Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1990, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1990, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 1990. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 1990. 17 íþróttir Sport- stúfar Ólafur H. Ólafsson, Erninum, varö ís- landsmcistari öldunga 1990 f borötennis en íslandsmótið var haldið í Ásgaröi í Garðabæ fyrr í þessum mánuöi. Hann sigraði Jóhann Ö. Sigur- jónsson í úrslitaleik. Emil Páls- son og Þóröur Þorvarðarson, Eminum, urðu í þriðja til fjórða sæti. í tvíliðaleik öldunga sigruðu Ragnar Ragnarsson og Gunnar Hall, Erninum, Jóhann Ö. Sigur- jónsson og Þóröur Þorvarðarson, Erninum, urðu í öðru sæti, og Ólafur H. Ólafsson og Birkir Gunnarsson, Erninum, í þriðja sæti. Mikill áhugi á keilu iJapan Kristján Bemburg, DV, Belgíu: Heirasmeistaramótið í keilu hefst í Thailandi innan skamms og í tengslum viö það hafa borist fréttír af miklum keiluáhuga í Japan. í Tokýo, höfuðborg lands- ins, er staersta keiluhöll í heimi en þar er aö finna 504 brautir á fjórum hffiðum. Þar er mikið spil- að og þegar höllin er opnuð, klukkan sex á morgnana, er jafn- an biöröö við dymar. Margir Jap- anir hafa nefnilega tekið upp þann síð að hefja daginn á keilu- spili áður en þeir mæta í vinnuna. Mót í minigoffi á laugardaginn Mót í minigolfi, opna Coca-Cola mótiö, verður haldiö i Mínígolfi, Ármúla 20 i Reykjavík, á laugar- daginn kemur, 17. mars. Um er að ræða holukeppni, tveir og tveír dregnir saman og sá sem tapar fellur úr keppni. Mótið er opið öllum og tekið er við skrán- ingu á staðnum og i síma 678120. Arsenal-klúbburinn með Lundúnaferð Arsenal-klúbburinn á íslandi gengst fyrir sinni árlegu fcrö til London í vor, dagana 27. apríl til 3. maí, og er þetta sjöunda áriö I röð sem klúbburinn fer utan. Fylgst verður með tveimur leikj- um Arsenal á Highbury, gegn Millwall og Southampton, og ennfremur sjá ferðalangarnir úr- slitaleik deildabikarsins milli Nottingham Porest og Oldham, þar sem Þorvaldur Örlygsson gæti orðið í sviðsljósinu. Upplýs- ingar eru gefnar í sima 98-22499 á kvöldin eöa á ferðaskrifstofunni Ratvís í sima 91-641522. Haan til Danmerkur eða KV Mecheien? Þórarirm Skjurðssan, DV, V-Þýskalandi: Arie Haan, þjálfari vestur- þýska knattspyrnuliösins Stuttg- art, hefur fengiö nokkur tilboö aö undanfórnu. Til dæmis frá danska knattspyrnusambandinu, þar sem honum stendur til boða að þjálfa landsliö Dana, og frá belgiska toppliðinu KV Meche- ien. En Haan er samningsbund- inn Stuttgart til vorsins 1991 og ef hann vill losna fyrr þarf að greiða Stuttgart þá upphæð sem samin var um sem þjálfaralaun hans fyrir tímabilið 1990-91. Mjódd vinnurenn Snóker í Mjódd jók enn forskot sitt í 1. deildar keppni Samtaka snókerstofa með því aö sigra Bill- iard-stofuna, Klapparstíg, 4-2, í 5. uraferð. Á meöan tapaöi Fjarð- arbilliard fyrír Ingólfsbilliard, 1-5. Kópavogur sigraöi Selfoss, 5-1, Suðurnes unnu Snókerhöl- lina, 4-2, og Faxafen 12 vann BS Billiard, 5-1. Snóker í Mjódd er þá með 24 vinninga, Fjarðarbill- iard og Ingólfsbilliard með 19 hvor en Billiardstoían Klappar- stíg er í (jórða sæti með 