Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1989, Blaðsíða 3
FÖSTtfDAGUÉ 16. JÚNÍ Wð.
3
Fréttir
17. júní 1989
í tilefni málræktarátaks
Aldrei hefur tækniþekking boðið
íslenskri þjóð fjölbreyttari þátttöku
í samfélagi þjóðanna en nú um
stundir. Aldrei hefur íslendingum
verið auðveldara að ferðast til fjar-
lægra heimshorna og kynnast
framandi menningarsvæðum.
Aldrei hefur okkur boðist jafnríku-
lega að fylgjast með heimsviðburð-
um og njóta heimslistar og nú ger-
ist fyrir meðalgöngu íjarskipta-
tækni. Og aldrei höfum við átt betri
tækifæri til að láta rödd okkar
hljóma meðal annarra þjóða.
Á slíkum tímum er brýnt að hafa
í huga að sæmd okkar sem þjóðar
felst í því að vera í senn fullgiMur
veitandi og þiggjandi í heimsmenn-
ingunni. Það getum við því aðeins
að við eigum sjálf öfluga og sjálf-
stæða menningu sem skapar for-
sendur til að njóta allra þeirra
gæða sem mannheimur býður.
í dag, á þjóðhátíðardegi okkar
íslendinga, hefjum við það skipu-
lega starf sem kennt er við mál-
ræktarátak 1989. Einmitt í rækt við
móðurmálið, samþættingu tungu
og menningar, hefur styrkur ís-
lenskrar þjóðar jafnan legið' þegar
mest reið á. Það er von mín og ósk
að málræktarátakið verði að þeirri
þjóðmenningarvakningu sem okk-
ur er ævinlega þörf á svo að þeir
sem landið erfa geti glaðir sagt:
Þetta er okkar mál!
Hollustuvemd skilar áliti i Leirdalsmáiinu til ráðuneytis:
Ráðuneyti hafi milli-
göngu um samningana
- svo ekki þurfi að koma til urðunar í Leirdal
Hollustuvemd ríkisins hefur nú
skilað áhti vegna beiðni Kópavogs
um heimild til urðunar sorps í Leird-
al skammt frá Seljahverfi í Breið-
holti. Áhti sínu skilaði Hollustu-
vemd í bréfi til heilbrigðismálaráð-
herra þar sem þess er farið á leit að
ráðuneytið hafi mihigöngu um
samninga mhh Reykjavíkur og
Kópavogs þannig að ekki þurfi að
koma til urðunar sorps í Leirdal.
Þetta er í raun aðeins fyrsta um-
sögn Hollustuvemdar um málið því
að baki hennar er aðeins umijöllun
mengunarvarnadeildar stofnunar-
innar. Áður en endanlegu áhti er
skilað þarf framkvæmdastjórn Holl-
ustuvemdar að fjalla um máhð eins
og venja er í málum sem tahð er að
geti orðið deiluefni.
Efnislega er umsögn sú er Hoh-
ustuvernd ríkisins sendi hehbrigðis-
málaráðuneyti á þann veg að mælt
er með heimild th Kópavogs th að
setja upp pökkunar- og flokkunar-
stöð fyrir sorp í Kópavogi. Jafnframt
er mælt með heimhd til að urða sorp-
ið í Leirdal þar sem það sé eini kost-
ur Kópavogsbúa náist ekki sam-
komulag um áframhaldandi móttöku
sorps frá þeim á sorphaugum
Reykjavíkur.
í bréfi sínu leggur Hollustuvemd
hins vegar nokkra áherslu á að höfð
verði milhganga um samninga mhli
sveitarfélaganna þannig að ekki
þurfi að koma til urðunar í Leirdal.
Jafnframt eru rannsóknir á grunn-
vatnsrennsli á Leirdalssvæðinu
gerðar að skilyrði fyrir veitingu
heimildar til sorpurðunar þar. Slíkar
rannsóknir taka langan tíma.
Unnið er að lausn málsins bæði af
hálfu ráðuneyta og sveitarfélaganna
sjálfra. HV
VILTU PRYÐA GARÐINN ÞINN
EÐA GARÐSTOFUNA?
Mikið úrval af ails
konar dælum og stút-
um fyrir gosbrunna.
Ljós í tjarnir og beð.
Dúkar fyrir tjarnir.
Langar þig í foss eða
læk í garðinn þinn?
ERUM MEÐ FAGLEGAR RAÐLEGGINGAR YÐUR AÐ KOSTNAÐARLAUSU
GARÐHÚSIÐ
Laugavegi 54 - Símar 23510 og 22814
OASE
Keflavík - Amsterdam - RIO DE JANEIRO
Auðvelt og þœgilegt með Arnarflugi og KLM ■ Kynntu þér
sérfargjöldln okkar