Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Page 37
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
37
dv Fréttir
Unglingar sniffa
kveikjaragas
- kveikjaragasið selt í verslunum þrátt fyrir bann
Seyöisfjörður:
i
Jóhann Jónsson, DV, Seyðisfirði:
Enn er unnið við að hreinsa
brunaskemmdir sem urðu á
kirkjunni þegar eldur varð laus
í henni 20. febrúar sl. Farið verö-
ur í endurbyggingu og lagfæring-
ar svo fljótt sem auöið er.
'Safoaðarstarf hefúr raskast
verulega vegna brunans. Ferm-
ingu, sem vera átti á skírdag,
hefur verið frestað og veröur
fermt í Egilsstaðakirkju á hvíta-
sunnu. Að öðru leyti fer safnað-
arstarf nú fram í skólanum.
Sauðárkrókur:
Bygging
kaupleigu*
íbúða eru í
undirbúningi
Þórhallur Ásrmmdssan, DV, Sauöárkr.:
Á fundi bæjarráðs Sauðárkróks
nýlega bar á góma mikla hús-
næðiseklu í bænum. Var ölefhið
fjöldi umsókna um tvær íbúðir í
verkamannabústöðum sem aug-
lýstar voru fyrir stuttu. Sam-
þykkti ráðið að leitað yrði allra
leiða til að hægt yrði að hefja nú
þegar byggingu kaupleiguíbúða.
Snorri Bjöm Sigurðsson bæjar-
stjóri hafði í framhaldi af þessu
samband við Katrínu Atladóttur
hjá Húsnæðisstofnun ríkisins og
sagðist hún ekkert sjá því til fyr-
irstööu að frumhönnun á kaup-
leiguíbúðunum færi þegar af
stað.
Sauðárkrókur fékk úthlutað
lánsloforðum um 8 kaupleigu-
íbúðir á siðasta sumri. Nokkur
stæni fyrirtæki í bænum bund-
ust samtökum, um byggingu
kaupleiguíbúöanna og er mein-
ingin að gengið verði formlega frá
stofnun byggingarfélags. Reiknað
er með að kaupleiguíbúðirnar
verði byggðar viö efstu götuna í
Túnahverfinu en ekki hefur enn
verið byrjað á framkvæmdum við
þá götu.
Selfoss:
Veitingastofa
við brúar-
sporðinn
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Veitingastofa var opnuð 3. mars
við brúarsporöinn á Selfossi. Eig-
endur era Stefán Einarsson mat-
reiðslumaður og Ægir Magnús-
son. Veitingastofan er í húsinu
að Eyrarvegi l sem er 60 ára, vel
byggt og tignarlegt hús og heitir
Inghóll.
Veitingastofan tekur 28 manns,
dúkuð borð og viöarborö með
rauöum renningi og grænum
dúkum á borðum. AUt hlýlegt.
Staöurinn býður upp á ódýra
matarrétti og kafFi. Tvíréttaö með
kaffinu, heit eplakaka og vöfilur
með rjóma. Hægt að velja úr sex
matarréttum og kostar maturinn
frá 510 í 620 krónur. Staðurinn er
í alfaraleið. í góðviöri veröa dúk-
uð borð úti í hinum vel hirta garði
með stórum trjám og minnir á
Hressingarskáiann í Reykjavík í
gamla daga.
Lögreglan hefur gert upptæka um
200 kveikjaragasbrúsa. Brúsarnir
voru til sölu í almennum verslunum
og sölutumum þrátt fyrir að slíkt sé
ólöglegt. Kveikjaragasbrúsa má ein-
ungis selja á bensínstöðvum. Nokkuð
hefur borið á því að unglingar hafi
verið að sniffa gasið og hefur ein
stúlka verið flutt á sjúkrahús vegna
þessa. Gasið er stórhættulegt og get-
rnr haft alvarlegar afleiðingar fyrir
þá sem þess neyta.
Fyrir um tveimur árum var tals-
vert magn af kveikjaragasi gert upp-
tækt og reglugerð um sölu þess sett
í framhaldi af því. Ljóst er að margir
brjóta gegn reglugerðinni - bæði
smásalar og heildsalar. Annar af
stærstu innflytjendunum er I. Guö-
mundsson hf. Þórólfur Ámason hjá
I. Guðmundssyni var spurður hvort
heildsalar vissu ekki um takmarkan-
ir á sölu og dreifmgu kveikjaragass.
„Við vissum það á sínum tíma. Við
höfum frá því að þessi reglugerð var
sett gert kaupmönnum grein fyrir
því að þetta er vara sem er óleyfilegt
að selja og á þar af leiðandi að af-
greiða hana alveg sérstaklega. Það
var mjög umtalað þegar hin rassían
fór fram. Þetta er nauðsynjavara og
við afgreiðum þetta ekki nema gera
mönnum grein fyrir því að þetta sé
vara sem ekki á að stilla upp í hill-
ur. Eins á ekki að selja þetta nema
til þeirra sem er treystandi fyrir
því,“ sagði Þórólfur Amason hjá I.
Guðmundssyni sem er umboðsaðili
fyrir Ronson.
- Nú segir í reglugerðinni að gasið
megi einungis selja á bensínstöðvum.
„Það er alveg rétt. Síðan uppþotið
varð, fyrir tíma reglugerðarinnar,
hefur salan minnkað mikið. Það má
eflaust víða finna birgðir frá því að
reglugerðin var sett. Hluti af þessu
er því gamlar birgðir," sagði Þórólfur
Ámason. -sme
A tímamótum, eins og fenningar eru í lífi flestra unglinga, er rétt
að huga að framtíðinni. Þekking er ein af undirstöðum framfara og
lifsfyllingar. Hjá Eymundsson fœrðu fermingargjafir sem efla hug
og hönd. Komið og skoðið úrval af fermingargjöfum í öllum
deildum. Hjá Eymundsson hefur þú leitina — og lýkur henni með
réttu fermingargjöfinni.
(h>
IKSwndssoíT”
Austunstroeti og Eiðistorgi