Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Blaðsíða 43
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1989. 43 Keflavík: Afinælisrevían slær í gegn Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum; Revían, Við kynntumst fyrst í Keflavík, eftir Ómar Jóhannsson, sem samin var vegna 40 ára afmælis Keflavíkurbæjar, hefur nú verið sýnd 11 sinnum í Keflavík við mjög góðar undirtektir áhorfenda. Hulda Ólafsdóttir er leikstjóri. Efnið er sótt jafnmörg ár aftur í tímann og aldur Keflavíkurbæjar er og til dagsins í dag. Kennir þar margra grasa í bundnu og óbundnu máb og þekktar persónur eru dregn- ar fram í sviðsljósið svo að vel má greina. Leikendum hefur verið kiappað lof í lófa og greinilegt er að revían hefur falhð Suðurnesjabúum vel í geö. Fátítt er að húsfylhr hafl verið á leiksýningum heimamanna í Félagsbíói, sem tekur 400 manns í sæti, hvað eftir annað. Ómar Jóhannsson, höfundurinn, kynnir og tengir saman atriði sýn- ingarinnar. DV-myndir Ægir Már Metaðsókn á vorfagnaði - Þýsk-íslenska vinafélagsins á Suðurlandida Ingi S. Ingason, DV, Stokkseyri: Vorfagnaður Þýsk-íslenska vinafé- lagsins á Suðurlandi var haldin laug- ardaginn 22.apríl á Hótel Selfoss. Um 200 manns sóttu fagnaðinn og er það metaðsókn til þessa. Þess var minnst að nú eru rétt 40 ár hðin síðan hópur landbúnaðar- verkafólks frá Þýskalandi kom til starfa á íslandi en stærstur hluti þess hóps ílentist hér. Samkoman hófst með stuttu ávarpi dr. Karls Kortssonar, fyrrv. héraös- dýralæknis á Hellu. Næstur talaði Jochen Hhdebrandt, borgarstjóri í Klein-Zecher, sem er htið hérað í hertogadæminu Lauenburg í Slés- vík-Holtsetalandi. Hann var farar- stjóri 20 manna hóps þýsks listafólks er skemmti samkomugestum með tónlist og þjóödönsum. Þá las Ilse Ámason frá Oddgeirshólum upp smásögu á lágþýsku. Að því loknu var sest að snæðingi og snæddur hamborgarhryggur að hætti Holt- seta. Heiöar Ragnarsson, hótelhald- ari á Selfossi, sá um matinn. Eftir matinn sýndi danshópurinn „Scheunentanzer“ eða Hlöðudansar- ar, sem samanstóð af níu þýskum dansmeyjum frá Klein-Zecher, þjóð- dansa undir stjórn Brigitte Hilde- brandt, m.a. þjóðdansinn „Dans op de Deel“ sem er hlöðudans. Þá var stiginn dans. Hljómsveit Jurgen Stache frá Mussen við Lauen- burg annaöist undirleik með ágæt- Anna Halldóra Ragnarsdóttir hlaupandi á undan rútunni i áheitahlaupinu. DV-mynd Ragnar Höfn: Safnað fyrir Danmerkurferð Júlía Imsland, DV, Höfru Nemendur níunda bekkjar Nesja- skóla í Homafirði eru að safna pen- ingum fyrir ferð með Norrænu til Danmerkur í sumar. Ein fjáröflunar leiðin var áheitahlaup frá Djúpavogi th Nesjaskóla. Vegalengdin er um 100 khómetrar. Hlaupið tók rúmar átta klukkustundir og voru hlauparar 20. Nemendur sjöunda og áttunda bekkjar skólans eru búnir að fara í skólabúðir norður að Reykjum og voru þar í viku. Nú eru 5. og 6. bekk- ingar að fara þangað. í Nesjaskóla eru 10 kennarar og af þeim eru þrír í verkfahi. Sviðsljós o o MWTOKII - á verdi vid allra hæfi - Bankastjórarnir i Sparikassanum, Eggert Olafsson og Jón Sigurðsson. Læknarnir, sem þeir Hilmar Jónsson og Þór Gils Helgason, lengst til hægri, leika, hafa vakið mikla kátínu - kannski mesta meðal áhorfenda. Með þeim á myndinni eru Sigrún Guðmundsdóttir, sem læknaritari og Brynja Aðalbergsdóttir sem sjúklingur sem bíður. um. Til að auka á stemninguna var salurinn skreyttur í fánalitum ís- lands og sambandsríkisins Slésvík- ur- Holtsetalands en þeir eru hinir sömu. Hans Gústavsson, garðyrkju- bóndi í Hveragerði, gaf blóm th skreytinga. Níu þýskar hlöðudansmeyjar sýndu þjóðdansa. Skipt um kerti í starfskynningu Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfiröi: Hjördís Ólafsdóttir, nemandi í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar, var nýlega í starfskynningu á bílaverk- stæðinu á Ljósalandi. Hún lét sig ekki um muna að skipta um kerti og fleira en þegar hún var spurðað því hvort hún ætlaði að leggja bifvéla- virkjun fyrir sig svaraði hún strax nei. Hjördis skiptir um kerti í Lada-jeppa og ekki annað að sjá en henni farist verkið vel úr hendi. DV-mynd Ægir LJOSMYNDASTOFAN MYND SIMI 54207 LJÚSMYNDASTOFA KÚPAVOGS SÍMI 43020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.