Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1989, Side 28
36
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989.
Andlát
Siguijón Scheving Magnússon, fyrr-
verandi lögregluþjónn frá Reyöar-
firði, lést á heimili sínu, Öldutúni 12,
Hafnarfirði, að morgni 11. apríl.
Jóhannes Pétursson, Lindarflöt 8,
Garðabæ, andaðist að heimili sínu
að morgni 11. apríl.
Jarðarfarir
Jónmundur Ólafsson, fyrrv. kjöt-
matsformaður, lést á heimili sínu
fóstudaginn 7. apríl. Útfórin fer fram
frá Bústaðakirkju föstudaginn 14.
apríl kl. 15.
Petrína Jónsdóttir, áður Grettisgötu
53, Æsufelli 4, er andaðist í Land-
spítalanum 31. mars, verður jarð-
sungin í dag, 13. apríl, kl. 13.30 frá
Kapellunni.
Guðrún (Nanna) Olgeirsson, Banka-
stræti 14, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni fóstudag-
inn 14. apríl kl. 10.30.
Útför Guðrúnar Kristjánsdóttur,
Hörgshlíð 6, Reykjavík, fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík fóstudag-
inn 14. apríl kl. 15.
Guðjón Sigurðsson frá Stekk, Gnoð-
arvogi 40, Reykjavík, verður jarð-
simginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 14. apríl kl. 13.30.
Minningarathöfn um Gunnar Bjarka
Vestfjörð, Hafnargötu 122, Bolungar-
vík, sem lést af slysförum 8. mars
sl., fer fram í Hólskirkju, Bolungar-
vík, laugardaginn 15. apríl nk. kl. 14.
Fundir
Digranesprestakall
Kirkjufélagsfundur verður í safnaðar-
heimilinu við Bjamhólastíg í kvöld, 13.
apríl, kl. 20.30. Hermann Lundholm les
sögu sem hann hefUr þýtt úr Esperanto.
Jóhanna Bjömsdóttir sýnir myndir.
Kaífiveitingar. Helgistund.
Ávöxtunar- og rekstrar-
bréfaeigendur
halda fUnd að Hallveigarstöðum, Tún-
götu 14, laugardaginn 15. apríl kl. 15.
Tilkyimingar
Afmælismót SSR
í tilefni af 20 ára afmæli sínu mun Skáta-
samband Reyftjavikur halda afmælismót
að Úlfljótsvatni dagana 29. júní til 2. júlí
í sumar og ber það heitið Flokkurinn í
geimferð. Á það munu skátamir mæta
í flokkum og hver flokkur eignar sér sitt
svæði. Eins og nafnið gefur til kynna
munu flokkamir hugsa sér að þeir séu á
ferð um sólkerfið og þurfa þeir að bjarga
sér hver sem best hann getur á hinum
og þessum plánetum innan þess. Meðal
annarra dagskrárliða verður haldin
flokkakeppni og besta flokknum afhent
verðlaun. Reikna má að þetta fyrirkomu-
lag muni setja nýstárlegan og skemmti-
legan svip á svæðið. Tekið skal fram að
mótið er opið skátaflokkum af allri lands-
byggðinni. Einnig verða þar vel skipu-
lagðar fjölskyldubúðir með sérstakri dag-
skrá fyrir böm yngri en 10 ára.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimiun, Sigtúni 3, í dag,
fimmtudag. Kl. 14 frjáls spilamennska.
Kl. 19.30 félagsvist. Kl. 21 dans.
Skurðlæknaþing íslands
Dagana 14. og 15. apríl verður Skurð-
læknaþing íslands háð að Holiday Inn
og hefst þar kl. 14.30 föstudaginn 14.
aprfl. Þinghald sem þetta er orðið árlegur
viðburður. Þar kynna íslenskir læknar
niðurstöður rannsókna sem þeir vinna
að og em erindin að þessu sinni 35 tals-
ins. I tengslum við þingið hafa Skurð-
læknafélagið og Háskóh íslands boðið
hingað þekktum bandarískum skurð-
lækni, próf. Martin Adson, sem m.a. er
nú forseti alheimssambands lifrar- og
brisskurðlækna (World associatio'n 'of
hepato-pancreato-billardy surgery). Mun
hann halda hér tvo fyrirlestra. Hinn fyrri
verður að Odda föstudaginn 14. aprfl kl.
