Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1990, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990.
27
LífsstíU
Jens Gíslason kartöflubóndi:
Ætti að leyfa
innflutning
10. maí
- ágiskanir um magn út í bláinn
„Það veit í raun enginn hve mikið
er til af kartöflum landinu. Þær töl-
ur, sem innílutningsnefndin talar
um, eru meira og minna út í bláinn
og byggjast á því að formaður Félags
kartöflubænda hringir í félagsmenn.
Það ætti að leyfa innflutning upp úr
10. maí að mínu mati þvi ég sé ekk-
ert athugavert við að innfluttar og
innlendar kartöflur séu samhliða á
markaðnum einhvern tíma,“ sagði
Jens Gíslason, kartöflubóndi á Jaðri
í Þykkvabæ, í samtali við DV. Jens
er jafnframt formaður samtaka
dreifmgarstöðva.
Neytendur
„Það sem að kemur til með að ger-
ast í ár verður nákvæmlega það sama
og í fyrra. Eftir 10. maí situr Ágæti
eitt að markaðnum og getur selt á
því verði sem því sýnist og getur svo
einokað innflutninginn fyrstu vik-
una. Það er vitað mál að Landssam-
band kartöflubænda er í eilífri hags-
munagæslu fyrir Ágæti h/f en tals-
verð hætta er á hagsmunaárekstrum
þar sem formaðurinn er stór hlut-
hafi og sonur hans er stjórnarmaður
í Ágæti h/f. En þetta finnst ráðuneyt-
inu ágætt og vill ekki taka mark á
neinum öðrum.
Verðið kemur einnig til með að
hækka því ég veit að nú er Ágæti að
selja kartöflur til dreifingarstöðva á
65 krónur kílóið staögreitt meðan
almennt verð frá framleiöendum er
55 krónur," sagði Jens.
- En eru kartöflur, sem nú eru á
markaði, nógu góðar eða eru þær
ekki neytendum bjóðandi?
„Ég held að gullaugakartöflur, sem
til eru í landinu, séu orðnar mjög
tæpar, eða á seinasta snúningi. Það
er kominn fram það mikill kláði í
þeim að þær standast ekki gæðakröf-
ur. Premier er hins vegar í góðu lagi
ennþá. Hitt er svo annað mál að það
skiptir geysilega miklu máli þegar
komið er fram á þennan árstíma að
verslanir og allir sem geyma kartöfl-
ur vandi til þess. Ég er til dæmis viss
um að premierkartöflumar, sem nú
er verið að selja, þyldu geymslu fram
á ágúst við rétt skilyrði.“
- Er eitthvað hæft í því að kartöflu-
bændur séu að prófa hvaö markað-
urinn þoh lélegar kartöflur og þeir
eigi mun befri kartöflur sem birtast
í búðum um leið og kvartanir heyr-
ast?
„Þess eru sjálfsagt einhver dæmi
en kartöflubændur mega ekki stofna
til neins stríðs við neytendur. Þaö
hefur hvað eftir annað sýnt sig að
þegar upp koma deilur um gæði kart-
aflna þá dregur úr sölunni. Það fólk
sem þá hættir að borða kartöflur og
fer að borðahrísgrjón, spaghetti eða
pasta kemur kannski aldrei til okkar
aftur. Kartöflubændur verða að
hugsa um fólkið sem borðar af-
urðirnar en ekki bara um að losna
við lélegar kartöflur í skjóh innflutn-
ingsbanns," sagði Jens að lokum.
-Pá
Jens Gíslason kartöflubóndi telur að leyfa ætti innflutning á kartöflum upp úr 10. maí en það er um þremur vikum
fyrr en innflutningsnefnd hefur lagt til.
Neytendasamtökin:
Mikið kvartað undan kartöflum
- hljótum að efast um þessar tölur
„Miðað við gæði á þeim kartöflum
sem verið hafa til sölu undanfarið
hljótum við að efast um aö til séu 900
tonn af neysluhæfum kartöflum í
landinu," sagði Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamta-
kanna, í samtali við DV. „Það er
mikið kvartað undan kartöflum við
okkur og við hljótum að vona að þó
að nefndin hafi ekki heimilað inn-
flutning þá verði þetta til þess að
betur verði fylgst með gæðum.
Hitt vekur furðu að á sama tíma
og gæðum kartaflna fer hrakandi að
þá skuh einn stærsti dreifingaraðh-
inn hækka verð á sínum kartöflum.
