Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1989, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1989.
5
DV
Ráðstefna um fiskveiðistjómun:
Auðlindaskattur rétt
látasti skatturinn
Fréttir
- segir Rögnvaldur Hannesson, prófessor í sjávarútvegsfræðum
Ráðstefna um fiskveiðistjórnun á
vegum sjávarútvegsstofnunar Há-
skóla íslands v^r haldin í gær. Meðal
þeirra sem þar töluðu var Rögn-
valdur Hannesson, prófessor í sjáv-
arútvegsfræðum. Kenningar hans
hafa vakið mikla athygli hér heima
ekki síður en erlendis.
Erindi Rögnvalds fjallaði um fisk-
veiðirentu og auðlindaskatt. Niður-
staða hans var sú að leggja beri á
auðlindaskatt í sjávarútvegi eða selja
kvóta. Hann fullyrti að skattur á
kvótann væri réttlátasti skattur sem
hægt væri að setja á og hann hefði
engin óhagkvæm áhrif. Hann væri
betri og réttlátari en flestir aðrir
skattar sem þekkjast.
Rögnvaldur velti upp þeirri spum-
ingu hverjir ættu að borga og hvaðan
ætti að taka peninga fyrir auðlinda-
skatti. Hann sagði að viðurkennt
væri að fiskiskipastóllinn væri alltof
stór. Við auðlindaskatt mundi hann
minnka niður í þá stærð sem er hag-
kvæmust til að ná þeim afla sem
veiða má hveiju sinni.
Þá sagði hann að illa rekin fisk-
vinnslufyrirtæki myndu leggja upp
laupana og þau vel reknu fá meiri
afla til vinnslu á efdr. Allt myndi
þetta auka hagkvæmnina í veiðum
og vinnsu á þann hátt að fyrirtækin
gætu greitt auðlindaskattinn.
Rögnvaldur fullyrti einnig að auð-
lindaskattur eða sala á kvóta yrði til
þess að ná fram hagstæðastri afla-
nýtingu. Hann varaði aftur á móti
við að selja kvóta varanlega vegna
þess að það gæfi ekki nema brot af
réttum ábata. Hann benti hins vegar
á að sala eða leiga á kvóta til langs
tíma samkvæmt tilboðum frá útgerð-
arfyrirtækjum kæmi vel til greina.
Það myndi aldrei ofbjóða greiðslu-
getu fyrirtækjanna. Þá mætti líka
búast við því að uppboðsmarkaðir
yrðu virkir hér á landi. Árlegur
skattur á útgerðina gæti hins vegar
hugsanlega ofboðið greiðslugetu
hennar þótt engin vissa væri fyrir
því.
Þá benti hann á að hægt væri að
nota hluta af þessum auðlinda eða
kvótaskatti til að búa til sveiflujöfn-
unarsjóð fyrir útgerðina. Með því
móti væri hægt að jafna út þær
sveiflur sem alltaf eiga sér stað í sjáv-
arútvegi.
Víst er um það að hugmyndir
Rögnvalds eiga sér formælendur fáa
í útgerð á íslandi. Aftur á móti hefur
þessari kenningu mjög verið haldið
á lofti af hagfræðingum, bæði hér og
erlendis. -S.dór
Söluskattur af vátryggingum fyrir næsta ár:
Verður endurgreiddur
- segir Ólafur Ragnar Grímsson
Söluskattur, sem greiddur hefur
veriö af vátryggingum eftir áramót,
verður endurgreiddur og hefur fiár-
málaráðherra beint þeim tilmælum
til tryggingafélaganna og ríkisskatt-
stjóra að þaö veröi gert. Olafur Ragn-
ar Grímsson fiármálaráðherra sagði
hann hefði óskað eftir því að trygg-
ingafélögin önnuðust þessa endur-
greiðslu til viðskiptavina sinna. Síð-
an munu fiármálaráðuneytið og rík-
issjóður gera upp við tryggingafélög-
m.
Þetta kom fram við utandagskrár-
umræðu á Alþingi í gær en það var
Jóhann Einvarðsson sem fór fram á
umræðuna til að fá á hreint ýmis
vafaatriði varðandi söluskatt af
tryggingum.
Að sögn Ólafs Ragnars Grímssonar
fiármálaráðherra er söluskattstíma-
bil af vátryggingum aðeins til loka
þessa árs. Þess vegna hefði verið eð-
ililegt hjá tryggingafélögum að inn-
heimta söluskatt af tryggingum að-
eins til næstu áramóta. Tryggingafé-
lög hafi hins vegar innheimt sölu-
skatt fyrir tímabil eftir áramót, inn
á það tímabil sem virðisaukaskattur-
inn verður allsráðandi. Áætlað hefur
verið að hér sé um að ræða upphæð
á bilinu 100 til 150 milljónir króna
sem verður endurgreidd með þessum
hætti.
-SMJ
Anker Jörgensen, fyrrum forsætisráöherra Dana, segir:
Fríverslunarbanda-
lagið
Gizur Helgason, DV, Kaupmannahöfn;
Anker Jörgensen, fyrrum forsætis-
ráðherra Dana, hefur látið hafa það
efiir sér í blaðaviðtali að Fríverslun-
arbandalagið sé einskis nýtt.
„Það er dauð stofnun og ætti því
að leggja niður,“ sagöi Anker Jörg-
ensen. Hann er formaður dönsku
sendinefndarinnar í Norðurlanda-
ráði en það heldur aukaþing á
Álandseyjum um þessar mundir. Á
dagskrá eru Norðurlönd og Evrópa.
