Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1989, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1989.
13
í Stykkishólmi eru skilyröi góð til móttöku en móttökuskermur myndi bæta
um betur.
Móttökuskerm fyrir
Stykkishólm
Áskrifandi Stöðvar 2 skrifar:
í haust eru 3 ár síðan hin ágæta
sjónvarpsstöð Stöð 2 hóf útsendingu
hér á landi. í byrjun voru áskrifend-
ur einungis á höfuðborgarsvæðinu.
Vegna góðra móttökuskilyrða náðist
stöðin hins vegar á fleiri stöðum, t.d.
hér í Stykkishólmi án þess þó að skil-
yrðin væru upp á það allra besta.
Fólk keypti sér þó rándýr loftnet
og magnara ásamt alls kyns tækjum
og tólum til að geta horft á þetta
undur. Síðan tóku menn að kaupa
sér afruglara til að geta horft á meira.
Gallinn var hins vegar sá að stund-
um nær afruglarinn ekki að afrugla
efnið (þeir skilja þetta á Stöð 2) og
því er alltaf þessi leiðinlega snjó-
koma á myndinni ásamt öðrum trufl-
unum.
Við eigum í raun ekkert að ná stöð-
inni en samt fór nú sem fór. Og alltaf
fjölgar áskrifendum hér. Fólk er þó
orðið þreytt á þessum „skilyrðum".
Þeir hjá Stöð 2 vita af þessu því við
höfum verið iðin við að láta óánægju
okkar í ljósi. Við þurfum að greiða
jafnmikið fyrir áskrift og þeir sem
eiga að ná sendingum og oft hafa
undirskriftalistar gengið hús úr húsi
með beiðni um móttökudisk. - En
ekki heldur þar er komið til móts við
okkur.
Það nýjasta hjá þeim stöðvarmönn-
um er „Stöðin á staðnum". Þá ferð-
ast þeir um landið og hitta fólkið í'
landinu. En þeir fara hjá garði þar
sem vandinn er. Hvað hafa þeir á
móti okkur? spyr fólk, Þeir óku hér
um bæinn en voru hér bara yfir blá-
nóttina.
Svona lagað er sýndarmennska
blásið út á frjálsu útvarpsstöðvunum
en allt kemur fyrir ekki. íhúar hér í
Stykkishólmi eru um 1600. Þaö þarf
ekki mikið til að fá góö skilyrði hér
því lega staðarins er góð. Um 200
heimili eru með Stöð 2 og þeim myndi
fjölga til muna ef eitthvað yrði gert
fyrir ánægða viðskiptavini sem eru
skilvísir að sjálfsögðu. - Nú er bara
spurningin hvort við fáum mótttöku-
skerm.
Lesendur
Ólafur Þorsteinsson hringdi:
Það er ekki rétt sem haldið hef-
ur verið fram að þoka og súld
hafi tafið umferðina á Hellisheiöi
á sunnudaginn. Þvert á móti var
ágætisveður en umferðin var
hins vegar tafin af lögreglunni.
Það gerðist með þeim hætti að
bifreið fór út af á Sandskeiði og
lenti úti í vatni þar. Það tók lög-
regluna langan tíma að bogra yfir
bflnum þó að greinilegt væri að
engin slys hefðu orðið á mönnum.
A meðan lögreglan var að at-
hafiia sig þar með krana við að
ná bílnum upp þá var umferðin,
sem var gífurlega mikfl, tafin í
langan tima. Var komin umferö-
arhnútur alla leið upp að
Þrengslavegamótum. Mér telst
svo til að umferðin hafi veriö taf-
in um 45 mínútur vegna seina- •
gangs og vandræðagangs lögregl-
unnar.
Stefán Konráðsson hringdi:
Ég vil „þakka“ lögreglunni í
Hafnarfiröi fyrir hvað hún tekur
„vel“ á móti köttunum og kettl-
ingunum sem hafa lent á flakki
og eiga hvergi samastað.
Lögreglan lógar þeim 'umsvifa-
laust án þess að fara meö þá sérs-
taklega á dýraspítala ogláta hann
sjá um aðgerðina. - Þetta vildi ég
láta koraa fram að gefnu tilefni.
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022
Úrval
Timarit íyrir alla
Gerðu gott frí enn betra
taktu Úrvál með í ferðina
Smáfólkið og sálarheill foreldranna
Þrautþjálfuð átta bama móðir utdeilir nokkrum sann-
reyndum hollráðum til að fólk haldi sönsum en örvi þó
forvitni og athafhagleði smáfólksins.
Sérstæður æviferiil sóknarprests
Hér segir frá merkum klerki austfirskum, upphalsmanni
heymleysingjakennslu á Islandi.
Bondóla Kasa
Hugljúft ævintýri, magnþrungið og spénnandi, jafnt fyrir
unga sem aldna. Höfundurinn er eitt af öndvegisskáldum
íslendinga, Þorsteinn Erlingsson.
Ritvinnsia - hvaða gagn er að henni?
Heldur þú að tölva sé bara fyrirferðarmeiri ritvél? Ef svo
er skaltu lesa þessa grein og fræðast um það hvað rit-
vinnsla í tölvu hefur upp á að bjóða.
, *
er aðeins s^nishom al því sem er að lesa í Urvali núna. Askriftarsíminner
Öl! stærrí tjöld, sem víð seljum, eru sér-
saumuð og hönnuð fyrír íslenskar aðstæður
Lapland, 5 manna, 26.426, stgr. 25.099
Dallas, 39.420, stgr. 37.450
SPfli AGERÐIN
ÆGIR
Eyjarslóð 7 - sími 621780
3 manna tjald meo nimni, 8.800, stgr. 8.360