Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1989, Síða 6
22
M1ÐVIKUDAGUR! 11. OKTÓBBR 1989.
Utanferðir r>v
Ástralía:
Andfætlinga-
landið stóra
Þegar íslendingar eru spurðir til
hvaða lands þá langi helst aö ferðast
ber Ástralíu oft á góma. Það er
kannski engin furða því landiö er
heil heimsálfa og fjölbreytt eftir því.
Fjarlægðin sveipar landið einnig
ævintýralegum blæ en Ástralíubúar
eru andfætlingar okkar íslendinga
og því þarf aö ferðast yfir hálfan
hnöttinn til aö komast á áfangastað.
Ævintýraleg
saga landsins
Saga landsins er hefilandi og
óvenjuleg að mörgu leyti. Mark Twa-
in skrifaði á sínum tíma að saga Ástr-
alíu væri eins og lygasaga, full af
óvæntum uppákomum, ævintýrum
og margvíslegum ótrúlegum hlutum.
Ástralía dregur nafn sitt af Terra
Australis Incognita sem þýðir hið
stóra land í suðri. Talið er að fyrstu
íbúarnir hafi komið tfi landsins fyrir
um 40.000 árum. Þeir dvöldu í
landinu óáreittir þar til á 18. öld þeg-
ar Bretaveldi sló eign sinni á Ástral-
íu og fyrstu innflytjendurnir byrjuðu
að streyma yfir hafið.
Frumbyggjarnir voru á þessum
tíma um 300 þúsund en eru nú ekki
nema rétt tæplega helmingur af því
eöa um 150 þús. Þeir búa nú aðallega
á lokuðum svæðum, oftar en ekki
þeim afskekktustu og hrjóstrugustu.
Fanganýlenda Breta
Á 17. öldinni villtust evrópskir
landkönnuðir stöku sinnum til
landsins, aðafiega að norður- og vest-
urströndinni, og leist illa á það sem
fyrir augu bar: „Ekkert drykkjar-
Sydney og hið heimsfræga óperuhús.
vatn, engir ávextir og eymdarlegasta
fólk í heimi.“
Það var því ekki fyrr en 1770 þegar
kapteinn James Cook lenti fyrir til-
vOjun á austurströnd Astralíu,
byggOegasta hluta landsins, að ber-
ast tóku sögur af sólríkri og frjós-
amri jörð.
Cook sló eign breska konungsveld-
isins á landið og ekki leið á löngu þar
tíl Bretar fundu Ástralíu hlutverk;
landið skyldi verða fanganýlenda og
létta þannig á yfirfuUum fangelsum
Bretlands. 1788 lögðu fyrstu skipin,
troðin sakamönnum, að í nýja
landinu, nánar tiltekið þar sem nú
heitir Sydney Harbour í Nýju Suður-
Wales. Fangasendingarnar lögðust
síðan ekki af fyrr en 80 árum og
meira en 160.000 sakamönnum síðar.
Gullæði
grípur um sig
MikO breyting varð á högum íbúa
fanganýlendunnar þegar guU byrjaði
að finnast þar í stórum stíl upp úr
1851. Gullæði gekk yfir og fólk frá
öUum heimshornum flykktist til
ÁstraUu í von um skjótfenginn
gróða. Varanlegur hagnaður í kjölfar
gullfundarins varð þó aðeins eftir í
höndum örfárra manna.
Fljótlega eftir gullfundinn fóru að
heyrast raddir um sjálfsstjórn og
árið 1901 varð ÁstraUa svo sjálfstætt
samveldisríki sem samanstendur af
sex fylkjum og tveimur sjálfsstjóm-
arhéruðum.
Höfuðborg Ástralíu er Canberra,
borg sem ekki margir þekkja. Can-
berra var byggð frá gmnni til að
þjóna þeim tUgangi einum að verða
höfuðborg. Áður höfðu borgirnar
Melboume og Sydney barist hart um
titilinn svo að leið málamiðlunar var
farin og Canberra reist miðja vegu
miUi þeirra.
