Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1990, Page 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 1990.
Fréttir
Útgerð Andra BA hefur tapað um 150 miUjónuni á vesturferðinni:
Breyttur vinnu-
tími á Vellinum
Gæti farið svo að
bankinn tæki skipið
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
í ráöi er aö breyta vinnutíma hjá
verkamönnum sem starfa hjá Is-
lenskum aöalverktökum á Keflavík-
urflugvelli. Síðdegiskafíitíminn
veröur felldur niður en á móti kemur
að vinnudegi lýkur kl. 17 í stað 18
áður. Þarna er farið inn á sömu braut
og iðnaðarmenn hafa farið og þykir
gefast nokkuð vel.
Eitthvað munu þó vera skiptar
skoðanir um málið meöal verka-
„Það gæti farið svo að PK-bankinn
norski tæki skipið aftur. Bankinn er
langstærsti kröfuhafinn og framtíð
útgerðarinnar veltur mikið á því
hvað forráðamenn hans vilja gera,“
sagði Ragnar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri útgerðar Andra BA, i
samtali við DV.
Ragnar Halldórsson hefur frá því
fyrir helgi átt í viðræöum við fulltrúa
PK-bankans og þeim verður haldiö
áfram í dag. „Viðræöurnar snúast
um viðbrögð við þeirri stöðu sem
komin er upp. Það hefur enn ekkert
verið ákveðið með framhaldið en það
er ljóst að útgerðin hefur orðið fyrir
miklu tapi,“ sagði Ragnar.
Úthaldið hjá Andra BA hefur nú
staðið í 157 daga frá því skipið lagði
upp í vesturferðina 4. október í haust.
í dag er skipið væntanlegt til Van-
couver í Kanada frá Dutch Harbour
í Alaska þar sem því verður lagt um
sinn. Skipið var í hálfan þriðja mán-
uð í Dutch Harbour án þess að nokk-
WBIIdudalWm
♦ (heimahöffí)
’tch Harbour / "
\^Vancouver
l Færeyjarí
Ferð Andra BA um heimshöfin er orðin löng. Skipið hefur siglt þúsundir
milna frá því að útgerðin tók við því i Hull í haust. Nú er skipið komið til
Vancouver í Kanada og verður þar fyrst um sinn. Til heimahafnarinnar á
Bíldudal hefur Andri hins vegar aldrei komið og kemur trúlega ekki.
Bleikt og blátt
selst og selst
- fólk ekki feimið við að fara úr fötunum
uð væri unniö um borð sem skipti
máli.
Áður hefur komið fram aö tapið
af útgerðinni nemi ekki minna en
einni milljón á dag. Því má telja að
tapið sé orðið um 150 milljónir þann
tíma sem úthaldiö hefur staðið.
Núverandi eigendur Andra BA
lögðu fram 100 milljónir í hlutafé í
upphafi. PK-bankinn á í það minnsta
fjórum sinnum þá upphæð í útgerð-
inni en bankinn átti skipið áður með-
an það hét Roman I. Þá var skipið
gert út frá Færeyjum fyrir íjármagn
frá PK-bankanum en útgerðin varð
gjaldþrota árið 1986 og bankinn leysti
skipið til sín. Nú gæti farið svo að
PK-bankinn eignaðist það á ný.
Ragnar sagði aö eitt af mögulegum
verkefnum fyrir Andra BA væri aö
senda skipið til veiða í Suöur-Kyrra-
hafinu úti fyrir ströndum Perú eða
Chile. Enn hafa engar veiðiheimildir
fengist þar og á meðan verður skipið
bundið við bryggju í Vancouver.
-GK
manna, sérstaklega þeirra sem helst
eru í útivinnu. Þeim finnst slæmt að
fá ekki næringu og hvíld á bilinu frá
12.30 til 17. Það sér því ekki fyrir
endann á því hvernig þessari tillögu
reiðir af. Málið hefur verið mjög til
umræðu að undanfórnu en forráða-
menn Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur og nágrennis eru taldir
fylgjandi þessum breytingum.