16. • Liam Brady ætlar að leggja • Tony Woodcock verður að hætta skóna á hilluna eftir tímabilið. knattspyrnuiðkun vegna meiðsla. Stúfar frá Englandi Gunnar Sveinbjömsson, DV, Englandi: Tony Woodcock, fyrrum leikmaður Nottingham Forest og Arsenal, hefur þurft að leggja skóna á hilluna, 34 ára gamall. Woodcock hefur að und- anförnu verið á mála hjá vestur- þýska liðinu Fortuna Köln en sér- fræðingar hafa nú ráðlagt honum að hætta allri knattspyrnuiökun í kjöl- far alvarlegra ökklameiðsla. Nott. Forest vill halda Des Walker Nottingham Forest leggur nú allt kapp á að halda í varnarmanninn Des Walker, sem á eftir átján mánuði af samningi sínum við félagiö. Forest gerir sér vonir um að Walker skrifi undir nýjan samning áður en úrslita- leikurinn um deildarbikarinn fer fram. Walker þykir nú líklegastur til að verða valinn knattspyrnumaður ársins í Englandi og hefur að undan- förnu verið undir smásjá ítalskra Uða eins og reyndar félagi hans Nigel Clough. Stuart Pearce hefur enn- fremur verið boðinn nýr samningur en á eftir að skrifa undir. Síðasta tímabilið hjá Liam Brady Liam Brady, leikmaður West Ham, hefur ákveðið að leggja skóna á hill- una að loknu þessu keppnistímabih. Síðasti leikur Bradys verður svokall- aður ágóðaleikur fyrir hann sjálfan þegar Finnar sækja íra heim í maí. Brady lék á árunum hjá Arsenal og fór síðan til Juventus þar sem hann vann ítalska meistaratitilinn í tví- gang. West Ham og Millwall vilja fá Roberts West Ham og Millwall eru nú bæði á höttunum eftir harðjaxhnum Gra- ham Roberts sem er kominn upp á kant við forráðamenn Chelsea. West Ham telur Roberts heppilegan leik- mann til að koma liðinu í 1. deild en Millwall til að halda sér þar. Fram meistari -12. flokki karla í handknattleik Framarar tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn í 2. ílokki karla í handknatt- leik um helgina er úrshtatörnin fór fram í Garðabæ. Framarar tryggðu sér titilinn með því að vinna Gróttu í sínum síðasta leik, en jafntefli í þeim leik hefði dugað Val til að hirða efsta sætið. Mikil spenna var í upphafi leiksins og var nokkuð um mistök hjá leikmönn- um beggja liða. Framarar náðu fljótlega forustunni en lið Gróttu, sem haföi að litlu að keppa, hleypti Frömurum ekki langt frá sér. Staðan í hálfleik var, 8-5, Fram í vil. Framarar byrjuðu síðari hálfleikinn af miklu kappi og fyrstu tíu mínútur seinni hálfleiksins gerðu þeir hvert markið á fætur öðru og breyttu stöðunni í 15-7 sér í vil. Var þar með íslandsmeistaratitilhnn í höfn en síðustu mínút- urnar skiptust Uðin á að skora og endaði leikurinn með stórsigri Framara, 18-10, og var fögnuður þeirra mikill er flautað var til leiksloka. Valur varð í 2. sæti, jafn Fram að stigum, en Valur tapaði aðeins fyrir Fram, 15-16, í æsispennandi leik og var sigurmarkið skorað er þijár sekúnd- ur voru til leiksloka. Nánar verður greint frá úrslitatörninni í 2. flokki karla í DV um næstu helgi. -BS/HR • íslandsmeistarar Fram í 2. flokki karla eftir sigurinn á sunnudaginn. DV-mynd S ÍBR _________________________ KRR REYKJAVÍKURMÓT MEISTARAFLOKKUR KARLA í KVÖLD KL. 20.30 ÍR - KR Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL Sport- stúfar Þijú 1. deildar lið féllu úr frönsku bikar- keppninni á laugar- daginn en þá var leikin 2. umferð. Sjö lið úr 1. deild féllu strax í 1. umferð fyrir liðum úr 2. deild. Avignon, úr 2. deild, sem vann Monaco í 1. umferð, sigraði Brest, 0-1, og Valenciennes vann Toulon eftir vítaspyrnukeppni. Þá vann Nantes sigur á Auxerre, 2-1, í einu viöureign 1. deildar liða til þessa í keppninni. Borde- aux sigraði Saint-Lo, 0-8, og Mar- seille vann Ajaccio á Korsíku, 1-3. Stórsigur PSV PSV Eindhoven styrkti á ný stöðu sína í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á sunnudaginn með því að sigra Sparta, 0-4, í Rotterdam. Á meðan mátti Ajax sætta sig við markalaust jafntefli við Volendam á heimavelli og Roda tapaði 0-1 fyrir Fortuna Sittard. Staða efstu hða: PSV........25 15 5 5 81-30 35 Ajax.......24 13 7 4 48-19 33 Roda.......25 12 8 5 38-27 32 Twente.....24 11 9 4 32-28 31 Vitesse....25 11 8 6 40-23 30 Feyenoord vann Willem II, 0-1, og er komið upp í 12. sætið eftir að hafa verið við botn deildarinn- ar allt keppnistímabihð. Kanarunnu Finna Bandaríkjamenn, sem mæta ís- lendingum í St. Louis í næsta mánuði, sigruðu Finna, 2-1, í vin- áttulandsleik í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var í Tampa í Flórída. Paul Caligiuri og Bruce Murray gerðu mörk bandaríska liðsins en Kimmo Tarkkio svar- aði fyrir Finna, jafnaði þá, 1-1. Örlagaríkt að leika viðhundinn Kristján Bemburg, DV, Belgíu: Belgíski knattspyrnumaðurinn Marc Vandenhnden, sem leikur með Anderlecht og belgíska landsliðinu, varð fyrir kyndugum meiðslum í síðustu viku. Hann var úti að ganga með hundinn sinn og ætlaði að kasta spýtu sem sá ferfætti átti að sækja en ein- hverra hluta vegna fór spýtan í auga Vandenlindens. Sjónhimn- an skaddaðist og ljóst er að hann Ieikur ekki knattspyrnu strax. Kaupir Anderlecht Johnny Bosman? Kristján Bemburg, DV, Belgiu: Talið er líklegt að Anderlecht festi kaup á hollenska landsliðs- manninum Johnny Bosman fyrir næsta keppnistímabil en hann leikur nú með KV Mechelen. Aad de Mos, þjálfari Anderlecht, sem áður þjálfaði Mechelen, hefur sagt að hann vilji fá Bosman til sín fyrstan allra. Anderlecht fær svigrúm til að kaupa útlendinga fyrir næsta tímabil því að þá verða bæði Keshi og Van Tigge- len búnir að leika fimm ár í Belg- íu og teljast ekki lengur til er- lendra leikmanna. Sex mörk Barcelona Barcelona vann stórsigur á Celta, 6-0, í spænsku 1. deildinni um helgina og komst með því í annað sætið. Roberto skoraði 3 mark- anna, Amor, Laudrup og Sahnas eitt hver. Real Madrid vann Real Sociedad, 3-0, með mörkum frá Vazquez, Sanchez og Hierro. At- letico Madrid mátti sætta sig við markalaust jafntefli gegn Castell- on á útivelli og Valencia gerði jafntefli viö Osasuna á útivelli, 2-2. Real Madrid er með yflr- burðaforystu, 48 stig, Barcelona, Atletico Madrid og Valencia hafa 38 stig hvert og Real Sociedad 35. 