Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Andri BA seldur:
Tapið meira en
100 milljónir
„Ég geri ráð fyrir að þessar ríflegu
" ''hundrað milljónir, sem við lögðum í
útgerðina, séu tapaðir peningar þótt
við höfum ekki reiknaö það út ná-
kvæmlega hve mikið tapið á útgerð-
inni hefur orðið,“ sagði Haraldur
Haraldsson, stjórnarformaður út-
gerðar Andra BA, í samtalið við DV.
Norski PK-bankinn, sem átti lang-
hæsta veðið í Andra BA, keypti tog-
arann í gær þar sem hann liggur í
höfn í Vancouver í Kanada. Áhöfnin
fer frá borði næstu daga og eftir það
hefur útgerðarfélagið ekkert með
skipið að gera lengur.
„Við höfum ekkert hugsað um
hvort útgerðarfélagið ræðst í önnur
verkefni. Það er óþarfl að stökkva
yfir lækinn áður en komið er að hon-
"^um. Við hefðum viljað að þetta færi
á annan veg en það þýðir ekkert að
liggja með flárfestingu sem engu skil-
ar,“ sagði Haraldur. -GK
Akureyri:
Bíllinn lagðist
saman
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
* Snjór fór víða á hreyfmgu á þökum
húsa á Akureyri í hiákunni í gær og
við elliheimilið urðu skemmdir á
tveimur bílum er snjór á þaki heimil-
isins fór fram af þakinu og hafnaði á
tveimur bifreiðum.
Önnur bifreiðin skemmdist mjög
mikið, enda lagðist þak hennar sam-
án, og fleiri skemmdir urðu en hin
bifreiðin slapp betur.
Mikill snjór er á þökum húsa á
Akureyri og mun víða hafa tekið að
leka af þeim sökum er hlánaði. Víða
í bænum mátti sjá menn við snjó-
komstur á þökum húsa sinna til að
afstýra skemmdum. í morgun var
hins vegar aftur komið frost á Akur-
eyri og þetta ástand yfirstaðið.
Eldur í íbúðarhúsi:
Komust út
á náttfötunum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Hjón með tvö börn forðuðu sér á
náttfótunum er eldur kom upp í húsi
við Ásabyggð á Akureyri um klukk-
an sex í morgun.
Þegar slökkviliðið kom á vettvang
var fólkið komið út og hafði ekki
sakað. Eldurinn var í stigagangi á
milli kjallara og jarðhæðar hússins
en hann var ekki mikill. Talsverður
reykur var hins vegar um allt húsið
« * og urðu nokkrar skemmdir af hans
völdum.
LOKI
Þau eru margvísleg
umferðarvandamálin.
Dómsmálaráðuneytið athugar grun um:
Milljónasvik
á meirapróf um
talið að fládrátturinn geti numið á annan tug milljóna
Dómsmálaráðuneytið hefur nú
til meðferðar mál vegna gruns um
að tveir starfsmenn við meirapróf
ökuréttinda hafi náð til sín umtals-
verðum peningum á liðnum árum.
Talað er um að svikin geti verið á
annan tug milljóna og að þau hafi
staðið yfir í nokkur ár.
Samkvæmt heimíldum DV höfðu
mennimir þann hátt á að þeir
lögðu þátttökugjöld, af námskeið-
unum, inn á bankareikning á nafni
annars þeirra. Reikningurinn er
við Landsbankann í Árbæjar-
hverfi.
Mennirnir skiluðuþátttökugjöld-
um til ríkisféhirðis tvisvar á ári,
þrátt fyrir að gjöldin hafi verið
greidd mun oftar til þeirra. Þegar
þeir skiluðu peningunum greíddu
þeir vaxtalaust - og tóku vextína
til sín.
Upp um þessi svik komst þegar
dómsmálaráðherra skipaði nýjan
forstöðumann yfir ökuprófunum.
Forstöðumaðurinn óskaði þess að
Ríkisendurskoðun færi yfir bók-
hald og reikninga. Við þá vinnu
mun hafa komist upp um svikin.
Ríkisendurskoðun hefur lokið
sinni vinnu í þessu máli, sam-
kvæmt því sem Halldór V. Sigurðs-
son rikisendurskoðandi . sagði í
inorgun.
