Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 15. MARS 1990. Útlönd Simamynd Reuter Kosningabaráttan á skrið í Grikklandi Andreas Papandreou, leiðtogl grískra sósíalista. Sósíalistar og kommúnistar í Grikklandi hafa tekið höndum saman í kosningabaráttunni og stofnað kosningabandalag. Þessi ákvörðun gæti hæglega orðið til þess að hægri menn fái ekki hreinan meirihluta á þingi í kjölfar fyrirhugaðra kosninga, þann 8. aprd næstkomandi. Yrði það í annað sinn á stuttum tíma að vinstri öflin meina hægri mönnum hreinan þingmeirihluta eftir kosningar. Það voru kommúnistar sem lýstu því yflr að þeir myndu styðja sameig- iniegt framboð með sósíalistaflokki Andreasar Papandreous í þeim kjör- dæmum þar sem um eitt sæti er að keppa. Slík kjördæmi eru aðeins fimm. Nýr leiðtogi kommúnista í Mongólíu Forysta kommúnistaflokks Mongólíu, stjórnarflokks landsins, kaus í gær nýjan leiðtoga flokksins, umbótasinnan Gombojavyn Ochirbat. Ör- fáum minútum áður en kosning fór fram hafði forysta flokksins fallist á afsögn fyrrum leiðtoga, Zhambyn Batmunkh, sem og allra félaga í stjórn- málaráði flokksins. Á fundi miöstjórnar flokksins í gær var kosið nýtt stjórnmálaráð flokks- ins. Fastlega er búist við að miðstjórnarmenn rauni leggja til að valdaein- ræði flokksins veröi afnumið og feti þar með í fótspor flestra annarra kommúnistarikja, þar á meðal Sovétríkjanna. Níu ára móðír Níu ára tyrknesk stúlka ól svein- barn fyrr í vikunni. Telpunni, sem er yngsta móðir sem vitað er um í Tyrklandi, líður vel og barninu, sem tekiö var meö keisaraskurði, heilsast einnig vel. Móöirin unga var komin átta mánuði á leið þegar iárið var mcð hana á sjúkrahús og la;knarnir ákváðu að taka barniö með keis- araskurði. Aö sögn læknisins, sem tók á móti barninu, er ekki vitað um að yngri stúlka hafl alið barn á Tyrklandi. Hann kvaðst þó tclja að annars staðar hafi mun yngri stúlka, fimm ára gömul, alið barn. Þessi níu ára gamla tyrkneska Lögregla á Tyrklandi kannar nú stúlka eignaðist bam nýverið en með hvaða hætti telpan varð þung- hún er yngsta móðir sem vitað er OÖ. urn ÍTyrklandi. Simamynd Reuter Efnahagslegt sjálfstæði gæti reynst erfitt Það gæti tekið langan tíma fyrir Litháa, sem á sunnudag lýstu því yfir að Litháen væri fullvalda og frjáls þjóð, að slíta efnahagsleg tengsl lýðveld- isins við ríkjasamband Sovétrikjanna. Samkvæmt nýlegri könnun á veg- um litháiska þingsins framleiða Litháar, sem eru alls 3,6 milljónir, nægan mat til að fæöa alla íbúa lýðveldísins en eru aftur á móti háðir hinum lýöveldum Sovétríkjanna hvað varðar olíu til að halda iðnaði þess gang- andi. Ef stjórnvöld í Moskvu tækju þá ákvörðun á morgun aö setja Litháa í efnahagsbann myndí framleiðslamargra útflutningsverðmæta lýðveldis- ins stöðvast. Efnahagur Litháens hefur verið samþættur efnahag ríkja- sambandsins alveg frá árinu 1940 þegar lýðveldið var innlimað i Sovétrik- in. „Ég er fullviss um að flóknasta málefnið verði varðandi efnahagslíf- ið,“ sagði Algirdas Brazauskas, leiðtogi kommúnista i Litháen. Sovésk yfirvöld hafa gefið i skyn að Litháar þurfi aö borga fyrir sjálf- stæði sitt vegna fjárfestinga og lána frá Moskvustjórninni til yfirvalda í Litháen. Halli á viðskiptum Litháen viö hin fjórtán lýðveldi Sovétríkj- anna nemur 1,4 milljörðum rúbla eða sem svarar til 2,3 milljörðum dollur- um, að sögn Brazauskas. Að auki hafa embættismenn í Moskvu látið að þvi liggja að ef Litháar hyggjast gera alvöru úr sjálfstæöisyfirlýsingu sinni þurfi þeir að greiða fyrir ýmislegt annað, s.s. fyrir tjárfestingar Moskvu i lýðveldinu, alls sem svarar til um um 27 milljörðum dollara. Yngsti forseti Brasilíu I dag tekur Fernando Collor de Mello við forsetaembættlnu í Brasillu og verður þar með yngsti maður til að gegna þvl embættl. Margir íbúar Símamynd Reuter DV Sovétríkin: Gorbatsjov kjörinn forseti Áður en gengið var til atkvæða um forseta urðu snörp orðaskipti á þingi milli stuðningsmanna tillagnanna um aukin völd til forseta og þeirra