Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989.
Úflönd
A tæpri viku hafa Palestínumenn myrt tvo gyðinga, að því er israelska lögreglan fullyrðir. Myndin er frá útför
annars þeirra. Símamynd Reuter
Bandaríkjamanni
rænt á Gaza-svæðinu
Palestínumenn rændu í gær
bandarískum starfsmanni hjálpar-
samtaka á Gaza-svæðinu og krefjast
þeir nú lausnar arabískra fanga í
ísraelskum fangelsum, að því er ör-
yggislögreglan í ísrael tíikynntí í
morgun.
Bandaríkjamanninum, Chris Ge-
orge, sem er formaður samtakanna
Bjargið bömunum, var rænt af skrif-
stofu sinni á aðalgötu Gaza um miðj-
an dag í gær, að því er samstarfs-
menn hans segja. Nokkram klukku-
stundum síðar barst bréf, undirritað
af George, til skrifstofu Rauða kross-
ins á staðnum þar sem krafist var
lausnar þeirra fanga sem handteknir
hafa verið síðan uppreisnin á her-
teknu svæðunum hófst fyrir átján
mánuðum.
George, sem talar reiprennandi
arabísku, vann með Palestínumönn-
um í Líbanon áður en hann kom tii
Gazasvæðisins. George hefur notíð
mikils áiits meðal Palestínumanna.
Hann er fyrsti útlendingurinn sem
rænt hefur verið í uppreisninni.
Að sögn samstarfsmanna George
var hann í vikulegri heimsókn sinni
á skrifstofunni í Gaza þegar maður
kom þangað og bað um að fá að tala
við hann utan dyra. Að minnsta kosti
tveir Paiestínumenn eru sagöir hafa
dregið hann á brott með sér.
ísraelskir hermenn hafa komið upp
vegatálmum á Gaza-svæðinu og leita
nú í bílum þar. Erlendum frétta-
mönnum var í morgun meinaður
aðgangur að ströndinni sem er heim-
ih sex hundruð og fimmtíu þúsund
Paiestínumanna.
Öryggislögreglan í ísrael telur að
menn úr Hamas-hreyfingunni hafi
verið á bak við rán á tveimur ísra-
elskum hermönnum nálægt Gaza-
svæðinu á þessu ári. í síðastliðnum
mánuði voru þrjú hundruð grunaðir
aðOar hreyfmgarinnar handteknir.
Starfsmenn mannúðarsamtaka telja
að George getihafa verið rænt til að
fá þá látna lausa.
Aðeins tuttugu erlendir starfs-
menn mannúðarsamtaka búa á
Gaza-svæðinu, þar á meðal nokkrir
Bandaríkjamenn. Bandaríska sendi-
ráöið vildi ekki tjá sig um máhð í
morgun en bandarískir stjórnarer-
indrekar hafa hvatt alla Bandaríkja-
menn á strandlengjunni að halda sig
heima við. Aðrir Bandaríkjamenn
eru hvattir til að koma ekki inn á
svæðið.
ísraelski herinn fékk fregnir af
mannráninu, aðeins nokkrum mín-
útum eftir að það átti sér stað um
hádegisbilið í gær en tilkynntí ekki
um það fyrr en í morgun.
Reuter
V F. R fí S P R F. N G J A !
Fengum aukasendingu vegna mikillar sölu. Nú þegar er ein
gerðin af Qórum uppseld, svo vissara er að panta sem íyrst.
Fullbúin hjólhýsi á tjaldvagnaverði
Synum hin vinsælu PREDOM hjólhýsi og kerrur laugardag kl. 10.00 - 16.00.
Höfum fengið takmarkað magn af þessum sívinsælu hjólhýsum og kerrum sem
selst hafa upp á skömmum tíma undanfarin ár. Komið og kynmð ykkur þær
nýjungar sem nú er boðið upp á og tryggið ykkur hús í tíma.
Innifalið í verði: Svefnpláss fyrir 2 til 4, tveggja hellna eldavél, vaskur með
rennandi vatnipg niðurfam, mniljós, fataskápur, tvö borð
með sætum fyrirð manns, sólúgéL klósetklefi, burðarkassi
fyrir rafhlöður og gaskúta, sjáfvirkar bremsur, stuðnings-
tjakkar á ollum nomum, tvöfalt gler, fullkominn Ijósabún-
aður, fortiald og margt fleira.
Allt þetta á verði frá kr. 255.000.- fhver býður betur ?1
Vélar og Þjónusta Jámhálsi 2, súni 91-83266
DV
Vopnahlé
í Angóla
Forseti Angóla, Jose Eduardo dos
Santos, sagði í morgun að vopnahlés-
samkomulagið sem náðist í gær við
skæruhðahreyfinguna UNITA, sem
barist hefur við stjómarherinn í 14
ár, væri fyrsta skrefið í friðarátt í
landinu. Samkomulagið náðist á
fundi átján leiðíoga Afríkuleiðtoga í
Gbadolite í Zaire.
