Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1989, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989.
13
áskilur sér rétt til aðstytta
bréf og símtöl sem birtast á
lesendasíðupi blaðsins.
* Verð miðað við staðgreiöslu.
Lesendur
Styðjum iðnaðarráðherra
Þorsteinn Þorsteinsson skrifar:
Sl. laugardagskvöld var viðtal í
„Hringsjá“ Sjónvarpsins við iðnað-
arráðherra, Jón Sigurösson, Tveir
fréttamenn spurðu hann um hina
ýmsu þætti sem varða stóriðju hér
á landi og einnig um framhald á
samningum um stækkun álvers-
ins. - Þetta var einkar fróðlegt við-
tal og skýrði vel hvað viö íslending-
ar erum háðir því aö framhald
verði á stóriðju hér í einhverri
mynd til að styrkja afkomumögu-
leika þjóðarinnar.
I þessum þætti var einnig sýnt frá
fundi í Alþýðubandalaginu, þar
sem þeir forsætisráðherra og
menntamálaráöherra lýstu sig
andsnúna því sem iðnaöarráðherra
hefur verið að ræöa á fundum sín-
um á landsbyggðinni, m.a. um frek-
ari framkvæmd stóriðju og stað-
setningu hennar á landinu. - Ég gat
ekki betur séö og heyrt á máflutn-
ingi ráðherranna Steingríms og
Svavars en að þeir htu hugmyndir
iönaðarráðherra sem einhvers
konar skemmdarstarfsemi.
Jón Sigurðsson - „Þarf því nú að
fá stuðning allra þjóðholira íslend-
inga...“
Það má þó öllum vera Jjóst að
iönaöarráðherra ræðir nú eitt mik-
ilvægasta mál okkar íslendinga og
sem þarf aö leysa mjög fljótlega.
Verði niöurstaðan sú aö einstaka
ráðherrar geti komið í veg fyrir
stóriðju og stækkun álversins í
Straumsvík er ekkert um annaö aö
ræöa en atvinnuleysi og síöan land-
flótta vinnufærra manna.
Þaö má raunar líta á það sem
uppgjöf af hendi okkar íslendinga
að ætla að láta einangrunarpostula
eins og suma frammáraenn Al-
þýðubandalagsins kúga lands-
menn til fylgis við einhæft atvinnu-
lif og að útiloka allt frekara sam-
starf við erlendar þjóðir um aö
nýta þá orku sem hér finnst og ein-
ungis er hægt að nota viö fram-
leiðslu sem viö ráðum ekki sjálfir
viö að koma af stað.
Iðnaðarráöherra þarf því nú aö
fá stuöning allra þjóðhollra íslend-
inga til að vinna áfram að því aö
fá erlent fjármagn til uppbyggingar
í atvinnulífi okkar. Ástandið er aö
verða svo alvarlegt hér að án er-
lends fjármagns verður aðeins
stöðrnm og þá er of seint aö taka
upp þráðinn.
SONGUR
Viljum gjarnan taka á móti fáeinum ungum og mús-
íkölskum mönnum sem áhuga hafa á að æfa söng.
Kór Neskirkju
Sími organista 25891
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á eftirtalínni eign:
Laufskálar 11, Hellu, þingl. eign Guðmundar Vignis Sigurbjarnarsonar, fer
fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 28. sept. 1989 kl. 16.00. Uppboðs-
beiðendur eru Ólafur Garðarsson hrl., Hákon H. Kristjánsson hdl., Gjald-
skil sf„ Ásgeir Thoroddsen hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands.
Sýslumaður Rangárvallasýslu
EIGNASKATTAR
Fundur til stofnunar eignaskattsdeildar Húseigenda-
félagsins verður haldinn í kvöld, miðvikudaginn 27.
september 1989, kl. 20 í sal sameignar iðnaðar-
manna að Skipholti 70, 2. hæð.
Dagskrá: 1. Stofnun eignaskattsdeildar.
2. Almennar umræður.
Áhugafólk um lækkun eignaskatta er hvatt til að
mæta. Athugið breyttan fundartíma.