Umboðsmaður Alþingis:
Afgreiddi 122 mál
Á síðasta ári afgreiddi Gaukur Jör-
undsson, umboðsmaður Alþingis,
122 mál frá embætti sínu. Honum
höíðu þá borist 150 mál en 35 voru
óafgreidd frá árinu á undan og fjögur
mál tók hann upp að eigin frum-
kvæði.
Af þessum málum lauk 29 meö því
að umboösmaður úrskurðaði í mál-
inu og fallið var frá öðrum 29 kvört-
unum. Þá reyndust 23 mál ekki upp-
fylla það skilyrði að hafa áður verið
skotið til æðra stjórnvalds. -GK
íslandsbankinn á Akureyri:
6 vilja í sæti
útibússtjórans
„Eg var bjartsýnn en átti ekki von
á þessu. Þegar fyrra blaðiö kom taldi
ég að salan stafaöi meðal annars af
því að fólk héldi að blaðið væri djarf-
ara en það er. Það virðist hins vegar
vera mikil þörf fyrir fræösluefni fyr-
:r kynlif. Salan nú sýnir að svo er,“
sagði Sveinn Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Frjáls markaðar, sem
gefur út tímaritið Bleikt og blátt.
Eins og kunnugt er er Bleikt og blátt
tímarit um kynlíf.
Að sögn Sveins seldust 17 þúsund
eintök af fyrsta tölublaði. Annaö
tölublað er nýkomið út. Sveinn segir
að þegar séu seld 10 þúsund eintök
og verið sé að prenta 5 þúsund til
viðbótar. Sveinn segir að ekki sé
búið aö dreifa öllum þeim blöðum
sem pöntuð hafa verið.
„Það voru um 50 manns sem sóttu
um störf þegar við auglýstum eftir
fyrirsætum. Þaö var fólk á öllum
aldri. Þeir yngstu eru 17 ára og sá
elsti er um fertugt. Fólk virðist ekki
vera feimið við að fara úr íötunum,"
sagði Sveinn.
Frjáls markaður gefur einnig út
tímaritið barnið þitt. Innan skamms
kemur út nýtt tímarit. Það mun fjalla
um mat og koma út mánaðarlega.
-sme
Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyri:
Sex umsækjendur eru um stöðu
útibússtjóra íslandsbanka á Akur-
eyri en frestur tO að sækja um stöð-
una er runninn út.
Nöfn umsækjenda eru ekki gefm
upp en fullvíst má telja að i þeirra
hópi séu þrír starfandi útibússtjór-
ar á Akureyri, Kristín Jónsdóttir,
sem stýröi útibúi Alþýöubankans,
Ásgrímur Hilmisson, Útvegs-
banka, og Guðjón Steindórsson,
Iðnaðarbanka. Bankaráð íslands-
banka mun að líkindum taka
ákvörðun um það í næstu viku
hver muni stýra útibúinu á Akur-
eyri sem er stærsta útibú bankans
utan Reykjavíkur.
í dag mælir Dagfari
Glæsilegur árangur
Óhætt er að segja að Islendingar
hafi komið, séð og sigrað í heims-
meistarakeppninni í handbolta.
Eins og Dagfari útskýrði í síðustu
viku var það takmark íslenska liðs-
ins í Tékkó að ná níunda sætinu
og komast þannig áfram í næstu
heimsmeistarakeppni og næstu
ólympíuleika. Eftir því sem við töp-
uöum fleiri leikjum nálguðumst við
þetta takmark okkar jafnt og þétt
og þegar upp var staöið höfðum við
meira að segja gert betur en að ná
níunda sætinu. Okkur tókst að
komast í það tíunda. Þetta er glæsi-
legur árangur og sannar enn einu
sinni að strákarnir okkar eiga
heima meðal þeirra bestu.
Fyrir keppnina var búið að segja
þjóðinni að níunda sætið væri það
sæti sem íslendingar kepptu að.