Fréttir af samkomulaginu um
vopnahléð, sem taka á gildi á morg-
un, og fundi Santos og Jonas Sav-
imbi, leiðtoga UNITA, náðu Luanda
seint í gær þegar flestir íbúar borgar-
innar höfðu lagst til hvílu. í útvarp-
inu og sjónvarpinu í Angóla var ekk-
ert greint frá árangri fundarins í
gærkvöldi. Stjómin í Angóla og hátt-
settir embættismenn biðu á flugvell-
inum eftir dos Santos, augsýnilega
spenntir aö fá fréttir af fundinum.
Margir þeirra stihtu á erlendar út-
varpsstöðvar og aörir fengu fyrstu
fregnimar af vopnahléssamkomu-
laginu af vestrænum fréttamönnum.
Margir lýstu yfir undrun sinni yfir
hversu fljótt samkomulagiö heföi
náðst og áttu erfitt með að trúa að
dos Santos og Savimbi hefðu tekist í
hendur eftir áralangan íjandskap af
beggja hálfu.
Ófriður hefur ríkt í Angóla í nær
þijátíu ár. Upphaf átakanna var bar-
áttan fyrir sjálfstæði frá Portúgal.
Árið 1975 réðust suður-afrískir her-
menn inn í Angóla frá Namibíu til
að hjálpa UNITA og öðrum skæm-
hðahreyfingum, sem hlynntar voru
Vesturlöndum, til að ná völdum.
Yfirvöld á Kúbu sendu hermenn til
JONAS SAVIMBI, Anflola's Rabel Group Leader
Jonas Savimbi, leiðtogi UNITA.
Teikning Lurie.
aðstoðar MPLA-hreyfmgimni sem
Sovétmenn studdu. Leiðtogi MPLA-
hreyfingarinnar, Neto forseti, lýsti
yfir sjálfstæði Angóla 11. nóvember
1975 og 1976 var hreyfingum studdum
af vestrænum ríkjum og Suður-Afr-
íku ýtt til hliðar. Neto lést 1979 og tók
þá dos Santos við.
Sem skilyrði fyrir sjálfstæði
Namibíu heimtuðu Suöur-Afríka og
Bandaríkin að hermennirnir frá
Kúbu yrðu kahaðir heim frá Angóla
og var samkomulag þar að lútandi
undirritað í júh í fyrra. Suður-afr-
ískir hermenn hafa einnig farið frá
AngÓla. Reuter
Ný stjórn
í Færeyjum
Ný ríkisstjóm tók við völdum í
Færeyjum í gær. Miðstjórnir Fólka-
flokksins, Sambandsflokksins og
Þjóðveldisflokksins höfðu þá sam-
þykkt samkomulag flokkanna um
skiptingu ráðherrastólanna sem
deilt hafði verið um.
Höfðu bæöi Sambandsflokkurinn
og Þjóðveldisflokkurinn krafist emb-
ættis fjármálaráðherra og varð
lausnin sú búið var til nýtt embætti,
það er embætti efnahagsmálaráð-
herra. Var það Þjóðveldisflokkurinn
sem fékk þann ráðherrastól.
Lögmaður þriggja flokka stjórnar-
innar verður sem fyrr Jógvan Sund-
stein úr Fólkaflokknum. Jóngerð
Purkhús úr Þjóðveldisflokknum
verður efnahagsmálaráðherra og
Ivan Hohannessen Sambandsflokkn-
um verður fjármálaráðherra.
Jógvan Sundstein verður áfram lög-
maður Færeyja.
Viðgerð hafin
á Maxim Gorfci
Sovéska skemmtiferðaskipið Max-
im Gorki kom til Svalbarða í gær til
bráðabirgðaviðgerðar. Lagðist það
við festar á Colesflóa. Flóinn er um
þaö bil miðja vegu milli Barents-
borgar og Longyearbæjarins.
Viðgerðirnar hófust strax eftir
komu skipsins til Svalbarða í gær-
morgun og verður miðaö að því að
gera skipið fært til að sigla til Bre-
merhaven í V-Þýskalandi. Þar verö-
ur það tekið í slipp th fullnaðarvið-
gerðar.
Maxim Gorki lagði af stað frá slys-
stað fyrir hádegi á miðvikudag með
fjögurra hnúta hraöa. Sovéskt flutn-
ingaskip og sovéskur dráttarbátur
aöstoðuöu Maxim Gorki á sigling-
unni.
Enn eru hundrað áttatíu og fjórir
áhafnarmeðhmir um borö í
skemmtiferðaskipinu en hinir
hundrað níutíu og þrír eru í Barents-
borg þangað sem þeir voru fluttir
með norska strandgæsluskipinu
Senju. NTB