Þarna á ég við Ágæti h/f,“ sagði Jó-
hannes. Ágæti hækkaði á dögunum
verð á kartöflum um 5 krónur kílóið
og kostar nú tveggja kílóa poki 265
krónur út úr búð í stað 243 króna
áður.
„Einnig hljótum við að mótmæla
harðlega þeim áformum stjórnvalda
að setja kvóta á kartöfluinnflutning
þannig að aðilar fái heimild th inn-
flutnings í samræmi við það magn
sem þeir hafa dreift af innlendri
vöru. Okkar krafa hlýtur að vera sú
að enginn kvóti verði settur heldur
megi þeir sem geta flutt inn gæða-
kartöflur á sem lægstu verði gert það
óáreittir. Öll áform um kvóta á inn-
flutning eru því að okkar mati alveg
út í hött,“ sagði Jóhannes.
-Pá
Efast um að
þetta magn sé til
- ætti að levfa innflutning mun fyrr
„Ég efast um að þetta magn, 900
tonn, sem innflutningsnefndin miðar
við, sé th í landinu enda mótmælti
ég þessu á fundi nefndarinnar," sagði
Kolbeinn Ágústsson, sölustjóri í Hag-
kaupi, en hann á jafnframt sæti í
innflutningsnefnd ráðuneytisins
sem ákveður hvenær kartöfluinn-
flutningur skuli leyfður. Nefndin
ákvað á fundi sínum fyrir helgina
að mæla með því við landbúnaöar-
ráðherra aö innflutningur á kartöfl-
um skuli leyfður 1. júni.
„Ég veit að okkar framleiðendur
verða búnir með sínar kartöflur um
10. maí og þá mun verðið hækka ef
að líkum lætur því þeir verða neydd-
ir til að skipta við Ágæti. Ég tel því
að leyfa hefði átt innílutning mun
fyrr en nefndin ákvað,“ sagði Kol-
beinn.
- Eru þær kartöflur sem nú eru á
markaðnum nógu góðar?
„Við höfum ekki fengið kvartanir
hér í Hagkaupi," sagði Kolbeinn.
„Hins vegar virðist sem einhveijir
framleiðendur séu að þreifa fyrir sér
með hve lélegar kartöflur markaður-
inn þoli. Þeir eiga betri kartöflur sem
þeir setja á markað um leið og kvart-
anir berast. Þetta hefur oft sést áð-
ur.“
Að sögn Kolbeins er þessa stundina
völ á kartöflum frá Hohandi sem eru
uppskera frá fyrra ári. Kartöflupp-
skeru í Miðjarðarhafslöndum hefur
seinkað eitthvað og því er verðið
frekar hátt á markaöi í Evrópu þessa
stundina. Talið er þó að það lækki
um leið og ný uppskera kemur á
markað og framboðið eykst. Undan-
farin ár hafa íslendingar einkum
flutt inn kartöflur frá Hollandi á vor-
in og svo nýja uppskeru frá Kýpur,
Grikklandi, ísrael og Spáni. -Pá
Mjólkurneysla á hvern íbúa 1988
200-
—r~" i i t—r
H Lítrará manrt áári
TJ C ra c k. 3 ? aO •o 2. ■o E c 'k. c i co
c il £ > (O c co □ •o > <55 TJ c co m
O)
Drekkum mest af mjólk
íslendingar drekka mest ahra
þjóða af mjólk, eða 192,3 lítra á mann
árið 1988, samkvæmt tölum frá al-
þjóðasambandi mjólkuriðnaðarins.
Neyslan minnkaði frá 1987 en þá
drukku íslendingar 215 lítra á mann.
í öðru sæti eru írar með 184 lítra á
mann, þá Finnar með 183 og Norð-
menn í ijórða sæti með 163,8 lítra á
mann. Rússar eru í sjöunda sæti með
133,7 lítra. Bandaríkjamenn drekka
97 lítra hver af mjólk og eru í 15. sæti.
Þijár neðstu þjóðimar eru Suður-
Afríka með 41,4 lítra á mann, Japan
með 39,6 lítra á mann og Búlgarar
reka lestina og drekka þjóða minnst
af ipjólk, eða 23 lítra á mann.
íslendingar eru í flmmta sæti hvað
varðar ostaneyslu en Frakkar, ítalir,
Vestur-Þjóðverjar og ísraelsmenn
borða meiri ost en íslendingar. Á
töflu yfir rjómaneyslu er ísland í
fimmta sæti en í fimmtánda sæti á
lista yfir smjörneyslu.
-Pá