Eftir marga góða tapleiki vaknaði
þjóðin eldsnemma á laugardags-
morgni til að fylgjast með lokavið-
ureigninni gegn Frökkum. Okkur
tókst einnig að tapa þeim leik og
enda þótt svefndrukknir sjón-
varpsáhorfendur og nokkrir leik-
menn að auki hefðu verið heldur
súrir í bragði í leikslok kom fljót-
lega í ljós þennan örlagaríka laug-
ardag að tapið gegn Frökkum veitti
okkur rétt til áframhaldandi þátt-
töku í heimsmeistarakeppninni.
Enda skildu útlenskir handbolta-
stjórar ekkert í þessari ógleði ís-
lendinga. Strákarnir okkar lentu í
tíunda sæti, en það er einmitt sætið
sem veitir rétt til þátttöku í næstu
heimsmeistarakeppni.
Það var afar snjallt herbragð hjá
sljórnendum Handboltasambands-
ins að láta strákana okkar halda
að þeir þyrftu að sigra í leiknum.
Fyrir vikið voru þeir taugaóstyrkir
og undir miklu álagi og þannig
tókst að láta hðið leika þannig
handbolta að útilokað var að þeir
gætu tekið upp á því að sigra.
Þetta er auðvitað frábær frammi-
staða hjá strákunum okkar. Það
eru ekki margir íþróttamenn sem
leika það eftir að taka þátt í erfiðu
móti, tapa flestum leikjunum, en
ná samt settu marki. Hvað hefði
eiginlega gerst ef strákamir hefðu
tapað leiknum gegn Austur-þjóð-
veijum? Samkvæmt flóknum regl-
um Alþjóðahandknattleikssam-
bandsins hefðu okkar menn senni-
lega lent í úrshtum! Að minnsta
kosti er alveg ljóst að ósigrar koma
ekki að sök í svona harðri keppni.
Því fleiri því betra.
Þegar búið var að taka íslensku
strákana á taugum til að þeir töp-
uðu leiknum tilkynnti formaður
Alþjóðahandknattleikssambands-
ins að ísland hefði unnið sér rétt
til að vera áfram A-þjóð. Þessari
tílkynningu var tekið með miklum
fógnuði og við vorum A-þjóð á leið-
inni heim, sem létti auðvitað heim-
fórina. Þá fara íjölmiðlar að hnýs:
ast í þetta mál og koma því til leið-
ar að Alþjóðahandknattleikssam-
bandið dregur fyrri yfirlýsingar
sínar til baka og segir að íslending-
ar séu B-þjóð. Og þannig standa
málin þegar síðast fréttist.
Þetta er fjölmiðlum líkt. Og er það
ekki týpiskt aö loksins þegar við
erum búnir að vinna okkur rétt
með því að tapa nógu mörgum
leikjum þá skulu menn grafa upp
einhverjar ómerkilegar reglur til
að bola okkar frá verðskulduðum
úrslitum? Það er sem sé verið að
útiloka ísland með bolabrögðum.
Árangur okkar manna var sér-
deilis glæsilegur þegar haft er í
huga að íslenska liðið var í óstuði,
markmennirnir vörðu lítið og
burðarásar liðsins eru orðnir
þreyttir á handbolta og voru bara
með í gustukaskyni. Og svo haföi
íslenska liðið svo lélegan þjálfara
að hann var rekinn strax og keppn-
inni lauk. Hins vegar er það rangt
að reka þjálfara sem nær þeim ár-
angri aö tapa nógu mörgum leikj-
um til að komast áfram í næstu
keppni. Það er ekki á færi nema
úrvalsþjálfara að stilla upp hði sem
tapar með sæmd og væri búið að
tryggja sig í næstu keppni ef ekki
kæmu til reglugerðir sem eru okk-
ur andsnúnar. Það er ekki strákun-
um og ekki þjálfarnum að kenna
að við erum B-þjóð. Þaö er reglun-
um að kenna.
Dagfari