Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1989, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1989.
Viðskipti
Viðræðumar við bændur skila góðum árangri:
Baula fær nægi-
legt mjólkurmagn
„ Við erum búnir að ræða við bænd-
ur og höfum fengið vilyrði fyrir
nægilegu magni af mjólk fyrir starf-
semi okkar. Enn hefur ekki verið
gengið formlega frá samningum en
við teljum ljóst að það muni ekki
stranda á mjólkurkaupunum. Bænd-
umir hafa meira að segja haft sam-
band við okkur að fyrra bragði og
boðið okkur mjólk,“ sagði Þórður
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
vinnslustöðvarinnar Baulu hf., er
DV ræddi við hann.
Eins og blaðið hefur greint frá hef-
ur Baula hf. staðið í deilum við
Mjólkursamsöluna. Viidi fyrmefnda
fyrirtækið kaupa óunna nvjólk af
hinu síðamefnda. Mjólkursamsalan
vildi hins vegar ekki selja, kvaðst
ekki vera flutningsaðili fyrir Baulu-
menn. Því varð úr að þeir hófu við-
ræður um mjólkurkaup við bændur
í nágrenni Hellu en Baula þarf um
500.000 lítra til starfsemi sinnar ár-
lega.
Útlit er fyrir aö vinnslustöðin verði
flutt um set austur til Hellu ef þessi
leið verður farin. Hafa eigendur
Baulu haft augastað á húsnæði sem
Búnaðarbankinn á. Sem stendur er
fyrirtækið í leiguhúsnæði í Hafnar-
firði. „Það er ekki búið að ganga frá
þessu enn. Við höfum staöið í við-
ræðum við eigendur hússins og það
á ekkert að vera því til fyrirstöðu aö
við getum flutt starfsemi okkar þang-
að. Það á ekki að stranda á því og
við tækjum þá væntanlega húsið á
leigu. En þetta helst allt í hendur,
mjólkurkaupin og flutningamir. Við
Fyrirtækið er sem stendur í leiguhúsnæði í Hafnarfirði en forráðamenn þess hyggja á flutning austur að Hellu.
munum halda fund um húsnæðið í
næstu viku og eftir svo sem tvær
vikur ættu öll kurl að vera komin til
grafar," sagði Þórður.
Aöspurður hvort Baula mundi
greiða bændum eitthvað meira fyrir
mjólkina en Mjólkursamsalan gerði
kvaðst Þórður ekki geta lýst því yfir
að þeir myndu yfirbjóða hana. „En
við munum gera eitthvað fyrir okkar
viðskiptamenn umfram það sem
tíðkast," sagði hann. -JSS
Hótel ísland:
Smíðar Ingvar innréttingarnar?
,JÉg vil taka það fram vegna Þorsteinsson, einn eigenda fyrir- Holiday Inn, Hótel Esju, Hótel og hefðu erlendir aöilar allar klær
ummæla Olafs Laufdal í DV að ég tækisins Ingvar og synir. Umrædd Geysi, Eddu-hótelin, tiltekna álmu úti tíl aö ná í verkefhi hér.
hef smíðað innréttingar í fjölmarg- ummæli Ólafs Laufdal voru á þá í Landspftalanum og Bústaða- „Við Ólafur Laufdal ætlum nú aö
ar byggingar, þar á meðal hótel og leið að æskilegt hefði verið að kirkju.Hannhefðieinnigáttlægsta eiga fund saman og skoða þessi
veitingastaði. Þaö er þvi ekki rétt kaupa innlend húsgögn í Hótel ís- tilboðiö í innréttingamar á Hótel mál varðandi innréttingamar í
aðenginninnlenduraðiliséáþeim land, „en það em engir á þeim Loftleiðum en þar hefðu erlendir HótelÍsland.Hvaðútúrþeimfundi
markaöi hér á landi. Eg hafði þegar markaði hér á landi“. aðilar gripiö inn í og krækt í verk- kemur er óvíst en viörseður geta
samband við Ólaf og við ætlum nú Ingvar kvaöst m.a. hafa smíðað ið „undir borðið". Ingvar sagöi aö aldrei skaðaö," sagði Ingvar.
aö eiga fund saman," sagði Ingvar innréttingamar f Hótel Sögu, hart væri barist á þessum markaði -JSS
Fylgni bensínverðs á Islandi
við verð í Rotterdam
$/tonn Kr/I
Feb. Mars Aprfl Maf Júnf Júlí
Þannig lítur þróunin á bensinverði út, annars vegar á Rotterdammarkaði
og hins vegar hér á landi.
