Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Qupperneq 2
28 ©o ÚRVAL á næsta bkaðsölustað Úrval Peugeot 205 XR árg. ’89, ekinn 30.000, verð 680.000. M. Benz 230 TE árg. ’89, m/öllu, Mazda 323 Sedan árg. ’88, rauður. Ijósbl., verð 3.400.000, skipti á ódýr- Verð 650.000. ari. BMW 318i árg. '85, ekinn 83.000, verð 780.000. Ford Sierra 1,6 CLX árg. ’88, ekinn 15.000, verð 900.000. M. Benz 300 TE árg. ’87, ekinn 50.000, verð 2.950.000. Chevrolet Blazer m/öllu árg. ’84, ekinn 45.000, verð 1.780.000. Toyota Camry station árg. ’87, ek- inn 23.000, verð 895.000. Toyota Corolla XL árg. ’88, ekinn 39.000, verð 680.000. Mazda 626 2000 árg. '88, sjálfsk. Verð 1.100.000. MMC Pajero, langur, bens., árg. ’87, hvítur, ekinn 85.000. Verð 1.600.000. BÍLASALA Toyota Tercel árg. ’87, ekinn 50.000, verð 750.000. BÍLALEIGA Mazda 626 GLX station árg. ’89, ekinn 5.000, verð 1.350.000. BÍLDSHÖFÐA 5 • 112 REYKJAVÍK Ford Econoline Club Agon XLT árg. ’85, ekinn 90.000, verð 1.350.000. LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1990. Bflar Eins og svo oft i Merkurferðum var Krossá eina áin sem einhverja umhugsun þurfti til að fara yfir. Einn bill festist í landtöku i bakaleið - aðrir bílar runnu þetta með léttum leik. f bílaleik með Dönum á Isuzu Tíu bílar sendir til íslands til að láta menn, óvana akstri fjórhjóla- drifsbíla, hvað þá akstri á einhverju öðru en eggsléttu malbiki, djöflast á þeim um urð og grjót, snjó, sand og vatn. Síðan eru bílarnir fluttir heim aftur. Það er japanska bílafyrirtækið Isuzu sem svona fer að ráði sínu. Það fékk belgískt fyrirtæki til að standa fyrir kynningu á fjórhjóladrifnu bíl- unum frá Isuzu fyrir blaðamenn fjög- urra þjóðlanda: Belgíu, Hollands, Noregs og Danmerkur. Belgiska fyrirtækið, sem heitir því snjalla engilsaxneska nafni „Any Time“, sendi menn hingað á vetrar- mánuðum til að kanna hvernig að- stæður væru hérlendis til að efna til kynningar á þessum öflugu fjórhjóla- drifsbílum. Brotist var með útsend- ara Any Time um allar trissur og jafnvellnn í Þórsmörk, meðan snjór var sem mestur. Land og aðstæður stóðust væntingar Belgiumannanna og þeir sendu hingað tíu Isuzubíla: fjóra langa Isuzu Trooper, þrjá stutta, tvo skúffubíla (pickup) með vænu húsi (sætisbleðlum aftan við framsætin) og einn hálfkassabíl - það er að segja tvöfoldu húsi, fimm sæta, með stuttri skúffu aftan við hús. Einn á toppinn, annar á kaf Allir þessi bílar voru með dísilvél- um en sumir að minnsta kosti fátæk- legar búnir en bílamir eru almennt á íslenskum markaði. Til að mynda var ekki gólfteppi í hálfkassabílnum og hann var með bekk frammi í, en ekki stólum eins og tíðkast á okkar markaði. Hver hópur var hér í stífum bíla- leik í tvo og hálfan dag. Með í ferð- inni var íslenskur leiðsögumaður og menn frá Isuzuumboðum viðkom- andi lands hveiju sinni. Ekki var annað að sjá og heyra en allir fæm ánægðir af þessum fundi við tor- færubíla Isuzu og ekki var mikið um óhöpp: einum bíl var velt meðan á undirbúningi stóð, en hann skemmd- ist ekki og var notaður allan tímann eins og ekkert hefði í skorist. Öðmm bíl var (óvart) ekið í hyl austur-í Skógaá svo ekki sá nema á toppinn að sögn. Hann var dreginn upp úr, þurrkaður nokkra sólarhringa í þurrkklefa á sprautuverkstæði, síð- an skipt um olíu og haldið áfram að keyra. Hálfkassabíllinn stal senunni DV Bílar áttu þess kost að bregða á leik síöasta daginn, með síðasta hópnum. Þar voru frændur okkar Danir á ferð, hressir karlar og til í i slaginn þótt þeir væm búnir að fara víða um Reykjanes og Suðurland þegar við íslensku starfsfélagamir komum til skjalanna. Hér verður ekki farið út í neins konar bílaprófun á Isuzu bílunum. Ykkar einlægur skrifaði um Isuzu Trooper á liðnu hausti og lauk á þá lofsorði, enda eru þetta harðduglegir og fjölhæfir bílar og standa keppi- nautunum síst að baki. Það álit stað- festist í þessari ferð. Skúffubílamir buðu líka af sér góðan þokka og reyndust bæði mýkri og rásfastari á holóttum krókaleiðunum inn Mark- arfljótsaurana en undirritaður hafði búist við. Hins vegar verður að segja eins og er að það var hálfkassabíllinn Eftir að sullast inn í Þórsmörk og Bása þótti við hæfi að göslast svolítið fram og aftur um Landeyjasand og æja við fallegt útsýni til Vestmannaeyja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.