Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1989, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1989, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1989. 9 Utlönd Li Peng er í sviðsfjósinu Hörð gagnrýni var í Dagblaði Al- þýðunnar, áhrifamesta blaðinu í Kína, í morgun á ástandið í kínversk- um stjómmálum. Athygli vekur að ekki var minnst á Zhao Ziyang, for- mann Kommúnistaflokksins. Hins vegar fékk andstæðingur Zhaos, harðlínumaðurinn Li Peng, að láta ljós sitt skína á forsíðu blaðsins. Vestrænir stjómarandstæðingar sögðu í morgun að fregnir gæfu til kynna að Zþao hefði tapað valdabar- áttunni og verið látinn víkja. Að minnsta kosti virtist hann ekki vera til samkvæmt Dagblaði alþýðunnar. Ekki var heldur minnst á fullyrðingu talsmanns kínverska utanríkisráðu- neytisins í gær um að Zhao væri enn formaður. Stjómarerindrekar kváðust í gær- kvöldi hafa heyrt fregnir af því að stjómmáiaráð Kina hefði haldið fund og sakað Zhao og þijá aðra um að mynda valdakliku í andstöðu við flokkinn. Dagblað alþýðunnar birtir bréf Lis til hermanna þar sem þeir em hvatt- ir til að framfylgja herlögunum. Sagt er frá fundi Lis með nýjum sendi- herrum þar sem hann sagði þeim frá Námsmenn samþykktu í morgun að halda áfram mótmælaaðgerðum sínum þrátt fyrir ótta við árás hersins sem hvattur hefur verið tíl að framfylgja herlögunum. Simamynd Reuter upplausninni í Peking. Námsmönn- um utan af landi er skipaö af stjóm- málaráðinu að halda sig utan höfuð- borgarinnar. í blaðinu er einnig mynd af ástandinu á Torgi hins himneska friðar þar sem námsmenn halda áfram mótmælaagerðum sín- um. Námsmenn hótuðu því í morgun að herða jafnvel á kröfum sínum um lýðræði þrátt fyrir óttann við að her- menn geri árás á þá. Að sögn sjónar- votta voru um tuttugu þúsund náms- menn á torginu í morginu. Strax eft- ir að tilkynnt hafði veriö í hátalara- kerfi um ákvörðun námsmanna um aö halda áfram mótmælaaögerðun- um voru þeir beðnir um að yfirgefa torgið, meðal annars af heiibrigðisá- stæðum þar sem mikið rusl hefur nú safnastfyrir. Reuter Námsmenn í Peking gera óspart grín að leiðtogum Kína og hafa þeir hengt upp teikningar með miður fallegum athugasemdum um þá á Torgi hins himneska friðar. Simamynd Reuter Fjórum Tékkum vísað úr landi Bresk yfirvöld sögðu í gær að ákvörðun um brottvísun fjögurra tékkneskra sendiráðsstarfsmanna úr landi væri í engum tengslum við brottvísim átta sovéskra sendiráðs- manna og þriggja fréttamanna frá Bretlandi fyrir viku. í kjölfar þeirrar brottvísunar guldu Sovétmenn líku líkt og vísuðu ellefu Bretum úr landi. Þá fóru þeir einnig fram á við bresk yfirvöld að þau fækkuðu í starfsliði breska sendi- ráðsins í Sovétríkjunum og öðrum breskum stofnunum þar í landi til samræmis við fjölda Sovétmanna í Bretlandi en þeir eru nú 205. Tékknesku mönnunum, sem vísað var úr landi vegna „athæfis er sam- rýmdist ekki stöðu þeirra,“ þ.e. njósna, var gefinn fjórtán daga frest- ur til að yfirgefa Bretiand. Það eru þrír stjómarerindrekar og einn tæknilegur ráðgjafi sendiráðsins sem fengu reisupassann. Bretar vísuðu þremur Tékkum úr landi í september síðastliðnum fyrir njósnir. Samkvæmt yfirlýsingu breska utanríkisráðuneytisins í gær var tékkneski sendiherrann nú minntur á að þá hefði honum verið gefin aðvörun um að Bretar myndu ekki þola slíkt athæfi. í kjölfar brottvísunarinnar í sept- ember kom mikill afturkippur í sam- skipti þjóðanna. Má til dæmis nefna að bresk yfirvöld lögðu tvívegis fram mótmæli við tékknesku stjómina á um einu ári vegna meintrar barsmíð- ar á breskum fréttamönnum í Tékkó- slóvakíu. En samskipti landanna fóm batnandi þar til nú. Reuter ISLANDSMOTIÐ I KNATTSPYRNU 2. DEILD KARLA STJARNAN - TINDASTÓLL leika á Stjörnuvelli laugardag 27. maí kl. 14. _ Garðbæingar og aðrir stuðningsmenn Stjörnunnar! Fjölmennið á fyrsta leik sumarsins og.styðjið við bakið á ykkar mönnum. VWNIRMGW "IMUíax mOfjtvi&MiMd-uTÁaGýiH SJOVA-ALMENNAR FALKIiyM" Nýtt félag nieð sterkar rætur I B^B B ■l jslensku pottarnir og pönnurnar frá Alpan hf. Flug og bíll í víku 1 Amsterdam Hlíðstætt tílboð fvrír 2 og 3 víkna ferðír * Staðgreiðsluverð, mioast við tvo fúllorðna og tvó börn. Austurstrætí 22, simi 623060.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.