Veröfall á Rotterdammarkaöi:
Ovíst hvort
bensínið
lækkar hér
„Það er tvennt sem hefur áhrif á
hvort bensínverð til neytenda lækk-
ar. Annars vegar er lækkun á inn-
kaupsverði og hins vegar staða svo-
kailaðs innkaupareiknings. Hann
hefur verið neikvæður að undan-
fömu sem þýðir aö ef inn koma farm-
ar á lágu verði verður aö jafna hann
áður en til verðlækkunar kemur.
Þetta kemur til með að seinka verð-
lækkun á bensíni nú ef af henni verð-
ur.“
Þetta sagði Gunnar Þorsteinsson
hjá Verðlagsstofnun er DV spurði
hann hvort von væri á lækkun á
bensínverði vegna verðfalls á Rott-
erdammarkaði. Gunnar sagöi enn
fremur að engin ákvörðun hefði ver-
ið tekin um slíka lækkun, enda verð-
lækkunin ytra svo nýtilkomin. Olíu-
félögin skfluöu útreikningum yfir
alla farma tíl verölagseftirlits og ósk-
uðu eftir verðbreytingum meö tilliti
til þeirra. Enn hefði ekkert komið frá
olíufélögimum, hvorki útreikningar
á lága verðinu né beiðni um verð-
breytingar.
-JSS
Útflutningsráð hefur nú tekið
upp samstarf við gagnabanka í
New York. Um er að ræða virt
bókasafn, Center for Business
Research, sem hefur öflun við-
skiptaupplýsinga að aðalstarfi.
Umrætt safn hefur aögang aö
1.400 tímaritum sem eru grunn-
urinn að sérhæföum viðskipta-
upplýsingum þeirra að því er seg-
ir í frétt frá Útflutningsráði.
Gagnabankinn er i tölvusam-
bandi viö helstu gagnabanka sem
ráða yfir viðskiptauglýsingum.
Við þetta starfar sérhæft starfs-
fólk sem hefur þegar mikla
reynslu af upplýsingaöflun.
Skrifstofa Útflutningsráðs í
New York hefur fengið upplýs-
ingar í samtals fimm málum og
er reynslan nýög jákvæð. Kostn-
aður við slíkar athuganir er mjög
mismunandi en emföld frumat-
hugun kostar um 300 dollara eöa
18.000 krónuríslenskar. -JSS
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR <%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 12-16 Úb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 12.5-17 Úb
6mán. uppsögn 15-17 Úb
12mán.uppsögn 13-17 Úb
18mán.uppsögn 27 Ib
Tékkareikningar, alm. 3-9 Ab
Sértékkareikningar 4-15 Ib.Ab
Innlán verðtryggð
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5-2 Vb
6 mán. uppsögn 2,5-3,5 Allir
Innlán meðsérkjörum 21-25 nema Sp AB
Innlán gengistryggó
Bandaríkjadalir 7,5-8,5 Ab
Sterlingspund 12,5-13 Sb.Ab
Vestur-þýsk mörk 5,25-6 Sb.Ab
Danskarkrónur 7,75-8,5 Bb.lb,-
ÚTLÁNSVEXTIR (%) b.Sp.A- b lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 29,5-34,5 Bb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 31,5-37,5 Bb
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 35,5-39 Lb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7-8,25 Lb
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 25-36 Úb
SDR 9,75-10,25 Lb
Bandarikjadalir 10,5 Allir
Sterlingspund 15.5-15,75 Allir
Vestur-þýsk mörk 8,25-8,5 nema Úb Úb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 45,6
MEÐALVEXTIR
Óverötr. júll 89 35.3
Verðtr. júlí 89 7,4
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala ágúst 2557. stig
Byggingavisitala ágúst 465 stig
Byggingavísitala ágúst 145,3stig
Húsaleiguvisitala 5%hækkun1.júll
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi brefa veröbréfasjóð a
Einingabréf 1 4,059
Einingabréf 2 2,248
Einingabréf 3 2,655
Skammtímabréf 1,395
Lífeyrisbréf 2,041
Gengisbréf 1,814
Kjarabréf 4,037
Markbréf 2,146
Tekjubréf 1,746
Skyndibréf 1,224
Fjölþjóöabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 1,948
Sjóðsbréf 2 1,559
Sjóósbréf 3 1,375
Sjóðsbréf 4 1,147
Vaxtasjóðsbréf 1,3755
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 300 kr.
Eimskip 368 kr.
Flugleiðir 172 kr.
Hampiðjan 165 kr.
Hlutabréfasjóöur 130 kr.
Iðnaöarbankinn 159 kr.
Skagstrendingur hf. 212 kr.
Útvegsbankinn hf. 135 kr.
Verslunarbankinn 146 kr.
Tollvörugeymslan hf. 109 kr.
(1) Viö kaup á viðskiptavíxlum
og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af
þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóö-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn blrtast f DV á fimmtudögum.