11 Cl Idl y frá Bandaríkjunum sést hér fagna heimsmeistaratitlinum í listhlaupi kvenna á skautum en heimsmeistaramótid fór fram í Halifax í Kanada um síöustu heigi. Fyrrverandi heimsmeistari, Midori Ito frá Japan, varð að láta sér silfurverðlaunin duga eftir mjög harða og jafna keppni við bandarisku stúlkuna. Símamynd Reuter Verður Chris Behrends stigakóngur í körfu? - UMFG og ÍR leika 1 kvöld 1 lokaumferð úrvalsdeildar Allt bendir til þess að Chris Behrends, þjálfari og leikmaður Vals, verði stiga- kóngur úrvalsdeildarinnar í körfuknatt- leik. Þegar öll lið eiga eftir einn leik, nema Þór og Reynir sem hafa lokið keppni, er Behrends með 38 stiga fórskot á Keflvík- inginn Guðjón Skúlason. Tíu stigahæstu leikmenn deildarinnar eru þessir: Chris Behrends, Val...-............677 Guðjón Skúlason, ÍBK.............. 639 David Grissom, Reyni...............596 Guðmundur Bragason, Grind.........570 Patrick Releford, UMFN.............569 Dan Kennard, Þór...................548 Valurlngimundarson, Tind...........536 Jonathan Bow, Haukum...............532 Tommy Lee, ÍR......................514 Bo Heiden, Tindastóli..............491 • Fyrsti leikurinn í lokaumferð deildar- innar fer fram í Grindavík í kvöld en þá mæta heimamenn ÍR-ingum klukkan 20. Þrír síðustu leikirnir eru á fimmtudags- kvöld en síðan tekur við úrslitakeppnin um íslandsmeistaratitilinn þar sem KR mætir Grindavík og Keflavík mætir Njarðvík í undanúrslitum. -VS íþróttir Ragnar til KR-inga Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Ragnar Margeirsson knattspyrnu- maður hefur ákveðið að ganga til liðs við KR og leika með Uðinu í 1. deild í sumar. Eins og DV skýrði frá fyrir skömmu var Ragnar að íhuga að ganga til liðs við KR eða 2. deildar lið Grindavíkur en nú hefur hann sem sagt ákveðið að leika með vesturbæjarliðinu. Ragnar er því þriðji Keflvíkingur- inn sem fer í KR því fyrir eru þeir Gunnar Oddsson og Sigurður Björgvinsson sem báðir léku með Keflavík fyrir nokkrum árum. „Ég er mjög feginn aö þessi mál eru komin á hreint og ég hlakka mikið til að spila með KR í sumar. Ég hafði alltaf hug á að spila í 1. deildlnni þar sem ég stefni á að leika með landsliðinu og gaman að vera kominn til KR-inga þar sem ég þekki vel til nokkurra leik- manna í liðinu,“ sagði Ragnar Mar- geirsson í samtah við DV í gær- kvöldi. Ragnar Margeirsson lék með bik- armeisturum Fram á síðasta sumri og fór síðan til Austurríkis þar sem hann lék með 1. deildar liðinu Sturm Graz fram að áramótum. • Ragnar með KR í Margeirsson sumar. leikur Verðum við C-þjóð á morgun? - ísland áfram B-þjóð. Forseti IHF hringdi og bað íslendinga afsökunar Eftir mikla óvissu, japl, jaml og fuður er það loksins orðið ljóst að íslenska landsliðiö í handknattleik verður að taka þátt í B-keppninni í Austurríki árið 1992. Það er hreint með ólíkindum hvernig mál hafa þróast frá því að leikur íslendinga og Frakka var flautaður af á laugar- dagsmorgun í Prag. Forráðamenn HSÍ eru ekki öfunds- verðir þessa dagana. Eftir að Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, hafði lýst því yflr í samtali við blaða- mann DV um síðustu helgi að ísland væri áfram A-þjóð og haft það eftir forseta IHF, aðalritara sambandsins og formanni tækninefndar IHF, kom í ljós að blessaðir mennirnir voru bara að plata. Forseti IHF bað íslend- inga afsökunar á