Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1989, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 28. JÚLl 1989.
Fréttir
Umdeild rarmsókn lögreglunnar á íkvelkjmnáli á ísafirði:
Húseigandinn fékk tauga-
áfall við yfirheyrslur
- var með lögreglumann yfir mér á sjúkrahúsinu dag og nótt, segir Stefán Dan Óskarsson
Þessi mynd var tekin af Stefáni i brunarústunum en eins og sjá má er flest í húsinu ónýtt. Stefán hefur ekki getað
hafið viðgeröir vegna rannsóknar málsins. DV-mynd Sigurjón
„Ég verð að segja eins og er að það
var illa að þessu staðið hjá lögregl-
unni. Ég var með lögreglumann yfir
mér á sjúkrahúsinu dag og nótt án
þess aö nokkur gæsluvarðhaldsúr-
skurður hefði verið kveðinn upp. Það
var ekki fyrr en þrem dögum eftir
brunann sem mér var tilkynnt af
hveiju en þá kom í ljós að þeir grun-
uðu mig imi íkveikju. Á meðan fékk
ég ekki að ræða við nokkurn mann,
ekki einu sinni konu og börn, nema
undir ströngu eftirliti. Auk þess fékk
ég ekki að sjá nein blöð. Þetta stóð
yfir í um 10 daga,“ sagði Stefán Dan
Óskarsson en fyrir um það bil fimm
vikum brann líkamsrækt, Stúdíó
Dan, sem hann starfrækti á ísafirði,
nánar tiltekið 20. júni.
Stefán kom að brunanum og fékk
taugaáfall, sem að sögn sjónarvotta
leiddi til stjarfa með krampa. Stefán
var fluttur á sjúkrahús ísafjarðar þar
sem hann fékk meðferð við taugaá-
falli. Þar var hann vaktaður dag og
nótt af lögreglumanni en fljótlega
vöknuðu grunsemdir um að um
íkveikju væri að ræða. Þar eð Stefán
var síðastur út úr húsi um kl. 23.30,
en bruninn uppgötvaðist um 1.30,
beindist rannsóknin að honum.
Rannsóknarlögreglumaður kom til
ísafiarðar frá Rannsóknarlögreglu
ríkisins.
„Eyðilagt rannsóknina“
„Mér fannst í sjálfu sér eðlilegt að
vera yfirheyrður því ég var síðastur
út úr húsi að því er best er vitað. Ég
er hins vegar voðalega sár yfir því
að málið skyldi vera meöhöndlaö á
þennan hátt eingöngu því það ber
vott um svo mikinn klaufaskap. Aö
mínum dómi og margra annarra hef-
ur lögreglan eyöilagt rannsóknina
með þessum hætti þvi yfirheyrslur
yfir öðrum voru litlar sem engar og
lögreglan virðist ekki hafa gert neitt
til aö afla gagna fyrir utan að sifia
yfir mér. Rannsóknarlögreglumað-
urinn virðist hafa ákveðið ég væri
sá seki og með því hugarfari stýrði
hann rannsókn og skýrslugerð."
Þess má geta að þetta er flórði
óupplýsti bruninn á Isafirði en ekki
er enn vitað hver kveikti í Kirkj-
unni, Vörumarkaði Shell og húsi í
bænum. Sumir þessara bruna, og þar
á meðal í Studio Dan, eru með sömu
einkennum - kviknaö hefur í út frá
eldi á mörgum stööum í einu.
Samkvæmt heimildum DV er mikil
reiði á ísafirði vegna meðferðar lög-
reglunnar á Stefáni enda muna menn
þar ekki eftir því að nokkur maður
hafi verið vaktaður þar dag og nótt
í jafnlangan tíma.
