Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Blaðsíða 24
36 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1989. Knattspyma unglinga Það var mikil stemning á Fylkisvelli sl. sunnudag þegar Opals-Fylkismó- tið fór fram í 6. flokki. Fjögur félög tóku þátt og tefldi hvert fram 4 liðum, A, B, C og D, en það er nýjung. Hér er því um að ræða 16 lið, sem segir að þátttakendur hafi verið yfir 200. Mótiö tókst vel hjá Fylkismönnum, eins og þeirra var von og vísa, og veröur það haldið árlega og á svipuð- um tima. Stigagjöf var með nýjum hætti því hð númer 1 í hverjum hópi fékk 4 stig og síðan taliö niður og fékk lið númer 41 stig. Stigin hjá öllum liðum hvers félags voru síðan lögö saman hlaut FH flest, eða 14 stig, Fylkir og - Stjarnan voru jöfn með 10 stig og Leiknir 6. FH-Uðin sigruðu því fyrir bestan heUdarárangur og hlutu strákarnir í verðlaun farandbikar og annan minni til eignar. Öll sigurliðin í hverjum hópi fengu auk þess verð- launapeninga. Verðlaunin voru gefin af Opal og hafði ungUngaráð knatt- spymudeildar Fylkis veg og vanda af keppninni. Úrslit leikja—A-liö Fylkir-FH 0-2 Stjarnan-FyUdr 2-1 F>'lkir-Leiknir 5-2 Leiknir-Stjaman 1-3 Stjarnan-FH 0-2 FH-Leiknir 3-2 Pollarnir í 6. flokki FH stóðu uppi sem sigurvegarar i Fylkismótinu því þeir voru bestir og því einnig með bestan heildarárangur. Þjálfari strákanna er 1. deiidar leikmaður FH, Magnús Pálsson, og honum til aðstoðar eru Róbert Magnússon og Lúðvík Arnarsson. - Eftir keppnina varð Magnúsi Pálssyni að orði að „þessi sigur 6. flokks gæfi smá-„kikk“ og ekki veitti af eftir hið afdrifaríka 1-2 tap gegn Fylki í síðustu umferð 1. deildar". - En sá leikur var deginum áður. DV-mynd Hson Stórmót Opals-Fylkis í 6. flokki: Mikið fjör á Fylkisvelli Lokastaðan hjá A-Uðum: FH .................. 3 3 0 0 7-2 6 ,ÍStjaman ........... 3 2 0 1 5-4 4 Fylkir .............. 3 1 0 2 6-6 2 . Leiknir ............. 3 0 0 3 5-11 0 FH hlaut 4 stig, Stjaman 3, Fylkir 2 og Leiknir 1 stig. Reikniö stigin í næstu töflum á sama hátt. Úrslit leikja-B-lið Fylkir-FH- 1-1 Fylkir-Stjaman 0-3 Leiknir-FyUdr 0-1 Stjaman-Leiknir 5-0 FH-Stjaman 4-4 Leiknir-FH 0-4 Lokastaða B-liða: Stjaman .......... 3 2 10 12-4 5 FH ............... 3 1 2 0 9-5 4 Fylkir ........... 3 111 2-4 2 Leiknir .......... 3 0 0 3 0-10 0 Úrslit leikja C-lið: Fylkir-FH 2-4 Stjaman-Fylkir 0-2 Fylkir-Leiknir 1-2 Leiknir-Stjaman 0-0 FH-Leiknir 3-0 Stjaman-FH 0-5 Lokastaðan hjá C-liðum: FH ................. 3 3 0 0 12-2 6 Leiknir ............ 3 111 2-4 3 Fylkir ........... 3 1 0 2 5-6 2 Stjarnan ......... 3 0 1 2 0-7 1 Úrslit leikja D-liða: Fylkir-Stjaman 2-0 Leiknir-Fylkir 0-4 Fylkir-FH 1-0 Leiknir-Stjarnan 1-2 FH-Leiknir 1-0 Stjarnan-FH 1-1 Staðan eftir keppni D-liða: Fylkir ........... 3 3 0 0 7-0 6 FH ............... 3 1112-23 Stjaman ......... 3 1113-43 Leiknir........... 