13 og fjallar um brottnám meinvarpa úr
lifur. AUir læknar og læknanemar em
velkomnir á þennan fyrirlestur. Hinn síð-
ari verður laugardaginn 15. apríl kl. 13 á
þingstað og fjallar um þróun lifrarskurð-
lækninga.
Lokaprófstónleikar
Lokaprófstónleikar verða haldnir á veg-
um Tónlistarskólans í Reykjavík föstu-
daginn 14. aprfl kl. 18 í Langholtskirkju.
Á tónleikunum leikur hljómsveit Tónlist-
arskólans í Reykjavík undir stjóm Mark
Reedman. Á efnisskránni em: Concerto
Grosso fyrir strengjasveit og píanó-fylgi-
rödd eftir Emest Bloch, Concertino fyrir
fagott og strengjasveit eför eftir Lars-
Erik Larsson, einleikari er Jógvan Zac-
hariassen fagottleikari og em tónleikam-
ir fyrri hluti einleikaraprófs hans frá
skólanmn. Loks verður frumflutt verk
eför Bám Grímsdóttur, Naktir litir, og
er þetta verk lokapróf hennar úr tón-
fræðadefld skólans. Aðgangur að tónleik-
unum er ókeypis.
Mæögurnar Gabriela Kristjánsdóttir, til vinstri á myndinni, og Gunnþómnn
Jónsdóttir, til hægri, hafa opnað hárgreiðslustofu að Hverfisgötu 64 A.
Nefnist stofan Salon Gabriela.
t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
Þórunnar Jóhannesdóttur,
Hamarsgötu 12, Fáskrúösfiröi.
Margrét B. Aöalsteinsdóttir Teitur Kristjánsson
Hans K. Aðalsteinsson Ásgeröur Albertsdóttir
Jóhanna G. Aöalsteinsdóttir Ólafur Júlíusson
Guöný Aðalsteinsdóttir Þráinn Jóhannesson
Aðalheiöur Aöalsteinsdóttir Bragi Bjarnason
Lára G. Aðalsteinsdóttir Bjarni Sveinsson
Sigríöur Aöalsteinsdóttir Jónina Aöalsteinsdóttir örn Aöalsteinsson Oddur Þorsteinsson
Axel Aöalsteinsson Bjarney Rikharósdóttir
börn og barnabörn
Flogaveiki:
Frá sjónarhóli sjúklings
Sem flogaveikisjúklingur vildi ég
mega segja ykkur svo ótalmargt,
bæði ykkur sem óttist flogaveikina
og einkenni hennar og ykkur hin-
um sem eruð haldin sama sjúk-
dómi og ég. Ég hefi verið að tína
saman að undanfömu ýmsa minn-
ispunkta um hitt og þetta sem í
hugann hefur komið og ég veit að
ykkur þykir þetta sundurlaust þó
að ég hafi reynt sem best ég hefi
getað.
Fyrst af öllu vil ég leggja áherslu
á það hversu fordómar hafa alltof
mikið einkennt viðhorfið gagnvart
flogaveikum og hræðsla við sjúk-
dóminn ásamt mikilli óvissu um
það hvemig við hinum ýmsu ein-
kennum hans ætti að bregðast. Ég
er ekkert hissa á þessu þar sem
mörg einkenni þessa sjúkdóms
virka óhugnanlega á þá sem ekki
þekkja til, þau koma skyndilega og
öllum að óvömm og það er erfitt
að meta það hvemig á að hjálpa
og ekki gera illt verra. Varðandi
minnispunktana mína hér á eftir,
sem góðvinur minn hefur farið yfir
og heflað máske svohtið til, biö ég
ykkur bara að taka viljann fyrir
verkið.
Það sama gangi yfir alla
Þetta em svona hugleiðingar um
það sem mér finnst æskilegt og
hvernig ég lít á ýmsa hluti í tilver-
unni og umhverfinu.
Flogaveikum er eins og öðram
nauðsynlegt að dreifa huganum, fá
eitthvað út úr ljósu hliðunum, iðka
skemmtilegar íþróttir, eiga góðan
félagsskap. Svo finnst mér gott að
vera í myrkri og horfa á kertaljós,
það er hollt fyrir sáhna. Mér finnst
flogaveikir skilja hverjir aðra betur
innbyrðis en annað fólk út á við.
Mér finnst það sama eiga yfir aha
flogaveika að ganga, svo sem eins
og það að allir eða enginn fái að
taka bilpróf, en þetta er nú mitt
sérmál.
