Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1989, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1989, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1989. Útlönd Palmemálið: Fjarvistar- sönnun fyrir Pettersson? Maður, sem kveðst vera vinur Christers Pettersson, mannsins sem fundinn hefur verið sekur um morðið á Olof Palme, sagði við yfirheyrslur i áfrýjunarrétti í Stokkhólmi i gær að hann hefði séö Pettersson langt frá morö- staðnum skömmu eftir að raorðið var framið. í réttarsalnura í Stokkhólrai hafa nú tveir menn boriö þ ví vitni að Pettersson hafi verið fjarri morðstaðnum skömmu eftir aö Palme var skotinn. Erik Nordström, 53 ára, sagði að hann hefði séð Pettersson í úthverfi Stokkhólms innan viö tuttugu mínútum efttr að Palme var skotinn. Framburður Nords- tröm, fallist rétturinn á hann, veitir Pettersson íjanóstarsönn- un þar sem ómögulegt er talið að hann hefði komist á milli þessara tveggja staða á svo skömmum tíma. Pettersson, sem var fundinn sekur í undirrétti og dæmdur til ævilangrar fangavistar, hefur ætíð haldiö fram sakleysi sínu. Hann kveðst hafa varið kvöldinu, sem Palme var myrtur, í spilavíti og að því loknu farið heim með lest. Nordström kvaðst þess fullviss að maðurinn, sem hann sá, hefði verið Pettersson. Saksóknari spurði vitnið hví hann hefði ekki gefið sig fram fyrr þar sem hann hefði lengið vitað aö vinur hans væri sakaður um morð. Hvers konar vinur ert þú? spurði saksóknari. Nords- tröm svaraði: „Ég átti við eigin vandamál aö stríða. Ég vonaöist til aö hann yrði látinn laus.“ Undirréttur féllst ekki á fram- burð annars vitnis, Algot Asell, sem kvaðst hafa séð Pettersson fjarri morðstaðnum örfáum min- útum eftir morðið. Úrskurður undirréttar var að miklu leyti byggður á framburði ekkju Palme, Lisbet. Asell hefur einnig boriö vitni fyrir áfrýjunarrétti. TT og Reuter Nýtt líf í START- Fréttaskýrendur telja að tils- lakanir Sovétmanna i afvopnun- armáium, sem kynntar voru á fundi utanríkisráðherra stór- veldanna í Bandaríkjunum í síð- ustu viku, geti hleypt nýju lífi í START-víðræöur tórveldanna sem hófust aö nýju í Genf í gær. START-viðræöumar stefna að samningi um helmingsfækkun langdrægra kjamorkuvopna. Á fundi sínum meö James Ba- ker, utanríkirsáðherra Banda- ríkjanna, lýsti Eduard Sé- vardnadze, sovéski utanríkisráð- herrann, því yfir aö Sovétmenn settu það ekki lengur sem skil- yrði fýrir samningi að að Banda- ríkin samþykktu bann á geim- vamir. Frá þvi að START-við- ræðumar hófust áriö 1985 hafa kröfúr Sovétmanna um takmark- anir á geimvömum verið Þránd- ur í götu samningamanna. Júri Nazarkin, aðalsamningamaður Sovétríkjanna, lagði þó áherslu á að þrátt fyrir þessar tilslakanir Sovétmanna yrði málið áfram á dagskrá samningamanna i Genf. Þá féllu Sovétmenn einnig frá þeirri kröfu að í START-sam- komulaginu fælist ákvæöi um fækkun stýriflauga um borð skipa og kafbáta. Stjómarerindrekar segja að á fundi sínura hafi utanríkisráö- herramir rutt mörgum hindrun- um úr vegi samnings um fækkun langdrægra vopna. En mörg deiluefhi liggja þó á samninga- borðinuíGenf. Reuter V-þýsk stjómvöld: Vilja mannsæm- andi