Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Side 5
LAUGARDAGUR 19. MAl 1990. 35 dv Bflar ökutæki og hönnuö meö umhverfis- vemd í huga. Eldsneytiseyðsla verð- ur að vera í lágmarki" Þetta var verkefnið sem Volvo gaf stúdentum í iðnaðarhönnun í Art Center of Design í háskólanum í Pasadena í Kaliforníu nýlega. Hugmyndin á bak viö þetta verk- efni var að fá stúdentana til að koma fram með sínar hugmyndir um það hvernig fólk muni ferðast og flytja vörur ,um næstu aldamót. Þá er reiknað með mun hægari og þéttari umferð auk þess sem búið verður að herða mjög mengunarkröfur og kröf- ur um minni eldsneytiseyðslu. Öryggi í fyrirrúmi Líkt og hjá Volvo í dag þá var ör- yggi ofarlega á lista hjá hönnuðunum ungu, enda sett fram krafa um slíkt auk þess sem ýmis önnur skilyrði varð að uppfylla við hönnun framtíð- arbílanna. Það tók stúdentana 34 fjórtán vikur að koma fram með hugmyndir sínar í teikningum og smíðuðum módel- um. Notagildi fram yfir útlitið Þrátt fyrir að sumar hugmyndanna væru mjög framúrstefnulegar og jafnvel óraunhæfar þá varð útkoman i heild mjög góð. Flestir stúdentanna sýndu skilning á því að það sem Volvo hafði lagt mesta áherslu á í verkefninu skilaði sér mjög vel - það er að notagildið kæmi á undan útlit- inu. Að sögn Hans Gustavsson, yfir- manns hönnunadeildar Volvo, sýnir þessi samkeppni nýja fleti á hönnun bíla og einnig að stúdentarnir voru tilbúnir að finna nýja möguleika í notagildi. Reyndir í vindgöngum Til aö ganga úr skugga um að hug- myndirnar væru í reynd raunhætar og ekki aðeins skemmtilegar tilraun- ir í hönnun, þá voru módelin, sem voru í mælikvarðanum 1:3,5 reynd í vindgöngum. Stúdentarnir voru verðlaunaðir fyrir að koma fram með hugmyndir að bílum sem jafnframt væru eyðslu- grannir. Besta útkoman var í tveggja sæta bíl þar sem ökumaður og far- þegi sneru bökum saman undir gler- hjálmi líkum þeim sem er á orrustu- þotum. Þessi bíll er talinn eyða að- eins 3,6 lítrum á hundraðið. Hönnun bílsins gekk út á það að hafa sem minnstan flöt á framenda bílsins og þar með sem minnsta loftmótstöðu. Reiknilíkaniö til að ná þessu gekk út á það að reikna saman loftmót- stöðuna, vélarafl, núningsmótstöðu, þyngd og kraftana sem þarf að yfir- stíga við loftmotstöðuna (coefficient of drag eða cd-gildi). Þeir stúdentanna sem héldu sig við hefðbundna hönnun og útlit náðu einnig eldsneytiseyðlsu sem var inn- an við hálfan lítra eldsneytis á hverja tíu kílómetra, jafnvel á ökutækjum sem ætluö voru til flutninga á stórum hlutum eða til dráttar. Stúdentarnir sem hlutu verðlaunin sex voru frá öllum heimshornum: Fyrir bíla með 1 + 1 farþega hlaut Ik Hwan Kim frá S-Kóreu fyrstu verðlaun. Hans lausn var bíll með cd-gildið 0,312 og eyslu sem nam 3,9 ltr/100 km. Fyrir bíl með sætum fyrir öku- mann + 3 farþega hlaut Luciano Bove frá Ítalíu fyrstu verðlaun. Cd- gildið var 0,348 og eyslan 4,5 ltr/100 km. Fyrir léttan pallbíl hlaut Peter Pet- erson frá Bandaríkjunum fyrstu verðlaun. Þrátt fyrir pallbílslag var cd-gildið aðeins 0,321 og eyðslan að- eins 4,7 ltr/100 km. Fyrir ökutæki til smáflutninga hlaut Jorge Soto frá Bandaríkjunum fyrstu verðalun. Þrátt fyrir frekar hátt cd-gildi, eða 0,405, þá var þetta ökutæki svo létt að eyðslan varö að- eins um 3,8 ltr/100 km. Fyrir frístundabíl hlaut Mark Walters, Bandaríkjunum, fyrstu verðlaun. Þetta ökutæki var með lægsta cd-gildið, eða 0,305 og eyðslan var 4,4 ltr/100 km. Fyrir ökutæki til að flytja hluti eins og brimbretti eða mótorhjól hlaut Othmar Wickenheiser frá V-Þýska- landi fyrstu verðlaun. Hér var cd- gildið um 0,358 og eyðslan 3,7 ltr/100 km.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.