Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1989, Síða 28
36
FÍMMTÚDAGUR 30. NÓVEMBER 1989.
Andlát
Ingibergur J. Jónsson frá Drangsnesi
lést á Hrafnistu í ReyKjavík 28. nóv-
ember.
Anna K. Steinsdóttir, Kothúsum,
Garöi, andaðist í Borgarspítalanum
þann 29. nóvember.
Jarðarfarir
Hinrik Erlingsson, Breiöási 10,
Garðabæ, veröur jarösunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 1. des-
ember kl. 13.30.
Margrét Sigurðardóttir frá Skamm-
beinsstöðum, sem lést 23. nóvember,
verður jarösungin frá Fossvogs-
kirkju fóstudaginn 1. desember kl. 15.
* Útför Guðbjargar Hallgrímsdóttur,
Garöastræti 47, fer fram frá Áskirkju
fostudaginn 1. desember kl. 10.30 fyr-
ir hádegi.
Útfór Matthildar Guðmundsdóttur
frá Noröfiröi, sem lést á Hrafnistu,
Hafnarfiröi, 24. nóvember, fer fram
frá Víðistaðakirkju föstudaginn 1.
desember kl. 10.30.
Svanhildur Jóhanna Þorsteinsdóttir,
verður jarðsungin frá Áskirkju,
föstudaginn 1. desember kl. 13.30.
Jón Magnússon, fyrrv. forstjóri Raf-
geyma hf., Arnarhrauni 47, Hafnar-
firði, veröur jarðsunginn frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfiröi fóstudaginn
1. desember nk. kl. 15.
Jón Einarsson frá Berjanesi í Vest-
. mannaeyjum, Haukshólum 3, er lést
27. nóvember, veröur jarösunginn
frá Fella- og Hólakirkju fóstudaginn
1. desember kl. 16.
Þórður Þ. Þórðarson, Kirkjubraut
16, Akranesi, verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju fóstudaginn 1. des-
ember kl. 14.
Gabriel Jónsson lést í bamaspítalan-
um í Boston, Bandaríkjunum, þann
5. nóvember. Jarðarfórin hefur farið
fram í kyrrþey.
Magnús G. Jónsson lést 18. nóvem-
her. Hann fæddist 23. desember 1908.
Hann stundaði nám við Sorbonne
háskólann í París, í Madrid og Róma-
borg frá 1927-1933. Hann var löggilt-
ur skjalaþýðandi í frönsku, spænsku
og ítölsku, kenndi viö Menntaskól-
ann í Reykjavík frá 1940-1973 og Há-
skóla íslands frá 1942-1979. Yfirkenn-
ari við Menntaskólann í Reykjavík
var hann frá 1958 og dósent við Há-
skóla íslands frá 1963. Eftirlifandi
eiginkona hans er Kristín Magnús-
dóttir. Þau hjónin eignuðust tvo syni.
Útför Magnúsar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Tónleikar
Megas meðtónleika
Fimmtudaginn 30. nóvember mun Megas
halda tónleika í Stúdentakjallaranum við
Hringbraut. Þessir tónleikar eru upphaf-
ið að 1. des. fagnaði stúdenta í ár. Megas
mun flytja nýtt og gamalt efni í bland.
Aðgangseyri er mjög stillt í hóf eða sem
Blömastofa
FnÖfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík.'Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytlngar við öll tilefni.
