Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1989, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1989, Síða 24
32 Fréttir FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989. DV Málamiðlun stjómarinnar í virðisaukanuin: Ostur, skyr og smjör hækka um f jórðung - svo kindakjöt, fiskur og mjólk geti lækkað um 8 prósent Ef kindakjöt, fiskur og nýmjólk á að lækka um 8 prósent samkvæmt tillögum Ólafs Ragnars Grimssonar fjármálaráðherra leiðir það til þess að ostur, smjör, skyr og undanrenna hækka um 25 prósent á sama tíma. Ástæðan er sú að jafnframt því sem gert er ráð fyrir að kindakjöt, fiskur og mjólk verði greidd niður í gegnum skattkerfið verði dregið úr hefð- bundnum niðurgreiðslum. Til að ná fram 8 prósent lækkun á þeim vörum sem eiga að lækka verður því að hækka þær vörur sem ekki eru í þessum flokki en njóta nú niður- greiðslna. Með því að hækka skattprósentuna í virðisaukaskattinum úr 22 prósent- um í 25 prósent aukast tekjur ríkis- sjóðs um 4,2 milljarða. Með því að greiða kindakjöt, fisk og nýmjólk niður í gegnum skattkerfið svo að verð þeirra lækkar til jafns við það sem það yrði ef þessar vöru bæru 15 prósent skatt fara um 800 til 900 millj- ónum úr rikissjóði. Á móti þeirri upph,æð er síðan gert ráð fyrir því í tillögum Ólafs Ragnars að niður- greiðslur verði lækkaöar um 300 milljónir. Hrein tekjuaukning ríkis- sjóðs vegna hækkunar á skattprós- entunni er því um 3,6 til 3,7 milljarð- ar. Af þeim niðurgreiðslum sem nú eru greiddar úr ríkissjóði renna um 42 prósent til að greiða niður áhrif matarskattsins. Langstærsti hluti þess fer í að niðurgreiða áhrif hans á kindakjöt á mjólk. Rétt rúmar 300 milliónir fara síðan til að greiða nið- ur áhrif matarskattsins á smjör, skyr, ost og undanrennu. í tillögum Ólafs er ekki greint ná- kvæmlega frá því hvemig staðið verður að þessari niðurgreiðslu í gegnum skattkerfið né hvar þessar 300 milljónir verða skornar niður af hefðbundnum niðurgreiðslum. Ef verð á kindakjöti, fiski og nýmjólk á að lækka eins og skatturinn á þess- um vörum væri lækkaður úr 25 pró- sentum í 15 prósent þá er ekki hægt að lækka niðurgreiðslur á kjöti og mjólk. Eftir stæðu einungis þær 300 milljónir sem runnið hafa til að greiða niður áhrif matarskattsins á aðrar mjólkurvörur. Áhrif af þessum tillögum á matar- verð yrðu því þær að kindakjöt, fisk- ur og nýmjólk myndu lækka um 8 prósent en smjör, ostur, skyr og und- anrenna myndu hækka um 25 pró- sent. Þannig myndi mjólkurlítrinn lækka úr 63,10 krónum í 58,10 krónur og 2 kílóa lambalæri úr 1.374 krónum í 1264 krónur. 400 gramma stykki af brauðosti myndi hins vegar hækka úr 273 krónum í 341 krónu, 500 gramma smjörstykki úr 240 krónum í 300 krónur og skyrdós úr 57 krónum í 71 krónu. -gse Stykkishólmur: Nýja kirkjan forgangs- verkefni kvenfélagsins - gaf 190 þúsund til Valdimar Hreiðarsscm, DV, StykJdshólmi: Ekki alis fyrir löngu kom saman hópur fólks í hinni nýju og glæsilegu kirkju sem verið er að byggja hér í Hólminum. Voru þar mættar sókn- amefnd kirkjunnar og stjórn Kven- félagsins Hringsins í Stykkishólmi. Sesselja Pálsdóttir, formaður kven- félagsins, afhenti kirkjunni kr. 190.000 að gjöf og skyldi fénu varið til kaupa á skírnarfonti úr marmara í kór kirkjunnar. i máli Sesselju kom fram að kvenfélagið hefði alla tíð sinnt málefnum kirkjunnar og nú væri komið að því að kirkjan væri forgangsverkefni hjá kvenfélaginu. kaupa a