Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Síða 26
34
EIMMTUDAGUR 16..MA'RS 1990.
Afmæli
Jóhannes Arason
Jóhannes Arason útvarpsþulur,
Þórsgötu 25, Reykjavík, er sjötugur
ídag.
Jóhannes fæddist aö Ytralóni á
Langanesi í Noröur-Þingeyjarsýslu
en flutti meö fjöldskyldu sinni til
Þórshafnar 1930 og þaðan til Reykja-
víkur 1935.
Jóhannes gekk í Samvinnuskól-
ann viö Sölvhólsgötu og útskrifaðist
þaðan 1937. Hann stundaöi framan
af árum verslunar- og skrifstofu-
störf, fyrst hjá Pöntunarfélagi
verkamanna og KRON, síðar hjá
Grænmetisverslun ríkisins og í
fjölda ára hjá Áfengisverslun ríkis-
ins. Lengst af stundaði hann þó þul-
arstörf við Ríkisútvarpið eða frá
1956.
Jóhannes hefur lagt gjörva hönd
á margt. Auk ofangreindra starfa
má nefna sveitavinnu, vegavinnu
og beitningu á yngri árum en síðar
meir t.d. byggingavinnu, veiðar,
bókband, prófgæslustörf og próf-
arkalestur. Hann hefur sungið með
blönduðum kórum frá tvítugsaldri.
Jóhannes kvæntist29.12.1945 El-
ísabetu Einarsdóttur, f. 8.6.1922.
Foreldrar hennar voru Einar Hall-
dórsson, bóndi og hreppstjóri á
Kárastöðum í Þingvallasveit, f.
18.11.1883, d. 19.12.1947, ogkona
hans, Guðrún Sigurðardóttir, f. 7.7.
1892, d.25.2.1955.
Börn Jóhannesar og Elísabetar
eru: Ása fóstra, f. 18.6.1946, Ari Jón,
yfirlæknir á Akranesi, f. 26.7.1947,
og Einar klarinettuleikari, f. 16.8.
1950.
Foreldrar Jóhannesar voru Ari
Helgi Jóhannesson, f. 5.12.1888, d.
20.7.1938, kennari í Sauðaneshreppi
og síðar starfsmaður hjá Skattstof-
unni í Reykjavík, og kona hans, Ása
Margrét Aðalmundardóttir hús-
móðir.
Arivarsonur Jóhannesar, b. í
Ytritungu, síðar á Ytralóni, Jóhann-
essonar, hreppstjóra í Saltvík, síðar
b. í Fellsseli, bróður Þorkels, b. á
Syðrafjalli, afa Indriða Indriðasonar
ættfræðings og Þorkels Jóhannes-
sonar háskólarektors. Systir Jó-
hannesar var Sigurbjörg, móðir Sig-
urjóns skálds, alþingismanns og
oddvita að Litlulaugum, fóður
Halldóru skólastjóra, móður Krist-
ínar Halldórsdóttur, starfskonu
Kvennalistans og fyrrv. alþingis-
konu, en meðal annarra barna Sig-
urjóns má nefna Arnór, skólastjóra
og rithöfund, Braga, fyrrv. alþingis-
mann, ráðherra og ritstjóra, Dag
skólastjóra og Unni, móður Inga
Tryggvasonar, fyrrv. formanns
Stéttarsambandsbænda. Sigurbjörg
var einnig móðir Guðmundar skálds
og b. á Sandi í Aðaldal, föður Bjart-
mars alþingismanns og Heiðreks
skálds.
Jóhannes var sonur Guðmundar,
b. á Sílalæk, Stefánssonar, b. á Síla-
læk, Indriðasonar „gamla“, b. á
Sílalæk, ættföður Sílalækjarættar-
innar, Árnasonar, b. í Torfunesi,
Jónssonar, b. á Gvendarstöðum,
Þórðarsonar, ættföður Jóns Þórðar-
sonar-ættarinnar.
Móðir Jóhannesar á Ytralóni var
Jóhanna, systir Sigurjóns, óðalsb. á
Laxamýri, föður Jóhannesar á
Laxamýri, afa Benedikts Árnasonar
leikstjóra. Sigurjón var einnig faðir
Jóhanns skálds og Snjólaugar, móð-
ur Siguijóns, fyrrv. lögreglustjóra.