Ég játa það að þó ég kunni hluti
vel þá er ég alltaf mjög lengi að
koma þeim frá mér og þá heldur
fólk að ég viti ekki betur.
Við þetta þurfa margir flogaveik-
ir að búa. Við þurfum því hjálp og
stuðning bæði við nám, þjáífun og
vinnu af því annars hættir okkur
til að dragast aftur úr. Ég hef af
því reynslu varðandi vinnu að vera
sagt upp af því ég er lengur að tjá
mig og komast í gang en gengur
og gerist. Þetta eiga menn erfitt
Kjallarinn
Kjartan Jónsson
teppahreinsunarmaður
með að skilja sem von er og halda
að letin ein ráði ferðinni.
Svo er manni treyst miklu verr
yfirleitt og það framkahar spennu
og kvíða sem getur svo aftur valdið
því að framkalla flog.
Við eigum okkar félagsskap,
LAUF, þar sem miklu fleiri þyrftu
að vera. LAUF þarf líka að ná
miklu betur til almennings þótt þar
sé margt mjög vel gert. Og ég veit
að alltaf vantar fé fyrir svona fé-
lagsskap svo eitthvað sé unnt að
gera.
Lyf eru vandamál
Svo em það lyfin sem óhjá-
kvæmilega fylgja og alltaf eru mik-
ið vandamál. Þegar maður tekur
mikið inn af lyfjum er gott að
hlaupa eða fara í líkamsrækt því
þá fara lyfin fyrr úr skrokknum.
Það fer líka mikið eftir því hvort
maður borðar reglulegar máltíðir á
réttum tíma. Oft hefi ég velt fyrir
mér hvort allt fæði sé jafnhoht þeg-
ar mikið er tekið af lyfjum. Þarf
ekki að hafa gætur þar á? Og svo
eru það sjálf einkennin - flogin -
krampaköstin eða hvað menn vilja
kalla það.
Við vanlíðan af öhu tagi, við
mikla spennu eða breytingar, kem-
ur krampinn frekar og þá er að
leggja áherslu á það að veija höfuð
og háls framar öðru. Og þá er um
að gera að fólk, sem er nálægt,
kunni að bregöast rétt við.
Ég mæU með heitu pottunum í
laugunum til afslöppunar ef maður
er að stirðna og stífna upp. Það
gefur góða raun.
Ég held ég ljúki þessu á fordóm-
unum, bæði hjá flogaveikum sjálf-
um og öðmm.
Mér finnst aUtof margir floga-
veikir reyna að fela þessa hluti. Það
er auðvitað tóm vitleysa. Sumir
skammast sín fyrir þetta, aðrir
þræta fyrir, nei, það er ekkert að
mér, sumir halda að þeir missi vini
og kunningja ef þeir segja eins og
satt er. Sumir halda að þeir verði
þá fyrir aðkasti og margt fleira
kemur tíl. Stundum held ég að það
sé allt að helmingur flogaveikra
sem ekki vUja viðurkenna þetta
fyrir öðrum. Ég hefi a.m.k. talað
við fjöldann aUan af þeim sem eru
með flogaveiki og þvertaka fyrir
það.
Þeir sem viðurkenna sjúkdóminn
vUja oft ekki eða þora ekki að tala
um hann, segja frá sinni reynslu
svo unnt sé að bera saman bækum-
ar. Svona er þetta nú.
Að lokum vildi ég biðja aUa að
sýna aðgát þegar þeir umgangast
flogaveika. Þetta gUdir jafnt um
aUa en ekki síst á þetta máske við
um lögregluna sem þarf virkhega
vel að aðgæta hvort um er að ræða
flogaveikisjúkhng á fullum lyfium
eða fullan mann.
Ég á svo þá ósk besta að hægt sé
að hjálpa og styðja flogaveika í erf-
iðri baráttu þeirra í stað þess að
verið sé að leggja stein í götu þeirra,
hindra það að þeir megi lifa sem
eðlUegustu lífi innan um annað
fólk.
Kjartan Jónsson
,,Eg mæli með heitu pottunum í laug-
unum til afslöppunar ef maður er að
stirðna og stífna upp. Það gefur góða
raun.“
Námskeið Kvikmyndir i>v
Námstefna unri eldvirkni á
Islandi á nútíma
í september á hausti komanda gengst
Endurmenntunamefnd Háskóla íslands,
í samvinnu viö Flugleiöir og Samvinnu-
ferðir-Landsýn hf. fyrir námstefnu (sem-
inari) um eldvirkni á íslandi á nútíma.
