Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1989, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1989.
íþróttir____________
Eyjamenn unnu
Jósef Jósefesan, DV, Vopnafiröi;
Vestmannaeyingar unnu Einherja
í 2. deildinni á Vopnafirði i gær-
kvöldi, (M. Sigur Eyjamanna var
ótrúlega stór miðað við gang leikins.
Einheijar voru mun sterkari í fyrri
hálfleik og sóttu án afláts en þeim
gekk ekki að skora. Gísli Davíðsson
og Hallgrímur Guðmundsson fengu
báðir dauðafæri sem fóru forgörðum.
Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks
náði Friðrik Sæbjörnsson að skora
fyrir Eyjamenn og í síðari hálfleik
bættu þeir þremur mörkum við. Leif-
ur Hafsteinsson, Jón B. Arnarson og
Hlynur Stefánsson afgreiddu allir
knöttinn í netið hjá Vopnfirðingum.
Hlynur skoraði síðasta markið úr
vafasamri vítaspyrnu en þá voru
úrslit þegar ráðin.
Eyjamenn standa nú ágætlega að
vígi í 3. sæti 2. deildar og liðið á góða
möguleika á aö ná Víðismönnum
sem eru í öðru sæti sem stendur.
Einherjar eru nú í bullandi fall-
hættu og fátt getur komið í veg fyrir
að liðið falli í 3. deild. Ekki bætti úr
skák að Gísli Davíðsson, leikmaður
Einherja, fékk rauða spjaldið í síðari
hálfleik.
Haukarnir upp
Haúkar tryggðu sér sæti í 3. deild
að ári meö því a'ð sigra Skotfélag
Reykjavíkur, 4-2, í úrslitakeppni 4.
deildar á Hvaleyrarholtsvelli í gær-
kvöldi. Staðan í leikhléi var 1-1.
Guðjón Guðmundsson, Helgi Ei-
ríksson, Gauti Marinósson og Páll
Poulsen gerðu mörk Haukanna.
-RR
Forsala á leikinn
við Austur-Þjóðverja
- hefst á föstudaginn
íslendingar leika við Austur-Þjóðverja í undankeppni HM í
knattspyrnu á miðvikudaginn 6. september og hefst leikurinn
kL 18.
Forsala aðgöngumiða hefst nú fyrir næstu helgi og verður
sem hér segir:
Föstudag 1. september kl. 12 til 19 í Austurstræti og Kringlunni, Laug-
ardag 2. september kl. 10 til 16 í Kringlunni, mánudag 4. september kl.
12 til 18 í Austurstræti og á Laugardalsvelli, þriðjudag 5. september kl.
12 til 18 í Austurstræti og á Laugardalsvelli og á sjálfan leikdaginn verð-
ur sala aðgöngumiða frá kl. 11 á Laugardalsvellinum.
Sú nýbreytní verður tekin upp í sambandi við forsölu að fólki utan
höfuðborgarsvæðisins verður gefinn kostur á að panta miða á landsleik-
inn í síma 84444 sunnudaginn 3. september frá kl 14 til 19. Sækja verður
pantanir fyrir lokun forsölu kl. 18 þriðjudaginn 5. september. Ósóttar
pantanir verða seldar á Laugardalsvelli miðvikudaginn 6. september.
-JKS
Belgíska knattspyrnan:
Arnór lék með
Kristján Bernburg, DV, Belgíu:
Áhorfendur Anderlecht hróp-
uðu „Guðjohnsen, Guðjohnsen“
þegar fór að hða að hálfleik í leik
Anderlecht og RC Mechelen í
belgísku 1. deildinni í gærkvöldi.
Þjálfari Anderlecht varð við ósk
áhorfenda á Heysel leikvangin-
um og setti Amór inn á í síðari
hálfleiknum. Það var ekki að sjá
að kappinn væri að koma úr upp-
skurði því hann lék á fullu og
átti þátt í mörgum upphlaupum
Anderlecht. Amór lék aftarlega á
velhnumog undir lokin var hann
síðan færður í stöðu bakvarðar
eftir að Kooiman hafði farið
meiddur af leikvehi. Anderlecht
sigraöi í leiknum, 1-0, og gerði
Degryse sigurmarkið og hélt
Anderlecht í öðra sæti deUdar-
innar eftir leikina í gær.
KV Mechelen er enn á toppnum
eftir 3-1 sigur á Club Brugge.
Meistaramir vora undir í hálf-
leik en náðu að skora þrívegis í
síðari hálfleik og sigra.
Óli með tvö mörk
Brann, hð Ólafs Þórðarsonar,
er komið í 4. sæti norsku 1. dehd-
arinnar eftir að Uðið sigraði
Mjölner, 1-4, á útiveUi í gær-
kvöldi. Ólafur Þóröarson var enn
í sviðsljósinu en hann skoraði tvö
faUeg mörk fyrir hð sitt í gær-
kvöldi og er Ölafur því búinn að
skora fjögur mörk á þremur dög-
um í norsku deUdinni. Ólafur
skoraði sem kunnugt er tvö mörk
um síöustu helgi.