skímarfonti Lýsti hún þeim vilja kvenfélagsins að félaginu og bæjarbúum öllum mætti auðnast að lyfta sameiginlega því grettistaki að búa kirkjuna vel þeim munum er hún þarfnast. Bjami Lárentsínusson, formaður sóknamefndar, tók við gjöfmni fyrir hönd sóknarnefndar. Lýsti hann í stuttu máli fyrirhuguðum búnaði kirkjunnar og lét þess getið að verk- efnin væm næg. Að lokum tók sókn- arpresturinn í Stykkishólmi, sr. Gísli Kolbeins, til máls. Hann þakkaði kvenfélaginu veittan stuðning og lét í ljós von um að vel tækist til með síðasta áfangann í byggingu kirkj- unnar hér í Stykkishólmi. DV-mynd Valdimar Sesselja Pálsdóttir afhendir Bjarna Lárentsínussyni gjöfina. Fangakapall Besti vinur Ijóðsins (leiksins): Leiklestur á Hótel Borg. FANGAKAPALL Höfundur og leikstjóri: Valgeir Skagfjörö Leikendur: Hanna Maria Karlsdóttir, Steinn Ármann Magnússon og Viöar Eggertsson Besti vinur ljóðsins steig smá- hliðarspor nú í vikunni, og stóð fyrir leiklestri á verki Valgeirs Skagfjörð, Fangakaph. Enginn á von á því að ljóðstraumar hafi þomað upp nú í sumar, en þetta var ágætt innlegg í dagskrá Hunda- daga, og mætti besti vinurinn gera eitthvaö þessu líkt oftar. Leiklestur er smátt og smátt að ryðja sér til rúms hér á landi og með slíkum uppfærslum gefst ág- ætt tækifæri til að kynna verk, sem ekki em tök á að færa upp í bili. Hvort sem um er að ræða sígild verk eða ný, má með þessu móti koma á framfæri leikritum, sem ella hefðu legið í láginni. Við uppfærsluna á Fangakapli er reyndar gengið aðeins lengra en í venjulegum leiklestri. Í stað þess að flytjendur lesi leikritið upp klæddir sínum eigin fötum og án sviðsútbúnaðar, er hér komið fyrir fáeinum sviðsmunum og leikendur klæðast í stíl persónanna, þó að þeir styðjist enn við handritin. Valgeir Skagfjörö hefur að und- anfömu verið mikilvirkur við skriftir auk þess sem hann bæði leikur, syngur og semur lög. Nokk- ur verk hans hafa verið færð upp, bæði í sjónvarpi og á sviði, og er skemmst að minnast sýningar Þjóðleikhússins á leikriti hans, Leildist Auður Eydal Brestiun, í vetur leið. í Fangakapli íjallar hann enn einu sinni um tengsl náinna ætt- ingja, sálarkreppu og myrkar minningar. Hér eru það móðir og sonur, sem elda grátt silfur, sam- band þeirra er blanda af ást og hatri og hvort um sig er þjakað af voðalegum minningum. Karlmenn hafa verið örlagavald- ar í lífi Lovísu, sem er ístöðulítil og veikgeöja. Hún situr við það daginn út og inn að leggja von- lausan kapal, sem aldrei gengur upp. Láras, sonur hennar, er upp- kominn og brallar ýmislegt, sem ekki þolir dagsins ljós. Tengsl þeirra eru sem fyrr segir flókin og höfundur leiðist út í ærið reyfarakenndar lýsingar á reynslu þeirra fyrr og síðar. Kapallinn, sem aldrei gengur upp verður tákn fyrir líf þeirra og til- veru. Sami kapallinn er lagður endalaust. Hann gengur aldrei upp, er alltaf eins, en þó nýr í hvert skipti, sem hann er lagður. Lítið verður úr beinum persónu- lýsingum. Lárus er töffari og hörkutól, en lítið er skyggnst inn fyrir skelina. Steinn Ármann Magnússon fær þannig fá tækifæri til að sýna annað en þjösnaskap og ofbeldi og verður persónan fyrir bragðið heldur einht og gamal- kunn. Hanna María Karlsdóttir leikur Lovisu og lagöi ágætan grunn að túlkun á hrjáðri konu, sem þráir lystisemdir lífsins. Handritið var henni htið til trafala og mótun per- sónunnar var komin vel á veg. Lovísa kemst í samband við