sem töldu að tillögurnar færðu þjóð- arleiðtoganum of mikil völd. Á þing- inu mátti heyra einhverja þá harð- orðustu gagnrýni sem Gorbatsjov hefur sætt á fimm ára valdatíma sín- um. Nokkrir þingfulltrúar lögðu ábyrgðina á slæmu ástandi í efna- hagslífinu á herðar forsetanum nýja. „Eftir fimm ár af perestrojku er enn ekkert hægt að kaupa,“ sagði Anna Komarovskaya kennari. Hið nýja embætti er mun valda- meira en forsetaembætti Sovétrikj- anna hefur verið hingað til. Forseti hefur nú framkvæmdavald í fyrsta sinni í sögu Sovétríkjanna og eru völd hans á við þau sem forsetar Bandaríkjanna og Frakklands hafa. Hann getur m.a. sett á neyðarlög, herlög, lýst yfir stríði, beitt neitunar- valdi á þingi og undirritað alþjóða- samninga. Mikhail S. Gorbatsjov hefur verið kjörinn forseti Sovétríkjanna með 1.329 atkvæðum gegn 495 að því er fram kom í fréttum Tass, hinnar op- inberu fréttastofu Sovétríkjanna, í morgun. Atkvæðagreiöslan, sem var leynileg, fór fram á fulltrúaþingi Sov- étríkjanna í gærkvöldi eftir að þing hafði fellt tillögu um að forseti yrði kosinn af þjóðinni. Gorbatsjov var einn í framboði til þessa embættis sem felur í sér mun meiri völd en forseti Sovétríkjanna hafði áður. Júrí Osipyan, formaður kjörnefnd- ar fulltrúaþingsins, tilkynnti um úr- slit atkvæðagreiðslunnar við upphaf þingfundar í morgun. „1 samræmi við úrslitin lýsi ég því hér með yfir að Gorbatsjov hefur verið kjörinn forseti," sagði formaðurinn þing- fundi en honum var sjónvarpað beint. Eftir að úrslit lágu fyrir sór Gorbatsjov embættiseið forseta. Gorbatsjov hlaut mun fleiri en þau Mikhail Gorbatsjov hefur verið kjörinn forseti Sovétríkjanna. fimmtíu prósent atkvæða þing- manna sem hann þurfti til að hljóta kosningu. Alls sitja 2.245 fulltrúar á Símamynd Reuter þingi en forsetinn hlaut 1.329 at- kvæði. Auk Gorbatsjovs voru forsætisráð- herra landsins, Nikolai Ryzhkov, og innanríkisráðherrann, Vadím Ba- katín, voru einnig útnefndir til emb- ættisins á þingi í gærdag. Þeir drógu framboð sín aftur á móti til baka og lýstu yfir stuðningi við Gorbatsjov. Moskvubúi leitar fregna af fundi fulltrúaþingsins. Simamynd Reuter Fyrir atkvæðagreiðsluna bar Gor- batsjov titilinn forseti, var forseti þingsins, og hafði þar með skyldur þjóðarleiðtoga. En völd hans voru mun takmarkaðri en nú er gert ráð fyrir að hann hafi. Gorbatsjov mun útnefna forsætisráðherra fljótlega en því emþætti gegnir Ryzhkov nú. Ryzhkov hótaði að segja af sér í gær í kjölfar ásakana um aðild að ólög- legri vopnasölu. Hann sagði að stjórn sín gæti vart setið áfram undir slík- um árásum. Reuter Eldur í líbýskri verksmiðju Yfirvöld í Líbýu staðfestu í morgun að eldur hefði komið upp í verk- smiðju í Rabta, um áttatíu kílómetra suður af Trípólí, höfuðborg Líbýu, en í gærkvöldi skýrðu bandarísk yfirvöld frá að eldur hefði kviknað í verksmiðjunni. Bandaríkin hafa sak- að ráðamenn í Líbýu um að fram- leiða efnavopn í umræddri verk- smiðju og samkvæmt heimildar- mönnum í Vestur-Þýskalandi hafa fimmtíu smálestir af sinnepsgasi ver- ið framleiddar þar. Þessu vísa líbýsk yfirvöld á bug. Bandarískir embættismenn höfðu það eftir stjórnarerindrekum í Líbýu að landamærum Líbýu hefði veriö lokað. Þetta vildi talsmaður hinnar opinberu fréttastofu, Jana, ekki stað- festa í viðtali við fréttamann Reuter- fréttastofunnar í nótt. í fréttum ABC, bandarískrar fréttastofu, var haft eftir ónafngreindum heimildar- mönnum að verksmiöjan hefði brunnið til kaldra kola. Talsmaður Jana-fréttastofunnar sagði að eldurinn hefði kviknað í gærmorgun. Aðspurður um kring- umstæðurnar sagðist hann ekki vilja útiloka „skemmdarverk af hendi Bandaríkjanna eða ísraels". í síðustu viku sökuðu Bandaríkin stjórnvöld í Líbýu um að framleiða efnavopn í verksmiðjunni í Rabta og útilokuðu ekki að hervaldi yröi beitt í landinu. En Bush Bandaríkjaforseti hefur neitað að Bandaríkin eigi hér aðild að. Hið sama gildir um ísraelsk Stjórnvöld. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.