Gjafavörur.
nemur 500 kr. Allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Hósanna ’89
tónleikar og tilbeiðsla
Undanfarin ár hefur ný tónlist rutt sér
til rúms innan kirkna Vesturlanda. Varð
hún áberandi í kjölfar „Jesúsvakningar-
innar“ og bar augljós einkenni hippa-
tímans með fastari hrynjandi, gítarspili
og léttum söng. Dagana 1. og 2. desember
verður hátíð í Fíladelfíu, Hátúni 2,
Reykjavík, sem ber heitið „Hósanna ’89
- tónleikar og tilbeiðsla. Bæði kvöldin
verða tónleikar, sem hefjast kl. 20.30 þar
sem fjöldi þekktra og óþekktra tónlistar-
manna kemur fram. Dagskráin verður
mjög fjölbreytt og er leitast við að spanna
sem víðast svið lofgjörðar- og tilbeiðslu-
tónhstar. Laugardaginn 2. desember
verða haldnir fyrirlestrar um textagerð,
tilgang lofgjörðarinnar og hvemig hún
fer fram. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill. Öll sem eitt - samstarf kristinna
i Reykjavík, hefur skipulagt hátíðina.
Útgáfutónleikar Bjartmars
í kvöld, 30. nóvember, mun Bjartmar
Guðlaugsson halda útgáfutónleika í Sjall-
anum, Akureyri, vegna útkomu fimmtu
sólóplötu hans, „Það er puð að vera strák-
ur“. Það má teljast sjaldgæft að tónlistar-
menn haldi útgáfutónleika sína utan
Reykjavíkur. Bjartmar mun einnig árita
nýju plötuna í Hljómdeild KEA og Hag-
kaup á Akureyri í dag. Laugardaginn 2.
desembér mun hann svo halda tónleika
í Hótel Mælifelli á Sauðárkróki en áritun
platna fer fram í Kaupfélagi Skagfirðinga
fóstudaginn 1. desember.
Tónleikar í Bústaöakirkju
Hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík
heldur tónleika í Bústaðakirkju fóstudag-
inn 1. desember nk. kl. 18. Þetta em aðr-
ir tónleikar hljómsveitarinnar á þessu
starfsári og em á efnisskránni Forleikur
að Rakaranum í Sevilla eftir Rossini og
Sinfónía í g-moll eftir Mozart. Stjómandi
hljómsveitarinnar er Ingvar Jónasson.
Tónleikamir standa yfir í u.þ.b. klukku-
stund og er aðgangur ókeypis.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur í Norræna húsinu
Dr. Terttu Utriainen, lagaprófessor við
Lapplandsháskóla í Rovaniemi og for-
stöðumaður Norrænu lagastofnunar
Lapplands-háskóla mun halda fyrirlestur
í dag, 30. nóvember kl. 17.30 í Norræna
húsinu. Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og nefnist „Stefna Finna í refsi-
rétti". Dr. Utriainen kemur til íslands í
boði lagadeUdar Háskóla íslands og Nor-
ræna hússins.
Tilkyimingar
Málverkauppboð í kvöld
24. málverkauppboð GaUerí Borgar í
samráði við Listmunauppboð Sigurðar
Benediktssonar verður haldið í kvöld, 30.
nóvember kl. 20.30 í Súlnasal, Hótel Sögu.
Um 70 verk verða boðin upp eftir aUa
helstu myndUstarmenn okkar, lifandi og
látna. Myndimar em tU sýnis í Gallerí
Borg í dag kl. 10-18.
Móðir og barn: ný hjálpar-
samtök opna fyrstu íbúð sína
Hjálparsamtökin Móðir, og barn hafa
nýlega hafiö starfsemi sína. Tilgangur
samtakanna er að vinna á félagslegan
hátt að velferð bamshafandi kvenna, ein-
stæðra mæðra og barna þeirra, fyrst og
fremst með húsnæðisaðstoð. Samtökin
starfa sem sjálfseignarstofnun sam-
kvæmt skipulagsskrá, sem staðfest hefur
verið af forseta Islands með stjómarráðs-
bréfi. í stjóm Móður og bams eiga sæti
sex manns, þrjár konur og þrír karlar. í
byrjun hefur verið ákveðið að starfsemi
Móður og bams verði í leiguhúsnæði og
koma þá bæði stakar einstaklingsíbúðir
og sambýh tU greina. Fyrsta íbúðin var
tekin á leigu um síðustu mánaðamót og
hefur fyrsti skjólstæðingur samtakanna
fengið það húsnæði. Unnið verður að því
á næstunni að fá fleiri íbúðir á leigu á
sanngjömum kjömm. AUt starf samtak-
anna er unniö í sjálfboöavinnu. Stjóm
Móður og bams mun á næstunni leita til
almennings og stjómvalda um stuðning
við þetta málefni. Áheit og gjafir ttl stofn-
unarinnar em skattfrjáls.
