Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 15. MARS 1990. Frakkland: Ágreiningur meðal sósíalista um eftirmann Mitterrands Þessi mynd af Mitterrand Frakklandsforseta var tekin eftir aö hann vann forsetakosningarnar 1988. Simamynd Reuter Spurningin um þaö hver eigi að taka við forsetaembættinu af Fran- cois Mitterrand í Frakklandi verð- ur eiginlega ekki aðkallandi fyrr en eftir fimm ár. Það er að segja ef ekkert ófyrirsjáanlegt kemur fyrir. En nú þegar ríkir mikill ágreiningur innan franska sósíal- istaflokksins um hver eigi að verða eftirmaður Mitterrands. Það eru fyrrum forsætisráðherra Frakklands og núverandi þingfor- seti, Laurent Fabius, núverandi kennslumálaráðherra og fyrrum ílokksleiðtogi, Lionel Jospin, og núverandi forsætisráðherra, Mic- hel Rocard, sem harðast deila. í fyrstu lotu er barist um embætti leiðtoga sósíalistaílokksins en landsfundur flokksins hefst í dag Laurent Fabius, fyrrum forsætis- ráðherra. Mitterrand viil að hann taki við forsetaembættinu. og stendur fram á sunnudag. Farið hafa fram atkvæðagreiðsl- ur í ýmsum deildum flokksins víðs vegar um Frakkf and um þær tiflög- ur eða stefnuyfirlýsingar sem lagð- ar hafa verið fram af andstæðum fylkingum innan hans. Fabius og Jospin hafa hvor um sig fengið um þriðjung atkvæða en Rocard hafn- aði í þriðja sæti. Laurent Fabius er sá sem Mitter- rand vill að setjist í forsetastólinn. Lionel Jospin nýtur stuðnings nú- verandi flokksleiðtoga, Pierre Mauroy, sem er fyrrverandi foT^ sætisráðherra. Jospin gæti samein- ast öðrum öflum innan flokksins og náð yfirhöndinni. Það myndi einangra FabiuS og samtímis veikja stöðu Mitterrands, að því er stjórn- málafræðingar telja. Michel Rocard forsætisráðherra hefur aldrei verið vinsæll innan flokksins og sagt er að hann muni aldrei verða flokksleiðtogi. Það er að segja ef flokkurinn breytir ekki um stefnu og verður jafnaðar- mannaflokkur en það er ekki á döfinni. Rocard er hefdur ekki í uppáhaldi hjá Mitterrand. Kvisast hefur að er ekki sagður vera í uppáhaldi hjá Mitterrand. Simamynd Reuter Mitterrand myndi gjarnan vilja skipta um forsætisráðherra ef kringumstæðurnar leyfðu. Rocard e'r hins vegar enn sá vinstri sinnaði stjórnmálamaður sem er vinsæl- astur meðal kjósenda, miklu vin- sælli en Fabius og Jospin. Sextíu prósent kjósenda tefja Rocard hæf- an til að gegna embætti forsætis- ráðherra og sextíu og eitt prósent eru þeirrar skoðunar að Mitter- rand sé hæfur tif að gegna embætti forseta. Munurinn er of lítill til að Mitterrand geti leyft sér það sem hann hefur helst hug á, að því að sagt er. Mitterrand hefur látið fítið á sér bera í baráttunni en unnið á bak við tjöldin. Pierre Mauroy og aðrir hafa reynt að koma á sáttum milli andstæðra fylkinga en það er valdajafnvægið í flokknum sem verður hitamál á landsfundinum. Staða forsetans verður háð valda- jafnvæginu. Auk Jospins, Fabius og Rócards koma margir aðrir tif greina sem forsetaframbjóðendur. Nefndur hefur verið Jacques Delors, fram- kvæmdastjóri Evrópubandafags- ins, sem einnig er sósíalisti. Vegna starfa síns á vegum Evrópubanda- lagsins hefur hann ekki getaö haft sig mikið í frammi. í hita baráttunnar hefur hug- myndafræðin orðið að lúta í lægra haldi og enginn býst við hug- myndafræðilegum kappræðum á landsfundinum. Stríðið milli þeirra stóru verður mikilvægast, að því að talið er. TT Fyrirhugaðar kosningar í Ungverjalandi: Svartsýni ríkjandi meðal kjósenda Það ríkir svartsýni í Ungverja- landi þessa daga, aðeins tíu dögum áður en fyrsta umferð þingkosn- inga á að fara fram þar í landi. Ungverjar ganga til kosninga þann 25. mars, aðeins viku eftir að kosn- ingar fara fram í Austur-Þýska- landi. Mikil ringulreið ríkir meðaf kjós- enda í Ungverjalandi sem margir hverjir vita ekki hvernig fyrir- komulag kosningarnna verður. Þá er einnig grunnt á vantrausti Ung- verja á frambjóðendunum og segj- ast margir ekki vita hverjum þeir ætla að greiða atkvæði. Enn aðrir, sem eru vonsviknir vegna slæmra lífsskilyrða og fjörutíu ára stjórnar kommúnista, tefja ekki að úrslit kosninganna muni breyta nokkru í þeirra lífi. Samkvæmt nýlegri skoðana- könnun í Ungverjalandi býst hátt í helmingur þjóðarinnar, fjörutíu og fimm prósent aðspurðra, ekki við raunverufegu lýðræði í kjölfar kosninganna. Fjörutíu og tvö pró- sent kváðust telja að kosningaheit- in yrðu rofin, hver sem færi með sigur af hólmi. Færri en helmingur ‘telja að lífsskilyrði muni batna eftir kosningar. Fyrirhugaðar kosningar, sem fara fram í tvennu lagi, 25. mars og 8. apríl, verða fyrstu fjölflokka- kosningarnar í þessu landi síðan árið 1945. Kommúnistar hagræddu úrslitum þingkosninga sem fóru fram tveimur árum síðar, árið 1947. Tólf flokkar keppa um sæti á hinu 386 sæta löggjafarþingi. Að auki eru sextán flokkar til viðbótar sem Fyrri hluti þingkosninga í Ungverjalandi ferfram þann 25. mars næstkom- andi. Símamynd Reuter bjóða einungis fram í sveitar- og mannaflokkurinn, sem reistur var bæjarstjórnarkosningum. á .rústum gamla kommúnista- Samkvæmt skoðanakönnunum ilokksins, nýtur um það bil helm- fá þrír flokkar, Bandalag frjáls- ingi minni stuðnings en fyrrnefnd- lyndra demókrata, Lýðræðislegur ir flokkar, eða um tíu prósent. vettvangur og Bændaflokkurinn, Reuter mest fylgi. Ungverski jafnaðar-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.