Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1990. Fréttir Deilur um þróarrými fyrir loðnu í Neskaupstað: Gamall húsgrunnur fylltur af loðnu Hjörvar Sigurjónsson, DV, Neskaupstað: Bræösla Síldarvinnslunnar í Nes- kaupstaö hefur brætt loðnu linnu- laust frá því í byrjun janúar. Tekið hefur veriö á móti 46 þúsund tonnum af loðnu fá áramótum. Litlu sem engu var landaö af loönu á haustver- tíöinni, aöeins 3 þúsund tonnum og 3 til 4 þúsund tonnum af síld til bræöslu. Berki og Beiti, sem eru loönuveiðiskip Síldarvinnslunnar, hefur gengiö vel. Skipin eiga bæöi eftir 6 til 7 þúsund af kvóta sínum. Heilbrigöisnefnd Neskaupstaðar hefur heimilaö Síldarvinnslunni að nota gamlar þrær og grunn viö gömlu síldarbræösluna til geymslu fyrir loönu. Áöur haföi veriö bann viö notkuninni. Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunn- ar, mætti á fund nefndarinnar og var hann meö tillögur sem nefndin greiddi atkvæöi um. Þrír nefndar- manna voru sammála framkvæmda- stjóranum og tveir voru á móti. Gamla bræðslan stendur ekki langt frá þeirri nýju. Þróarrými gömlu verksmiöjunnar hefur veriö riotaö árum saman. Vaxandi óánægja hefur veriö vegna þess og var heilbrigðis- nefnd Neskaupstaðar búin aö banna að notkun þrónna. Athygli vakti að eigandi íbúðar- húss, sem stendur fáa metra frá grunni gömlu verksmiðjunnar, var ekki boöaöur á fundinn. Hann hefur verið mjög mótfallinn notkun gömlu þrónna sökum megnrar fýlu sem leggur þaðan og hávaða sem fylgir vörubílum og ámoksturstækjum. Búið er aö fylla grunninn af loönu. Austurland: Hugrún Ester var kjörin feg- urst allra Hjörvar Siguijónsson, DV, Neskaupstað: Fegurðardrottning Austur- lands var vahn í Egilsbúð í Nes- kaupstaö á laugardaginn. Feg- uröardrottning Austurlands 1990 er 21 árs Egilsstaðamær, Hugrún Ester Sigurðardóttir. Auk hennar var valin vinsælasta stúlkan, El- ín Heiðarsdóttir. Hún er 19 ára, frá Höfn í Homafiröi. Ljós- myndafyrirsæta Austurlands var valin Lilja Jóhannsdóttir, hún er 18 ára og er frá Norðfirði. Fegurðardrottning Austur- lands 1989, Oddný Ragna Sigurð- ardóttir, krýndi arftaka sinn. Fegurðardrottning íslands 1989, Hugrún Linda Guðmundsdóttir, sat í dómnefndinni. Póstur og sími: Breytt þjónusta í Reykjavík Afgreiöslu Pósts og síma í Um- ferðarmiðstööinni veröur lokaö fljótlega. Afgreiöslan hefur haft lengur opið en aðrir afgreiöslu- staðir Pósts og síma. Þegar hénni verður lokað lengist afgreiðslu- tími í pósthúsinu viö Ármúla. Ólafur Tómasson póst- og síma- málastjóri segir að þessi breyting muni auka þjónustu Pósts og síma. Þá hefur verið ákveðið að á þessu ári verði nýtt póstútibú opnað við Höfðabakka, ofan við Gullinbrú. -sme Smábátafélag í Neskaupstað Hjörvar Siguijónsson, DV, Neskaupstaö: Nýlega var stofnað félag smábá- teigenda í Neskaupstað og fékk það nafnið Nökkvi. Ekki hefur félag smábátaeigenda áður starf- að í þar. Mikil íjölgun smábáta hefur verið í Neskaupstað undan- farin ár. Á annað hundrað trillur eru gerðar út frá Neskaupstað. Fimmtudaginn 22. febrúar var