Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Blaðsíða 26
26
•989 r toÖL .62 HUOACnJMÁM
MÁNUDAGUR 26. JÚNI 1989.
Iþróttir
„Norskir knattspyrnumenn
leika með allt öðru hugarfari“
segir landsliðsmaðurinn Ölafur Þórðarson frá Akranesi sem leikur með norska félaginu Brann
„Mér og fjölskyldunni hefur liðið mjög vel þann tíma sem við höfum dvahð í Bergen. Þetta
er svolítið frábrugðið lífinu heima á íslandi. Veðrið í sumar hefur veiið í einu orði sagt frá-
bært. Hér um slóðir hefur verið hitabylgja um þriggja vikna skeið. Ég sé ekki eftir því að
hafa ákveðið að koma hingað til Bergen og leika knattspymu með Brann. Það sem hefur kom-
ið mér einna mest á óvart er aðstöðumunurinn. Hér æfa og keppa félögin við bestu aðstæður en heima
eru leikmenn að keppa við aðstæður sem eru varla mönniun bjóðandi," sagði Ólafur Þórðarson, lands-
lif jmaður í knattspymu og leikmaður með norska félaginu Brann, í samtali við DV. Ólafur var þá nýkom-
imi af æfingu en hann gekk til Uðs við félagið í vor og hefur fengið góða dóma fyrir leik sinn í norskum
fjölmiðlum. Ólafur er þekktur fyrir mikla baráttu og eftir því hafa Norðmenn tekið og hrósað honum
í hástert. Norska dagblaðið og Verdens Gang hafa í nokkur skipti vaUð Ólaf í Uð vikunnar. Þjálfari
Brann er enginn annar en bróðir Ólafs, Teitur Þórðarson, en þetta er annað árið hans hjá Brann.
Ólafur Þórðarson er 23 ára gam-
aU Akumesingur. Hann lék í öUum
yngri flokkunum með Skagamönn-
um. Fyrsta meistaraflokksleikinn
lék hann í Færeyjum er Akumes-
ingar voru þar á keppnisferðaiagi
1982. Þó Ólafur sé ungur að árum
hefur hann þegar leikið 32 lands-
leiki fyrir íslands hönd. Hann hef-
ur fram að þessu ekki misst úr
landsleik frá því að hann var val-
inn fyrst í landsUðið.
ÓMur hefur komið sér vel fyrir
í Bergen með fjölskyldu sína. Fjöl-
skyldan býr í fjögurra herbergja
íbúð skammt frá leikvangi félags-
ins og er Ólafur aðeins um fimm
mínútur að ganga á æfingar. Ólafur
er giftur Friðmey Barkardóttur og
eiga þau tvö böm, Valgeir og Ester
Maríu.
„Aðstæður allar eru
fyrsta flokks“
- í hveiju liggur munurinn á ís-
lenskri og norskri knattspyrnu?
„Norskir knattspymumenn leika
knattspymu með allt öðru hugafari
en leikmenn í 1. deUdinni heima á
íslandi.
Það er meira spil hér í deildinni
og leikmenn fara mun betur með
knöttinn. Aðstæður er ekki hægt
að bera saman en í Noregi em þær
fyrsta flokks. Hjá Brann vinna leik-
menn aðeins hálfs dags vinnu og
koma þannig óþreytfir á æfingu
sem hefst klukkan þrjú á daginn.
Ég vinn hjá lagerfyrirtæki í Bergen
sem selur varahluti til oUufyrir-
tækja hér í borginni og líkar vinn-
an ágætlega. Á íslandi vinna leik-
menn hins vegar átta tíma á dag
og lengur og koma þreyttir á æfing-
ar. Það er einnig mun meira af
góðum knattspymumönnum hér í
Noregi en heima er hópurinn mun
þrengri. Norðmenn em hins vegar
mun fljótari að gefast upp þegar á
móti blæs. Að þvi leytinu tU em
þeir öðmvísi en íslendingar, sem
vanir em að beijast, og er íslenska
landsUðið besta dæmið í því sam-
bandi.“
„Byrjuðum illa en
bjartsýnn á framhaldið“
- Tíu umferðum er nú lokið í
norsku 1. deildinni. Ertu ánægður
með frammistöðu Brann-liðsins?