Sydney;
sólrík og spennandi
Borgin Sydney og ótvírætt tákn
hennar, óperuhúsið, er sennilega það
fyrsta sem fólki dettur í hug þegar
talað er um Ástralíu. Sydney er elsta,
fiölmennasta (3 'A miUj.) og líflegasta
borg Ástralíu. Bæjarstæðið er ein-
staklega fallegt og á hafnarsvæðið,
Sydney Harbour, mestan þátt í því.
Hafnarsvæðið er fullt af lífi enda eru
þar veitingastaðir og kaffihús á
hverju strái. Fallegar strendur og
víkur heiUa sóldýrkendur og aUar
hugsanlegar vatnaíþróttir blómstra
þar.
í nágrenni Sydney er mikla fiöl-
breytni að finna í landslaginu. Þar
eru grænir akrar og eyðimerkur,
himinhá fiöU og glæstar strendur.
Snowy Mountains, Snjófiöllin eru
skammt undan. Þar leika Ástral-
íubúar sér á skíðum á sumrin enda
er þeirra vetur frá júní tíl ágúst.
Kóralrifið mikla
Á norðausturströnd ÁstraUu er að
finna hið mikla náttúmundur, The
Grear Barrier Reef eða kóralrifið
mikla. Rifið, sem er eins og nafnið
gefur til kynna einungis samsett úr
kóröllum og því lifandi, heldur sér
sífellt við. Það nær yfir meira en 2000
kílómetra langt svæði og tekur hin
margbreytilegustu form og liti.
Inn á milU er að finna hundruð U-
tilla paradísaeyja með pálmatijám
þar sem tílvaliö er að dvelja og eyða
tíma í aö skoða þetta undur veraldar
með því að taka þátt í neðarisjávar-
skoðunarferðum í litlum kafbátum
eða bara kafa sjálffur).
Auðnin heillar
Outback er nafnið sem Ástralir
hafa gefið hijóstrugasta hluta lands
síns. Hér er aðallega um að ræða
miðhluta landsins en auðnin teygir
anga sína um stór svæði Suður- og
Vestur-Ástralíu.
Þetta er gífurlegt landflæmi sem
samanstendur af eyðimörkum,
klettalandslagi, draugabæjum og
regnskógaflæmum. íbúarnir, gamfir
harðjaxlar, guUgrafarar, landkönn-
uðir og frumbyggjar eru örfáir en
afar vingjamlegir þegar svo óhklega
viU til að einhver á leið um þessi
svæði.
Sem dæmi um fámennið komast
aUir íbúar Norður-ÁstraHu, sem er
landflæmi álíka stórt og Frakkland,
Spánn og Ítalía til samans, fyrir á
aöeins 81 síðu í símaskránní!
Tannlækningar
í Búlgaríu
Farid verður i 2|a til 3|a vikxia ferdir
með fólk til kvíldar og taxinvidgerda til
Búlgaríu í allan vetur.
Hafid samband vid skrifstofuna.
FERDAiiiiVAL hf
VF/
Hafnarstræti 18 - simar 14480
12534
VISA
FARKORTI FÍF
GRIPTU TÆKIFÆRIÐ
MEÐAN ÞÚ ERT UNGUR
ÆVINTYRAFERÐIR
UM ASÍU, AFRIKU OG S-AMERÍKU
MEÐ
ENCOUNTER OVERLAND
ff NÝIR FERÐAMÖGULEIKAR hafa bæst í safniö.
H SKIPULAGÐAR HÓPFERÐIR á sérbyggöum trukkum í boði.
f HEIMSREISUR - ævintýraferöir meö sveigjanlega
brottfarardaga og gildistíma
Kynntu þér okkar verö á heimsreisuferðunum í nýja bæklingn-
um sem við gáfum út í samvinnu við stúdentaferöaskrifstofur
á Norðurlöndum.
VIÐ BJÓÐUM EINNIG almenna ferðaþjónustu,
málaskóla í flestum löndum, Interrail og
námsmannafargjöld um allan heim.
CC
D
O
LU
>
cc
<