Dagana 11-16. september munu 12 ís-
lenskir jarövísindamenn halda fyrir-
lestra og efht verður til lengri og styttri
skoðunarferöa, m.a. til Vestmannaeyja
eöa Mývatns. Námstefnan er fyrst og
fremst ætluð erlendum visindamönnum
og námsmönnum í járðvísindum, en öll-
um þó heimil þátttaka. Allir fyrirlestrar
og öll leiðsögn fer fram á ensku. Tilgang-
urinn með þessu framtaki er að kynna
íslenska vísindastarfsemi erlendis og
gefa erlendum visindamönnum enn fleiri
tækifæri til þess að ffæðast um efni sem
eru séríslensk á einhvem hátt. Nám-
stefnan er haldin í tilraunaskyni og hefur
verið valið heitiö „On the hot spot“ und-
ir yfirskriftinni „The Reykjavík aca-
demic seminar". Verði árangur fullnægj-
andi má búast við að námstefnur undir
sömu yfirskrift en með nýju efni verði
árlegur viðburður um hrið og þá jafnt á
sviði raunvísinda sem hugvísinda.
Leiðrétting
í Sviðsfiósi síðastliðinn fimmtudag
var rangt fariö með nafn hönnuöar
og saumakonu kjóls fegurðardrottn-
ingar Suðurlands. Þar var sagt að
fegurðardrottningin og móðir henn-
ar heföu saumað kjóhnn en hið rétta
er að Fjóla Bachmann átti heiöurinn
af bæði að hanna og sauma kjólinn.
Þá misritaðist einnig nafn móður
ungfrú Suðurland. Hið rétta er að
hún heitir Kristín Kristinsdóttir.
Raunir einfaldra
Nicky og Gino
Aðalhlutverk: Tom Hulce, Ray Liotta
Leikstjóri: Robert M. Young
Handrit: Danny Porfirio
Sýnd í
Regnboganum
Gino (Ray Liotta) er læknanemi
og vinnur á spítala í Pittsburg.
Hann hefur fengið inngöngu í Stan-
ford háskólann til frekari mennt-
unar og þarf því aö flytja um set.
Gino á erfitt með að fara því að
hann hefur áhyggjur af Nicky (Tom
Hulce) tvíburabróður sínum, sem
er þroskaheftur. Bræðumir búa
einir saman og era mjög samrýmd-
ir. Þrátt fyrir fötlun sína stundar
Nicky vinnu sem öskukarl og notar
peningana til að kosta námið fyrir
Gino. Gino tekur að sér að kenna
Jennifer (Jamie Lee Curtis) lækn-
isfræði og þau fara að eyða tíman-
um saman. Þetta veldur því að
Nicky finnst hann verða útundan
og er ekki sáttur við tilvemna.
Nicky á marga vini en það era allt-
af einhveijir sem hrekkja hann.
„Stífla" myndast í samskiptum
þeirra bræðra því að hvoragur get-
ur tjáð sig um það sem honum hgg-
ur helst á hjarta en í lokin ná þeir
þó saman aftur. Nicky og Gino er
þriðja myndin um bræður sem
sýnd er í kvikmyndahúsum borg-
arinnar en engin þeirra er eins. Ein
er gamanmynd, önnur „gamandr-
ama“ og þessi drama. Handritið er
vel skrifað og aðalpersónum eru
gerð góð skil. Þaö er látlaust en
ekki htlaust og áhorfandinn á auö-
velt með að hrífast með og finna til
með persónunum. Robert M. Yo-
ung (Extremities) á góðan dag og
missir myndina ekki niður í leið-
indi og væmni (þó að lokaatriðin
’séu á mörkunum). Tom Hulce
(Amadeus, Slam Dance) er frábær
sem hinn þroskahefti Nicky og ber
myndina uppi með leik sínum. Ray
Liotta (Something Whd) er ágætur
skapgerðarleikari og hreint magn-
aður í reiðiköstunum. Jamie Lee
Curtis er líklega meira með í aug-
lýsingaskyni því að hlutverk henn-
ar býður ekki upp á mikh thþrif.
Margar skemmthegar aukapersón-
ur koma við sögu, einkum ösku-
karhnn Larry. Þeir sem vhja sjá
viðkunnanlega mynd og hrífandi
leik ættu að leggja leið sína í Regn-
bogann.
Stjömugjöf: ★ * *
Hjalti Þór Kristjánsson