Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 15. MARS 1990.
Lesendur
Reglugerð Tryggingastofnunar:
Núll fyrír hvern?
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar:
Lengi hef ég beðið eftir einhverj-
um viðbrögðum frá „krónískum"
sjúkhngum vð breytingu á reglu-
gerö Trygingastofnunar sem tók
gildi 15. febr. sl. og lendir nú með
fullum þunga á þeim sem lítið
höfðu fyrir og skulu nú hafa enn
minna. - Hvernig stendur á því að
fólk tekur þegjandi við þessu órétt-
læti? Er það orðið svona langkúgað
að það reynir ekki einu sinni að
rísa upp? - Vera menn?
Heilbrigðisráðherra hefur ekki
góða ráðgjafa, ef ekki eru gerðar
neinar ráðstafanir til þess að draga
á einhvern hátt úr 100% hækkun
gjalda hjá stórum hópi fólks með
alvarlega og langvinna sjúkdóma,
sem neyðast til að fara reglulega
til sérfræðings til meðferðar og eft-
irlits. - Hinn hrausti, sem hefur
fulla vinnugetu og laun, og fer ef
til vill tvisvar á ári til læknis með
minniháttar kvilla, hann þarf ekki
að greiða neitt...
Heimilislæknar eru ekki sér-
fræðingar á öllum sviðum og taka
ekki að sér að veita meðferð og líta
eftir, t.d. alvarlegum bandvefssjúk-
dómum eða sykursýki. Þessir sjúk-
dómar valda ekki aðeins skertri
vinnugetu og þjáningum, heldur
geta þeir reynst banvænir, ef þeim
er ekki sinnt. Aðeins lítill hluti
fólks með ólæknandi sjúkdóma eru
75% öryrkjar eða ellilífeyrisþegar,
og aðeins þeir eiga rétt á lækkun
læknis- og lyfjakostnaðar. - Konur
í sambúð fá t.d. sjaldan slíkt mat
og ég skora á þá sem ekki trúa slík-
um staðhæfingum að kynna sér
hve mörg prósent í þeim örorku-
flokki eru konur.
Svo ég komi með raunhæfar tölur
þá var ég í sprautumeðferð í fyrra
í 12 vikur. Hver tími kostaði þá 630
kr. (það var viðtal og skoðun hjá
sérfræðingi, sprauta, blóðprufa og
stundum þvagprufa). Þetta gerði
alls kr. 7.560 og var þó aðeins hluti
af mínum lækniskostnaði á árinu
1989. - Nú myndi samsvarandi
meðferð kosta kr. 900, hvert viðtal,
blóðprufa kr. 300, sprauta kr. 300,
þvagprufa kr. 300. - Sem sé a.m.k.
1500 í hvert sinn, og jafnvel kr.
1800.- - Kostnaður þá samtals
a.m.k. 18.000 krónur.
Ég er opinber starfsmaður í hálfu
starfí og fékk 1,25% í launahækkun
í síðustu 0-samningum og það lof-
orð með að ekki yrðu hækkanir á
opinberri þjónustu. - Hvar eru
efndirnar?
Ég skrifa þetta undir nafni og
hvet fólk til að láta í sér heyra.
Velferðarsamfélag felst í því að
hinir hraustu hjálpa þeim veiku til
sjálfshjálpar og í þannig samfélagi
viljum við búa. - Og maður líttur
þér nær - þú gætir orðið næstur.
P.S. Hækkunin á gjaldinu fyrir við-
tal hjá sérfræðingi, kr. 270, er
minnsti hlutinn af hækkun á lækn-
isþjónustu. Það er rannsóknar-
gjaldið sem hleypir kostnaðinum
upp - og það svo um munar.
Linda Pétursdóttir i sundbol. - Væri ekki eðlilegra að nota hlýja íslenska
ull þegar myndað er utanhúss? er spurt hér.
í 15 stiga
frosti - fyrir
ísland?
Kona skrifar:
í síðustu viku var það í fréttum
m.a. að Linda Pétursdóttir alheims-
fegurðardrottning stæði í ströngu og
sæti fyrir hjá erlendum ljósmyndur-
um í íslenskri náttúru. Þar var-sagt
frá aö hún sýndi mikla hreysti þar
sem hún sæti jafnvel fyrir í sundbol
í 15 stiga frosti.
Ég get ekki orða bundist yfir þessu.