Jóhanna var dóttir Jóhannesar, ætt-
föður Laxamýrarættarinnar, bróð-
ur Jóns í Sýrnesi, langafa Jónasar
frá Hriflu. Jóhannes var sonur
Kristjáns, b. á Halldórsstöðum í
Reykjadal, Jósepssonar, b. í Kast-
hvammi, Tómassonar, b. í Hvassa-
felli, ættföður Hvassafellsættarinn-
ar, bróður Jónasar í Hvassafelli, afa
Jónasar Hallgrímssonar.
Móðir Ara Helga var Þuríður Þor-
steinsdóitir, prests á Þóroddsstað,
bróður Sólveigar á Gautlöndum,
móður Kristjáns háyfirdómara, al-
þingismanns og ráðherra, afa Pét-
urs Eggerz sendiherra. Sólveig var
einnig móðir Péturs, alþingsmanns
ográðherra, Steingríms, bæjarfó-
geta og alþingismanns, og Rebekku,
móður Haraldar Guðmundssonar,
alþingismanns og ráðherra. Bróðir
Þorsteins var Jón, þjóðfundarmað-
ur á Lundarbrekku, afi Árna, al-
þingismanns í Múla, föður Jónasar,
rithöfundar og fyrrv. alþingis-
manns, og Jóns Múla, tónskálds og
útvarpsmanns. Annar bróðir Þor-
steins var Benedikt, b. og smiður á
Refstað, afl Geirs Hallgrímssonar,
seðlabankastjóra og fyrrv. forsætis-
ráðherra.
Þorsteinn var sonur Jóns, prests
í Reykjahlíð, ættföður Reykjahlíðar-
ættarinnar, Þorsteinssonar.
Móðir Þuríðar var Guðbjörg Ara-
dóttir, b. á Skútustöðum, hálfbróður
Friðriku, móður Jóns í Múla. Ari
var einnig hálfbróðir Þuríðar, móð-
ur Sigurðar, b. og ráðherra í Ysta-
felli, afa Jónasar búnaðarmála-
stjóra. Ari var sonur Helga, b. á
Skútustöðum, ættföður Skútustaða-
ættarinnar, Ásmundssonar.
Ása Margrét var dóttir Aðalmund-
ar, b. á Eldjárnsstöðum á Langa-
nesi, Jónssonar, b. þar, Þorsteins-
sonar, b. þar, Jónssonar, b. þar.
Móðir Aðalmundar var Ingibjörg
Jónsdóttir, b. á Hraunfelli í Vopna-
firði, Jónssonar og Valgerðar Sig-
Jóhannes Arason.
urðardóttur.
Móðir Ásu Margrétar var Hansína
Benjamínsdóttir, b. á Brimnesi á
Langanesi, Ásmundssonar, frá
Hallgilsstöðum, Sölvasonar. Móðir
Hansínu var Guðný, systir Þórdísar,
langömmu Elísabetar, móður Ingi-
bjargar Albertsdóttur sem varð
hundrað ára í nóvember 1988.
Guöný var dóttir Eymundar, b. í
Fagranesi, Eymundssonar, b. í Skál-
um, Ólafssonar, b. í Skoruvík, Finn-
bogasonar, b. á Haugsstöðum í
Vopnafirði, Steinmóðssonar, Árna-
sonar, prests í Vallanesi, Þorvarðar-
sonar. Móðir Árna var Ingibjörg
Árnadóttir, b. á Burstarfelli, ætt-
föður Burstarfellsættarinnar,
Brandssonar.
Jóhannes er að heiman á afmælis-
daginn.
Stéfán Kristinn Teitsson
Stefán Kristinn Teitsson, fram-
kvæmdastjóri Akurs hf., Bjarkar-
grund 6, Akranesi, er sextugur í dag.
Stefán er fæddur á Akranesi og
þar ólst hann upp. Hann lauk gagn-
fræðaprófi 1947, loftskeytaprófi 1948
og tók sveinspróf í húsasmíði 1953.
Á árunum 1948-53 stundaði hann
sjómennsku, var háseti og loft-
skeytamaður í afleysingum á b/v
Bjarna Ólafssyni og loftskeytamað-
ur í afleysingum á b/v Akurey. Stef-
án vann síðan nokkur ár að húsa-
smíði með fööur sínum, en stofnaði
trésmiöjuna Akur hf. 1959 og hefur
verið framkvæmdastjóri hennar
síðan. Hann var slökkviliðsstjóri
Akraness 1964-84, sat í skólanefnd
Iðnskóla Akraness 1969-77, í at-
vinnumálanefnd 1972-76 og í bygg-
inganefnd 1978-85.
