Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Síða 9
I i'*f' .®EíJ4 ætiÆííÆJ'ÖÆMH FIMMTUDAGUR 15. MARS 1990. Kosningaspjald í Austur-Berlín meö mynd af stjórnmálamanninum Wolf- gang Schnur sem sagði af sér í gær I kjölfar ásakana um samvinnu hans við a-þýsku öryggislögregluna. Simamynd Reuter Viðurkenndi samvinnu við ör- yggislögregluna „Þetta er mannlegur harmleikur sem bara er hugsanlegur í Austur- Þýskalandi." Þannig tjáði háttsettur maður í austur-þýska flokknum Lýð- ræðisvakningu, einum helsta hægri flokknum í Austur-Þýskalandi, sig um þá staðreynd að leiðtogi flokks- ins, Wolfgang Schnur, hefði unnið fyrir öryggislögreglu kommúnista- flokksins. Lýðræðisvakning valdi lögfræð- inginn Schnur sem leiðtoga flokksins í október á síðasta ári. Hann var þekktur veijandi andófsmanna. í síðustu viku var því haldið fram, fyrst í vestur-þýskum fjölmiðlum, að Schnur hefði unnið fyrir a-þýsku öryggislögregluna. Hann og flokks- bræður hans vísuðu þessum ásökun- um harðlega á bug. Það kom oft fyrir að stjórnarandstæðingar í A-Þýska- landi sökuðu Schnur um að vinna gegn þeim og hann hefur einnig af öðrum ástæðum verið grunaður um samstarf við gömlu stjórnina. Meðal annars hefur það vakið grunsemdir að hann á margar fasteignir. Schnur hefur legið á sjúkrahúsi vegna taugaáfalls en í gær viður- kenndi hann loks að ásakanirnar væru á rökum reistar og þess vegna myndi hann segja af sér. Sagðist Schnur hafa verið neyddur til sam- starfs við öryggislögregluna og látið henni í té upplýsingar í fimmtán ár. Hann fullyrti að þær upplýsingar hefðu ekki skaðað neinn. Kohl, kanslari V-Þýskalands, hafði bundið miklar vonir við Schnur og hafði flokkur Kohl stutt Lýðræðis- vakningu. Ef hægri menn tapa í A- Þýskalandi gæti það haft áhrif á vel- gengni flokks Kohls í kosningunum íV-Þýskalandiídesember. tt Viðræður embættismanna fjórveldanna og þýsku rikjanna tveggja um sam- einingu Þýskalands hófust í Bonn i gær. Símamynd Reuter Sameiningarviðræður: Pólverjar taka þátt Vestur-Þjóðveijar hafa samþykkt að fulltrúar Pólveija fái að taka þátt í viðræðum fjórveldanna og þýsku ríkjanna um sameiningu Þýskalands þegar landamæri Póllands verða rædd. Pólveijar höfðu farið fram á þátttöku til að tryggja að núverandi vesturlandamæri Póllands yrðu óbreytt eftir sameininguna. Embættismenn fjórveldanna, Bandaríkjanna, Bretlands, Frakk- lands og Sovétríkjanna, hittu í gær fulltrúa þýsku ríkjanna í Bonn til að undirbúa sameiningaráætlun. Talið er að erfiðasta málið á dag- skrá verði staða sameinaðs Þýska- lands gagnvart Atlantshafsbanda- laginu og Varsjárbandalaginu. Sov- étmenn og Austur-Þjóðveijar vilja að sameinað Þýskaland verði hlut- laust en Vestur-Þjóðveijar, Banda- ríkjamenn, Frakkar og Bretar vilja að sameinað Þýskaland verði í Atl- antshafsbandalaginu. Vestur-Þjóðveijar vonast til að beinar viðræður utanríkisráðherra landanna sex geti hafist fyrir sumar- ið til þess að alþjóðlegur ramma- samningur um sameiningu þýsku ríkjanna verði tilbúinn til undirrit- unar í nóvember þegar fram fer fundur leiðtoga þjóða þeirra sem þátt taka í ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu halda toppfund. Ritzau ________________________________________________Útlönd Meintur njósnari tekinn af lífi nokkrum sinnum áður til íraks. í viðtali við íraska sjónvarpsstöð ját- aði Bazoft að hann hefði stundað njósnir fyrir ísrael en að sögn rit- stjóra Observer dró hann játningu sína til baka. Almennt var talið að Bazoft hefði verið pyntaður til játn- ingar. Dagblöð í írak birtu í morgun það sem þau sögðu vera skriflega játningu blaðamannsins. Áður en Bazoft var tekinn af lífl sagði íraski upplýsingaráðherrann að mótmælin gegn dauðadómnum væru íhlutun í írösk málefni og að réttarhöldin yfir Bazoft hefðu verið réttlát. irösk yfirvöld neituðu í gær beiðni Douglas Hurd, utanríkisráð- herra Bretlands, um að hann fengi að koma til íraks til að ræða mál Bazofts. Reuter Irösk yfirvöld tilkynntu í morgun að þau hefðu tekið af líflð blaða- manninn Farzad Bazoft sem dæmdur var í síðustu viku fyrir njósnir. Fjöldi þjóða hafði farið fram á það við ír- aksstjórn að hún mildaði dóminn yfir blaðamanninum sem vann fyrir breska blaðiö The Observer. Forseti íraks, Saddam Hussein, sagði í gær að hann myndi ekki láta undan þrýstingi breskra yfirvalda um að blaðamanninum, sem fæddur var í íran, yrði hlíft. Bazoft og bresk hjúkrunarkona, sem dæmd var í fimmtán ára fang- elsi, voru handtekin eftir að hafa ekið að herstöð suðvestur af Bagdad í írak til að kanna fréttir um spreng- ingu sem þar átti að hafa orðið. Áður en Bazoft var handtekinn í septemb- er síðastliðnum hafði hann fariö Blaðamaðurinn Farzad Bazoft, sem vann fyrir breska blaðið The Obser- ver, var tekinn af lífi í írak í morgun. Simamynd Reuter Páskaferð Kaupmannahöfn - Kairó Brottför 8. apríl, 13 dagar (aðeins 6 vinnudagar) Kaupið á gjafverði t.d. leðurvörur, silki og teppi. Að auki 4 dagar í gömlu Köben á góðu hót- eli - og svo kostar þetta ekki meira en Spán- arferð, eða kr. 79.000. Sannkölluð 5 stjörnu páskaferð. FLUGFEROIR SOLRRFLUG islenskir fararstjórar - fjölbreyttar skemmti- og skoðanaferðir. Vesturgötu 12, SÍmar 15331 og 22100 Þið njótið lifsins i sólinni og búið á 5 stjörnu lúxushóteli með öllum þægindum. Austurlenskir næturklúbbar, sigling á Níl. Skoðið pýramítana og fleiri undur veraldar frá tímum faróanna í Egyptalandi. Flogið með S4S HELGAKTEBOÐ KJÖTBORÐIÐ OKKfiR ER HLfiÐIÐ KRÆSINGUM Opíð: Mánadaga - föstudaga kl. 8-19. Latigardaga kl. 10-16. KJÖTMIÐSTOÐIN Laugalæk 2, Sfmi 686511.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.