gistiaðstöðu - fyrir flóttamennina í Prag Vestur-þýsk yfirvöld hafa farið þess á leit við stjórnvöld í Tékkósló- vakíu að þau sjái um að nær þrjú þúsund austur-þýskir flóttamenn, sem leitað hafa hælis í sendiráöi Vestur-Þýskalands í Prag, fái „mannsæmandi“ gistiaðstöðu. Fjöldi flóttamanna hefst við í tjaldbúðum á sendiráðsflötinni sem er orðin að for- arvilpu. Talsmaður vestur-þýsku stjómarinnar sagði að flytja yrði flóttafólkiö í annað húsnæði í borg- inni til bráðabirgða þar til ákvörðun yrði tekin um óskir .þeirra um út- flutningsleyfi. „Það sem fyrir liggur nú er að veita flóttamönnunum, þar af hundruöum barna, mannsæmandi húsnæði," sagði talsmaðurinn. Hann sagði að Bonn-stjórnin myndi halda áfram að þrýsta á að mannúðleg lausn fyndist á vanda flóttamannanna og myndi leyfa þeim að flytja til V-Þýska- lands. Austur-þýsk yfirvöld hafa lofað flóttamönnum útflutningsleyfi innan sex mánaöa snúi þeir heim á ný. En aðeins 200 þeirra hafa þegið það boð. Neyöarástand ríkir nú á grasflöt- inni umhverfis sendiráðið. Pláss er af skomum skammti og sofa flótta- mennimir nú hvar sem finna má rými. Fastlega er búist við að fjöldi flóttamannanna nái þrem þúsundum um helgina. Stjómvöld í Tékkóslóvakíu, sem funduðu í gær um ósk Bonn-stjórnar- innar, hafa ekki hindrað flóttamenn- ina í að komast að sendiráðinu. En sem merki um samstöðu meö Aust- ur-Þýskalandi hafa þau heitið því að flóttafólkið fái ekki að fara vestur yfir nema með samþykki stjómvalda í Austur-Berlín. Nær þvi 23 þúsund A-Þjóðverj- Þessi þriggja ára gamli austur-þýski drengur er einn nærri þrjú þúsund flóttamanna sem nú hafast við á lóð vestur-þýska sendiráðsins í Prag. Símamynd Reuter ar hafa nú komið til V-Þýskalands landamæri sín til vesturs 11. septem- frá því að Ungverjaland opnaði ber. Reuter Lítil hætta á valdaráni Ekki er taliö að fráfail Ferdinands Marcos, fyrrum forseta Filippseyja, muni leiöa til mikilla rósta á eyjun- um. Filippseyskir fjármálamenn era óhræddir og segja ólíklegt að til óeirða komi sem graflð gætu undan efnahag landsins. Þá segjast þeir heldur ekki óttast að lát hans muni verða kveikjan að tilraun til valda- ráns. Sá óróleiki, sem skapast getur í fyrstu, mun án efa líða hjá, segja þeir. Fréttaskýrendur telja að stuðn- ingsmenn Marcosar muni efna til mótmæla vegna þess að Aquino for- seti hefur hafnað beiðnum um að hann verði jarðsettur á Filippseyjum en segja ólíklegt að þau mótmæli leiði til blóðugrar uppreisnar. Marcos lést í fyrradag á Honolulu eftir langvarandi veikindi. Hann hafði verið í útlegð frá því að hann flúði land árið 1986. Aquino hefur ítrekað hafnað beiðni um að hann verði jarðsettur á Filippseyjum og segir að það geti leitt til óeirða. Hún viðurkennir að óeining ríki meðal íbúa Filippseyja vegna ákvöröunar þessarar en segir það skyldu sína að vemda öryggi þjóðarinnar. Banda- ríkjastjóm hefur ákveðið aö banna bandarískum flugvélum að flytja lík Marcosar til Filippseyja í samræmi við óskir Aquino. Talið er að Marcos hafi sölsað und- ir sig marga milljarða dollara á valdatíma sínum. Sérfræðingar telja að fráfall hans muni auðvelda stjóm- völdum á