Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1989, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1989, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1989. 3 DV Fréttir Þjóðhagsstofiiun spáir firam 1 tímann: Hagvöxtur lítill og aukið at- vinnuleysi - auka verður hagnað og framleiðslu Ef útflutningsframleiðslan verður ekki aukin á næstu árum má búast við að lífskjör íslendinga muni drag- ast aftur úr lífskjörum í nágranna- löndunum. Hagvöxtur mun verða miklu minni á næstu árum en und- anfama áratugi. Eðlileg afleiðing þess er aukið atvinnuleysi og mun þaö verða um 1,2 til 1,6 prósent á næstu árum. Þetta má lesa úr spá Þjóðhagsstofn- unar um horfur í efnahagsmálum fram til 1993. í spánni er gert ráð fyrir samdrætti í útflutningi sjávar- afurða næstu tvö ár en lítils háttar aukningu á árunum 1992 og 1993. Ekki er gert ráð fyrir meiri útflutn- ingi á áh eða jámblendi. Hins vegar er búist við að útflutningur á eldis- fiski rúmiega tvöfaldist á tímabihnu. Miðað við þessar forsendur og spár alþjóðastofnana um horfur í efna- hagsmálum í heiminum er ekki ástæða til bjartsýni samkvæmt nið- urstöðum Þjóðhagsstofnunar. Þórð- ur Friðjónsson, forstjóri stofnunar- innar, lagði á það áherslu þegar hann kynnti þessar niðurstöður að eina leiðin út úr þessari stöðnun væri aukin framleiðsla, annars vegar með þvi að skapa fyrirtækjum aðstæður til að skha hagnaði sem nýta mætti th framleiðsluaukningar, hins vegar með því að auka framleiðsluna með byggingu stóriðju. Ef álverið í Straumsvik yrði stækk- að um helming myndu útflutnings- tekjur íslendinga aukast um 9,7 pró- sent. Það mun leiða th um 4,4 pró- sent meiri hagvaxtar samkvæmt þeim forsendum sem Þjóðhagsstofn- un reiknar með. Ef annað álver yrði reist að auki, helmingi stærra en núverandi álver í Straumsvík, ykjust útflutningstekjur íslendinga um 32,5 prósent. Hagvöxtur ykist þá um 14,6 prósent. -gse Ríkissjóður og kjarasarnningarnir: Komið gat upp á rúman milljarð Utgjöld ríkissjóös munu fara um 2,1 mhljarð fram úr áætlunum fjár- laga vegna þeirra skuldbindinga sem ríkisstjómin hefur lagt á ríkissjóð í tengslum við kjarasamninga að und- anfórnu. Á móti auknum útgjöldum mun ríkissjóður fá auknar skatttekj- ur vegna hærri skatta af launatekj- um. Eftir sem áður er ljóst að ríkis- stjórnin þarf að finna leið th að brúa gat upp á tæplega 2 mhljarða ef áætl- un fjárlaga um rúmlega 600 mihjón króna tekjuafgang af ríkisbúskapn- um á að standast. Þetta kemur meðal annars fram í nýju yfirhti um þjóðarbúskapinn sem Þjóðhagsstofnun hefur sent frá sér. Þess má geta að DV birti frétt eftir samninga ríkisins við opinbera starfsmenn þar sem kom fram að útgöld ríkissjóðs myndu aukast um 1,3 milljarða ef þeir samningar yrðu fyrirmynd annarra samninga. Olaf- ur Ragnar Grímsson fjármálaráð- herra dró þá efni þessarar fréttar í efa og taldi útgjaldaaukningu ríkis- sjóðs ofáætlaða. Síðar samþykkti ríkisstjórnin ýms- ar skuldbindingar á ríkissjóð í tengslum við kjarasamninga Al- þýðusambandsins og vinnuveitenda. Niðurstaðan hggur fyrir í yfirliti um þjóðarbúskapinn. Ýmsar skuldbind- ingar munu kosta ríkissjóð um 1,1 mhljarð. Launahækkanir fara 1 mhljarð fram úr áætlunum fjárlaga. Niðurstaðan er 2,1 milljarður um- fram útgjaldaáætlanir fjárlaga. Launahækkanir munu skila ríkis- sjóði einhverjum tekjum en ekki meira en svo að rúmlega 1 mhljarðs gaterkomiðáríkissjóð. -gse iSIENSKT EIDHÚS hannað fyrir þig Þú kemur með óskirnar, við sýnum þér fjölbreytnina, gerum teikningar og kostnaðaráætlun. - Alveg eins og þú vilt hafa það. Þegar þú kaupir íslenskar innréttingar skapar þú atvinnu hér heima. Faxafeni 5, sími 685680 (Skeifunni) innréttingarnar í verslun okkar eru hannaðar af Finni P. Fróðasyni og smíðaðar hjá Ármannsfelli. Hér er tekið mið af ströngum kröfum íslendinga. Keflavík - Amsterdam - TOKYO Auðvelt og þœgilegt með Arnarflugi og KLM ■ Kynntu þér sérfargjöldin okkar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.