Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1989, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1989, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 31, ÁGÚST 1989. Fréttir EfnahagstiUögur Sjálfstæöisflokksins: Afnám ríkis- ábyrgðar og sala á ríkisbönkunum - eru meðal tillagnaima sem birtast eiga á Alþingi sem frumvörp „Það er ætlun okkar að flytja þessa stefnu inn á Alþingi í haust með laga- frumvörpum og erum við komnir vel á veg með smíði þeirra," sagði Þor- steinn Pálsson, formaður Sjálfstæð- 'isflokksins, um leið og hann kynnti niöurstöður þingflokksins sem hefur unnið að stefnumótun undanfarið. Hefur þingflokkurinn fundað í tvo daga við að slípa tillögurnar. Hefur niðurstaðan verið gefin út sem „Yfirlýsing um fijálslynda um- bótastefnu í atvinnumálum“. Helstu þættir stefnunnar eru settir fram í 12 liðum: 1. Gengi krónunnar verði skráð á efnahagslegum forsendum og ekki lengur háð pólitískum duttlungum. - Þeir sem versh með gjaldeyri ákveði verð hans. 2. Viðskiptabankar og sparisjóðir fái fullar heimildir til að versla með erlendan gjaldeyri, taka erlend lán og takast á hendur skuldbindingar við erlenda aðila. 3. Gjaldeyrisviðskipti verði gefin fijáls í áföngum fram til 1. janúar 1992. 4. Eiginíjármyndun í atvinnulífinu verði örvuð með margvíslegum ráð- stöfunum í skattamálum, m.a. verði frádráttarheimildir vegna hluta- bréfakaupa auknar. Þá verði eigna- skattar vinstri stjórnarinnar af- numdir. 5. Millifærslusjóðir verði afnumd- ir. 6. Starfsemi Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins verði hætt en almenn heimild veitt til myndunar sveiflu- jöfnunarsjóða með sparnaði. 7. Embætti oddamanns ríkisstjóm- arinnar við fiskverðsákvarðanir verði lagt niður og fiskverð því á ábyrgð fulltrúa sjávarútvegsins. 8. Ný vinnubrögð við fjárlagagerð. Ráðuneyti og stofnanir geri tillögur um útgjöld innan tekjuramma. 9. Heimildir til aukafjárveitinga úr ríkissjóði verði stórlega skertar. 10. Landsbankinn og Búnaðar- bankinn verði gerðir að hlutafélög- um og seldir úr ríkiseign í áföngum. Nota á andvirði af sölu bankanna til að stuðla að lausn á vanda land- búnaðarins og til náttúru- og um- hverfisvemdar. 11. Virðisaukaskattur á að vera í tveim þrepum: Almennt þrep og ann- að lægra þrep fyrir matvæh. 12. Ríkisábyrgð á starfsemi Fisk- veiðasjóðs, Iðnlánasjóðs og Stofn- lánadeildar landbúnaðarins á að af- nema. Það kom fram hjá Þorsteini og Ól- afi G. Einarssyni, formanni þing- flokks sjálfstæðismanna, að þeir gera kröfu um að gengið verði til kosninga þegarístað. -SMJ Skotmaöurinn á Sogaveginiun: Starfaði sem öryggisvörður Maður sá sem hleypti skotum af riffium og haglabyssu í húsi við Sogaveg á þriðjudagsmorgun hefur starfað sem öryggisvörður. Sam- kvæmt upplýsingum frá fyrirtæki því sem maðurinn starfaði við er hann ekki lengur öryggisvöröur. Forráðamaður fyrirtækisins sagði í samtali við DV aö búið hefði verið að setja manninn af áður en hann hleypti af byssunum. Þrír menn voru í íbúðinni og tveir þeirra voru starfsmenn umrædds fyrirtækis. Hinn öryggisvörðurinn missir ekki vinnuna vegna þessa at- viks enda mun hann ekki hafa tekið þátt í „byssuleiknum". „Fólk hér hefur eðlilega áhyggjur af þessu. Það er erfitt að fylgjast með og taka ábyrgð á hvað starfsmenn gera í sínum fríum. Svona æði getur runnið á menn burtséð frá því við hvað þeir starfa. Ég hef áhyggjur af því að þetta atvik muni skaða fyrir- tækið og þá um leið það fólk sem hér starfar. Ef svo verður bitnar þetta á blásaklausu fólki,“ sagði forráöa- maður fyrirtæksins. Það er alsiða hjá pollum sem veiða marhnút að spýta upp í hann áður en honum er sleppt og það gerðu þeir Karl Sólnes, Friðrik Sólnes og Skúli Harðarson um leið og Ijósmyndarinn smellti af. DV-mynd S Stolið til að greiða gamlan stuld „Þetta er eins og maður sem stelur peningum og stelur síðan enn meiru til að borga gamla þjófnaðinn," sagði Othar Örn Petersen, varaformaður Samtaka spariljáreigenda, um ráða- gerðir ríkisstjórnarinnar um aö leggja skatt og vaxtatekjur og nota hluta af tekjuauka ríkissjóðs til að lækka eignarskatta. „Við höfum ekki fundað sérstak- lega um þessar tillögur en þetta virð- ist bara vera enn ein aðfórin að sparifjáreigendum. Af hveiju ætti það að vera skattfijálst aö lána ríkis- sjóði í stað þess aö setja spamaðinn inn í almenna kerfið. Með þessu er ríkið að búa sér til sérstaka aðstööu. Þeir eru með þessu að útiloka önnur spamaðarform til þess að stækka sinnhluta,“sagðiOtharÖm. -gse Tilboðið til Borgaraflokksins: „Hreint - segir Ólafur G. Einars lögbrot“ son þingflokksformaður „Mér firm9t þetta virðingarleysi stjómarflokkanna fyrir lögum, embætti umhverfisráöuneytis sem er ekki búið að stofiia og ráðuneyti araflokksins, býsna alvarlegt mál. Er ég þá að ræða um það tílboð að Borgaraflokkurinn fái ráðherra án um. Meðan beöiö er eftir þeirri lög- gjöf á hann að fá ráöherrastööu og sérstök viðfangsefiii. Þetta segi ég ráðuneytis og að hann fái viöfangs- efni sem heyra undir aðra ráð- að sé lögbrot því þaö er óheinúlt að flytja einhver tiltekin viðfangs- herra. Ég ætla að leyfa mér aö fuU- yrða að það sé hreint lögbrot,“ sagði Ólafur G. Einarsson, formað- ur þingflokks sjálfstæöismanna, efni ftá einum ráöherra til ann- ars,“ sagði Ólafúr og Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæöis- flokksins, benti á að ekki væri gert um tUlögur þær sem nú ganga ó mÍUi ríkisstjómarinnar og Borg- araflokksins. „Þarna er einum ráöherra ætlaö ráð fyrir því í lögum að menn væru ráöherrar í ríkisráöi án þess að fara með eitthvert tíltekiö ráð- herraembætti. -SMJ í dag mælir Dagfari___________ Vaxtaskattar Fjármálaráðherra hefur tilkynnt þingflokkunum að nú sé illt í ári. Ef allt'fer sem horfir stefnir í fimmtán milljaröa króna halla á næstu fjárlögum. Sá halh bætist við aUa milljarðana sem ríkissjóður eyðir umfram fjárlög á þessu ári. Þetta em slæm tíðindi og þá sérs- taklega slæm fyrir þingflokkana, sem nú sjá gæluverkefnin fara í súginn og litlu sætu málin sín fara í ruslakörfuna ef ekki verður eitt- hvað að gert. Þetta veit fjármála- ráðherra og hann Veit að þingflokk- amir em ekki tilbúnir til þess frek- ar en fyrri daginn að draga eitthvað úr útgjöldum ríkisins, enda mundu þingmennimir ekki lengur geta stundað fyrirgreiðslupólitíkina og hrossakaupin þegar ekkert er til skiptanna. Fj ármálaráðherra veit hvað hann er að gera. Næst lætur hann leggja fram tillögur um nýjar skattlagn- ingar til að fjármagna fimmtán milljarðana, vegna þess að ekki fara þingflokkamir aö mótmæla því að ríkissjóður nái sér í meiri peninga tíl að standa undir gælu- verkefnunum. Ráðherra og alþingi hefur aldrei skort hugmyndaflug fil að finna upp nýja skatta, þegar ríkissjóður þarf á meiri peningum að halda. Kjósendum finnst stund- um að alþingismennimir þeirra séu Utiir gáfumenn og ennþá minni framkvæmdamenn, en það verður hins vegar ekki sagt um þá þegar kemur að sköttunum. Þaö verður hver að eiga sem hann á. Þing- menn, ríkisstjómir og ráðherrar hafa sýnt ótrúlega útsjónarsemi við álagningu skatta og aldrei hefur staðið á framkvæmdum eftir að búið er að uppgötva nýja skattaleið. Nú hefur fjármálaráðherra lagt fram tillögu um nýjan skatt. Búast má við því að alþingi taki þeirri tiUögu vel, enda kemur það sér vel fyrir þingið að fá nýjan skatt og nýja peninga tfl að standa undir útgjöldunum sem ákveðin em á þingi. Það skiptir þingmenn og ráð- herra ekki máU þótt almenningur greiði skattinn, og það skiptir al- menning áreiðanlega ekki máli heldur, vegna þess að þetta em jú peningar sem þingmenn þurfa á að halda tU að geta gert almenningi greiða. Það er auövitað mikið betra aö ríkissjóður og alþingi hafi yfir peningum almennings að ráða heldur en almenningur sjálfur, því ríkið veit miklu betur hvemig al- menningur á að fara með sína eigin peninga. TU að stuðla að þessu ætlar ríkis- sjóður að skattleggja peningana, sem almenningur á og hefur fyrir misskUning verið að spara sér og leggja inn á vaxtareikninga í bönk- unum. Þessi skattur hefur tvíþætt- an tUgang. Annars vegar að ná pen- ingum af almenningi til að hjálpa almenningi og svo hins vegar að koma í veg fyrir að almenningur sé að leggja peninga til hliðar, sem eru miklu betur komnir í ríkissjóði. Á undafomum ámm hafa vextir veriö gefnir ftjálsir og almenning- ur hefur séð sér hag í því að ávaxta fé sitt í bönkum og sparisjóðum. Almennur spamaður hefur auki.st að mun í þjóðfélaginu vegna þess- arar óráðsíðu almennings að vilja eiga sína eigin peninga og ávaxta þá. Við þessu verður að stemma stigu með því að hræða fólk frá sparnaðinum og skattleggja vext- ina, sem fást fyrir að eiga peninga. Þessu hljóta aílir stjómmálamenn að fagna, enda ófært til lengdar aö almenningur safni sér fé, sem ekki er til ráðstöfunar fyrir ríkissjóð, sem sífellt er í buUandi halla. Auð- vitað á ríkið réttmæta heimtingu á þessum peningum. Almenningur fer Ula með sitt eigið fé og oftar en ekki er því eytt í allt annaö heldur en ríkissjóður mundi gera. Einhver kann kannski að segja sem: svo að þetta sé afgangsfé af launum eða tekjum almennings eftir að almenningur er búinn að borga tekjuskatt og söluskatt og eignaskatta. Það má vera rétt, en þá sjá allir aö tekjuskatturinn og söluskatturinn og eignaskatturinn em ekki nærri nógu háir, ef al- menningur á eitthvað eftir, þegar hann hefur borgað aUa hina skatt- ana. Þetta gengur ekki lengur og fjármálaráðherra gerir rétt í því að bæta vaxtaskatti við til að tryggja að almenningur hætti að spara og eiga yfirleitt eitthvað eftir, þegar skattamir hafa verið greiddir. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.