Húnvetningafélagið
SpUuð verður félagsvist laugardaginn 2.
desember kl. 14 í Húnabúð, Skeifunni 17.
Allir velkomnir.
Félag eldri borgara
Opip hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag.
Kl. 14 fijáls spilamennska, kl. 19.30 félags-
vist, kl. 21 dansað. Göngu-Hrólfur hittist
nk. laugardag kl. 11 að Nóatúni 17. Fé-
lagsfundur verður haldinn þriðjudaginn
5. desember í Goðheimum kl. 20.30. Dag-
skrá: Norrænt samstarf og lífeyrismál
aldraðra. Félagið óskar eftir munum og
Lausafjáruppboð
Að kröfu Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl. verða ýmsar vélar og tæki
(alls 76 munir) í eigu Þorgeirs og Ellerts hf., seld á nauðungaruppboði,
ef viðunandi boð fást, sem haldið verður að verkstæði Þorgeirs og Ellerts
hf., Bakkatúni 26, Akranesi, fimmtudaginn 7. desember 1989 kl. 14.00.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn á Akranesi
kökum fyrir basar félagsins sem haldinn
verður 9. desember kl. 13. Upplýsingar á
skrifstofunni í síma 28812.
Ferðaþristurinn kominn á
fulla ferð
Nú er Ferðaþristurinn kominn á fulla
ferð eftir noldcurt hlé en ágóði af starf-
semi hans fer til að styrkja starfsemi
Ungmennafélags Hveragerðis og Ölfuss.
Auk fastra vinninga á skafhluta miðans
er dregið hálfsmánaðarlega um auka-
vinninga á Rás 2, á fóstudagsmorgnum.
Vinningshafar í síðasta útdrætti (17. nóv.)
voru þessir: 1. Inga Dóra Guðmunds-
dóttir, Eskihlíð 35, Rvk. Verslunarferð
fyrir tvo til Glasgow. 2. Guðbjörn Steins-
son, Iðnbúð 8, Garðabæ. Gisting á Hótel
Örk. Kvöld- og morgunverður innifaldir.
3. Aðalheiður Ó. Guðbjömsdóttir, Kapla-
skjólsvegi 57a, Rvk. Gisting á Hótel Örk.
Kvöld- og morgunverður innifaldir. 4.
Sigþór Hermannsson, Grænutungu 1,
Kóp. íþróttagalli frá Henson. 5. Már Mic-
helsson, Kambahraun 1, Hveragerði,
íþróttagalli frá Henson.
Fundir
Félag eldri borgara
Haldinn verður félagsfundur þriðjudag-
inn 5. desember í Goðheimum, Sigtúni
3, kl. 20.30. Dagskrá: Norrænt samstarf
og lifeyrismál aldraðra. Félagið óskar
eftir munum og kökum fyrir basar félags-
ins sem haldinn verður 9. desember kl.
13. Upplýsingar á skrifstofunni í síma
28812.
Meiming
Stjörnumerkjamúsík
Þeir Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og Páll Ey-
jólfsson gítarleikari efndu til tónleika í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar í fyrrakvöld.
Á efnisskrá voru eingöngu ný og nýleg tónverk, en
þau voru: r.Þögnin í þrumunni" eftir Svein Lúövík
Björnsson, „Tierkreis" eftir Karlheinz Stockhausen,
„Moby Dick“ eftir Toru Takemitsu og Serenaöa op.
71, nr.3 eftir Willy Burkhard.
