Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1989, Qupperneq 28
36
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1989.
Kristófer Kristjánsson, Einigrund 3,
lést í Sjúkrahúsi Akraness miðviku-
daginn 24. mai.
Guðlaug Hallgrimsdóttir, Holtagerði
37, Kópavogi, lést 24. maí.
Gísli Jón Hjaltason lést í Sjúkrahúsi
Bolungarvíkur 24. maí sl.
Ágústa Arnbjörnsdóttir lést á Hrafn-
istu miðvikudaginn 24. maí sl.
Andlát
Jarðarfarir
Björn Pálsson, Bræðraborgarstíg 49,
Reykjavík, lést í Landspítalanum 15.
maí. Jarðarforin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Ásta Þórhallsdóttir lést 19. maí. Hún
fædist 7. febrúar 1907, dóttir Ingi-
bjargar Friðgeirsdóttur og Þórhalls
Daníelssonar. Ásta giftist Guðmundi
Gíslasyni en hann lést árið 1983. Þau
hjónin eignuðust einn son. Ásta vann
um langan tíma á Bæjarskrifstofu
Reykjavíkur. Útfór hennar verður
gerð frá Áskirkju í dag kl. 13.30.
Ásthildur Guðmundsdóttir frá Ólafs-
vík, andaöist í sjúkrahúsinu í Stykk-
ishólmi laugardaginn 20. maí. Jarð-
arförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 27. maí kl. 14. Bílferð
frá BSÍ laugardagsmorgun kl. 8.
K*ristín Sigurðardóttir lést 19. maí.
Hún fæddist 30. desember 1928 og
voru foreldrar hennar Sigurður
Ingibjörg Elíasdóttir, Heimalandi,
Grindavík, er lést í Sjúkrahúsi Kefla-
víkur þann 18. maí, verður jarðsung-
in frá Grindavíkurkirkju laugardag-
inn 27. maí kl. 13.
Sigurður Gíslason frá Felli, Ytri-
Njarðvík, lést á Hrafnistu í Reykja-
vík 14. maí. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Útför Margrétar Illugadóttur, Syðri-
Hömrum, Ásahreppi, fer fram frá
Kálfhólskirkju mánudaginn 29. mai
kl. 14.
Þóroddur Ólafsson, Eyjahrauni 9,
Vestmannaeyjum, verður jarðsung-
inn frá Landakirkju laugardaginn 27.
maí kl. 11.
Lýðsson og Guðrún Bárðardóttir. •
Eftirlifandi eiginmaður hennar er
Friðjón Þórðarson. Þau hjónin eign-
uðust fimm börn. Útför Kristínar
verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag
kl. 13.30.
Halldór Svavarsson, fjölumdæmisstjóri Lionshreyfingarinnar á íslandi, af-
hendir Oddi Ólafssyni 25 milljón króna gjöf þjóðarinnar til Reykjalundar.
DV-mynd Brynjar Gauti
25 milljónir
til Reykjalundar
-^Halldór Svavarsson, fjölumdæmis-
stjóri Lionshreyfingarinnar á ís-
landi, afhenti sflóm vinnuheimihs-
ins að Reykjalundi 25 milljón króna
ávisun að gjöf í vikunni. Þessar 25
milljónir vora ágóðinn af sölu rauðu
fjaðrarinnar í apríl sem þótti takast
með eindæmum vel.
Lionshreyfingin óskaði að féð yrði
notað til byggingar vistheimilis fyrir
mikið fötluð ungmenni sem nauð-
synlega þurfa að dvelja í næsta ná-
grenni við öfluga endurhæfingar-
stöð. Tók Oddur Ölafsson við gjöfinni
fyrir hönd vinnuheimilisins.
-hlh
Greenpeacemenn ákærðir í Finnlandi
Málaferli vegna aðgerða Greenpe-
ace við íslensku hvalakjötsgámana í
Finnlandi í fyrrasumar standa nú
vfir í Helsingfors. í fyrradag voru
birtar ákærur gegn tveimur Green-
peacemönnum til viðbótar við þá
þrjá sem hingaö til hafa verið ákærð-
ir vegna aðgerðanna.