öllu saman. Öld- ungarnir hjá IHF vissu greinilega ekki mikið í sinn haus. íslenska þjóð- in hafði tekiö hluta af gleði sinni á ný og leiðin virtist greiðfær til Sví- þjóðar á HM 1993 er endanlega var gengið fram af mönnum og konum í gær. Handbolti heimsins er forystulaus Það hefur komið fram á síðustu dög- um að þeir menn sem sitja í forsvari fyrir Alþjóða handknattleikssam- bandið, IHF, eru ekki starfi sínu vaxnir. IHF-maflan svokallaða hefur enn einu sinni gert í buxurnar og auðtrúa HSÍ-menn fengið að súpa seyðið af því. Er nú svo komið að álit almennings á handknattleik hef- ur beðið hnekki enda handbolti heimsins greinilega forystulaus í augum flestra. C-þjóð á morgun? Fram hefur komið mikil gagnrýni á HSÍ í kjölfar HM í Tékkóslóvakíu. Og öruggt má telja að rólegra er á mörgum bæjum þessa dagana. Erfitt er þó að koma auga á sök HSÍ á at- burðarás síðustu daga. Hjá HSÍ trúðu menn greinilega mönnum sem afls ekki var treystandi. Og það er háai- varlegt mál fyrir íþróttagrein eins og handknattleikinn þegar æðsti maður hreyfingarinnar í heiminum verður uppvís að slíkum þekkingar- skorti sem raun ber vitni. Hvaö gera þessir herrar næst? Verða íslending- ar kannski orðnir C-þjóð á morgun, hver veit? Hinu má þó ekki gleyma að slakur árangur landshðsins á HM á dögunum er auðvitað ástæðan fyrir öllum þessum vangaveltum um A- eða B-þjóð síðustu daga. Bítum á jaxlinn Það er sem sagt staðreynd að ísland er B-þjóð í handknattleik og taka verður því auðvitað sem hverju ööru hundsbiti. Ekki er um annað að ræða en láta atburði síðustu daga lönd og leið og læra af mistökunum. Mikil- vægast nú er að finna réttan eftir- mann Bogdans Kowalczyk og hætta öllu rausi um endurráðningu hans eða áframhaidandi þjálfun landsliðs- ins. Bogdan á stóran þátt í óförunum í Tékkóslóvakíu ekki síður en leik- menn íslenska liðsins. Hann hefur því fyrirgert rétti sínum til áfram- haldandi starfa með landsliðið. Bogd- an er snjall þjálfari en hann gerði mjög afdrifarík mistök í Tékkósló- vakíu. Hvað gerlr HSÍ? Eftir að ísland hafnaði í 10. sæti í Tékkóslóvakíu kemur upp sú spurn- ing hvort það sé í raun slakur árang- ur að eiga 10. besta landslið heims í dag. Til hvers getum við í raun ætl- ast af okkar landshðsmönnum? Eru gerðar of miklar kröfur til landsliðs- ins? HSÍ gerir miklar kröfur til al- mennings og reynir sífellt aö seilast í buddur landsmanna og það er ekki nema eðlilegt að miklar kröfur komi á móti frá almenningi. Bogdan sagði eftir keppnina að ís- lendingar hefðu gert sér alltof miklar vonir um árangur í Tékkó. Sjálfur spáði hann íslandi sigri gegn Kúbu og Júgóslövum og jafntefli gegn Spánverjum. Jón Hjaltalín Magnús- son spáði íslenska liðinu sigri í öllum leikjunum í forriðlinum í Zlín. Var því ekki eðlilegt að aimenningur væri bjartsýnn á gott gengi á HM? Stefán Kristjánsson Knattspyrnuskóli KB í Belqíu • Lubanski, hinn frægi leikmaður á árum áður, kennir við skolann. Knattspymuskóh KB í Lokeren í Belgíu, sem tók til starfa á síðasta ári, verður með sitt fyrsta námskeið á þessu ári dagana 19.