„í dag er staða okkar ekki svo
slæm. Við fómm að vísu mjög Ula
af stað í deUdinni en það hefur loð-
aö við Brann-Uðið að hefja keppnis-
tímabU með þessum hætti. Þegar
út í aivöruna er komið virðist eitt-
hvað fara úrskeiðis. í síðustu um-
ferðum höfum við rétt úr kútnum
svo um munar og erum aðeins
fimm stigum á eftir efsta Uðinu,
LiUeström. Það er mikið eftir af
deUdinni og aUt getur gerst.
„Knattspyrnuáhugi í
Bergen er gífurlegur“
- Af fréttum að dæma virðist áhugi
á knattspyrnu vera hvað mestur i
Bergen. Hefur þú orðið var við
þennan áhuga?
„Já, heldur betur. Áhuginn á
knattsgymu hér í Bergen er gífur-
legur. í borginni snýst nánast aUt
um knattspymu og borgarbúar
styðja vel við bakið á okkur. Á
heimaieUd koma í kringum fimmt-
án þúsund áhorfendur en um helg-
ina er stórleikur þegar Rosenborg
kemur í heimsókn og þá er búist
við um átián þúsund áhorfendum.
AðalstuðningsaðUi Uðsins er
Hansa-ölgerðin í Bergen og að auki
kemur stuðningur frá ýmsum öðr-
um aðUum. Stuðningsmenn Uðsins
spyija mikið um Bjama Sigurðsson
en hans er sárt saknað hér í Berg-
en. Markmaðurinn, sem tók stöðu
Bjama þegar hann fór tU íslands,
hefur staðið sig ágætlega en hann
er samt ekki eins góður og Bjami.
Bjarni er þekktur hér enda eðlUegt
því hann stóð sig með prýði þau
ár sem hann lék með Uðinu.“
„Kitlar að leika á
meginlandi Evrópu“
- Hefur þú áhuga á að leika knatt-
spyrnu annars staðar en í Noregi?
„Ég samdi við Brann tU tveggja
ára svo að ég mun einnig leika með
félaginu á næsta keppnistímabUi.
Að því loknu er aldrei að vita hvað
tekur við. Ég get ekki neitað því
að það kitlar mig að leika með góðu
félagsUði í Evrópu og að því stefni
ég. Ef maöur stendur sig vel er sá
möguieiki aUtaf f>TÍr hendi. Út-
sendarar félagsUða frá meginlandi
Evrópu fylgjast grannt með norsku
knattspymunni. Tíminn mun hins
vegar leiða í ljós hvað tekur við að
Noregsdvölinni lokinni."
„Teitur að gera góða
hluti hjá félaginu“
- Hvemig líkar þér að vinna undir
stjórn bróður þíns, Teits Þórðar-
sonar?
„Þetta er annað ár Teits hjá
Brann og mér líkar mjög vel að
vinna undir hans stjóm. Hann er
fær þjálfari og er að gera góða hluti
hjá félaginu. Hver þjáUari þarf sinn
aðlögunartíma og er Teitur ekki
undanskilinn í þeim efnum. Æfing-
ar hans em skemmtílegar og leik-
menn og forráðamenn félagsins
láta vel af störfum hans.“
Tveggja vikna frí
í deildinni 10. júlí
- Svo þú ert bjartsýnn á framhaldið
hjá félaginu.
„Ef taka á mið af frammistöðu
liðsins í síðustu leikjum er ég bjart-
sýnn á gott gengi í næstu leikjum.
10. júlí verður gert hálfs mánaðar
hlé á 1. deUdar keppninni og von-
andi verður staða okkar góð þá.
Leikmenn fá einnar viku frí frá
æfingum og þeim tíma hef ég
ákveðiö að verja heima á íslandi í
faðmi fjölskyldunnar,“ sagði Ólaf-
ur Þórðarson hress í bragði.
-JKS
Ur'.
■ '
.... ..
' '#' ■ "1
IIIIHI
• Olafur Þórðarson er mikill baráttujaxl og gefur hvergi eftir. Hér er hann í baráttu um knöttinn í landsleik íslands og Austurrikis.
DV-mynd BG