Stefán kvæntist þann 20.5.1950
Fríðu Lárusdóttur tónlistarkenn-
ara, f. 6.1.1931. Foreldrar hennar
voru Lárus Halldórsson, skólastjóri
í Mosfellssveit, og Kristin Magnús-
dóttir.
Börn Stefáns og Fríðu eru:
Teitur, f. 23.6.1949, framkvæmda-
stjóri Heimaskaga hf., búsettur á
Akranesi, kvæntur Ásgerði ísfeld,
starfsmanni Járnblendifélagsins hf.
á Grundartanga, og eiga þau eina
dóttur.
Örlygur, f. 10.1.1953, verslunar-
stjóri hjá Versluninni Bjargi hf.,
búsettur á Akranesi, kvæntur Ástu
Gísladóttur verslunarmanni og eiga
þautvo syni.
Hulda, f. 29.6.1954, húsmóðir og
starfsmaður Samvinnubankans í
Reykjavík, búsett á Álftanesi, gift
Sigurði Vali Ásbjarnarsyni, sveitar-
stjóra Bessastaðahrepps, og eiga
þauíjóra syni.
Halldór, f. 29.12.1961, tæknifræð-
ingur hjá Akri hf., búsettur á Akra-
nesi, býr með Petreu Pétursdóttur
og eiga þau eina dóttur.
Þórgunnur, f. 11.10.1966, skrif-
stofumaður hjá Akri hf., búsett á
Akranesi, gift Pétri Ingólfssyni,
verslunarstjóra hjá Akri hf., og eiga
þaueinnson.
Hálfbróðir Stefáns er Örlygur Þor-
valdsson, f. 4.4.1926, starfsmaður
Flugleiða, búsettur í Njarðvík,
kvæntur Ernu Agnarsdóttur og eiga
þau sex börn.
Foreldrar Stefáns voru Teitur
Stefánsson trésmíðameistari, f. 9.3.
1880, d. 9.5.1958, og Hulda Jóns-
dóttir, f. 4.7.1903, d. 19.8.1965.
Foreldrar Teits voru Stefán
Bjarnason, b. og hreppstjóri í Hvíta-
nesi, og Kristjana Teitsdóttir.
Hulda var dóttir Jóns, formanns í
Tjarnarhúsum á Akranesi, Jóns-
sonar, sjómanns í Króki á Akra-
nesi, Benediktssonar, b. síðast í
Stefán Kristinn Teitsson.
Sandabæ, Bjarnasonar.
Móðir Jóns í Króki var Dýrfmna
Aradóttir. Móðir Jóns í Tjarnar-
húsum var Sigrún Guðmundsdóttir,
vinnumanns á Ytrahólmi, Jónsson-
ar og Sigríðar Jónsdóttur, vinnu-
konuáYtrahólmi.
Móðir Huldu var Halldóra Guð-
laugsdóttir, b. á Höll í Þverárhlíð,
Jónssonar, b. á Stálpastöðum í
Skorradal, Erlendssonar.
Móðir Guðlaugs var Guðlaug
Jónsdóttir. Móðir Halldóru var
Oddrún Pálsdóttir, b. í Ártúni á
Kjalarnesi, Magnússonar og Hall-
dóru Jónsdóttur, b. í Kjarnholtum í
Biskupstungum, Gíslasonar.
75 ára
Kristinn O. Ólafsson,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Friðrika Sigurbjörnsdóttir,
Starrahólum 8, Reykjavík,
Hún tekur á móti gestum laugar-
daginn 17.3. á heimili sínu milli
klukkan 17 og 19.00.
Haraldur Hansson,
Kópavogsbraut 67, Kópavogi.
Þórður Gestsson,
KálflióliII, Skeiðahreppi.
Aðalbjörg Guðmundsdóttir,
Kríuhólum 4, Reykjavík.
40ára
50 ára
Einar Benedi ktsson,
Lerkiiundi 2, Akureyri.
Gísli Gíslason,
Heiðarvegi 26, Vestmannaeyjum.
Helga S. Pétursdóttir,
Hringbraut 54, Keflavík.
Sigmundur Felixson,
Skipageröi 2, Vestur-Landeyjum.
Benedikt Eggertsson,
Nauteyri, Nauteyrarhreppi.