3 0 0 3 1-7 0 FH sigraði Heildarframmistaða var best hjá FH sem sigraði hlaut 14 stig. Fylkir og Stjaman vom jöfn með 10 stig og Leiknir rak lestina með 6 stig. - Hson. UMSK-mótið - 4. flokkur: ÍK-strákamir bestir Iðnaðarbankamói Hauka fór fram helgina 19. og 20. ágúst sl. Breiöa- bliksstelpumar i 4. flokki gerðu sár lítið fyrir og sigruöu bæði f A- og B-llði og hlutu þvi gullverðlaun fyrir vikið. Þetta var vel af sér vlkið hjá stúlkunum en segja má þó að þessi góða frammistaða endurspegli þá áherslu sem Breiöabliksmenn leggja á knattspyrnu kvenna og er það vel. Þaö máttí greina mikJarframfarlr hjá yngri flokkunum á þvi leiktima- blli sem nú er að líða. Aftur á mótl má ýmsu breyta varðandl keppnis- fyrirkomulag stúlknanna á næsta ári ef menn vllja setja markið hátt. - Myndin er af meisturunum og i aftari röö frá vlnstri eru þær Gréta, Ölöf, Sigga, Selma, Ingunn, Lena, Brynja, Sibba og Begga. Fremri röð: Rósa, Auður, Helga, Lóa, Hildur, Eva, Drifa, Inga og Eyrún. ÞjáHari stúlknanna er Margrét Sigurðardóttir. - Hson. ÍK-drengirnir stóðu uppi sem sigur- vegarar i 4. flokki (A) í UMSK-mótinu á dögimum. Stjarnan veitti þeim þó harða keppni, en liðin skildu jöfn, 1-1, í góðum leik sem fór fram á Vallargerðisvelli. Breiðablik vann í keppni B-liöa. - Úrslit leikja urðu sem hér segir. A-lið: Breiðablik-Stjaman 0-1 ÍK-Breiöablik 4-1 UBK- stelpurnar unnu Afturelding-Breiðablik 1-3 Stjaman-Afturelding 3-2 ÍK-Stjaman 1-1 Afturelding-ÍK 0-3 Keppni B-liða: Breiðablik-Stjaman 8-0 ÍK-Breiðablik 1-1 Stjaman-ÍK 5-3 Breiðablik sigurvegari. 5,flokkur leikur í dag og á morgun UMSK-mótiö í 5. flokki stendur yfir í dag og lýkur á morgun og fer keppn- in fram í Garðabæ. Leikir hefjast báða dagana kl. 10.00. Spilað er í A, B, og C-liðum. Fólk er eindregið hvatt til að koma út á völl og fylgjast með skemmtilegum tilþrifum. Hafln er keppni í 4. flokki kvenna og 2. og 3. flokki karla. Vesturlandsmót í knattspyrnu Stefin Haialdsson, DV, Borgamesi: Um miöjan júlí fór fram í Borgar- nesi pollamót í knattspymu. Til leiks mættu lið af Vesturlandi, frá Stykk- ishólmi, Gmndarfirði, Hellissandi og Dalasýslu, auk þess sendu móts- haldarar lið til keppni. Mótið var hið skemmtilegasta baeði fyrir keppend- ur og áhorfendur og var margt sem gladdi augað. Veður var með besta móti. A-lið 4. flokks ÍK sigraði verðskuldað í UMSK-mótinu á dögunum. - Liðið er skipað eftirtöldum strákum: Gunnleifur Gunnleifsson markvörður, Jón Stefánsson, Erpur Sigurðarson, Elmar ísedorsson. Þessir fjórir strákar fóru í æfingaferð til Lokeren í Belgíu í sumar og vakti geta þeirra verðskuldaða athygli. Aðrir í liðinu eru þeir Gunnar Ingvarsson, Matthías Hansson, Gunn- ar Már Sverrisson, Geir Ómarsson, ívar Jónsson, Georg Georgsson, Guð- mundur Eyþórsson, Einar Sverrisson og Hafþór Hafliðason. Þjálfari liðsins er hinn ötuli unglingaþjálfari Grétar Bergsson. DV-mynd Hson Umsjón: Halldór Halldórsson Úrslit urðu sem hér segir: 1. sæti: Snæfell (A), Stykkishólmi. 2. sæti: Skallagrímur, Borgamesi. 3. sæti: Gmndarfjörður (A). 4. sæti: UDN. 5. sæti: Skallagrímur 1, Borgamesi 6. sæti: Snæfell (B), Stykkishólmi. 7. sæti: Hellissandur. 8. sæti: Gmndarfjörður (B). 9. sæti: Skallagrímur 2, Borgamesi. Á sama tíma fór fram Vesturlands- mót.í meistaraflokki kvenna. Til úr- slita léku Skallagrímur, Borgamesi, og Snæfell, Stykkishólmi. Skalla- grímur sigraði eftir spennandi leik. UnglingasíðaDV öllum opin Þessi frétt frá Borgamesi er nokkuð síðbúin en full ástæða samt sem áður til að birta hana. Það em vinsamleg tilmæli til allra þeirra, hvar á landinu sem er, að merkja uijislögin rækilega „Knattspyma unglinga“ - DV svo hið aðsenda efni berist rétt- um aöila. Hafið hugfast að öllu efni sem berst er ætlað pláss á síðunni. - Hson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.