Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1989, Qupperneq 17
4~
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989.
og Bayer Leverkusen í gær en liðin áttust þá við í Evrópukeppni bikarhafa. Þrátt
i sig við að bíða lægri hlut. DV-mynd GS
ætir Steaua í dag
jmarar hjá Amóri og Anderlecht
á Fram-llðinu erlecht mæta Ballytnena frá Norður-ír-
Steauakomhingaðtlllandsmeðallra landi 1 Evrópukeppninni í kvöld á
sterkustuleikraennsínaeníþeimhópi Norður-írlandi. Amór raun leika í
eru nokkrir af bestu knattspyrnu- stöðu bakvarðar í liöi Anderlecht. ís-
raönnura í Evrópu. Framarar tefla ienskt dómarapar starfar á leiknum.
einnig frara sterkasta liði sinu. Dómari EyjólíUr Ólafsson dærair og iínuveröir
leiksins verður Rune Pedersen frá Nor- verða þeir Guöraundur Stefán Marías-
egi. son og Óii P. Ólsen.
• Akumesingar mæta Liege í Belgíu
Amór aftur bakvöröur í kvöld í síðari leik Uðanna.
Amór Guðjohnsen og féiagar I And- -JKS/VS/KB Belgíu
33
Iþróttir
Evrópukeppnin í körfuknattleik:
Erfitt hjá
Njarðvíkingum
- töpuðu 81-112 gegn Bayer Leverkusen
Ægir Már Kárasan, DV, Suöumesjum;
Bikarmeistarar Njarðvíkur í
körfuknattleik áttu aldrei mögu-
leika gegn hinu geysisterka Uði
Bayer Leverkusen í gærkvöldi.
Leiknum lyktaði 81-112 eftir að
staðan hafði verið 35-62 í hléi.
Barátta var mikil í Njarðvíking-
um en taugaspenna sagði nokkuö
til sín. Er það eðlilegt því Uð
Njarðvíkinga er ekki reynt í
keppni sem þessari. Liðið reyndi
að leika hraðan körfubolta og
gafst það ágætlega.
„Mínir menn léku ekki vel, þá
vantaði einbeitingu. Mér fannst
Njarðvíkingar spila vel og skyn-
samlega. Þeir léku hratt og
reyndu þannig að vega upp gegn
hæðinni sem var meiri í mínu
Hði,“ sagði Dirk Bauermann,
þjáífari Leverkusen við DV. Hann
benti jafnframt á að Teitur Ör-
lygsson heíði átt góðan leik.
„í heildina er ég ánægður með
leikinn, mér finnst þetta ekki
rosalega stórt tap. Við vorum að
visu taugaóstyrkir og máttum
nýta vítin betur,“ sagði hins veg-
ar Gunnar Þorvarðarson, þjálfari
Njarðvíkinga.
Bestu menn Njarövíkinga í gær
voru þeir Helgi Rafnsson og Teit-
ur Öriygsson. Helgi var mjög
sterkur og meðal annars hélt
hann hæsta leikmanni vallarins
í jámgreipum. Sá er 2,20 metrar.
Teitur Órlygsson var sérstak-
lega góður í síðari hálíleik.
Stig Njarðvíkinga; Teitur 24,
Helgi 13, ísak 10, Friðrik Rún. 10,
Jóhann 9, Kristinn 7, Friðrik
Ragn. 5, Ástþór Ingason 3.
Stigahæstir í v-þýska Uðinu
voru Neuhaus með 22 stig og
Deuster með 20.
Liöin mætast að nýju í Vestur-
Þýskalandi í byrjun október.
Leikmenn
Stjörnunnar
á samningi
við félagið
Stjórn handknattleiksdeildar
Stjörnunnar úr Garðabæ hefur gert
skriflega samninga við alla leikmenn
meistaraflokks karla, fyrst íslenskra
félaga. Leikmenn Stjömunnar skuld-
binda sig til að leika handknattleik
með félaginu sem hefur síðan einka-
rétt á að semja við þá að keppnis-
tímabiUnu loknu og þeim er óheimilt
að ræða við önnur félög áður.
Enginn leikmaður getur farið úr
Stjörnunni í annað félag án þess að
greiðsla komi fyrir samkvæmt sér-
stakri verðskrá sem Stjaman setur
upp. Á móti skuldbindur Stjarnan sig
til að sjá leikmönnum sínum fyrir
fullkominni aðstöðu til æflnga og
keppni, tryggir þeim bestu mögulega
meiðslameðferð og þeir fá sérstakar
greiðslur frá félaginu ef góður árang-
ur næst.
„Við höfum kynnt okkur hvemig
svona samningar ganga fyrir sig er-
lendis, sérstaklega hjá Gummers-
bach í Vestur-Þýskalandi, og munum
kynna máhð á næstunni fyrir Hand-
knattleikssambandi íslands og öðr-
um félögum. Við teljum þetta vera
ákveðiö skref í framfaraátt í íslensk-
um handknattleik og vtldum fram-
kvæma þetta á hreinlegan máta,“
sagði Guöjón Friðriksson, formaður
handknattieiksdeildar Stjörnunnar,
þegar samningamir vom kynntir í
gær.
-VS
Ólafur til
Lokeren
Ólafúr Kristjánsson, knatt-
spymumaður úr FH, er á fórum
til Lokeren í Belgiu þar sem haim
mun æfa með félaginu fram aö
21 árs landsleik Hoilendinga og
íslendinga þann 10. október.
Ólafúr hittir þar fyrir Baldur
Bjarnason úr Fylki sem fór til
Lokeren í siöustu viku og mun
dveija þar frara eftir næsta raán-
uöi. Baldur varð fyrir því í fyrra-
kvöld að meiðast í baki á æflngu
með Lokeren en ekki er reiknaö
með að það hái honura lengi.
-KB/VS
Ivan Golac tekur við
stjórninni hjá Partizan|
- haföi hug á aö þjálfa lið íslands
Ivan Golac, sem hafði sam-
kvæmt heimildum DV hug á að
taka við þjálfun íslenska lands-
Uðsins í knattspymu í kjölfar
þess að Sigi Held hvarf til starfa
í Tyrklandi, hefur nú tekið við
stjórn þjá Partizan Belgrad í
Júgóslavíu.
Ivan Golac var áður leikmaður
hjá Southampton og var kjörinn
leikmaður ársins hjá því félagi
eitt tímabihð. Golac lék einnig
meö Boumemouth og Ports-
mouth í Englandi en hann hóf
feril sinn hjá Partizan.
Partizan-Uðinu hefur gengið
mjög illa það sem af er þessu
tímabtii en Uðiö er nú annað
næst botni. Hefur þetta fomfræga
Uð aðeins unnið tvo af átta leikj-
um sínum í haust. Vegna þessa
rysjótta gengis sagði þjálfarinn,
Momcilo Vukotic, starfi sínu
lausu og verður Golac arftaki
hans.
Ivan Golac mun stjórna Partiz-
an-Uðinu á Parkhead í Glasgow á
morgun. Þá leikur júgóslavneska
Uðiö við Celtic í Evrópukeppni
bikarhafa. Partizan vann fyrri
viðureign félaganna, 2-1, á
heimaveUi sínum í Belgrad.
-JÖG
■