Sigrún Stefánsdóttir,
Kaplaskjólsvegi 93, Reykjavík.
Bry nj úlfur Erlingsson,
Logafold 65, Reykjavxk.
Stefán Steingrímsson,
Eyjabakka 20, Reykjavík.
Valur S. Kristinsson,
Gyðufelli 16, Reykjavík.
Páll Ölafsson
Ragnar Emil Avenarius
Ragnar Emil Avenarius, Milton í
Florida í Bandaríkjunum, um þess-
ar mundir að Kársnesbraut 19 í
Kópavogi, verður fimmtugur á
morgun, 16. mars.
Ragnar er fæddur Þórarinsson og
er íslendingur í báðar ættir en hann
fluttist ungur með móður sinni, Sal-
björgu Ástrósu Ragnarsdóttur, og
tveim systrum til Bandaríkjanna.
Þar giftist móðir hans Bill Avenar-
ius og bjó með honum á Long Island
í New York til dánardægurs en hún
lést fyrir fáum árum.
Ragnar gekk ungur í bandaríska
herinn og gerðist atvinnuhermaður.
Hann ferðaðist á vegum hersins um
allan heim. Enn starfar hann hjá
hernum, ekki sem hermaður, held-
ur yfirflugvirki í deild sinni við flug-
her flotans í Pensacola í Florida.
Ragnar er kvæntur Jo Avenarius
og eiga þau þrjú börn: Emil, sem er
kvæntur, og stúlkurnar Susan og
Lísu. Ragnar á flestöll skyldmenni
sínáíslandi.
Ragnar er nú staddur hér á landi
og mun taka á móti gestum á laugar-
daginn, 17. mars, milli kl. 17 og 21 i
félagsheimili Sjálfstæðisflokksins á
Seltjamamesi, Austurströnd 17,
þriðju hæð.
Ragnar Emil Avenarius.
Páll Ólafsson bóndi, Brautarholti,
Kjalamesi, verður sextugur á morg-
un, 16. mars.
Páll er fæddur í Reykjavík en ólst
upp í Brautarholti. Hann varð gagn-
fræðingur 1947 og búfræöingur frá
Hvanneyri 1948, og var við verknám
í Noregi og Svíþjóð 1950-51. Hann
hóf búrekstur að Brautarholti 1954
og hefur búið þar síðan. Páll stofn-
setti Graskögglaverksmiðjuna að
Brautarholti 1963 ásamt Jóni bróður
sínum og hefur hún verið rekin þar
síðan. Hann sat í stjórn Ungmenna-
sambands Kjalarnesþings 1954-64,
þar af formaður þess í sex ár. Einn-
ig hefur hann setið í stjórn Búnaðar-
sambands Kjalarnesþings frá 1972
og verið formaður þess í fimm ár.
Páll hefur setið á Búnaðarþingi frá
1978 og verið Stéttarsambandsfull-
trúi frá 1987. Hann hefur verið
hreppstjóri Kjalarneshrepps frá
1970 og sat í sýslunefnd Kjósarsýslu
1971-88. Hann var í yfirkjörstjórn
Reykjanesumdæmis 1978-86. Páll
situr í stjórn Landssambands fóður-
bænda og er formaður þess. Einnig
hefur hann setið í jarðanefnd Kjós-
arsýslufrál980.
Páll kvæntist þann 30.3.1963 Sig-
ríði Kristjönu Jónsdóttur hjúkr-
unarfræðingi, f. 30.7.1936. Hún er
dóttir Jóns Gauta Jónatanssonar og
Guðrúnar Kristjánsdóttur.
Börn Páls og Sigríðar eru: Guð-
rún, f. 29.9.1963, lyfjafræðingur;
Ásta, f. 15.2.1965, stúdent; Þórdís,
f. 4.3.1968, nemi; Ingibjörg, f. 24.3.
1969, nemi; Bjarni, f. 25.5.1972, nemi,
og Ólöf Hildur, f. 19.3.1977, nemi.
Systkini Páls em: Bjarni, f. 26.4.
1926; Ingibjörg, f. 24.7.1927, hjúkr-
unarfræðingur; Ólafur, f. 11.11.1928,
læknir; og Jón, f. 26.4.1932, bóndi.
Foreldrar Páls voru Ólafur
Bjarnason, b. í Brautarholti, f. 19.9.
1891, d. 13.2.1970, ogÁsta Ólafs-
dóttir, f. 16.3.1892, d. 8.4.1985.