„Það veldur mér vonbrigðum að á
Norðurlöndum er álitið að allir
einskis
samningar við Evrópubandalagið
eigi að fara fram í gegnum EFTA,“
sagði Anker Jörgensen í viðtali viö
Berlinske Tidende í gær. „Fríversl-
imarbandalagið hefur minnkað og
nú eru aðeins Austurríki og Sviss í
bandalaginu auk Norðurlandanna
fiögurra, Svíþjóðar, Noregs, Finn-
lands og íslands. Fríverslunarbanda-
lagið er í raun og veru Norðurlönd
því Austurríki er komið meö fótinn
í EB en Sviss hagar bara seglum eft-
ir vindi nú sem endranær. Þess
vegna finnst mér að Norðurlöndin
eigi að semja viö EB sem ein heild,"
nýtt
segir Anker Jörgensen.
Jörgensen álítur fundinn á Álands-
eyjum mikilvægan norrænu sam-
starfi og bendir á aö við lifum ekki
lengur í einangruðum heimi. Á
Álandseyjum er reiknað með því að
fulltrúar Norðurlandaráðs leggi til
við norrænu ráðherranefndina að
tollmúrar Noröurlanda verði hægt
og rólega afnumdir og fiarlægðir að
fullu fyrir 1992. „Við viljum gjaman
að Norðurlönd séu eins konar út-
víkkaður innri markaður í beinu
framhaldi af innri markaði EB,“
sagðiAnker Jörgensen. -SMJ
Áhrif umrótsins í A-Evrópu á EFTA-viöræöumar:
Afram forgangsverkefni að
Ijúka samningum við EB
- segirjpíón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
,Þrátt fyrir drama tmdanfarinna
daga er staðan óbreytt. Ríki Fríversl-
unarbandalagsins hafa lýst þvi yfir
að forgangsverkefni þeirra sé að
ljúka samningum við Evrópubanda-
lagið og eyða óvissu sem um það er,“
sagði Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra þegar hann var
spurður að því hvort atburðir undan-
farinna daga hefðu einhver áhrif á
samningaviðræður EFTA og EB. Jón
Baldvin kvað það ekki vera og sagði
hann að innan EB væri sama áhersla
á að ljúka samningum þrátt fyrir
umrót undanfarinna daga. Það væru
helst hugmyndir um sameiningu
Þýskalánds sem vektu óvissu.
Að sögn Jóns er spumingin um
sameiningu Þýskalands sérstakt mál
og eftir að tilfininngahitinn hefði
mnnið af mönnum væri farið að tala
um það af meiri varfæmi og ekki á
þeim nótum að það gerist á næstu
dögum.
„En ef þýsku ríkin koma til með
að sameinast þá er það auðvitað rétt
sem haft hefur verið eftir Delore, for-
seta Evrópubandalagsins, að þannig
sé opnuð leið fyrir sameinað Þýska-
land innan EB. A-þýskaland gengi
þá inn 1EB bara í gegnum sameinað
Þýskaland."
Jón Baldvin sagði að öðru máli gilti
með önnur ríki Mið- og Austur-
Evrópu. Sum hafi þegar óskað eftir
nánara og formlegra sambandi við
Fríverslunarbandalagið, meðal ann-
ars vegna þess að vitað er að EB mun
ekki taka við fleiri aöildarríkjum.
Utanríkisráðherra sagði að margir
væru að velta því fyrir sér hvort
Pólland og Ungveijaland gætu leyst
vandamál sín með því að ganga ann-
aðhvort í EFTA eða fá fríverslunar-
samning við EFTA. Það væri nokk-
urs konar biðleikur gagnvart EB.
-SMJ
Frá aðalfundi Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra á Dalvík.
DV-mynd Geir
Alver í Eyjaf jörð-
varavöll í Aðaldal
:l-sí
Geir A. Guösteinsson, DV, Dalvík:
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra var haldinn á Dalvík 28.
október sl.
í langri stjómmálaályktun, sem
samþykkt var í fundarlok, er stofmm,
Háskólans á Akureyri lýst sem einu
mikilvægasta skréfi í byggðamálum
sem stigið hefur verið; hvatt til að
frumkvæði Náttúrufræðistofnunar
Norðurlands verði nýtt til að efia
náttúru- og umhverfísrannsóknir;
hraðað verði umbótum í samgöngu-
málum milli Eyjafiarðarbyggða og
Skagafiarðar annars vegar og Aust-
urlands hins vegar; hafinn verði
undirbúningur að því að reist verði
álver í Eyjafirði þar sem stækkun
álversins í Straumsvík mun hafa í för
með sér mikla byggðaröskun; og að
aðalvaraflugvelli landsins verði val-
inn staður í Aðaldal.
Formaður kjördæmisráðs var kjör-
inn Sigurður Bjömsson, Ólafsfirði.
Gjafír frá íslendingum:
Baðstofumunir fóru
vestur um haf
Safni norrænnar arfleifðar í Se-
attle í Bandaríkjunum áskotnuðust
margir óvæntir baðstofugripir eftir
viðtal við fyrrverandi forseta félags-
ins á rás 2 í sumar. Sýning var opnuð
þar í síðustu viku og er þar m.a. sýnt
svonefnt íslenskt herbergi í gömlum
baðstofustíl. Margir hlutanna, sem
era á sýningunni, vora gefnir af ís-
lendingium hér sem bragðust skjótt
við er útvarpsviðtalið var tekið við
Vestur-íslendinginn Sigurbjöm
Johnson sem er fyrrverandi forseti
félagsins. Hlutimir í baðstofuna bár-
ust víða af landinu.
-ÓTT