Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1989, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1989, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1989. Uflönd I hungurverkfalti Forsetakosningar 1 íran í dag: Lögregla i Suður-Kóreu hafði míkinn viöbúnað i gær þegar nokkrír prest- ar reyndu að komast að landamaerum Norður-Kóreu til að hitta að mðli Im Su-kyung sem fór i yfir landamaerin þvert á vilja yfirvakia i Suður-Kóreu. Simamynd Reuter Tveir Suður-Kóreubúar hafa hafiö hungurverkfall til aö leggja áherslu á kröfur sínar um sameiningu Norður- og Suöur-Kóreu. Um tylft mótmæl- enda víðsvegar að sagði að þeir myndu einnig neita sér um mat til stuðn- ings kröfunum um sameiningu, sem og til að krefjast þess að ung náms- kona, Im Su-kyung, sem fór yfir landamærin þvert á viija yfirvalda í Suöur-Kóreu, hiljótL ekki refsingu þegar hún snýr heim á ný. Im, sem fór til Noröur-Kóreu í friöargöngu, hefur ákveðið að snúa ekki heim aö sinni vegna þess að þá á hún á hættu að verða handtekin. Bretum bregdur ekki Breskir embættismenn ypptu bara öxlum yfir yfirlýsingum Francois Mitterrand Frakklandsforseta um að samningur um sameiningu gjald- miöia aðildarrikia Evrópubandalagsins kunni að verða undirritaöur án samþykktar Breta ef þeir halda áfram andstööu sinni við EMS, Mynt- bandalag E vrópu. Þetta kom fram í viðtali Mitterrands við frönsk dagblöð. Thatcher, forsætisráðherra Breta, hefur sagt að Bretland muni taka þátt í EMS þegar rétti tíminn verður kominn, þegar verðbólga hefur minnkað í Bretlandi. Mitterrand sagði að svo kynni að fara að hin ríkin undirrituðu samning án þátttöku Breta. Salmonellufaraldur í Englandi Þrír hafa látist og aDt að eitt hundraö veikst af salmonellufaraldri í BretJandi. Aö sögn erabættismanna heilsugæslumála hafa tvö dauösfall- anna veriö rakin til smits í svínakjöti en ekki er vitað um upptök smitsins í þriðja tilfellinu. Taliö er aö tvö hinna látnu, sem voru á áttræðisaldri, hafi neytt kjöts frá tveimur verksmiöjum í Noröur-Wales. Þriðja fórnar- lambiö, íjörutíu og sjö ára gömui kona, lést í norðurhluta Englands á þriðjudag. „Þaö er næsta víst að um fleiri tilfelli verður aö ræða næstu daga,“ sagöi Ken Deas, yfirmaður hefisugæslumála í bænura Chester í norðvesturhluta Englands. Samkvæmt opinberum tölum létust að minnsta kosti tuttugu og þrír af völdum salmonuellusýkingar i eggjum í fyrra. Vitað er um hátt i sjö þúsund ttlfelli sýkingar það sem af er þessu ári. Ungbörnum, eldra fólki og bamshafandi konum er hættast við að veikjast af völdum salmonellu- bakteriuimar sem veldur uppköstum og niðurgangi. Khasoggi laus úr prísundínni imwmmm «mt n mmwu Rafsanjani sigurstranglegur íranir ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér nýjan forseta. Helsti stjómarandstööuhópur írans hefur þegar fordæmt kosningamar og sagt þær ólögmætar. Auk forseta kjósa íranir um ýmsar viðamiklar breytingar á stjórnarskrá landsins sem meöal annars miða að því að gera forsetaembættið mun valdameira. Ali Akbar Rafsanjani, forseti ír- anska þingsins, er talinn sigur- stranglegastur í þessum kosningum sem eru fiórðu forsetakosningarnar í íran. Nær því hver einasti stjóm- málahópur í íran hefur lýst yfir stuðningi við framboð Rafsanjanis sem margir vestrænir ráðamenn og fréttaskýrendur telja vera með hóf- samari stjómmálamönnum í íran. Kosningamar á morgun eru fyrstu kosningamar sem fram fara í landinu eftir lát ayatollah Khomeinis sem lést í byrjun síðasta mánaðar. Kosningaaldur er miðaður við fimmtán ár í íran og segja embætt- ismenn að 