Filippseyjum baráttu Ferdinand Marcos, fyrrum forseti Filippseyja, sem lést á Honolulu á fimmtu- þeirra til að ná þessum fjármunum dag. Telknlng Lurle aftur. Reuter I>V Vilrii númimSa vmii mirvwiiici koma í veg fyrir sty'órn Samstöðu? Yfirvöld í Rúmaníu reyndu að ná fram sarastöðu meðal rikja Varsjárbandalagsins til að koma í veg fyrir að Samstaða, hin óháðu pólsku verkalýðssamtök, tækju við völdum i Póllandi segir í dagblaði samtakanna í gær. „Ríki Varsjárbandalagsins ættu að taka afstööu og krefjast þess að Samstöðú verði ekki veitt stjómarmyndunarumboð,“ segir m.a. í yfirlýsingu forystumanna Rúmeníu sem send var öllum ríkjum Varsjárbandaiagsins og birtist í blaði Samstöðu í gær. Kommúnistar, herinn og hin op- inbera verkalýðshreyfing eiga að mynda ríkisstjórn, segir þar einnig. Þá birtist einnig í blaði Sam- stöðu pólskt skjal þar sem segir að stjómmálaráð pólska komm- únistaflokksins hafi hafhað slíkri íhlutan í innanríkismál Póllands. Talsmaöur pólska kommún- istaflokksins staðfesti að skjölin væra ófólsuð. Hann neitaöi því hins vegar staðfastlega að flokk- urinn heföi látið Samstööumönn- um þau í hendur. Reuter Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóósbækurób. 8-9 Úb Sparireikningar 3jamán. uppsögn 8,5-11 Úb 6 mán. uppsögn 9-12 Vb 12mán. uppsögn 9-11 Ob 18mán. uppsögn 23 Ib Tékkareikningar, alm. 2-3 Sb Sértékkareikningar 3-9 Ib Innlán verðtryggð Sparireikningar 3jatnán. uppsögn 0,75-2 Vb 6 mán. uppsögn Innlán meðsérkjörum 2,25-3.5 Ib 13-76 Bb.Sb Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 7,25-8 Ab.Sb Sterlingspund 12,5-13 Sb.Ab Vestur-þýskmörk 5,75-6 Sb.Ab Danskarkrónur 8-8,75 Bb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 24-26 Úb.Ab Viöskiptavixlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 27-29 Sb.Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 28-32 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf 7-8,25 Lb Útlán til framleiðslu Isl.krónur 25-29 Ob SDR 10,25 Allir Bandaríkjadalir 10,5-10,75 Allir Sterlingspund 15,5 nema Ob Allir Vestur-þýsk mörk 8,25-8,75 Ob Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 40,8 MEÐALVEXTIR óverðtr. sept 89 30.9 Verðtr. sept. 89 7.4 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala sept. 2584ctig Byggingavísitala sept. 471 stig Byggingavísitala sept. 147,3stig Húsaleiguvísitala 5%hækkaöi l.júli VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,241 Einingabréf 2 2,338 Einingabréf 3 2,782 Skammtímabréf 1,457 Lífeyrisbréf 2,132 Gengisbréf 1,888 Kjarabréf 4.216 Markbréf 2.232 Tekjubréf 1,822 Skyndibréf 1,272 Fjolþjóðabréf 1.268 Sjóðsbréf 1 2,037 - Sjóðsbréf 2 1,596 Sjóðsbréf 3 1,436 Sjóösbréf 4 1,203 Vaxtasjóðsbréf 1,4405 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv. Sjóvá-Almennar hf. 302 kr. Eimskip 383 kr. Flugleiðir 170 kr. Hampiðjan 167 kr. Hlutabréfasjóður 140 kr. lönaðarbankinn 166 kr. Skagstrendingur hf. 216 kr. Útvegsbankinn hf. 142 kr. Verslunarbankinn 148 kr. Tollvörugeymslan hf. 110 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýslngar um penlngamarkað- Inn blrtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.