Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1990, Side 8
8
MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1990.
Utlönd
Kosningum
ef til vill
frestað
í Rúmeníu
Rúmenskir námsmenn i Búkarest
minnast fórnarlamba byltingarinnar
i gær. Var þaö í fyrsta sinn sem
þeir komu saman eftir fall Ceauses-
cus til aö ræöa pólitískt ástand í
landinu. Simamynd Reuter
Hin nýja stjórn Rúmeníu hvatti í
gær til einingar og sagöi að verið
gæti að fyrstu frjálsu kosningunum
í landinu frá því eftir seinni heims-
styrjöldina yröi frestað til þess að
stjómmálaflokkar, sem verið er að
mynda, fái meiri tíma til að skipu-
leggja starf sitt. „Ef þjóðin fer fram
á að kosningunum verði frestað er-
um við reiðubúnir til að ræða mál-
ið,“ sagði varaforseti Rúmeníu,
Dumitru Mazilu, í gær.
Þjóðfrelsishreyfmgin, sem farið
hefur með völdin frá því að Ceauses-
cu var steypt, boðaði kosningar í
apríl en fulltrúar stjómmálaflokk-
anna, sem sprottið hafa upp aö und-
Vel var tekið á móti litlu rúmensku telpunni sem kom til Frakklands í gær ásamt sextíu og þremur öðrum munað-
arleysingjum frá Rúmeníu. í kjölfar ásakana um sölu á börnum fór Ceausescu að tefja afgreiðslu ættleiðingar-
mála 1988 en nú geta barnlaus hjón á Vesturlöndum loks fengið börnin.
anfórnu, hafa kvartað undan því aö
ekki sé nægur tími til kosningaund-
irbúnings.
Beiðni yfirvalda um einingu fylgdi
í kjölfar hótana þúsunda náms-
manna um fjöldamótmæli. Náms-
mennimir, sem héldu fund í gær í
MOTTU 00 TEPPA
20-50%
Gram
Teppi
afsláttur
FRiÐRIK BERTBSEN
TEPPAVERSLUN
FRIÐRIKS BERTELSEN
FÁKAFEN 9-SlMI 686266
Búkarest, hótuðu fleiri mótmælum
ef Þjóðfrelsishreyfingin yrði ekki við
kröfum þeirra um að hraðað yrði
breytingum í lýðræðisátt og aö hátt-
settir embættismenn, sem tengdust
stjóm Ceausescus, yrðu látnir víkja.
Fögnuðu námsmennirnir ákaft er
leiðtogar þeirra fóru fram á að eng-
inn félagi í kommúnistaflokknum
yrði í nýju stjórninni að afloknum
kosningum.
Frjálslyndi flokkurinn í Rúmeníu,
sem farinn er að láta til sín taka á
stjómmálasviðinu á ný, hefur farið
þess á leit við Michael, fyrmm
Rúmeníukóng sem nú býr í Sviss, að
hann snúi aftur heim og taki við
völdum. Michael neyddist til að af-
sala sér konungdómi í desember
1947. í viðtali við svissneskt dagblaöa
eftir fall Ceausescus kvaðst konung- '
urinn vilja snúa aftur heim til Rúme-
Símamynd Reuter
níu en notaði jafnframt tækifærið til
að gagnrýna nýju stjórnina. Sagöi
han meðlimi hennar vera kommún-
ista sem unnið hefðu með Ceausescu.
Utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
Eduard Sévardnadze, sem kom í eins
dags heimsókn til Rúmeníu á laugar-
daginn, lýsti yfir fullum stuðningi
við nýju stjórnina í landinu og sagði
samskipti þjóðanna ekki háð því
hvort kommúnistar yrðu við völd í
landinu. Sovéski utanríkisráðher-
rann sagði að Sovétríkin myndu
veita Rúmenum gas og olíu til að-
stoða þá í vetrarhörkunum.