Stjórnin
Dómsmálaráðherrar
og löggæslan
Borgari skrifar:
Mér blöskraði þegar fyrrverandi
dómsmálaráðherra sat fyrir svörum
í sjónvarpssal fyrir nokkru og rætt
var viö hann um tíðar líkamsárásir
í Reykjavík. Mér fannst eins og þetta
kæmi honum ekki við. Þannig verk-
aði málflutningur hans á mig. - Þaö
er hka hlægilegt að bera saman störf
tveggja lögreglumanna, sem reyna
að hafa hemil á mannfjölda í miöborg
Reykjavíkur, og eins löggæslumanns
í smábæ úti á landsbyggðinni.
Vandamálin þarna eru mjög ólík.
Þaö er líka hiö mesta rugl og vit-
leysa að allt lagist með forvarnar.
starfi og fræöslu. Það er aöeins með
verulegri fjölgun löggæslumanna í
Reykjavík og á landsbyggðinni sem
málið leysist. Þótt það kosti fé kostar
það líka fé þegar fólk er lengi frá
vinnu vegna slysa og líkamsárása.
Lögreglan í Reykjavík er svo fáhð-
uð orðin að hún getur ekki sinnt al-
mennri löggæslu, hvaö þá umferðar-
stjórn. Þegar nýr lögreglustjóri var
skipaður af fyrrverandi ráðherra
voru löggæslumenn látnir hætta al-
mennri löggæslu á götum Reykjavík-
ur. Við það fylltist allt af rónum í
miðborginni. Eg held að þær þúsund-
ir erlendra ferðamanna, sem gistu
Reykjavík sl. sumar, hljóti að segja
frá þessum ógæfumönnum sem
fylltu alla bekki í höfuöborginni. -
Það er ekki góð auglýsing.
Ég man þá tíð þegar röggsamir lög-
regluþjónar stjórnuöu umferö í miö-
bænum og viö Laugaveginn. Fólk gat
leitað til lögreglunnar með ýmis
mál, jafnt íslendingar sem útlending-
ar. - Nú er mikil þörf á þessu. Að sjá
róna vaöa uppi meö betl og frekju
við innlenda sem erlenda er daglegur
viöburður, svo hörmulegt sem þaö
er. Ég tek það skýrt fram að lögreglu-
menn og -konur vinna sitt starf af
dugnaði og alúð. Þaö er því sannar-
lega ekki við þau að sakast.
Ég skora á nýjan dómsmálaráð-
herra að taka til óspilltra málanna,
t.d. með því að fjölga lögreglumönn-
um í Reykjavík og úti á landi, því
meö lögum skal land byggja. Það
ætti þó enn aö vera í fullu gildi.
Sú var tíðin að lögreglan vann sérstaklega vlð umferðarstjórn - segir m.a.
í bréfinu.
flf utboð
Fjarskiptastöð í Gufunesi
Uppsteypa
Póst- og símamálastofnunin (í Reykjavík) óskar eftir
tilboðum í að steypa upp og gera fokhelda stækkun
fjarskiptastöðvar í Gufunesi.
Heildargólfflötur nýbggingarinnar er um 370 m2 og
rúmmál um 1800 m3.
Jarðvinnu í húsgrunni er lokið og hefur verið fyllt
upp undir undirstöður.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Stefáns
Ólafssonar hf., Borgartúni 20, Reykjavík, gegn
15.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 18.
október 1989 kl. 11.00.
VERKFRÆÐISTOFA
STEFÁNS 'ÓLAFSSONAR HF. F.R.V.
BORGARTÚNI 20 ÍOS REYKJAVlK SlMI 29940 9 29941
Nú eru þeir kaldir
hjá Rönning í Kringlunni
Kæliskápar, frystiskápar og frystikistur á mjög góðu verði!
Nú á haustdögum seljum við kæliskápa frá
21.000 kr.\ frystiskápa frá 26.950 kr., sam-
byggða kæli- og frystiskápa frá 37.500 kr.
og frystikistur frá 39.406 kr.* Mikið úrval -
margar stærðir og gerðir frá 0SBY,
SN0WCAP og GRAM. Nýtið ykkur einstakt
tækifæri.
Jtf RÖNNING
KRINGLUNNI 8-12/103 REYKJAVÍK/SÍMI (91)685868