24 milljónir írana hafi kosningarétt. Eini mótframbjóðandi Rafsanjanis er Abbas Sheibani, frönskumenntað- ur fimmtíu og átta ára lækni. En fréttaskýrendur telja að kraftaverk þurfi til að hann beri sigur af hólmi. Sheibani hefur ekki tekist að tryggja sér nægan stuðning í íran og hafa jafnvel hópar, sem stutt hafa kosn- ingu hans til þings, yfirgefið hann í þessu máh. Hann bauð sig fram til forseta árið 1981 en tapaði. Rafsanjani, sem verið hefur forseti íranska þingsins í níu ár, er af mörg- um vestrænum fréttamönnum talinn vera sá er taldi Khomeini á að sam- þykkja vopnahlé það sem komst á í átta ára stríði írana og íraka í fyrra. Auk þess er hann yfirmaður hersins en þann titil hlaut hann þegar fór að halla undan fæti í styrjöldinni við írak. Reuter Rafsanjani, forseti íranska þingsins, er talinn líklegur til að bera sigur af hólmi í forsetakosningunum sem fram fara í dag. Adnan Khasoggi, saudi-arabíski vopnasalinn, er nú laus úr prísund- Inni. Hann hefur verið i fangelsi, ásakaður fyrir að aðstoða Marcos, fyrrum forseta Fillppseyja, við að fela eignir þess siðarnefnda. Khas- oggi verður að bera rafmagnsarmband til að lögregla geti fylgst með ferðum hans. Símamynd Reuter Handtóku leiðtoga israelsk hersveit réðst inn í líbanskt þorp í þyrlu síðasthðna nótt og handtók róttækan leiðtoga shíta-muslíma, aö því er ísraelska útvarpið skýrði frá í dag. Hermennirnir brutust inn á heimili Abdels Kareem Obeid sjeiks úr Hizbohah-hreyfingunni, myrtu lífvörð hans og koraust síöan undan á þyrlunni Hermennirnir lentu í gljúfri skammt frá þorpinu Jibsheet, norðan landa- mæra ísraels og Líbanons, aö því er útvarpið hafði eftir ritskoðurum hersins. Þeir kefluöu eiginkonu Obeids og námu hann brott ásamt tveím- ur ættingjum hans. Tahð er að ísraelsmenn ætii að láta Obeid í skiptum fyrir þijá ísraelska hermenn sem tahð er að séu í haldi Hizbohah-hreyfingarinnar sem nýtur stuðnings stjómarinnar í íran. Fyrr í þessum mánuði réðust ísraelsmenn á bækistöövar Hizboliah í Líbanon og handtóku menn úr hreyfingunni Reuter Zhao kennt um verðbólguna Kínversk stjómvöld réðust harka- lega í dag á talsmenn hraðrar upp- byggingar efnahagslífsins með að- stoð verðbólgunnar. Þar var greini- lega átt við Zhao Ziyang, fyrram for- mann kommúnistaflokksins, sem nú er sakaöur um fjölda yfirsjóna í stefnu sinni. í ritstjórnargrein á for- síðu kínversks dagblaðs í dag segir að verðbólgan á síðustu áram hafi farið úr öUum böndum með þeim afleiðingum að mikiö fjárútstreymi hafi verið úr bönkum og kaupæði. Blaðið segir að braskarar einir hafi hagnast á ástandinu en heiðarlegir launamenn tapað. í forystugreininni segir að verð- bólgan sé að hluta tilkomin vegna mikiUar eftirspurnar frá iðnfyrir- tækjum landsins en bætir síðan viö að að mestu sé hún sök forystu- manna sem hafi hampað jákvæðum áhrifum verðbólgunnar. Vestrænn stjómarerindreki sagði að hér væri greinhega verið að vega að Zhao sem var rekinn úr formennsku í flokkn- um í síðasta mánuði eftir harða valdabaráttu. Zhao var talsmaður hraðrar upp- byggingar og hann fór fyrir metnað- arfuUum aðgeröum til endurbóta á efnahagslífi landsins á meðan hann var forsætisráðherra frá 1980-1987. Efnahagssérfræðingar, sem fylgdu Zhao að málum, töldu að mikil verð- bólga væri í lagi ef henni fylgdi hröð efnahagsuppbygging. Aðrir töldu að verðbólgan myndi meira að segja örva umbætur í efnahagslífinu. Reuter Zhao Ziyang, til hægri, ásamt Deng Xiaoping þegar betur áraði fyrir flokks- formanninum fyrrverandi. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.