Þá vakti rannsóknaraðferðin at-
hygli bæjarbúa en meðal annars
vakti viðtal við Stefán í bæjarblaöinu
BB athygh lögreglunnar - að sögn
fyrir þá sök aö Stefán mun hafa þar
tekið svo til orða að hann.hefði
heitar hendur.“
Annað taugaáfall á lögreglu-
stöðinni
Á þriðja degi eftir brunann var
Stefán útskrifaður af sjúkrahúsinu
og þá færöur til yfirheyrslu niðri á
lögreglustöð. Þar þurfti hann að dúsa
í klefa sem hann segir aö hafi verið
illa lyktandi, gluggalaus og loftlítill.
Segir Stefán að hann hafi þá enn
verið undir áhrifum lyfia sem hann
fékk vegna taugaáfallsins og ekki á
nokkum hátt verið fær um að sitja
undir yfirheyrslu. Honum hafi verið
boðinn réttargæslumaður en hann
sagðist ekki hafa áttað sig á því og
afþakkað. Það telur Stefán að hafi
verið mistök hjá sér.
Eftir sex stunda yfirheyrslu var
settur yfirlæknir sjúkrahússins,
Bjöm Þór Sigurbjömsson, kallaöur
niður á lögreglustöð þar sem hann
úrskurðaöi að Stefán hefði fengið
annað taugaáfall og að hann yrði að
fara á sjúkrahúsið aftur. Bjöm sagði
við DV að hann heföi ekki gert aðrar
athugasemdir við aðbúnaðinn en
þær að Stefán væri ekki fær um að
sitja undir frekari yfirheyrslu.
Því hefur verið haldið fram að
Bjöm Þór hafi gert miklar athuga-
semdir viö aðbúnað Stefáns í fanga-
klefanum. Um það sagði Björn aö-
eins: „Ég geri ekki ráð fyrir að þess-
ir fangaklefar séu öðmvísi en aðrir
í heiminum."
Óvíst hvort Stefán kærir
Stefán segist ekki hafa ákveöið
hvort hann kærir meðferðina en
hann hafi fengið Öm Clausen hæsta-
réttarlögmann til að fylgjast með sín-
um málum. Sagðist Stefán óttast aö
ef hann kærði málið myndi það enn
frekar frestast en öll hans starfsemi
hefur verið innsigluð.
Stefán má ekki vinna enn og telur
læknir hans að hann verði í tvo mán-
uði að jafha sig. -SM J
Þoka hefur stöövað framkvæmdir við Kolbeinsey:
Ovíst hvort steypu-
mótin standast
Lögreglan telur eðlilega að rannsókninni staðið:
Stefán Dan ekki
sjávarganginn
, JHér er búin aö vera þoka frá því
klukkan sjö á þriöjudagskvöldið og
hafisinn er aöeins 3 mílur firá okk-
ur,“ sagði Sigurður Steinar Ketils-
son, skipherra á varöskipmu Óöni
sem nú er statt við Kolbeinsey.
Steypuframkvæmdir við sprungu-
og þyrlupall í Kolbeinsey höfðu
fram til þess tíma gengið vonum
framar í blíðskaparveðri.
,JEn það þýöir ekkert annafi en
aö vera bjartsýnn," sagöi Sigtirður
Steinar eftir að hann haföi hlustað
spenntur á veðurfréttimar í morg-
un. ,JÞað verður bara bræla áfram
en morgundagurinn lofar samt
góðu. Viö áttum eftir að fara 60
ferðir út í eyjuna með þann steypu-
farm sem var eftir í skiplnu á
þriðjudaginn. Þyrlan var alls búin
aö fara 135 ferðir meö steypu út í
Kolbeinsey þegar þokan skall á.
Þess vegna héldum við inn til Ak-
ureyrar í gærmorgun til aö safna
kröftum og lestuöum meira fyrir
næstu lotu. Þaðan fórum viö svo í
gærkvöldi. Við eigum nú eftir aö
fara um 190-200 ferðir og bíðum
átekta,“ sagöi Sigurður.
