frábær í körfuknattleiknum og
knattspymunni á síðasta ári og náði
meðal annars sæti í U-21 landshðinu
í knattspymunni. BergUnd Bjama-
dóttir er geysilega mögnuð frjáls-
íþróttakona og hefur þegar hreppt
nokkra íslandsmeistaratitla, meðal
annars í fjölþrautum bæði úti og inni.
í Uórða sæti í kjörinu varð Ágúst
Andrésson, spjótkastari úr Gretti, og
í fimmta sæti Helgi Sigurðsson,
stökkvari og spretthlaupari í Glóða-
feyki, en þeir voru ásamt BergUndi
valdir í unglingalandsUðið til keppni
á meginlandinu á síðasta hausti.
UEFA
breytir
leikstað
VaUameínd knattspymusam-
bands Evrópu (UEFA) ákvað á
fundi sínum að leikstaðurinn í
úrsUtaleik Evrópukeppni bikar-
hafa skyldi breytt. Upphaflega
átti leikurinn að fara fram í
Lausanne í Sviss.
Nefiidin komst hins vegar aö
þeirri niðurstöðu að af öryggisá-
stæðum yrði leikurinn í Bern.
Leikvangurinn í Lausanne tekur
25 þúsund áhorfendur en Wank-
dorfleikvangurinn í Bem tekur
um 50 þúsund áhorfendur.
Wankdorfieikvangurinn var
byggður þegar heimsmeistara-
keppnin var haldið í Sviss 1958.
Þess má geta aö Ellert B. Schram,
formaður KSÍ, er formaöur
nefndar sem sér um vallarmál
innan UEFA. -JKS
Knattspyma:
Mótí
Eyjum um
páskana
Knattspymufélagið Týr í Vest-
manneyjum mun um páskana
standa fyrir Coca Cola mótinu í
knattspyrnu. Ura er að ræða 3.
flokk karla. Mótið var haldið í
fyrsta skipti í fyrra og tókst það
vel að ákveðið var að halda mót
aftur í ár. Sex félög taka þátt í
mótinu að þessu sinni. Þau era
Týr og Þór frá Vestmannaeyjum,
Stjaman, KR, FH og ÍR.
Mótið byijar á skírdagskvöld
kl. 20.00 með innanhússknatt-
spymu. Hvert lið verður með 3
lið þ.e. a, b og c lið, þar sem a, b,
og c liöin spila innbyrðis í tveim-
ur riðlum. Veitt verða síðan verð-
laun fyrir fyrsta og annað sætið
í a, b og c liðum.
Riölaskipting er eftirfarandi:
A riðill: Týr, Stjarnan, ÍR. B rið-
ili: Þór, FH og KR. Tvö efstu liðin
leika síðan til úrslita.
Á föstudaginn langa hefst úti-
mótið og leika allir viö alla. Þrjú
efstu liðin fá verðlaun. Sigurveg-
ari í fyrra varð Fram.
-JKS
Knattspyma:
Sfuttgart
gegn
Dresden
Dregið hefur verið um hvaða lið
mætast á Evrópumótunum í
knattspyrnu. Á mótunum þrem-
ur stefhir allt í hörkuleiki.
í Evrópukeppni meistaraliða
leika Steaua Búkarest og Galatas-
ary og hins vegar Real Madrid
og AC Milano. Leikirnir fara
fram 5. og 19. apríl
í Evrópukeppni bikarhafa leika
Barcelona og CSKA Sofia og Mec-
helen leikur gegn Sampdoria. í
Evrópukeppni félagsliða (UEFA)
dróst Stuttgart gegn Dynamo
Dresden og Napoli gegn Bayem
Múnchen.
-JKS
nii!
'
Kirkjuhvoli-simi 20160
Frá fimmtudegi 16. mars til
fimmtudágsins 23. mars Verðiir
verslunin Pelsinn meö tilboð á
eftirtöldum vörum, sem erfitt er
að hafna:
■
★ Pelsar
★ Hattar og húfur
★ Kvenkápur úr leðri í öllum stærðum
★ Kvenfatnaður úr leðri, kápur, buxur,
pils, dragtir og kjólar
★ Minkapelsar og aðrir pelsar á
sértilboði í litlum númerum
★ Angórapeysur
★ Ullardragtir