Samkvæmt ákæruvaldinu gerðu
Greenpeacemenn sig í báðum tilfell-
um seka um brot á hafnarlögum,
þvinganir gegn opinberum starfs-
mönnum og að hindra opinbera
starfsmenn í störfum sínum.
Það var 20. júní í fyrra sem Green-
peace uppgötvaði íslensku hvalkjöts-
gámana á hafnarbakkanum í Hels-
ingfors. Sjö Greenpeacemenn hlekkj-
uðu sig fasta við gámana og reyndu
að hindra útskipun með því að setj-
ast að í hafnarkrönum.
Helsingfors hefur sett fram kröfu
um greiðslu 52 þúsund finnskra
marka eða yfir 600 þúsund íslenskra
króna vegna kostnaðar sem aðgerð-
imar leiddu af sér, auk endur-
greiðslu á kostnaði vegna löggæslu.
Málaferlin halda áfram í júní.
-hlh
Fréttir
Það voru mörg börn sem lögðu leið sína niður í Búnaðarbanka í gær þegar það fréttist að Paddington bangsi kæmi
í heimsókn. Á myndinni sjáum við Paddington innan um aðdáendur sína sem þágu veitingar frá honum og er
ekki annað að sjá en að börnin njóti sín vel í návist við þessarar frægu persónu. DV-mynd: KAE.
Minningarguðsþjónusta
vegna fórnariamba eyðni
Samtök áhugamanna um eyðni-
vandann og Samtökin 78 gangast fyr-
ir guðsþjónustu í minningu fórnar-
lamba eyðni á sunnudag. Fer guðs-
þjónustan fram í Langholtskirkju og
hefst klukkan ellefu.
Á sunnudag er alþjóðlegur minn-
ingardagur um þá sem látist hafa af
völdum eyðni. Er þetta í fyrsta skipti
sem íslendingar taka þátt í minning-
arathöfn af þessu tagi.
Prestur í minningarguðsþjón-
ustunni verður Jón Bjarman sjúkra-
húsprestur.
-hlh
Magnús ráðinn framkvæmda-
stjóri Sana á Akureyri
Magnús Þorsteinsson, starfsmaður
Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöð-
um, hefur veriö ráöinn fram-
kvæmdastjóri Sana á Akureyri frá
1. júlí næstkomandi. Fráfarandi
ffamkvæmdastjóri, Baldvin Valdi-
marsson, hættir 1. júni og hefur þá
störf hjá K. Jónssyni á Akureyri.
Magnús Þorsteinsson er 28 ára og
frá Egilsstöðum. Hann er sonur hins
kunna kaupfélagsstjóra þeirra Hér-
aðsbúa, Þorsteins Sveinssonar.
Magnús hefur starfað hjá kaupfélag-
inu síðasthðin fimm ár en þar áður
vann hann á Sambandsskrifstofunni
í London í þrjú ár.
-JGH
Styrkir veittir úr Menningarsjóði
Styrkjum menntamálaráðs til
listamanna var úthlutað úr Menn-
ingarsjóði á dögunum. Er um að
ræða styrki til dvalar erlendis, 110
þúsund krónur, og styrki til útgáfu
tónverka, samtals 160 þúsund krón-
ur. Einnig er um að ræða ferða-
styrki, sem í ár voru 22, samtals að
upphæð 770 þúsund krónur.
Dvalarstyrki í ár hlutu: Auður
Bjarnadóttir, Guðjón Petersn, Guð-
rún Ásmundsdóttir, Grétar Reynis-
son, Kolbrún S. Kjarval, Mist Þor-
kelsdóttir, Sigurður A. Magnússon
og Siguijón Birgir Sigurðsson, Sjón.
Tónlistarstyrki hlutu Gísh Magn-
ússon, Mótettukór Hahgrímskirkju
og Tónhstarfélag Kristkirkju.
Einar Laxness, framkvæmdastjóri
Menningarsjóðs, veitti styrkina.
-hlh