aðalfundur Nökkva haldinn og í stjóm voru kosnir Hjörtur Am- finnson, Ath Dennis Wilson og Halldór Þorsteinsson. Til vara voru kosnir Einar Þórarinsson, Sævar Jónsson og Kristján Vil- mundarson. Teiknimyndafígúran Svalur komin á vegginn. Piltarnir Guömundur Rúnar Arnason (frændi Errós) og Magnús Helgason hafa að undanförnu unnið að viðamiklu „graffiti-verki“ í undirgöngum við Digranesveg í Kópavogi. Ætlun þeirra er að fá leyfi hjá Reykjavíkurborg til þess að skreyta veggi hjá borginni í sumar. DV-mynd GVA Tveir piltar sömdu við Kópavogsbæ um veggskreytingar: Frændi Eitós málar í undirgöngum Tveir ungir piltar vinna nú að viðamiklu veggskreytingaverki í undirgöngum við Digranesveg í Kópavogi. Annar piltanna er frændi Errós, listamannsins kunna. Piltarnir gerðu Kópavogsbæ tilboð um aö skreyta veggina. Bærinn hefur keypt um tvö hundruð úðabrúsa og efni til að mála veggina með og borg- ar síðan verktökunum væg laun. Guðmundur Rúnar Ámason, ann- ar listamannanna, sagði viö DV að verkið væri aðaUega unnið ánægjunnar vegna. „Við skreyttum undirganginn við Lönguhlíð og Miklubraut í fyrra en það var víst ólöglegt. Við ætlum samt að reyna að fá leyfi hjá Reykjavíkurborg til þess að skreyta veggi í borginni í sumar. Fólk stoppar hjá okkur þegar við emm að vinna. Langflestum finnst þetta flott en sumir hafa for- dóma og kalla þetta veggjakrot," sagði Guðmundur Rúnar. Piltarnir tveir rissa fyrst upp útlínur en síðan úða þeir málningu á veggina. Verkið i undirganginum við Digranesveg er um það bil hálfnað, sagði Guðmund- ur Rúnar. Sigurður Gíslason, hjá tæknideild Kópavogsbæjar, sagði í samtali viö DV að bærinn hefði variö um 800 þúsund krónum á síðasta ári til við- halds á umræddum undirgangi sem tvímenningarnir eru nú að skreyta. Nú hefur hins vegar aðeins verið varið um 40 þúsund krónum í efni og sagði Sigurður að piltarnir tækju mjög væg laun fyrir verk sín. „Ber- línarmúrinn og fleiri byggingar eru skreyttar með þessari sömu aðferö sem kölluð er „graffiti“ og við erum mjög ánægðir með þetta framtak," sagði Sigurður. -ÓTT Þrjú prósent fiskverðshækkun: Sjómenn sáttir en ekki ánægðir - segir Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambandsins „Þessi ákvörðun er í samræmi við það sem gert hafði verið í Verðlags- ráöi. Við sjómenn erum ekki ánægð- ir með verðiö, en sáttir. Lengra varð ekki komist að þessu sinni,“ sagöi Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands Islands. Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsins hefur samiö um nýtt fiskverð sem gildir frá 1. febrúar. Állur fiskur hækkar að meöaltali um 3 prósent. Fulltrúar kaupenda og seljenda sam- þykktu hækkunina en oddamaður, Þórður Friðjónsson, sat hjá. Gert er ráð fyrir sérstöku álagi til þeirra sem landa beint til fiskkaúp- enda, það er selja hvorki á innlend- um né erlendum mörkuðum. 