-27. mai. Skól- inn er fyrir efnilega íslenska knatt- spyrnumenn, 15 ára og eldri, og' er íjöldi þátttakenda að þessu sinni tak- markaður við 20. Aðalkennarar í skólanum eru þjálfarar 1. deildar hðs Lokeren, yfir- þjálfarinn Emi Aeimaianthunis og aðstoðarþjálfarinn Wlodek Lu- banski, en Lubanski, sem er pólskur, þótti á sínum tíma einn snjallasti knattspyrnumaður í Evrópu og lék með Lokeren þegar Arnór Guðjohn- sen var að hefla atvinnuferil sinn hjá félaginu fyrir rúmum áratug. Æft er tvisvar á dag, og auk þess eru sýndir leikir á myndböndum, haldnir fyrirlestrar um meiðsli og yfirsjúkraþjálfari Lokeren leggur sérstaka áherslu á teygjuæflngar. í lokin er útnefndur besti leikmaður skólans, og daginn fyrir brottför fylgjast nemendur með úrslitaleik belgisku bikarkeppninnar á Heysel- leikvanginum í Brússel. Það er íþróttadeild Samvinnu- ferða-Landsýnar sem er umboðsaðili skólans hér á landi og veitir um hann nánari upplýsingar. Tvö námskeið voru haidin á síðasta ári og tókust þaumjögvel. -VS Selfyssingar eru nú nánast öruggir með sæti í 1. deild eftir sigur á Njarðvíkingum, 29-32, í 2. deild á íslandsmótinu í handknattleik. Liðið á aðeins eftir að leika gegn UBK á heimavelli og með sigri eða jafntefli leikur Selfoss í 1. deild. í sömu deild töpuðu Haukar enn einum leiknum nú gegn Ármenn- ingum sem þegar eru fallnir í 3. deild. Ármann sigraði, 19-18. í 1. deild kvenna gerðu yíkingur og Grótta jafntefli, 19-19. í 3. deild karla voru tveir leikir, B-lið Gróttu sigraði B-lið Ármanns, 26-33, og B-lið Fram sigraði B-lið UBK í miklum markaleik, 38-29. -GH Siggi skoraði Sigurður Grétarsson skoraði mark beint úr aukaspyrnu þegar Luzem og St. Gallen skildu jöfn, 2-2, í úrslitakeppninni um svissneska meistaratitilmn í knattspymu um helgina. Hann kom Luzern yflr, 2-1, en Sl. Gallen, sem hafðí misst mann af leikvelli, náði að jafna úr vítaspyrnu sex mínútum fyrir leikslok. „Það var svekkjandí að ná ekki báðum stigun- um því þá stæðum við vei aö vígi,“ sagöi Sigurð- ur í samtali viö DV í gær, Neuchatel Xamax vann Lugano, 0-5, á úti- velli og hefur náð þriggja stiga forystu. Xamax hefur 19 stig, en Luzern 14. -VS Þjálfar Kristján FH? Svo kann að fara að Kristján Ara- son, landsliðsmaður í handknatt- leik, þjálfi 1. deildarlið FH næsta vetur ásamt félaga sínum, Þorgils Óttari Mathiesen, sem nú þjálfar liðið. Kristján, sem nú leikur með Teka í spænsku úrvalsdeildinni, hefur mikinn hug á að flytja heim eftir sex ára dvöl í Vestur-Þýska- landi og á Spáni. Kristján er rótgró- inn FH-ingur og lék meö Hafnar- fjarðarliðinu þar til hann fór í at- vinnumennsku fyrir 5 árum. -VS • Kristján Arason leikur líklega á ný með FH næsta vetur. Reykjavíkurmótið í knattspyrnu hefst i kvöld á gervigrasinu í Laug- ardal. Þaö eru ÍR og KR sem rnæt- ast í fyrsta leik og héfst liann klukkan 20.30. Næsti leikur er síð- an á fimmtudaginn en þá eigast við Fylkir ug Leiknir. Þessi fjögur félög leika saman í riðli enfimmta liðið í honum er Vík- ingur. í hinum riölinum eru Fram Og Þróttur, sem mætast á sunnu- dagskvöldið, og ennfrenmi' Valur og Ármann. -VS • Pétur Pétursson og KR-ingar unnu Reykjavíkurbikarinn i fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.