Útvarpið í Búkarest skýrði frá þvi
í gær að yfirvöld hefðu fyrirskipað
að herdómstólar yrðu settir á lag-
girnar til að tekin yrðu fyrir mál
þeirra sem unnu hryðjuverk fyrir
einræöisherrann. Reuter
Landamæri Sovétríkjanna og Irans:
Áframhaldandi mótmæli
Fulltrúar íranska utanríkisráðu-
neytisins fóru á fund sovéskra ráða-
manna um helgina til að ræða „sam-
skipti ríkjanna" að því er hin opin-
bera fréttastofa írans skýrði frá í
gær. Ekki var skýrt frá þvi hvort
ástandið á landamærum ríkjanna
hefði borið á góma né hverjar niður-
stöður viöræðnanna voru.
Síðustu daga hafa sovéskir shíta-
múhameðstrúarmenn í lýðveldinu
Azerbajdzhan, sem er við landa-
mærin við íran, staðið fyrir fjöl-
mennum mótmælum á landamær-
unum. Beggja vegna landamæranna
búa Azerar en suðurhluti Azerbajdz-
han tilheyrði íran þar til á þriöja
áratugnum. Azerar í Sovétríkjunum
vilja að auðveldara verði fyrir þá að
sækja trúbræður sína í Iran heim
sem og aðgang að frjósömu akurlendi
sem girt hefur verið af við landa-
mærin. Þeir hafa staðið fyrir miklum
mótmælum á landamærunum til að
leggja áherslu á kröfur sínar og m.a.
rifið niður landamæragirðingar.
Sjónarvottar segja að sjá megi her-
menn á vakt í lýðveldinu en þeir
hafa ékki hafst að. Heimildarmenn
hafa skýrt frá því að liðasuki hafi
verið sendur til Azerbadzhan.
Fyrir helgi náðu Sovétmenn og ír-
anir samkomulagi sem auðvelda ætti
ferðalög Azera til írans og settar
verða á laggirnar sérstakar stofnanir
fyrir íbúa Azerbajdzhan til að auö-
velda þeim ferðalögin.
Þessar þjóðernisróstur á landa-
mærum írans og Sovétríkjanna eru
taldar alvarlegt áfall fyrir Gorbatsjov
Sovétforseta og perestrojku hans. En
forsetinn á einnig við að glíma óróa
víðar í landinu, m.a. í Eystrasalts-
ríkjunum - þar sem íbúarnir vilja
sjálfsforæði - og Kákasusulýðveld-
unum. Hann mun fara til Litháen
síöar í vikunni til viðræðna við ráða-
menn þar en en kommúnistaflokkur
lýðveldisins hefur ákveðið að slíta
öll tengsl við móðurflokkinn í
Moskvu.
Reuter
Herskip til höfuðs
eiturlyfjasmy glurum
Dick Cheney, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, varði í gærkvöldi þá
ákvörðun yfirvalda að senda herskip
upp að landhelgi Kólumbíu til þess
að fylgjast með ferðum eiturlyfja-
smyglara á sjó og í lofti. Eru tvö her-
skip þegar lögö af staö og er annað
þeirra flugmóðurskip.
Kólumbísk yflrvöld tilkynntu í gær
að þau myndi ekki taka þátt í neinum
hemaðaraögerðum Bandaríkja-
manna. í yfirlýsingu forsetans var
einnig hafnað allri samvinnu í kól-
umbískri landhelgi.
Brent Scowcroft, þjóðaröryggis-
ráðgjafi Bandaríkjanna, sagöi í sjón-
varpsviðtali afstöðu kólumbískra
yfirvalda byggjast á röngum upplýs-
ingum um að Bandaríkin hygðust
setja hafnbann á strönd Kólumbíu.
Bandaríkjamenn lögðu áherslu á að
þeir ráðgerðu ekki að láta skjóta á
grunsamlegar flugvélar úr banda-
rískum herflugvélum. Reuter