Óli Þ. Guðbjartsson dómsmála-
ráðherra sagði i morgun að hann
kannaðist ekki við þetta mál. Hann
sagðist ekki vita til þess að ráðu-
neytinu hefði borist málið. Halldór
V. Sigurðsson ríkisendurskoðandi.
og Sigurður Þóröarson vararíkis-
endurskoðandi hafa báðir sagt, í
samtölum við DV, að Rikisendur-
skoðun hafi sent málið til dóms-
málaráðuneytisins.
Heimildir DV segjaað mikið kapp
hafi verið lagt á að þetta mál færi
ekki hátt og að mönnunum tveimur
hafi veriö gefinn kostur á að endur-
greiða en þar sem um mjög háar
upphæðir er að ræða er talið óvíst
að þeir geti endurgreitt peningana.
Mennirnir tveir, sem eru grunaðir
um flársvikin, hafa átt langt og
náið samstarf.
-sme
Veörið á morgun:
Víða snjó-
mugga eða
éljagangur
Á morgun verður austanátt um
norðanvert landið framan af degi
en annars suðlæg eða suðaustlæg
átt. Úrkomulítið norðaustan-
lands en víða snjómugga eða élja-
gangur í öðrum landshlutum.
Frost um mestallt landið.
sigur
Norðurlanda
Sveit Norðurlanda í stórvelda-
slagnum er öll að koma til og í gær
vann hún sinn fyrsta sigur þegar
Bandaríkjamenn voru lagðir að velli,
6-4. Norðmaðurinn Simen Agdestein
vann aftur sigur á Boris Gulkp á 1.
borði en á 2. boröi gerði Helgi Ólafs-
son jafntefli við Seirawan. Margeir
vann Fedorowicz á 3. borði en Hell-
ers gerði jafntefli á 4. borði. Jóhann
náði að leggja Lein að velli á 5. borði
en Jón L. tapaði slysalega fyrir
Browne eftir mikið tímahrak Banda-
ríkjamannsins. Þá má geta þess að
Karl Þorsteins gerði jafntefli í sinni
skák.
Bretar sigruðu Bandaríkjamenn
einnig 6-4. Fyrir síðustu umferð eru
Sovétmenn með 26,5 vinninga, Bret-
ar 26, Bandaríkjamenn 25 og Norður-
landabúar 22,5. Það má því búast við
spennandi umferð í dag en hún hefst
kl. 14. -SMJ
Færeyskur sjómaður:
Félí í Hafnar-
fjarðarhöfn
Færeyskur sjómaður var fluttur á
slysadeild eftir að hafa fallið í sjóinn
við Norðurbakkann í Hafnarflarðar-
höfn í nótt. Hann var að fara á milli
togara í höfninni þegar hann féll í
sjóinn. Manninum tókst af eigin
rammleik að komast upp á bryggju
og var hann þá orðinn töluvert þrek-
aður. Maður um borð í íslenskum
bát í höfninni tilkynnti lögreglu um
maninn. Færeyingurinn var orðinn
hress í morgunsárið eftir aðhlynn-
ingu á slysadeild. _ÓTT
Síld á loðnumiðunum:
Búið að loka
veiðisvæðinu
Það þarf að beita höndunum mikið á Alþingi eins og borgaraflokksmenn sýna hér. Umhverfismálaráðherra legg-
ur áherslu á mál sitt með handahreyfingu á meðan dómsmálaráðherra réttir upp hönd. Er það væntanlega i at-
kvæðagreiðslu eða er hann kannski að biðja um orðið hjá formanni sínum? Ásgeir Hannes Eiríksson kýs hins
vegar að krossleggja hendur íbygginn á svip. DV-mynd GVA
Búið er að beita skyndilokun til að
stöðva veiðar loðnubáta fyrir suð-
austan land. Vart var við síld í afla
bátanna og samkvæmt upplýsingum
veiðieftirlitsmanns og í samráði við
skipstjóra á loðnubátum var ákveðiö
að loka veiðisvæðinu. Lokunin tók
gildi á hádegi í gær og gildir í eina
viku.
Eitthvað af síld fannst í afla báta
sem voru að landa. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Hafrannsóknastofnun
er ekki talið að um mjög mikið magn
af síld hafi verið að ræða en óyggj-
andi sé að síld hafi blandast aflanum.
Nær allur loðnuflotinn var á veið-
um á svæðinu sem nú hefur verið
lokað. Bátarnir hafa fært sig véstar
þar sem búist er að við að loðna færi
sigþangað. -sme
NYJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
Úti að aka
' 40 ár
i
BILALEIGA
v/FIugvalIarveg
91-61-44-00
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i