Þor- finn, misheppnað ljóðskáld, í gegn- um einkamálaauglýsingu. Hann er feiminn og hahærislegur, en heim- sókn hans dregur óvæntan dhk á eftir sér. Viðar Eggertsson ieikur Þorfinn og kitlar hláturtaugar áhorfenda með ankannalegum tilburðum framanaf. Þegar á hður kemur æ betur í ljós að Þorfinnur er ekki í sem bestu jafnvægi. Viðar átti í töluverðu bash með að túlka breyt- inguna sannfærandi. Höfundur, sem jafnframt er leik- stjóri, sýnir ömurlega tílveru þessa fólks í heldur spaugilegu ljósi í fyrri hluta verksins, en þó með kaldr- analegum undirtón. Þegar á hður snýst verkið upp í einhvers konar hrohvekju með tilheyrandi átökum og minnir þá helst á færibanda- framleiddar, vesturheimskar kvik- myndir. Helsti galhnn á verkinu er hversu erfitt höfundur á með að gera það upp viö sig hvers konar verk hann er að skrifa. Honum er oft mikið niðri fyrir, en reynslusaga þessara lánlausu einstakhnga rennur mik- ið th út í sandinn. Persónumar ná ekki dýpt og verkið verður þannig meira í ætt við afþreyingu en alvar- legan skáldskap. -AE Karl Gústaf kom til Islands í gær: Konungur söng við Tjornina - brá sér í Bláa lónið og gekk um miðbæinn Karl Gústaf Svíakonungur kom th landsins í gær ásamt 15 fylgdar- mönnum. Hann gisti í Reykjavík í nótt eftir vel heppnaðan dag með vin- um sínum og öryggisvörðum. Skömmu eftir komuna í gær brá hópurinn sér í sundfót og fóru í Bláa lónið þar sem menn böðuðu sig og áttu þar góða stund. Þegar haha tók að kvöldi gekk Karl Gústaf áleiðis að veitingahúsinu Við Tjörnina. Var farið sem leið lá um miðbæinn og framhjá Reykjavíkurtjöm. Lá vel á kóngi og fylgdarhði um áttaleytið að aflokinni gönguferð um miðbæinn þegar hópurinn settist að snæðingi á veitingahúsinu Við Tjömina. Rúnar Marvinsson mat- reiðslumeistari sá um matseld fyrir konung eins og hann mun reyndar gera á næstu dögum er Karl Gústaf fer á veiðar á Austurlandi. „Þeir sungu og skemmtu sér kon- unglega undir borðum og frábáðu sér aht „konunglegt“ thstand", sagði Rúnar í samtali við DV. „Ég held aö með honum séu gamlir vinir og skólafélagar og þeir vom mjög án- ægðir með ahan viöurgjöming. Þeir tóku lagið og þökkuðu síðan fyrir sig með handabandi að lokinni um 3ja tíma langri máltíð. Karl Gústaf er ákaflega venjulegur maður og mjög viðkunnanlegur." Rúnar sagði að Sviamir hefðu fengið tartfiskseyði Artica, beitu- kóng að hætti hússins, léttsteikta svartfuglsbringu í hunangslagaðri púrtvínssósu og blóðbergi, kampa- vínssorbet, smjörsteiktan skötusel með humri, sveppum og brieostasósu og að lokum blandaðan eftirrétt með súkkulaðitertu og ávöxtum. í dag heldur Karl Gústaf th Austur- lands þar sem hann mun verða að- stoðarmaður Hákonar Aðalsteins- sonar við hreindýraveiðar. Rúnar Marvinsson hefur útbúið nesti fyrir ahan hópinn. Síðan mun hann taka á móti veiðimönnunum annað kvöld í húsi Gunnars Gunn- arssonar skálds á Skriðuklaustri og er matseðilhnn þegar ákveðinn. „Ég reikna með að hafa m.a. lamba- steik á laugardagskvöldið. En það er alveg ljóst að nýskotið hreindýr verður ekki matreitt þá,“ sagöi Rúnár. Hákon Aðalsteinsson sagði í sam- tah við DV í morgun að hann biði eftir konungi. „Ég get ekki sagt með vissu hvenær við byrjum veiðamar. Ef þeir koma tímanlega þá getum við byrjað í dag. Við gistum líklega í ein- hveijum skála uppi á heiðum í nótt - en það ræðst af því hvar dýrin eru,“ sagði Hákon. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.