Hvers konar meðferð er þetta á kon-
unni? Hvenær væri svona meðferð á
dýri leyfð án þess að kært yrði til
dýraverndunarsamtaka? - Ég vil
vekja athygli á að Linda er „notuð“,
í þessu tilfelli sem hlutur en ekki
manneskja.
Er ef til vill komin þörf fyrir lög til
verndar manneskjunni eins og dýra-
verndunarlögin? Hversu lágt þurfa
fegurðardrottningar að leggjast í
nafni fegurðar?
Getur það talist góð auglýsing fyrir
ísland að hátta konur í 15 stiga frosti
og taka af þeim myndir? - Væri ekki
eðlilegra að klæða hana í hlýja ís-
lenska ull?
Tékkhefti Isiandsbanka
Þar sem allir sem ég veit um (og
þeir eru nokkuð margir) kvarta
yfir þessu, vil ég skora á íslands-
banka að breyta heftunum í það
form sem þau voru áður hjá Al-
þýðubankanum - eða hafa þau
einnig þannig, svo að fólk geti valið
á milli.
Ég veit að þeir sem eru með fyrir-
Tékkahafi skrifar:
Ég sé mig tilneydda til að skrifa
þetta bréf þar sem allir tala um
þetta en enginn gerir neitt í því að
koma þessum skilaboðum áfram.
Þannig er mál með vexti, að ég
var með tékkhefti í Alþýðubankan-
um, og er þar af leiðandi með hefti
í íslandsbanka núna. Ég þarf yfir-
leitt að skrifa skýringar með hverju
blaði sem úr tékkheftinu fer en
verð nú aö skrifa þær á blað og
setja inn hverju sinni er ég fylli út
tékka.
Það er oft erfitt að greina þessar
skýringar í sundur og verð ég einn-
ig að viðurkenna að ég get ómögu-
lega skilið hvernig þeir hjá íslands-
banka fara að því að skrifa inn í
hefti sín.
Margir vilja hafa þann hátt á að skrifa skýringar innan á svuntu viðkom-
andi tékka, og til þess vitnar bréfritari.
tæki láta ekki eina einustu ávísun
út frá sér nema skrifa við þær skýr-
ingar, sem ekki er hægt með þess-
um mjög svo hvimleiðu svuntum,
sem íslandsbanki notar nú í tékka-
heftunum.
Vona ég að fleiri láti frá sér heyra
um þetta, þar sem ég er „úti á
landi“, og vonast til þess að þeir
hjá íslandsbanka sjái sér þó í það
minnsta fært - eins og ég hefi
minnst á - að leyfa fólki að velja.
Starfskraftar
(helst hjón) óskast til að þrífa prentsmiðju
á kvöldin e. kl. 20. Óskað er eftir vönu fólki.
Þeir sem hafa áhuga leggi inn skriflegar
umsóknir til auglýsingadeildar DV, merkt
„Prentsmiðjuþrif", fyrir kl. 14 á laugard. 17.
mars, með upplýsingum um fyrri störf. Al-
gjör reglusemi er skilyrði.
Forstöðumaður
leikfangasafns
Við ráðgjafar- og greiningardeild Svæðisstjórnar á
Akureyri er laus staða á leikfangasafni.
Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf sem gefur
möguleika á ýmiss konar nýbreytni, þróun og
þverfaglegri samvinnu.
Umsækjendur skulu hafa menntun á uppeldissviði
og reynslu af vinnu með 0-6 ára börn.
Skriflegar umsóknir, er greina frá menntun og starfs-
reynslu, sendist til skrifstofu Svæðisstjórnar, Stór-
holti 1, 600 Akureyri, fyrir 27. mars nk.
Nánari upplýsingar um stöðuna eru veittar á skrifstof-
unni og í síma 96-26960 alla virka daga kl. 09.00-
16.00
Forstöðumaður ráðgjafar- og greiningardeildar.
HMC
FERINGARMOMMUR
- FERINGARÖMMUR
Kápur - dragtir
- kjólar
Glæsilegt úrval
V/LAUGALÆK, SIMI 33755
Nú er hægt aó hringja inn
smáauglýsingar og greiða
með korti.
Þú gefur okkur upp:
nafn þitt og heimilisfang,
síma, kennitölu og
gildistíma og númer
greiðslukorts.
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 6.000,-
SMÁAUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLTI 11
SIMI 27022