Frumflutningur
Verk Sveins Lúðvíks Björnssonar, „Þögnin í þrum-
unni“ var frumflutt á þessum tónleikum. Sveinn hefur
numið tónsmíöar hjá Atla Heimi Sveinssyni, en nýtur
nú leiösagnar Þorsteins Haukssonar. Þetta verk Sveins
er innhverf hugleiðing, þar sem viss áhersla virðist
vera lögö á mótun melódískra lína. Verkiö er bæöi
fallegt og vel unnið og var flutningur þess einnig góöur.
Stærsta verk tónleikanna var „Tierkreis” - Lög stjör-
numerkjanna tólf - eftir Stockhausen. Hér er um aö
ræða verk, sem er mjög lauslega samið og er flytjend-
um gefið mikið frjálsræöi varöandi alla framsetningu
þess. Verkið er samið á árinu 1975 og má leika þaö á
hvaöa hljóðfæri sem er, eitt eöa fleiri, eöa syngja þaö.
Framsetning þeirra Kolbeins og Páls var áhugaverð
og flutningur verksins var í einu oröi sagt frábær.
Tónlist
Áskell Másson
Til sjávar
Þáttur úr verki eftir japanska tónskáldiö Toru Ta-
kemitsu var næstur á efnisskrá. Þátturinn heitir
„Moby Dick“ og er það miðþáttur þessa þriggja þátta
verks sem ber titilinn „Til sjávar“.
Þetta einkar fíngeröa verk heföi veriö gaman aö
heyra í heild sinni. Takemitsu er meöal merkustu
núlifandi tónhöfunda, en af einhverjum ástæðum hafa
verk hans varla heyrst hér. Nefna má þó þá ætlan
Sinfóníuhijómsveitar íslands aö flytja gítarkonsert
hans síöar á þessu starfsári. Þátturinn „Moby Dick“
var þokkalega leikinn og svo var einnig um síöasta
verk tónleikanna, Serenöðu op. 71, nr. 3 eftir Willy
Burkhard. Þessi serenaða var hins vegar fremur
bragðdauf músík og tæplega hæfur endapunktur fyrir
tónleikana.
Þeir félagar léku eitt aukalag, en það var „Lítið lag“
eftir Hjálmar H. Ragnarsson og var það skemmtilega
flutt. Áskell Másson
Eftirmæli um Guðmund
Leikfélag Verslunarskólans, Allt milli hlmins og jarðar:
LÁTTU EKKI DEIGAN SÍGA, GUDMUNDUR
Höfundar: Edda Björgvinsdóttir og Hlin Agnarsdóttir
Leikstjóri: Þröstur Guðbjartsson.
Leikfélagiö meö langa nafniö, Allt milli himins og
jarðar, hefur starfaö af miklu íjöri í Verslunarskólan-
um á undanfórnum árum.
Aö þessu sinn var ráðist til atlögu við verkefni sem
geröi mikla lukku fyrir nokkrum árum, þegar Stúd-
entaleikhúsið sýndi það. Þær Edda Björgvinsdóttir og
Hlín Agnarsdóttir sömdu þá ævikróníku atvinnu-
kvennamannsins Guðmundar og gerðu um leið grát-
fyndna úttekt á stefnum og straumum í þjóðfélaginu
á þeim 15-20 árum sem sagan spannar.
Guðmundur er upp á sitt besta á árum hippatísku
og stúdentamótmæla og hann hrífst alltaf jafninnilega
þegar nýjar tískustefnur skjóta upp kollinum. Saga
hans kristallast í kvennamálunum, því aö Guðmundur
skiptir snyrtilega um lagskonur jafnoft og aðrir skipta
um skó.
Þær Edda og Hlín krydduðu ádeiluna á vel þekkta
karlrembutakta með léttu gríni og margt hittir mæta-
vel í mark enn í dag þó að annað sé búið að missa bitið.
Þetta verkefni hentar leikhópnum prýðilega. Hann
hefur grafíð upp tískufatnaö frá þeim tímum sem fjall-
að er um og leikur við hvem sinn fmgur. Búningam-
ir segja hálfa söguna og vekja margir kátínu við-
staddra þó aö ekki sé lengra um liðið.