Brann er eins og áður sagði í
4. sæti en hðið hefur hlotið 30 stig
eða sama stigafjölda og Tromsö.
LUleström er enn langefst í dehd-
inni með 42 stig en síðan kemur
Rosenborg í öðra sæti með 35 stig.
-RR
Man. Utd tapar enn
Nokkrir leikir voru í ensku
knattspymunni í gærkvöldi. Co-
ventry komst í efsta sætið með
2-1 sigri á Manchester City.
Manchester Utd tapaði enn eina
ferðina, nú á heimavelh fyrir
Norwich, 0-2. Nottingham Forest
vann Derby, 2-1, Shefíield Wed-
nesday og Everton gerðu 1-1 jafn-
tefli og loks geröu QPR og Luton
markalaust janftefli.
Aberdeen sigraði St. Mirren, hð
Guðmundar Torfasonar, 3-1, í
skoska deUdarbikarnum og þá
vann Rangers 1. deUdar liðið
Hamilton, 3-0.
• Jóhann Lapas er á leiöinni að skora annað mark KR-inga í leiknum gegn FH í gærkvöldi.
Spennan eykst á toppi 1. deildar:
„Þessi sigur I
á góðum tín
- sagöi Ian Ross eftir að KR-ingar höföu sigrað
KR-ingar eru nálægt toppi 1. deUdar
eftir að hafa sigrað FH-inga, 2-0, á KR-
velhnum við Frostaskjól. KR-ingar era
í öðru sæti dehdarinnar á eftir KA en
hafa nú jafnmörg stig og Fram og FH.
Framundan er því æsispennandi lo-
kakafh á einhveiju jafnasta íslands-
móti sem um getur.
„Þetta var mjög góður sigur og kemur
á góðum tíma eftir tapið í bikarúrslita-
leiknum. Lið mitt lék mjög vel og strák-
amir sýndu skemmtileg tUþrif. Það
verður mikU spenna í næstu leikjum
enda er aht opið á toppnum," sagði Ian
Ross, þjálfari KR, í samtah eftir leikinn.
Sigur KR-inga var mjög sanngjam og
hefði vel getaö orðið stærri því vestur-
bæjarhðið fékk mörg færi í fyrri hálf-
leik sem ekki nýttust. Vesturbæingar
vora mun sterkari í fyrri hálfleik og
léku FH-inga oft sundur og saman. A
13. mínútu kom vel útfærð sókn hjá
KR-ingum sem endaði með því að Pétur
Pétursson skoraöi með glæsUegu skoti
sem hafnaði efst í markhorninu hjá
Hahdóri Halldórssyni, markverði FH.
Skömmu áður hefðu FH-ingar þó átt að
fá vítaspyrnu þegar Þorfmnur Hjalta-
son, markvörður KR-inga, braut greini-
lega á Pálma Jónssyni en Bragi Berg-
mann dómari sá ekkert athugavert.
KR-ingar voru búnir að ná undirtök-
unum á vellinum og Jóhann Lapas
bætti öðra markinu \áö eftir snihdar-
legan undirbúningRúnars Kristinsson-
ar. Sóknir KR-inga vora mun beittari
og það munaði htlu að vesturbæjarliðið
baetti fleiri mörkum við í fyrri hálfleik.
í síðari hálfleik snerist dæmið nokk-
urn veginn við. FH-ingar tóku við sókn-
arhlutverkinu en náðu ekki að skapa
sér nein hættuleg marktækifæri. KR-
ingar vörðust mjög vel og beittu skyndi-
sóknum sem sköpuðu usla í vöm FH. Á
lokamínútu leiksins fengu FH-ingar
besta marktækifæri sitt en Þorfinnur
varði meistaralega skaha frá Guð-
mundi Val Sigurðssyni.
KR-liðið lék mjög vel og þá sérstaklega
í fyrri hálfleik. Rúnar Kristinsson og
Pétur Pétursson vora í aðalhlutverkun-
um eins og svo oft áður í sumar. Varn-
arleikur hðsins var með besta móti að
þessu sinni.
FH-ingar áttu slakan dag og það var
eins og liðið væri úr leikæfingu miðað
við KR-hðið. FH-ingar tóku aht of seint
við sér en ef þeir hefðu leikið í fyrri
hálfleik eins og þeir gerðu í þeim seinni
Lioio geg
- 21 árs landslið .
Guöni Kjartansson, þjálfari 21 árs
landsliðs fslands, valdi í gær 16
manna hópinn sem mætir Finnum á
Akureyri á þriöjudag. Tveir eldri
leikmenn era í liöinu ög eru þaö þeir
Ólafúr Þóröarson, Brann, og Krist-
inn R Jónsson, Fram.
Aðrir leitonenn eru: Ölafur Gbtt-
skálksson, ÍA, Adólf Óskarsson, ÍBV,
Einar Páll Tómasson, Val, Alexander
Högnason, ÍA, Steinar Adólfsson,