„Við vonumst til að veðriö hafi
ekki hreyft við mótunum. Þama
hefur sjórinn brotið á eyjunni. Ef
mótin hafa raskast þurfum viö auö-
vitaö meiri tíma. En það þýöir ekk-
ert annað en að vera bjartsýnn -
þeir fiska bara sem róa.“
Reykjavlk:
Ölvun við akstur
Síðastlíðna nótt vora þrír öku-
menn teknir grunaðir um ölvun við
akstur í borginni.
Á Reykjanesbraut vora tveir mót-
orhjólapiltar stöðvaðir vegna hrað-
akstm-s og mældist annar piltanna á
124 kílómetra hraða. Var hann svipt-
ur ökuskírteini á staðnum.
-J.Mai
hafinn yfir grun
- segir Jónmundur Kjartansson varöstjóri
„Ég tel aö þama hafi verið afskap-
lega eðlilega að málum staðið. Auð-
vitað var þetta dálítið óvepjulegt mál
vegna þess að Stefán var fluttur strax
á spítala í því ástandi aö ekki var
hægt að yfirheyra hann, að áliti
læknis," sagði Jónmundur Kjartans-
son, varðsfióri lögreglunnar á
ísafirði og staðgengill yfirlögreglu-
þjóns, þegar hann var spurður um
þá ásökun Stafáns Dan að ekki hefði
verið eðlilega að rannsókn bruna-
málsins staðið. Rétt er að taka fram
að Jónmundur stýrði ekki rannsókn
málsins sjálfur.
Lögreglan á ísafirði hefur nú lokið
rannsókn málsins og verður það
sennt fulltrúa lögreglustjóra sem
mun senda það áfram til ríkissak-
sóknara. Niðurstaða lögreglunnar er
að um íkveikju sé aö ræða og kveikt
hafi verið í á 9 stöðum. Þá grunar
lögreglan ákveðinn aöila, sem kemur
fram í skýrslunni, en Jónmundur
kvaðst ekki geta gefið upp hver það
væri.
Jónmundur sagði aö rannsókn
málsins hefði verið í höndum lög-
reglunnar á ísafirði en hún hins veg-
ar notið aðstoðar rannsóknarlög-
reglumanns frá Rannsóknarlögreglu
ríkisins.
Jónmundur sagði að Stefán hefði
verið vaktaður af óeinkennisklædd-
um lögregluþjóni frá 20. júní til 26.
júní. Sagði Jónmundur að þegar í
upphafi hefðu böm og kona Stefáns
fengið að heimsækja hann og þegar
á hefði liðið hefðu allar takmarkanir
á heimsóknúm verið afnumdar. Lög-
regluþjónn hefði þó ávallt veriö við-
staddur og Stefáni óheimilt að ræða
málið við nokkum mann.
Eftir'að Stefán var útskrifaður 23.
júní var hann formlega handtekinn
og færður til yfirheyrslu. Var þar
skipaður réttargæslumaður honum
- tál handa. Jónmundur sagði að fljót-
lega eftir yfirheyrslu hefði Stefán
verið fluttur upp á spítala aftur að
læknisráöi. Þá var hann úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald hjá sakadómi ísa-
fiarðar sem átti að endurskoðast 27.
júní. Ástæðan fyrir því var sú að
ekki var taliö að yfirheyrslu væri
lokið.
Þegar Stefán var útskrifaður aftur
26. júní var hann yfirheyrður og síð-
an sleppt. Síöan hefur hann verið
yfirheyrður tvisvar vegna málsins.
Jónmundur neitaði því harðlega
að rannsókn málsins hefði verið van-
rækt og sagðist hann efast um aö
Stefán hefði yfirsýn yfir málið. Alla
vega 13 aöilar hefðu verið yfirheyrð-
ir vegna málsins og Branamálastofn-
un hefði þar að auki framkvæmt
rannsókn,
„Það er auðvitað engin spurning
að Stefán var meðhöndlaður sem
grunaður. Hann er heldur ekki haf-
inn yfir grun. Það var hins vegar
eðlilega að rannsókn málsins staðið
og var það gert til hlítar. En auðvitað
á það að vera rannsakað bæði til
sektar og sakleysis.“
-SMJ