Það sem helst var ábótavant hjá hópnum var fram-
sögnin sem var ekki nógu skýr hjá sumum. Nemendur
læra mikið af fijálsri leikstarfsemi í skólum og hluti
af henni getur beinlinis talist nám. Þaö ætti að vera
kappsmál þeim sem fyrir slíkri starfsemi standa að
Leiklist
Auður Eydal
vanda málfar og framsögn þeirra sem leika og fá leið-
sögn til þess.-'Þá voru lýti að villum í leikskrá.
Ingimundur K. Guðmundsson leikur Guðmund sjálf-
an og tekst furðuvel að gera þennan leiðindagaur
bæði aðlaðandi og fráhrindandi í senn. Ingimundur á
ekki í vanda með framsögnina og sýndi oft býsna ör-
uggan leik. Gísh Marteinn Baldursson er sonur Guð-
mundar, Garpur Snær, og var prýðilegur bæði sem
leðurklæddur töffari og kornabarn í kerru en hann
hefði þurft að tala skýrar.
Stúlkurnar í lífí Guömundar eru jafnóhkar og þær
eru margar og fyrst og fremst dæmigerðar fyrir
ákveðna hópa. Af öðrum leikendum má nefna Árna
Jón Eggertsson sem lék Hólmgeir og gerði margt nokk-
uð vel.
Þröstur Guðbjartsson leikstýrir hópnum og heil
hljómsveit skólafélaga leikur með í sýningunni. Stund-
um heíöi mátt draga úr hljómstyrknum en leikur
þeirra var aö ööru leyti prýöilegur og setti mikinn
svip á sýninguna.
Þessi pistill er víst hálfgerð eftirmæli um Guðmund
blessaðan því að sýningum er lokið að sinni. En efa-
laust á hann eftir að skjóta upp koUinum einhvers
staðar aftur því að enn er heflmikið eftir af honum.
Guðmundur lætur ekki deigan síga.
-AE
FjöLmiðlar
Stöðtvö
Þaö var ánægjulegt, að Jón Óttar
Ragnarsson skyldi fá norræn verð-
laun fyrir framlag sitt til markaðs-
mála, Stöð tvö hefúr verið sannkall-
að kraftaverk, frá því að hún hóf
starfsemi fyrir þremur árum. Þar
sem aðrir hrukku, stukku þeir Jón
Óttar, Ólafur H. Jónsson og Hans
KristjánÁmason.
Auðvitað eru skiptar skoðanir um
frétta- ogdagskrárstefiiu Stöðvar
tvö. Sjálfstæðismenn taka til dæmis
eftir því, að fréttastofa hennar
minntist ekki einu oröi á fund þeirra
um hrun sósíaUsmans í Austur-
Evrópu, en greindi í löngu máU og
myndskreyttu frá andmælum nokk-
urra vinstri kvenna við ráðstöfun
húsnæðis Fæðingarheimilis
Reykjavíkur. Þeir muna líka,
hvemig fréttastofan fór með Ragnar
JúUussonforðum.
Fram hefur komiö, að þeim Jóni
Baldvin Hannibalssyni og Bryndísi
Schram finnast fréttir Stöövarinnar
óvandaðar. Svo má lengi telja.
Sumar kvikmy ndirnar, sem Stöð-
in sýnir, eru ekki heldur mjög góö-
ar, B- og C-myndir úr söfnum kvik-
myndafélaganna bandarísku.
En hvernig væri umhorfs, nyti
Stöðvar tvö ekki við? Vfldu menn
aöeins hafa eitt ríkissjónvarp, eina
ríkisfréttastofu, einn ríkissannleik?
Það er þjóðamauðsyn, að Stöð tvö
blómgist og dafni. Vonandi tekst
henni að treysta hag sinn með sölu
hlutafjár.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson