Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1989, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1989.
Udönd
í dýragarðinmn Sea World í Ohiofylki í Bandaríkjunum fæddist 15
punda selskópur í gær. Móðirin, sem hlotiö hefur nafnið Tassy, fannst
undan strðnd Washingtonfylkis á vesturströnd Bandaríkjanna og var
færð til Ohio til að ná kröftum á nýjan leik. Öllum til mikillar gleði
hresstist hin 16 ára Tassy og eignaðist fljótlega kóp.
Gorbatsjov Sovétleiðtogi og Anatoly Lukyanov varaforseti greiða atkvæði á fulltrúaþinginu í gær.
Símamynd Reuter
Hið nýja fulltmaþing í Sovétríkjunum:
Þremur vísað úr landi
Yfirvöld í Nicaragua vísuðu tveimur bandarískum stjómarerindrekum
úr landi í gær. Að sögn talsmanns utanríkisráðuneytisins var þeim gefið
að sök að hlutast til um innanríkismál Nicaragua.
Að sögn talsmannsins tók Ortega, forseti Nicaragua, ákvöröun ura að
vísa stjómarerindrekunum úr landi eftir að honum bárust upplýsingar
um að þeir hefðu fundað með kennurum sem nú íhuga verkfall til að
krefjast hærri launa. Sendifulltrúi Bandaríkjanna í Nicaragua sagöi ásak-
anir stjómvalda órökstuddar og kvað stjómarerindrekana hafa verið að
kanna stöðu mála hjá kennurum. Kennarar hafa farið í nokkur verkfóll,
sem staðið hafa stutt, og kreflast hærri launa.
Gorbatsjov
kjörinn forseti
Ihugar fækkun hermanna í Evrópu
í frétt bandaríska dagblaðsins Washington Times í morgun íhugar Bush
Bandaríkjaforseti nú að fækka hermönnum Nato um 10 prósent. í frétt-
inni segir að forsetinn muni tiikynna leiðtogum Atiantshafsbandalagsins
um þessa ákvörðun á fúndi þess í Brussel á mánudag og þriðjudag.
Tíu prósent fækkun þýðir að 34 þúsund hermenn verða kallaðir heim,
segir í fréttinni. Þá segir að enn sé ekki búiö að ganga frá öilum atriðum
þessarar áætiunar.
Innbrotsþjófarnir fengu ádrepu
Tæplega níræð kona las yfir hausamótunum á þremur innbrotsþjófum
nýverið og sagði þeim að fá sér nú almennilega vinnu. Innbrotsþjófarnir,
sem vom grímuklæddir, brutust inn á heimili lafði Mavis Pilkington í
norðurhluta Bretlands 1 gær og komust undan meö 150 þúsund punda
virði af skartgripum. Þjófarnir iokuðu lafðina og hina hvassyrtu móður
hennar, Madge Caffey, 89 ára aö aldri, inni í baðherberginu.
„Þið getið ekki stundað þetta nótt eftir nótt - þetta er ekki almennileg
vinna,“ sagði frú Caffey þegar innbrotsþjófamir hótuðu að ræna henni.
„Ekki viljiö þið gera þetta að ævistarfi?" bætti hún við.
Að sögn lafði Pilkington haíði gamla konan greinifega mikil áhrif á
þjófana því einn þeirra sagði við hana aö móðir hennar ætti skilið að fá
orðu.
Samstada mótmælir
Hið nýja fulitrúaþing Sovétríkj-
anna felídi í morgun, í sínu fyrsta
embættisverki annan dag þingsins,
ályktun um að fella tímabundið úr
gildi umdeild lög gegn mótmælum.
Ályktunin var felid með 1.261 at-
kvæði gegn 831. Hún var lögð fram
eftir að 1.500 mótmælendur söfnuð-
ust saman fyrir framan þinghúsið í
gær í þeirri von að hitta þingmenn.
Fuiltrúamir kusu í gær Mikhail
Gorbatsjov Sovétleiðtoga í nýtt emb-
ætti forseta en fréttaskýrendur höfðu
fastlega búist við að svo færi. Alls
greiddu 87 þingmenn atkvæði gegn
Gqrbatsjov af 2.123 þingmönnum
sem mættir voru.
Enginn bauð sig fram gegn Gor-
batsjov því þingið hafnaöi einum
frambjóðanda. Boris Jeltsin, sem
margir vildu að byði sig fram, hafn-
aði því. Enn á eftir að kjósa varafor-
seta og sögusagnir hafa verið á kreiki
um að Jeltsin muni bjóða sig fram í
það embætti gegn frambjóöanda
flokksins, Anatoly Lukyanov, núver-
andi varaforseta.
Gorbatsjov hefur haidið embætti
forseta en hið nýja embætti mun
hafa mun meiri völd. Má til dæmis
nefna að forsetinn mun vera í for-
svari fyrir varnar- og utanríkisstefnu
þjóðarinnar. Þá mun hann einnig
vera í forsæti fyrir æðsta ráðinu, um
500 manna þingi sem enn á eftir að
kjósa í.
Sovétleiðtoginn hlaut töluverða
gagnrýni á fundi þingsins í gær. Gor-
batsjov tók sjálfur til máls og viður-
kenndi að mörg mistök hefðu átt sér
staö við framkvæmd umbótastefn-
unnar.
Reuter
Tillaga um hlut-
laust svæði í Beirút
Ástandið í Líbanon var helsta um-
ræðuefnið á fundi leiðtoga Araba-
bandalagsins í Casablanca í gær.
Rætt var um aö koma á laggirnar
hlutlausu svæði í Beirút þar sem
þingmenn gætu komið saman til að
kjósa nýjan forseta.
Sýrlendingar, sem eru með flörutíu
þúsund hermenn í Líbanon, hafa enn
ekki sagt álit sitt á tillögunni sem
gengur ekki jafnlangt og írakar vilja.
Þeir fara fram á brottflutning alls
sýrlensks herliðs frá Líbanon.
Aðallega var boðað til leiðtoga-
fundarins til þess að flalla um friðar-
stefnu Palestínumanna en stríðið í
Líbanon hefur kallað á umræður og
valdið deilum.
Enginn forseti hefur veriö í Líban-
on síðan kjörtímabili Amins Gemay-
el lauk í september síðastliðnum.
Stóli Líbanons á leiðtogafundinum
hefur verið auður á meöan leiðtogar
kristinna og múhameðstrúarmanna
halda áfram að deila í Líbanon. Þing
hefur ekki komiö saman í Líbanon
til að kjósa eftirmann Gemayels þar
sem fulltrúar kristinna hafa neitaö
að fara yfir hina svokölluðu grænu
bnu, sem skiptir borginni, til þing-
hússins í vesturhluta Beirút sem
Hin óháöu verkalýðssamtök í
Póllandi, Samstaöa, lögöu fram
mótmæli til pólskra yfirvalda í gær
vegna þess að dómstóli þar í landi
halhaöi á þriðjudag beiðni samtaka
námsmanna, NZS, um lögleiðingu.
Stjómarandstaðan segir þessa
ákvörðun dómsvalda brot á sam-
komulagi sem sflóm og sflórnar-
andstaöa náöu um lýðræöisum-
baetur í landinu.
Ákvörðunin leiddi til víðtækra
verkfalla námsmanna og ákváðu
nemendur í fimmtán háskóium í
Varsjá auk þriggja annarra borga
að halda tveggja daga löngu setu-
verkíalli sínu áfram í gær. Leiö-
togar NZS munu koma saman til
fiindar í dag og þá mun ákvörðun
um lengd setuverkfallsins verða
tekin.
Dómurinn mildaður
Samkvæmt tilkynningu fangelsisyfirvalda á Ítalíu getur árásarmaður
Jóhannesar Páls páfa, Mehmet Ah Ágca, nú sótt um reynslulausn úr fang-
elsi tveimur áður fýtr eða árið 2005 í stað ársins 2007.
Samkvæmt heimildum á Ítalíu heftir Agca, sem skaut að páfa í maí
árlð 1981, tvívegis sótt um náöun en án árangurs. Jóhannes PáJI páfi
heimsótti Agca í fangelsi árið 1984 og veitti honum fyrirgefhingu.
Reuter
Stuðningsmaður námsmanna í
Póllandi lætur peninga af hendi
rakna i verkfallssjóð nemenda í
Varsjar-háskóla. Simamynd Reuter
Sýrlendingar og múhameðstrúar-
menn hafa yfirráö yfir.
Tillagan um hlutlaust svæði var
borin upp af Egyptalandi og Kuwait.
Samkvæmt henni myndu engir er-
lendir hermenn vera á svæðinu og
ekki heldur líbanskir þjóðvarðliðar.
Gert er ráö fyrir að líbanski herinn,
sem nú er klofinn, hafi þar eftirlit
og lúti hann nefnd skipaðri af leið-
togafundinum. Að því er gert er ráð
fyrir í tillögunni myndu hermenn úr
báðum fylkingum verða kallaðir til
eftirlits. Reuter
Gaddafi Líbýuleiðtogi heilsar Hussein íraksforseta á einkafundi i Casa-
blanca í gær þar sem leiðtogafundur Arababandalagsins stendur yfir. Gadd-
afi, sem er bandamaður Sýrlendinga, studdi írana i Persaflóastríðinu.
Simamynd Reuter