0,4 pró- sent verða greidd fyrir allan fisk umfram 70 prósent ef landað er beint til kaupenda. Óskar Vigfússon segir að þetta sé í samræmi við það sem áöur hefur verið rætt um. „Það hefur verið beðiö eftir fisk- verðsákvörðun. Nú ætti að vera hægt að taka upp viðræður," sagði Óskar Vigfússon þegar hann var spurður hvað væri að gerast í samningamál- um sjómanna og útgerðarinnar. Deil- anernúhjáríkissáttasemjara. -sme Sandkom dv Að gefa götum nafn Það vafðist heldur betur fynr „kerlinu" ' á Akureyriaö komanafniá tvær götur sem áaðíhraaðút- iiluta loðum ' við.enjiessar gótureru næin sjúkrahúsi bæjarins. Btdl- ið byrjaði þegar byggingamefnd tók þá ákvörðun að götumar skyldu heita Tónatröð og Tóbakströð og víst urðu margir hissa. Tónatraðamafnið er tilkomíð vegna þess að þar sem sú gata kemur bjó Jóhann Konráðsson stórsöngvari og þar ólust þeir upp söngvaramir synir hans. Tóbáks- traðarnafhið mun hins vegar vera til að „heiðra" mann að nafni Aðalstein Július Guðmundsson sem býr þar semsúgatakemur! Bæjarráð ósammála Aðalsteinn þessiergiarn- annefndur „Tóbaks- Steini“ vegna inikillar ncftó- baksnotkunar sinnarog hljómsveitin Skriðjöklar söngumhanní laginu „Steini". Bæjarráðsmönnum fannst hins veg- ar ákvörðun byggingarnefndar um Tóbakströðina ekkert fyndin og breyttu götuheítinu í Stekkjartröð. Hver viil lika þurfa að búa við Tó- bakströð? Það er ekki miklu betra en búa í Brennivínsbrekku. - En máhð var ekkibúið þar með. Bæjarstjórn ræddi málið og að lokinni skriilegri atkveeðagreiðslu fékk gatan nafnið Steinatröð. Hún skal því eftir allt heita i höfuðiö á Aðalsteim þessum. Akureyringar höfðu gaman af þess- um vandræðagangi kerfisins og það er ekki í fyrsta skipti sem smámál veröur að stórmáh í „bæjarapparat- inu“. Nægir að minna á leiktækja- salamálin fyrir nokkrum árum í því sambandi. Þaðersvogott blaðið eftir Steingrími að honum hafi brugðið þegar kona hans kom heim úr búðinni einn daginn og lýsti því yfir að hún yrði aö fara að hætta aö kaupa lambalqöt, það væri svo dýrt. , ,Og okkur sem fmnst lambalærið þaö besta sem við fáum“ segir blaðiö að Steingrímur hafi sagt. Já, það er að verða þröngt í búi hjá smáfuglunum ef sjálfur forsætisráðherrann bætist í bóp þeirra sem gleymt hafa hvernig íambakj öt er á bragðið. Bara sendir heim Þaðerekki tekið ineðnt'in- umsilkiliönsk- mnábanda- ; rískukörfu- bolíaleikmiinn- miumsem leikn með lið- ' únum.iúrváis- deiidinniefþeir standa sigekki. Þeireruum- svifalaust sendir til sins heima og ekki færri en sex leikmenn hafa feng- ið að tjúka í vetur. Ástæðurnar eru ýmsar, s.s. aö viðkomandi séu hrein- lega ekki nógu góðir leikmenn eöa þjálfarar, eöa þá að þeir standi i eín- hverju veseni utan vallar. Er núaf sem áður var þegar þessir leikmenn fengu að valsa um utan vallar sem innan og haga sér eins og hálfvitar. Grindvikingar eiga „metið“ í vetur, hafa sent tvo leikmenn heim, en Qög- ur hð í deildinni hafa losaö sig viö einnleikmann. Umsjón: Gylfi Kristjánsson VikurblaöF Húsaviksegir aðáfundi framsóknar- mannaþaríb. hafiSteingrín urHermanns sonlýstyfir áhyggjumsín umafverðiá kindakjötíog aðlambalæri skuh kosta 1700-1800 krónur. Helur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.